Morgunblaðið - 31.12.1970, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGU'R 31. DESEMBER 1970
3
Stutt áramótasamtal við herra Sigurbjörn Einarsson biskup:
Margt í lifstúlkun ýmissa
nútímaskálda er í námunda
við kristin viðhorf
MORGUNBLAÐIÐ sneri sér
til herra Sigurbjörns Ein-
arssonar biskups og spurði
hann nokkurra spurninga
uni trúarlíf og starfsemi
kirkjunnar við þessi áramót.
Fyrst spurðum við hvort bisk
upnum virtist kirkjan eiga vax
andi ítök í fólki. Hann svaraði
svo:
— Hvort ítök kirkjunnar eru
vaxandi eða minnkandi er tor-
veit að meta. Engin athugun
liggur fyrir, hvorki frá fyrri
tið né síðustu árum, sem hægt
er að styðjast við og er því um
getur einar að ræða. Á þeim
rúmum þrjátiu árum, sem lið-
in eru síðan ég varð prestur,
hafa ekki orðið áberandi breyt-
ingar á stöðu kirkjunnar í þjóð
lífinu, hvorki til eða frá, né á
viðhorfi fólks til hennar, að því
er ég fæ séð. Tilfinning mín er
þó sú, að hin almenna afstaða
hafi fremur þokazt í jákvæð-
ara horf síðari árin en hið gagn
stæða. Og með vissu er hægt
að segja eitt: Það er hlutfalls-
lega fleira fólk virkt í kirkju-
legu starfi nú en áður var.
Næst spurðum við biskupinn
um trú og trúleysi í heimin-
um. Hann svaraði:
— Hér er líka erfitt að svara.
í öllum s.n. velferðarrikjum
virðist efnishyggja móta hið
daglega iif, hugsunin snýst um
Herra Sigurbjörn Einarsson, biskup.
Minnisblað lesenda
ytri kjör og velferð, hin innri
og andlegu málefni sæta lítilli
athygli fjöldans. 1 kommúnista
ríkjum er marxistísk efnis-
hyggja hin opinbera lífsskoðun,
sem ailt þjóðaruppeldi miðast
við. Sá timi er augljóslega lið-
inn í Evrópu, þegar kristin lífs-
viðhorf þóttu i orði kveðnu
meira eða minna sjálfsögð.
Þetta er i sjálfu sér ekki nei-
kvæð staðreynd. Menn eru ekki
kristnir nú á dögum fyrir siða
sakir og það er út af fyrir sig
gott. Hitt er annað mál, hvert
þann fjölda kann að bera í
andlegu tiiliti, sem verður við-
skila við kirkju og kristindóm.
Margs konar trúarlegur varn-
ingur er á boðstólum, fyrir utan
hinar pólitísku kenningar. En
um kirkjuna á líðandi stundu
er óhætt að fullyrða, að hún sýn
ir víðast ótviræð merki um
vakandi þátttöku í lífi samtim-
ans og lifandi viðbrögð. Þetta
gildir um allar kirkjudeildir og
hvort sem er austar eða vestar
í álfunni. Því má heldur ekki
gleyma, að i Asiu og Afríku
eru andlega sterkar kirkjur,
þótt þær séu hlutfallslega fá-
mennar.
Án þess að vilja neinu spá
um framtíðina vil ég minna á
tvennt: Margt i lífstúlkun ým-
issa skáilda nútimans er í ná-
munda við kristin viðhorf, ef vel
er að gætt, það er ekki óal-
gengt, að þau veki spurningar,
sem eiga engin svör nema krist
in. 1 annan stað er það greini-
legt, að marxistar eru farnir
að gefa trúarlegum viðhorfum,
sér í lagi kristnum, meiri gaum
■«n áður.
Þá spurðum við um hjálpar-
starf kirkjunnar. Því svaraði
biskupinn á þessa leið:
— Á liðnu ári hefur Hjálpar-
stofnun kirkjunnar safnað og
varið til hjálparstarfs 1,2 millj-
ónum kr. Mestallt þetta fé hef-
ur runnið til fólks erlendis,
sem orðið hefur fyrir fáheyrð-
um áföllum. En eins og kunn-
ugt er hefur Hjálparstofnunin
einnig á stefnuskrá sinni að-
stoð innanlands, þegar sérstök
óhöpp ber að höndum, og svo
þátttöku í uppbyggingu I þró-
unarlöndum.
Næst var spurt um kirkju-
sókn hér á landi. Og biskup
svaraði:
-— Engin statistík liggur fyr-
ir um þetta. Þær upplýsingar,
sem ieitað hefur verið eftir und-
anfarin tvö ár um kirkjusókn
og liggja fyrir á skýrslum ná
■ yfir of skamman tíma til þess
að unnt sé að draga ályktanir
af þeim enn sem komið er. Ég
hef áhuga á því að afla gagna
um þetta, sem geti gefið ein-
hverja bendingu um þróunina I
þessu efni, enda á það að vera
unnt með góðri liðveizlu presta
og meðhjálpara. En annað get
ég bent á út frá skýrslum: Þátt
taka i altarisgöngum hefur á
liðnum árum aukizt allveru-
lega.
Og að lokum spurðum við um
æskuna og kirkjuna. Biskup
sagði:
— Á þessu sviði hafa nokkrir
nýir starfsþættir komið til á
undanförnum árum, svo sem
sumarbústaðastarfsemi og ung
mennaskiptin, hvort tveggja já-
kvætt og ánægjulegt. Félags-
starfsemi ungs fólks í sumum
söfnuðum er athyglisverð, en
þyrfti að vera almennari og við
tækari. Það er gott að vinna
með ungu fólki og því fer
f jarri, að æskan sé upp og ofan
fráhverf því að ræða kristin
sannindi og stírnfa að kristin-
dómsmálum, ef rétt er að henni
farið.
MORGUNBLAÐIÐ hefur að
venju leitað upplýsinga, sem
handhægt getur verið fyrir
lesendur að grípa til um ára-
mótin.
Slysadeild Borgarspítalans er
opin aiian sólarhrimginn, simi
8J212.
Slökkvistöðin í Reykjavik, sími
11100 i Hafnarfirði sími 51100.
Lögregian í Reykjavik sími
11166, í Kópavogi sími 41200 og
í Hafnarfirði sími 50131.
Sjúkrabifreið i Reykjavík sími
11100, i Hafnarfirði simi 51336.
Læknavarzla. Læknastofusr sér
fræöinga og heimilislækna eru
lokaðar á gamlársdag og nýárs-
dag. Nætur- og helgidagavarzla
er í sima 21230.
Tannlæknavarzla. Að venju
gengst Tannlæknafélag íslands
íyrir neyðarvakt um hátíðarnar.
Vaktin er í Heilsuverndaxstöð
Reykjavíkur, sími 22411 og verð
ur hún opin á gamlársdag frá
kl. 14 til 16 og á nýársdag frá
kl. 17 til 18. Að öðru leyti er
vaktim opin eins og venjulega
alla laugardaga og sunnudaga frá
kl. 17 til 18.
Lyfjavarzla verður i AustuT-
bæjar apóteki og Holts Apóteki
gamlársdag frá kl. 09,00 til kl.
23,00 og á nýársdag frá kl. 10
til kl. 23. Næturvörður verður á
þeim tíma, sem apótekin emu lok
uð í Stórholti 1, simi 23245.
Messur sjá Dagbók.
Útvarp. Dagskráin er birt í
heild á öðrum stað í blaðimu.
Sjónvarp. Dagskráin er birt í
heild á öðrum stað í blaðimu.
Rafmagnsbilanir tilkynnist í
BÍma 18230.
Símabilanir tilkyninist í sima
05.
Hitaveitubilanir tilkyninist i
sima 25524.
Vatnsveitubiianir tilkynnist í
sima 35122.
Matvöruverzlanir loka kl. 12 á
hádegi á gamlársdag og eru lok
aðar á nýársdag. Margar hverj-
ar eru og lokaðar laugardaginn
2. janúar vegna vörutalningar.
Sölutumar loka á gamlársdag
kl. 16 og leyfilegt er að hafa þá
opna á nýársdag. Þeir söluturnar
sem tengdir eru biðskýlum SVR
verða opnir til kl. 17 á gamlárs-
dag.
Bensínafgreiðslur verða opnar
til kl. 15 á gamlársdag. Á nýárs
dag verða þær lokaðar.
Mjólkurbúðir verða opnar frá
kl. 08 til kl. 13 á gamlársdag, en
lokaðar á nýársdag.
Strætisvagnar Reykjavíkur
verða í förum á gamlársdag á
öllum leiðum samkvæmt venju-
Framhald á bls. 8
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu innheimtumanns rikissjóðs í Kópavogi verða bif-
reiðarnar Y- 880, Y-1305, Y-1307, Y- 1398, Y-1421, Y-1889,
Y-1967, Y-2059, Y-2663, Y-2772, G-3046 seldar á opinberu
uppboði sem haldið verður við Félagsheimili Kópavogs föstu-
daginn 8. janúar 1971, kl. 15.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Bæjarfógetinn i Kópavogi.
NÁTTÚRU-
SÖNGVARINN
PÉTUR
KRISTJÁNSSON
HLJÓMPLATAIM MARG-
UMTALAÐA MEÐ PÉTRI
KRISTJÁIMSSYIMI SÖNGVARA
NATTÚRU er nú komin til
LANDSINS OG FÆST I HELZTU
HLJÓMPLÖTUVERZLUNUM
LANDSINS.
LÖGHM A PLÖTUNNI ERU
„BLÓMIÐ SEM DÓ" OG
„VITSKERT VERÖLD".
TEXTAR OG LÖG SAMIÐ
AF EINARI VILBERG.
Laufaútgáfan óskar ykkur gieðilegs árs.
r