Morgunblaðið - 31.12.1970, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 31.12.1970, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMJMTUDAGUR 31. DBSEMBER 1970 23 Spádómar Jeane Dixon fyrir 1971 JEANE Dixon, bandaríska spákonan, hefur birt spá- dóma ársins 1971. Þeir birt- ast hér í lauslegri þýðingu og aliverulega styttir. „Ég skynja árið 1971 sem standa sameinuð — þjóðinni allri til mesta tjóns. Öryggislögreglan hefur komið í veg fyrir tilræði við Nixon og mun og gera það í tæka tíð í framtíðinni. Pompidou: ekki lengi við vöid. ár ljóssins. Með þvi á ég við að mörg þeirra vandamála, sem Bandaríkin og heim- urinn allur á við að glíma þokast nær því að leysast. Margir hafa haft uppi spumingar um hina árangurs lausu herferð bandarískra hermanna inn í stríðsfanga búðimar í grennd við Hanoi. Bersýnilega hef ég mælt fyrri viðvaranir mínar um veikan hlekk í vamarkerfi bandarískra sveita fyrir daufum eyrum, svo að ég hlýt að endurtaka þær upp- lýsingar um að ýmsar banda- rískar hernaðaráætlanir kom ast til andstæðinganna af háttsettum embættismönnum í Washington. Á því leikur enginn vafi, að fangamir voru færðir í skyndi úr búð- unum eftir að þessir embætt- ismenn höfðu komið upplýs- ingurn þar að lútandi rétta boðleið, á sama hátt og Sovét ríkin fengu pata af innrás- inni í Kambodiu eftir sömu leiðum. NIXON FORSETI Á árinu 1971 mun Nixon forseti gera að minnsta kosti fimm breytingar á starfsliði Hvíta hússins. Maður sá sem ber ábyrgð á þvi að frétzt hefur út í frá af mikilvæg- um öryggismálum í Nixon- stjórninni hefur hætt störf- um. Forsetinn mun einnig gera tvær breytingar á stjóminni. Forsetinn stendur and- spænis sundraðri þjóð við þessi áramót, fjandsamlegu þingi og reikulli utanrikis stefnu. En ég álít að enginn lifandi maður geti sameinað þjóðina nema þjóðin vinni að því sjálf . . . og af þeim sveiflum, sem ég finn, held ég að ákveðin öfl muni halda áfram að vinna að því að þjóðinni takist ekki að Nixon Bandarikjaforseti á við margan vanda að glíma. Efnahagsásland mun batna og atvinnuleysi minnka stór- lega. Ég fæ ekki betur séð en efnahagur Bandaríkjanna verði mjög traustur á kom- andi árum. Maria Callas mun á árinu verða kvödd til að stjórna einhverri mikilvægri tónlist- arhátið. Trúlega jnun hún verða fyrir lögsókn einhvem tíma á árinu. Dustin Hoffnian mun enn auka sinn hróður á árinu 1971, en ég sé, að hann verð- ur að sýna meiri aðgæzlu i fjármálum, vegna þess að stjarna hans mun fara að lækka þegar kemur fram á síðari hluta þessa áratugar. En engu að síður mun hans verða minnzt sem eins mesta kvikmyndaleikara sögunnar. Kórea og Víetnam. Ég finn, að stríð og blóðsúthell- ingar munu halda áfram énn um hríð. Ég finn að eitthvað illt er á seyði í Norður- Kóreu. Hættan liggur í leyni og mun brjótast fram á vori komandi, ef ekki verður gripið í taumana. 1 Vietnam virðist mér engra stórbreyt inga að vænta á árinu 1971 Meira stríð og meiri blóðsút hellingar, vegna þess að So vétríkin eru staðráðin í því að láta okkur ekki komast upp með að sleppa frá Asíu fyrr en 1975. Á árinu munu Sovétríkin slást í lið með Kínverjum i laod-bainidairíslkum áróðri siin- um. Mun verða mynduð fylk ing í þessu augnamiði með þátttöku kommúnista í Norð- ur-Víetnam, Laos, Kambódíu, Norður-Kóreu og Kína. En áætlun þeirra mun ekki heppnast, þar sem Bandarík- in eru vel á verði. Ég sé að Nguyen Kao Ky er undir heillastjörnu á árinu og fyr- ir hans áhrif mun þyrmt mörgum lífum bandarískra hermanna. Vísindi. Miklar framfar- ir verða í vísindum á árinu og rannsóknum hvers konar, og byggjast á þeim niður- stöðum sem háfa fengizt við könnun geimsins. Munu þess- ar rannsóknir verða til mikill ar gæfu fyrir mannkynið og leiða til þess að unnt verð- ur að lækna ýmsa sjúkdóma, sem hingað til hafa verið taldir ólæknandi. Flugvélarán verða ekki eins tíð og á árinu 1970, en þau munu þó verða framin öðru hverju. Mannrán verða einnig framin og hafa hinar verstu afleiðingar. Miðausturlönd. Ég sé styrj öld i Miðausturlöndum. Ég sé hvemig sovézkur áróður fær ist í aukana við skæruliða Palestínu . . . Sýrlendingar hafa uppi yfirgang við Jór- dani . . . Hussein konungur verður valdaminni og Jór- danía mun æskja frekari hjálpar frá Bandarikjamönn um. Sovétríkin eru staðráðin í að neita okkur um olíu frá Miðausturlöndum, en Banda rikjamenn kunna að hafa mótleik, sem gæti bjargað Jane Fonda: stefnir á vit hörmunga. málunum. Strax og Sovétrík- in hætta aðstoð við Palestínu skæruliða munu þeir leggja niður vopn. Anwar Sadat verður ekki lengi við völd. F-riðarviðræður á árinu 1971 verða ekki árangursríkar. Ég sé ekki neitt sérstakt landsvæði fyrir Palestínu- menn. SALT viðræðunum verður haldið áfram og munu Banda rikjamenn skipa nýja full- trúa til að taka þátt í þeim. Við munum ekki taka þátt í neinum fundum sem varða ör yggi Evrópu. Suður-Anieríka. Mér hefur jafnan fundizt og finnst það enn, að Fiedel Castro sé til- tölulega valdalítill á Kúbu. Moskva hefur töglin og hagldirnar þar. Ég finn að Salvador Allende verður ekki lengi við völd í Chile, varla lengur en árið út. Ekki hef ég trú á því að eldflauga- og kafbátastöðvum óvinanna verði komið upp í Chile í ná- inni framtíð. Ég finn að loft er lævi blandið i Chile. Óeu-ðir. Stúdentar munu áfram láta til sín taka, en þó verður ókyrrðin ekki eins mikli og verið hefur. Náttúruhamfarir. í síðari hluta ágústmánaðar verða miklar náttúruhamfarir, sem munu kosta eins mörg manns líf og valda jafn miklu tjóni og í Perú og Pakistan á þessu ári. Mér hefur ekki tekizt að finna enn í hvaða heimshluta þetta mun gerast. John V. Tunney, nýkjör- inn öldungadeildarmaður frá Kaliforníu og sonur hnefa- leikarans fræga, hefur til að bera töfrahæfileika stjórn- málamanns sem viðheld- ur vinsældum hans. Ágæt söguþekking hans kemur honum að notum i öldunga- deildinni og gerir honum kleift að setja fram raunhæf ar kenningar. Rannsóknir sem hann hefur gert munu bera góðan ávöxt i síðari hluta ágústmánaðar. Hann mun geta sér mjög góðan orð stír á opinberum vettvangi og verður sendiherra einn góð- an veðurdag. En hann verð- ur að vera varkár í ferðalög um og má aldrei taka neina áhættu. Pierre Trudeau mun vaxa að áhrifum og vinsældum í Kanada, sýnir festu þegar nauðsyn krefur og Kanada mun blómgast og dafna i ein- drægni undir hans stjórn. Georges Pompidou Frakk- landsforseti helzt ekki lengi við völd, ekki eins lengi og hann hefur hug á. Skuggi de Gaulles mun lengi hvíla yfir Frakklandi og yettvangi al- þjóðamála. Angela Davis, yfirlýstur kommúnisti og stuðningskona Svörtu pardusdýranna, sem ákærð hefur verið fyrir hlut deild í morði, mun ekki njóta gæfu á nýja árinu. Þótt hún sé bráðvel gefin sér hún ekki hinar illu hliðár kommúnism- ans. Að lokum hefnist henni fyrir þennan dómgreindar- skort. Seint og um síðir ger- ir hún sér grein fyrir því að kommúnisminn getur ekki sigrað í Bandarikjunum. Ramsey Clark, fyrrum dómsmálaráðherra Banda- ríkjanna, hverfur af vett- vangi stjórnmálanna, en heldur nokkrar ræður öðru hverju frammi fyrir öfga- fullu frjálslyndu fólki. Janet Fonda stefnir á vit hörmunganna. En ekki þarf það að gerast, því ef hún beitir þeim hæfileikum, sem guð hefur gefið henni i þágu annarra og í jákvæðum til- gaingi bíður hennar glæsileg framtíð. Rokksöngvarar. Ég nefni engin nöfn, en hörmung- ar bíða nokkurra vinsælla rokksöngvara á nýja árinu vegna eiturlyfjaneyzlu. Þeir Jeane Dixon verða ekki margir, en í hópi þeirra verða ágætir skemmti- kraftar. James Buckley, nýkjörinn öldungadeildarmaður íhalds- manna í New Yark-ríki, verð ur góður þingmaður og getur sér góðan orðstír. En hann mun mæta harðri andstöðu valdamikilla stjómmála- manna i ríkinu og mun það standa honum fyrir þrifum fyrst um sinn. Martha Mitchell, kunn sam- kvæmiskona í Washington, heldur áfram að segja það sem henni býr í brjósti. Um- mæli hennar fá mikið rúm í blöðunum, enda „kemur vizka úr munnum pólitískra viðvaninga." Elliott L. Rochardson, ný- skipaður ráðherra heilbrigð ismála, menntamála og vel- ferðarmála, kemst að raun um það að tilburðir til að vera frjálslyndur nægja ekki til að hemja það þunglama- lega skrifstofubákn sem hann hefir verið settur yfir. Ég finn það á mér að á þessu ári mun hann reyna að um- breyta ráðuneytinu og gott muni af því leiða. Ednnind S. Muskie, öld- ungadeildarmaður demó- krata frá Maine, fær gífur- legan frama á afmæli sinu á nýja árinu og r annað skipti í haust, en dreifðar fréttir verða honum óhagstæðar í nóvember. Ég hef enn ekki fengið boð um það að hann verði forsetaefni 1972, en vonast til að fá jákvæðari strauma síðar. Hins vegar hef ég fengið vissu fyrir þvi að Muskie hefði orðið ágæt- asti læknir ef hann hefði lagt það starf fvrir sig og fengið margháttaða viðurkenningu, enda hefur hann til að bera marga ágæta hæfileika. John Lindsay, borgar- stjóri i New York, mun eng- an viðvaningsbrag sýna á nýja árinu þótt drengjalegur sé í útliti. Hann fær margt að glima við á nýja árinu. Öskukallar gera honum enn eina glennu og upp kemst um hneyksli í húsnæðismálum og undirtónninn verður kyn- þáttalegur. Háværar kröfur um að eitthvað verði að gera til að hamla gegn eiturlyfja- neyzlu verða enn háværari. Muskie lilýtiir frania. Dustin Hoffnian eykur liróð- ur sinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.