Morgunblaðið - 31.12.1970, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 31.12.1970, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1970 hafði aldrei fundizt Pat vera rétti maðurinn til að gera Kath- leen hamingjusama. Væri nú Kathleen komin að sömu niðurstöðu, þá var Paul annars vegar, að taka tillit til. Kathleen ýtti frá sér diskn- um, drakk það sem eftir var af svarta kaffinu. — Ég er að verða of sein, sagði hún og stóð upp. Hún stanzaði hjá Hönnu og snerti öxlina á henni. — Hafðu engar áhyggjur, þetta verður allt í lagi. Þetta er allt búið Hanna. Hanna gekk á eftir henni og ætlaði að spyrja hana ein- hvers frekar, en Kathleen sagði bara: Ég vil helzt ekki tala neitt um það núna. Og á leið- inni í skrifstofuna óskaði hún þess heitast að þurfa aldrei að tala um það. Hún prísaði sig sæla, að foreldrar hennar skyldu ekkert vita um trúlof- unina. Það væri hægt að láta líta út eins og það hefði aldrei neitt verið. Hanna mundi eng- um segja það nema Paul. Sjálf skyldi hún fara til Molly Beli —- hún átti það sannarlega skil- ið. Og svo skyldi hún segja Jim Haines og Sadie frá því. Það hafði ekkert verið í fram- komu Pats, sem gæti orð- ið henni nein huggun. Hún hugsaði með sér, að ef hún gæti verið eins og Hanna, sem mundi vera alveg sama, hvað Paui gerði eða léti ógert. Hanna mundi hætta við karlmenn vegna annarrar konu, eða særðs stolts eða heimskulegs rifrildis, en aldrei vegna beinnar lifsreglu. Mikið átti hún gott! En hún elskaði hann aldrei meira en nú, er hún gekk gegn- um skrifstofuna og svaraði ó- sjálfrátt kveðjum þeirra, sem hún hitti. Hún vonaði í eymd sinni, að hann væri ekki þarna. En hann var nú þarna og hafði komið snemma og græni vasinn á borðinu hennar var fullur af liljum, viðkvæmum hvítum klukkum sem ilmuðu af vorinu. Hún gekk inn eins og hún var vön og staðnæmdist við skrifborðið hans. Hún hafði ákafan hjartslátt og svitnaði í lófunum. Þetta hafði verið svo gaman á morgnana að leika stranga húsbóndann og auð- mjúka einkaritarann. — Góðan daginn hr. Bell. — Góðan dag, ungfrú Roberts. Þér lítið vel út í morgunmálið. — Þakka yður fyrir. Hér eru viðtölin fyrir daginn. — Ágætt. Látum okkur sjá. Kvöldverður með Kathleen. Það er þó vital, sem ég má ekki vanrækja, ungfrú Roberts. Svona töluðu þau venjulega saman og hlógu. Hvers vegna má ég ekki kyssa þig? Lestu ekki timarit eða ferð á bió? Hver æfður einkaritari kyssir GLEÐILEGT NÝÁR þökkum viðskiptin á árinu, sem er að að líða. Ytir áramótin verður opið sem hér segir Gamlársdagur: Opið til kl. 14.00. Nýjársdagur: Opið allan daginn. ~\^KSKUR/J húsbóndann klukkan níu stund- víslega. Nei, ekki í dag. Þetta var öðruvísi dagur og ekki góður. Hann stóð við gluggann þegar hún kom inn og sneri sér við, og augnaráðið var áhyggjufullt og kvíðið. Þetta augnaráð næst- um reið henni að fullu. — Kathleen! Hún sagði: — Þú bjóst ekki við mér. En liljumar eru indæl- ar, Pat. — Ég vissi ekki, hvað ég átti að halda . . . Það er gott, að þér skuli lika þær vel. Hann tók i hönd henni. Þú hefur ekkert sofið. — Nei, Pat. — Það gerði ég heldur ekki. Þetta var hreinasta viti. Jæja, við erum bæði búin að sofa á þessu — eða öllu heldur vera andvaka. Þér getur ekki verið alvara, Kathleen. Mér hefur ekki snúizt hugur, sagði hún. — En það hlýtur þér að hafa gert. Þú getur ekki staðið þarna og sagt mér, að þú elskir mig en getir ekki gifzt mér vegna þess, hvernig ég rek fyrirtækið mitt. Það er ekkert vit í slíku, elskan min. — Jú, mér finnst vera fullt vit í því. Hann sagði og var enn í vafa: — Þú verður að hlusta á mig. Og meðan hjarta hennar sagði, að auðvitað yrði hún að hlusta, að það væri ósanngjamt gagn- vart honum, ef hún geri það ekki, að hún yrði að gefa hon- um tækifæri til að standa fyrir máli sínu. En hanu sagði bara: — Þú hefur engar sannanir. Og eftir að hafa sagt þetta lagði hann allar sannanir, sem hún þurfti í hendumar á henni. Hún var þögul en horfði á hann sorgbitnum augum. Hann herti sig upp og varð æstur. — Hafðu ekki svona hátt, sagði hann, eins og hann hefði verið að atyrða krakka, — það getur heyrzt til okkar. — Sama er mér! Þér má ekki vera sama. Hún þagnaði og hugsaði sig um. — Ég get ekki verið hér áfram, Pat, það væri alveg óhugsandi . . . Ég get fundið einhverja i staðinn fyrir mig ■ einhverja, sem hæfir þér betur. — Já, en . . . Hann leit á hana skelídur, en sagði aðeins: — Er það þá sama sem, að ég eigi ekki að sjá þig framar? Hún sagði hóglega — Við get- FÓÐURVÖRULISTI M.R./ARAMÓT 1970—1971 • Kúafóðurblanda M.R., mjöl eða kögglar • Búkollu-kúafóðurblanda, mjöl • Dönsk kúafóðurblanda A, kögglar • Sauðfjárblanda, mjöl eða kögglar • Beitarblanda M.R. fyrir sauðfé • Hænsnamjöl M.R., varpmjöl • Hænsnamjöl B • Blandað hænsnakom • Kögglað varpfóður M.R. heilfóður • Byrjunarfóður lífkjúkl., mjöl • Vaxtarfóður Irfkjúkl., kögglar • Byrjunarfóður holdakjúkl., mjöl • Vaxtarfóður holdakjúkl., kögglar • Grisagyltufóður M.R., kögglar • Eldissvínafóður M.R., kögglar • Hestafóðurblanda M.R., mjöl eða kögglar • Maismjöl • Maiskurl • Heill mais • Byggmjöl • Bygg, heilt • Hveitikorn • Hafrar • Hveitiklíð • Sojamjöl • Hveitifóðurmjöl, nýmalað • Cocura steinefnablanda 4 og 5 • Kúafóðursalt • Saltsteinar • Kalkmjöl • Vitoskal • Dikalsiumfosfat • Fóðurlýsi FÓÐURKAUPENDUR ATHUGIÐ! M.R. hefur nú fjölbreyttasta úrval fóðurs á landinu. YFIR 30 FÓÐURTEGUNDIR Fjölbreytni þýðir, að M.R. getur uppfyllt fleiri og fjölbreyttari óskir fóðurkaupenda. Gerið öll fóðurkaup á einum stað, þar sem úrvalið er mest: hjá M.R., það er hagkvæmast. Óilum viðskiptavinum okkar þökkum við viðskiptin á liðnu ári og vonum að komandi ár verði bændum og öðrum landsmönnum sem gjöfulast. M.R. ÓSKAR ÖLLUM LANDS- MÖNNUM ÁRS OG FRIÐAR!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.