Morgunblaðið - 31.12.1970, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 31.12.1970, Blaðsíða 18
18 MORÖUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAG-UR 31. DESEMBER 1970 r |Verkfalla. Væri ekki verðugt ! verkefni að ganga til móts i ihver við antnan, eins og bræð- ur á sama báti, og leita hald- betri ráða til þess að fyrir- byggja óhappadeilur? Ég er eikfci svo bamalegur, að ég viti ekki, að silíkri málaleitan verður umsvifalaust vísað á bug af ýmsum sjálfskipuðum, pólitískum fyrirsvarsmönn- um verkalýðs. En eiga slíkir að svara fyrir íslenzkan verkalýð? Samtímis leyfi ég mér að segja við forsvars- menn atvinnurekenda: Bjóðið þið verkamanninn velkominn til hlutdeildar í ykkar mikla striti og erfiðleikum. „Allir vetur enda taka“, og eins fór í vor. Samið var 19. júní til næsta árs, 1. septem- ber 1971. S veitarst j órna- kosningar Fylkt var liði til sveitar- stjómakosninga í lok maí. Ekki er örgrannt um, að vinmudeilur hafi beinlínis verið notaðar sem þáttur í pólitískri flokkabaráttu. Er það Ijótur leikur, en sökina bera þeir pólitísku broddar, sem enn ríkja í íslenzkri verkalýðsbaráttu, en fjara þó út í æ ríkari mælí sem slíkir. Þetta má ekki misskiljast svo, að enn séu ekki ágætir for- ingjar í verkalýðsbaráttu, enda þótt þeir séu í mikils- verðu pólitísku fyrirsvari. Enda ætti svo ætíð að vera. En það á ekki að rugla sam- an reitum. Ágætur Sjálfstæð- ismaður getur verið jafn mikilsverður fyrrisvarsmaður verkalýðs og ágætur „vinstri“ maður, eða hvað menn vilja nú kalla slíka. Um úrslit sveitarstjóma- kosninganna ætla ég aðeins að minna á, að Sjálfstæðis- flokkurinn var vissulega sig- urvegari í þeirri glímu. Eins og oft áður, vöktu úr- slitin í Reykjavík mikla at- hygli. Sigurinn liggur í hug- skoti fólksins, alúð þess og ræktarsemi við þær hugsjón- ir einstak'limgsframtaks og virðmgu fyrir persómuleika einstak'linganna, sem vegur höfuðborgarinnar er gmnd- vallaður á. í heild eru úrslit sveitar- stjómakosninganna merkust fyrir það, hversu mikil ítök og ráð Sjálfstæðismanna eru víða, að segja má um gjör- vallt landið. Mönnum er Ijóst, að traustum fótum stendur rammur flokkur sveitar- stjómafulltrúa Sjálfstæðis- flokksins. Ekki er þetta nýtt, en kosmimgaúrslitin em aug- ljósari staðfesting þess en áð- ur. Viðvörun ríkisstjórnar Eftir vaxandi verðbólgu að gjörðum kjarasamningum í vor hefir því verið haldið fram, að ríkisstjómin hefði átt að grípa í taumana. Allir virðast þó sammála um, að hennar sé ekki að grípa inn í kjaradeilur. Engu að síður kom hún á framfæri við deilu aðila þeirri hugmynd, að 1 auphækkunum yrði stillt í Lóf með hliðsjón af því, að ríkisstjórnin myndi þá stuðla að hækkun gengis íslenzku krónunnar, þar sem árferði og viðskiptakjör væru með bezta móti. Slíkt gaeti stuðlað að gagnverkandi jöfnuði í þjóðarbúskap, báðum aðilum vinnumarkaðarins til hags- bóta. Eigi var tilmælum ríkis- stjómarinnar sinnt. Um sinnuleysið vom báðir aðilar sammála. Eftir á vilja sumir flíka því, að ríkisstjóminni hafi ekki verið full alvara í þessari málaleitan. Það er rangt. Það var ekki hátt- ur Bjama, forsætisráðherra, Benediktssonar að hafa slík alvörumál í flimtingum. • • Orlaganóttin Inn í allt þetta mannlega tafl, til og frá, sem ég hefi gjört að umtalsefni, grípa ör- lögin óþyrmilega. Að morgni 10. júlí var for- sætisráðherra landsins allur, örendur með eiginkonu og bamungum dóttursyni í bmna á Þingvöllum. Mér ber enn að votta þjóð- inni þakkir fyrir djúpa og einlæga samúð, sem hún sýndi við þennan ægilega sorgaratburð. Framvinda mála Eins og að líkum lætur var úr vöndu að ráða innan rík- isistjómar og fyrir Sjálfstæð- ismenn sérstaklega. Sjálfstæðismenn vildu, að efnt yrði til alþingiskosninga, svo mikið fannst þeim að við hefði bmgðið í einu og öllu. Sjálfstæðisflokkurinn, eða þingflokkur hans og mið- stjóm, var þar um á einu máli að lokum, þótt hinu sé ekki að leyna, að sumir töldu haustkosningar álitamál. Eigi varð efnt til þingrotfs og kosn- inga, nema báðir stjómar- flokkar væm um það sam- mála, en því var ekki að heilsa. Fór því sem raun ber vitni og ekki þarf um að fjöl- yrða. Varð því að taka til hend- inni, undirbúa þinghald og kosningar vorið 1971. Það féll í minn hlut að mynda formlega nýtt ráðu- neyti, áður en þing kæmi saman. Þetta var í raun og vem furmleg stjómskipuleg athöfn utan þess að nýr ráð- herra var kvaddur til starfa. Það var sögulegt-að því leyti, að hinn nýi dóms- og kirkju- málaráðherra var fyrsta kon- an, sem settiist í ráðherrastól á íslandi, frú Auður Auðuns. Um val ráðherrans var þing- flokkur Sjálfstæðismanna einhuga. Áður en hér var komið sögu hafði ríkisstjóm unnið að sameiginlegri íhugun víxl- verkandi áhrifa kauphækk- ana og verðlags til vaxandi verðbólgu. Sem kunnugt er var haft um það samráð við fulltrúa verðalýðs og vinnu- veitenda. Verður það ekki rakið nú, en upp var staðið án samkomulags, sem reynd- ar gat ekki orðið að formi, en hefði getað orðið efnis- lega. Tók þá ríkis&tjómin sínar ákvarðanir um ráðstaf- anir til verðstöðvunar og at- vinnuöryggis, sem nú liggja fyrir sem lög frá Alþingi. Hafði ég tjáð þinginu, þegar það kom saman, að ríkis- stjómin myndi upp á eins- dæmi sitt leggja fram tillögur til úrbóta með stuðnings- flokkum sínum, ef aðrir vildu ekki slást í förina. Mér finnst óþarft, að ég tjái mig svo nokkru nemi hér um deilumál verðstöðvunar, hver hafi haft rétt fyrir sér eða rangt. Við höfum gjört það á Alþingi og þjóðin á þess kost að dæma. En árétta má eftirfarandi: Grundvöllur kjarasamninga í vor var, að laun þau, sem um var samið, mættu halda kaupmætti sínum samkvæmt umsaminni verðtryggingu, þ.e. vísitöluuppbót. Launin, sem um var samið halda fylli- lega kaupmætt: sínum, og meira til. Kaupmáttur launa hefir ekki í annan tíma ver- ið meiri en nú samkvæmt niðurstöðum Kjararannsókn- amefndar. Þetta eru svo einfaldar staðreyndir, að sérhver mætti skilja. En svo einfaldar sem þær em og jákvæðar, munu þær því miður vera mistúlk- aðar af sumra hálfu. Þj óðarf r am- leiðsla og tekjur Aðrar veigamiklar stað- reyndir efnahagsmála, sem vert er að minnast á, eru þessar: Lítum á þjóðarframleiðslu og þjóðartekjur. Aukning frá fyrra ári í hlutfallstölum er þessi: 1969. Af þessari aukningu út- flutnings stafar um þriðjung- ur af útflutningi á áli, sem er ný útflutningsframleiðsla á íslandi. Ekki er talið ólíklegt, að greiðslujöfnuður í viðskipt- um við útlönd verði hagstæð- ur á þessu ári um 1.500 millj- ónir króna, en íslendingar hafa aldrei haft hagstæðari jöfnuð á neinu ári. Alþingi að verki Þing kom saman að venju fyrri hluta október. Störf þess fram til þessa hafa ein- kennzt af löggjöf um ráðstöf- un til verðstöðvunar og at- vinnuöryggis og afgreiðslu fjárlaga fyrir 1971. Hvort tveggja þessara stór- mála hafa hlotið farsæla af- greiðslu. Ýmis önnur meiri- háttar mál eru í meðförum og sum þegar afgreidd. Mér eru efst í huga orkumálin, en lög um virkjun Lagarfoss voru afgreidd fyrir jól og lög um virkjun Hrauneyjarfoss og Sigöldu eru í seinni deild og verða afgreidd. Vitaskuld eru mörg önnur gagnmerk mál til meðferðar, en tæpast verkefni að rekja nú. Fram- undan bíða stór viðfangsefni, þar sem eru veigamikil ný- mæli og breytingar á skatta- lögum. Alþingi er seinvirkt, það verður að játast. En öllu máli skiptir, að þegar það lýk ur störfum, verði með sanni sagt, að vel hafi verið unnið. Vissulega má breyta starfs- háttum Alþingis til bóta, bæði þingsköpum og stjórn- 1. Þjóðarframleiðsla 2. Þjóðartekjur*) 3. Meðalmannfjöldi ársins 4. Þjóðarframleiðsla á mann 5. Þjóðartekjur á mann Bráðab. Áætl- tölur un 1966 1967 1968 1969 1970 8.8 •t-2.1 -f-6.0 2.0 6.6 8.5 -^7.0 -f-7.1 3.0 11.5 1.7 1.6 1.3 0.8 1.5 7.0 -1-3.6 -f-7.2 1.2 5.0 6.7 -f-8.5 -f-8.3 2.2 9.9 ir, þá bið ég menn að stilla skap 'sitt og spyrja sjálfa sig: Frá hverju var horfið? Launakerfi ríkisins var hrun- ið til grunna. Það hefir verið byggt upp að nýju. Enginn hefir sagt, að hið nýja kerfi standi ekki til bóta, en þess var ekki lengur kostur um hina gömlu flík. Hagnýting auðlindanna Eigi verður við þessi ára- mót gengið á snið við þá mik- ilvægu staðreynd að nýir áfangar eru framundan í nýt- ingu auðlinda landsins. Viðurkenning annarra þjóða á réttindum þessarar eyþjóðar til landgrunnsins og auðæfa þess er sennilega r dkilvægust, en jafnhliða fer hagnýting auðlinda okkar á jarðvarma og fallvötnum. Þar á að fara saman áræði til at- orku og virðing fyrir landinu. Um það er enginn efi. Það er fullkominn mis- skilningur, sem stundum heyrist, að við Islendingar þurfum að sækja undir sam- þykki Breta eða nokkurs ann- ars um útfærslu landhelgi okkar. Hitt er rétt, að við höf um í samningi við Breta sagt, að við séum ætíð reiðubúnir að leggja undir alþjóðadóm- stól hugsanlega deilu um réttindi okkar. Þetta er sómi lítillar þjóðar, en í því felst mikilvæg skuldbinding stór- þjóðar í skiptum við hina minnstu þjóð, og slíkri skuld-*- bindingu neitaði Stóra-Bret- land áður að hlíta í landhelg- isdeilu 1952. Það er ástæða til þess að aðvara þá stjómmála- menn hér á landi, sem annað hvort hafa ekki skilið mikil- vægi samninga okkar við Breta um landhelgismálin 1961 eða vilja ekki skilja það af pólitískri grunnfærni. Til Sjálfstæðis- manna *) Að meðtöldum áhrifum breyttra viðskiptakjara. Fall þjóðartekna árin 1967 og 1968 hefur breytzt í mikla aukningu 1969 og 1970. Bæði árin til samams er áætlað að framleiðsla aukiist um 8.7% og tekjur um 14.8%. Sé litið yfir lengri tíma, eða síðastliðinn áratug, hefur þjóðarframleiðslan aukizt um 54%, eða vaxið um 4.4% á ári að jafnaði. Áætlað er, að framleiðslan í sjávarútvegi hafi aukizt að magni til um 8% árið 1970. Útflutningsverð hefur farið hækkandi á öllum teg. sjávarafurða eða hækkað um 22%. Miðað við metórið 1966 er framleiðslumagnið um 21% minna en þá, en um 10% vantar upp á að gjaldeyris- verðmæti ársins 1970 nái því, sem það var árið 1966. Samkvæmt bráðabirgðatölum jókst iðnaðarframleiðslan, fyTÍr utam ál og kísilgúr, um 8%% árið 1969 og áætluð aukning 1970 er 10%. Áætlað útflutmingsverðmæti áls og kísilgúrs (fob) er 1.1610 millj- ónir eða 414% þjóðarfram- leiðslunmar. Fyrstu níu mánuði ársins 1970 var útflutningur um 50% meiri en á sama tímabili skipunarákvæðum. Hvort- tveggja hefir verið og er til athugunar. Mikilvægar sættir Ég balla mikilvægar sættir þá kjarasamninga opinberra starfsm anna við ríkið, eða fjármálaráðherra fyrir þess hönd, sem nú hafa verið gjörðir. Það er mjög merkur viðburður að samkomulag hefur tekizt um gjörsamlega nýtt launakerfi ríkisstarfs- manna, byggt á kerfisbundnu starfsmati. Ég þykist þess fullviss, að báðir aðilar muni fá mikla' skömm í hattinn úr ýmsum áttum. Það má því ekki minna vera en ein rödd heyr- ist til þakkar þeim mönnum, fulltrúum B.S.R.B. og fulltrú- um ríkisstjórnar, fjármála- ráðherra og hans liði. Ég er sannfræður um, að hér hefir verið unnið á báða bóga af kostgæfni, góðum vilja og geysilegum dugnaði. Þó að margir séu sárir og vondir, aðrir að vísu ánægð- Að lokum vil ég segja nokkur orð til Sjálfstæðis- manna. Þeir hafa átt því láni að fagna að hlíta forystu mikil- hæfuistu manna. Frá stofnun flokksins, fyrir rúmum fjöru- tíu árum, eru þeir þrír for- ingjamir: Jón Þorláksson, Ólafur Thors og Bjami Bene- diktsson. Ég hafði vissulega ætlað, að við Bjami gætum runnið okkar skeið til enda saman. En örlögin spyrja hvorki þig eða mig. Yið höldum Landsfund að liðnum páskum, á byrjandi sumri, væntanlega hefst hann sumardaginn fyrsta, þann 22. apríl. Munum við þá fylkja liði til þeirrar kosningabar- áttu, sem framundan er. Látum ekki fánann falla. Heild flokks og þjóðar skal metin í verðleika hverrar persónu. Það er hollt vegar- nesti að vinna þrotlaust í hreinskilni og án sérhlífni fyrir því, sem hver veit bezt. Ég óska íslendingum öllum árs og friðar á komandi ári og Sjálfstæðismönnum still- ingar og styrktar eftir hið þyngsta áfail.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.