Morgunblaðið - 06.01.1971, Síða 4

Morgunblaðið - 06.01.1971, Síða 4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JANUAR 1971 0 Bókafréttir „Heiðraði Velvakandi! Viltu vera svo vinsamlegur að birta eftirfarandi: Meðan hið svonefnda jóla- bókaflóð stendur yfir og ^ftir að því lýkur birta blöðin oft fréttir af söluhæstu bókunum hverju sinni. Þessar fréttir vekja jafnan talsverða athygli og eru vel þegnar. Það verður ■25555 1^*^14444 vmno/fí BILALEIGÁ HVERFISGÖTU 103 VW Sendfarðabifretð-YW 5 marnia -VW svefnvagn VW 9 manna - Landrover 7 manna LITLA BÍLALEIGAN Bergstaðastræti 13 Sími 14970 Eftir lokun 81748 eða 14970. Langtum minni rafmagns- eyðsla og betri upphitun með nnHx RAFMAGNSÞILOFNUM Hinir nýju ADAX rafmagns- þilofnar gera yður mögulegt að hita hús yðar upp með rafmagni á ódýran og þægi- legan hátt. Jafnari upphitun fáið þér vegná þess að ADAX ofnarnir eru með tvöföldum hitastitli (termostat) er virkar á öll stillingarþrepin. Auk þessa eru ADAX ofnarnir með sér- stökum hitastilli er lætur ofn- inn ganga á iágum, jöfnum hita, sem fyrirbyggir trekk frá gluggum. Leitið nánari upplýsinga um þessa úrvals norsku ofna. 3 ÁRA ÁBYRGÐ EINAR FARESTVEIT & CO HF Bergstaðastræti 10 Símar: 16995 — 21565 ekki af okkur skafið, að við erum mikil bókaþjóð, kaupum, lesum, skrifum og tölum mikið um bækur. Það vekur nokkra furðu, að i þessum fréttum er ekki einu orði minnzt á stærsta flokkinn í bókaútgáfunni ár hvert, og á ég þar við bama- og unglinga- bækur. Er það rétt, að engin barna- og unglingabók komist á lista yfir söluhæstu bækurnar? Eða er hér um hlutdrægan frétta- flutning að ræða, ekki þyki taka að telja barna- og ungl- ingabækur með? Gaman væri að fá svar við þessum spurn- ingum. Ég treysti þér, Velvakandi góður, til að ljá réttum aðilum rúm í dálkum þínum, til að gefa viðhlítandi skýringu. Kennari Skal gert, kennari góður, en mér skilst, að barnabækumar gleymist í þessari úttekt. 0 Vegamál ,A»»nar vegfarandi“ skrifar: „Ég vona, að þú sjáir þér fært að birta bréf þetta, en 21. nóv. 1970 sendi ég þér fá- einar línur um svipað efni, sem ekki féllu i þá náð að komast í þína dálka. „Vegfarandi“ skrifar þér og fær birtan pistil um umræðu þátt þann, er fram fór í sjón- varpinu daginn fyrir Þoriáks- messu. Ég sá þann þátt og fannst mér vegamálastjóri vera þar, vægt að orði komizt, ókurteis í sinni framkomu, eins og hann tók frammí fyrir Sverri hvað eftir annað. Jæja, Veg- farandi góður, ég æfja mér ekki að fara út í mikil skrif við þig, en þú talar um fallegt ævintýri og í tilefni þess lang- ar mig til að fræðast smáveg- is af þér um íslenzk vegamál og spyrja þig nokkurra spum- inga í vinsemd. Fyrsta spum- ing er: Ert þú ánægður með steypta vegir.n til Keflavfkur, svo hrufóttur sem hann er og hvernig bílarnir skjálfa á veg- inum? Önnur spurning: Ert þú ánægður með stökkpallinn, sem er á fyrri brúnni, er maður ekur yfir Elliðaárnar austur yfir? Þriðja spuming: Varst þú ánægður með, hvernig fór með Eldvatnabrúna sem hrundi eftir tæplega eins árs notkun vegna þess að burðar- stólpi undir miðri brúnni var byggður á hraunkletti, sem ekki þoldi þunga brúarinnar og flóðsins, sem í ána kom? Fjórða spurning: Heldur þú, þú að núverandi Eldvatnabrú eigi eftir að standa lengi enn, eins og áin er búin að grafa undan klettinum, sem annar endi brúarinnar stendur á? Fimmta spurning: Hvernig þyk ir þér nyrðri akrein Miklubraut ar fyrir austan Shell- bensínafgreiðsluna? Sért þú ánægður með allt þetta og gang þann sem verið hefur á framkvæmdum fyrir aust- Verzlunarmannafélag Reykjavíkur Framboðsfrestur Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu um kjör stjórnar trúnaðarmannaráðs og endurskoðanda í Verzl- unarmannafélagi Reykjavíkur. Listum eða tillögum skal skilað í skrifstofu V.R. Hagamel 4 eigi síðar en kl. 12 á hádegi laugardaginn 9. janúar n.k. KJÖRSTJÓRNIN. FY RIRTÆKI Góð veitingastofa í Reykjavík í fullum gangi. Góð og nýleg tæki. Nýlegt húsnæði. Lítil snyrtivöruverzlun vel staðsett í Austurborginni. Aðgengilegir greiðsluski'.málar. Lítil prentsmiðja með Heidelberg vél 28x38 cm. Nýlegt letur og leturborð. Meðeigandi óskast að góðu innflutnings- og verktakafyrir- tæki í fullum gangi. Þyrfti að hafa ca. 600 þús. kr. í fjár- magn. Meðeigandi gæti fengið starf við fyrirtækið en þó er það ekki skilyrði. Fyrirtækið hefur mjög góð viðskipta- sambönd og erlend umboð. Hef kaupendur og seljendur að verðbréfum Frekari uppiýsingar veitir (ekki í síma). RAGNAR TÓMASSON HDL., Austurstræti 17 3. hæð (Sitli & Valdi). Stmi 2 66 00. > 99sr'" r t ^ v .:rV "" * V an Elliðaár og verð á þeim framkvæmdum, ert þú nægju- samur maður, og væri mér þá næst að halda, að þú værir einn af verktökunum, en svo illt vil ég þér ekki. Ég, sem ferðast mikið um landið, vildi, að sem flestir kynntu sér þau atriði, sem ég hef hér nefnt og kynntu sér þau af eigin raun, því að þá er ég viss um, að- augu fplks opnuðust fyrir þeim ósköpum, sem við erum að dásama með stórfréttum við opnun hvers smá-kafla út af fyrir sig. Nei, Vegfárandi góður! Við erum í dag hlutfallslega á svipuðu menningarstigi hvað viðkem- ur tækni þeirri, sem við notum, og notuð er nú erlendis við vegagerð, og við vorum árið 1939 eða rétt áður en erlent herlið kom til landsins og færði okkur þá menningu, sem við erum á nú í vegagerð. Veg farandi góður, opnaðu augu þín og réttu fram það sem þú getur til málanna lagt til að Sverrir Runólfsson fái að sýna og sanna, að hann geti lagt hér betri og varanlegri vegi ódýrari og á fljótlegri hátt en nú er gert, og gaman væri að þú Vegfarandi, reiknaðir út, hversu mörg ár og hversu mik- ill kostnaður færi í veginn, þótt ekki væri nema til Akur- eyrar með þeirri aðferð sem nú er höfð. Með beztu kveðju. Annar vegfarandi." £ Sænskur sjónvarps- áróður Austan úr sveitum skrifar Þ.S.: „Heiðraði Velvakandi! Þar sem þú hefur birt grein- ar, bæði sanngjarnar og ósann- gjarnar í dálkum þínum, langar mig að biðja þig að birta þess- ar línur. Það er 7.des. og kl. að verða 24. Ég var að horfa á myndina frá N-Vietmam í sjónvarpinu. Mig langar að spyrja, var þessi mynd sýnd í áróðurs- skyni ? Ég tek fram, að ef kommún- ismi væri framkvæmdur í heim- inum, eins o g upphafsmenn hans ætluðust til, þá væri ég sennilega kommi. En eftir inn- rás Rússa í Tékkóslóvakíu getur engum dulizt, hvað þeir ætla sér, (þ.e. heimsyfirráð). Auk -þess var þessi mynd „biöffuð", sömu staðirnir sýnd- ir aftur og aftur. Fólkið, sem kemur fram í þessari mynd var allt glatt og andlitin ekki rist rúnum sorga og þjáninga, sem hljóta að vera merki stríðs eins og þarna var lýst. Aðeins einn maður var sýndur ein- fættur og gekk á hækjum með slíkum hraða, að helzt hefði mátt haida, að þarna færi Þórbergur Þórðarson rithöf- höfundur, ef ekki hefði verið hækjurnar. Þeir, sem sáu Moby Dick, vita, að heill maður getur þótzt vera á gervi fæti. Öll hin andlitin, nema sá aldraði úr stjórninni, voru slétt og áferðarfalleg. Ekkert ör, ekkert sár né umbúðir. Ég get því ekki séð annað en þetta sé hrein áróðursmynd. Hér á landi er amerískur her til varn- ar. Sem getur fer, ber víst heldur lítið á .honum. Ef hann fer, þá koma Rússar. Já, þegar herinn kom, þá varð hér allt vitlaust út af ástandi svoköll- uðu. Já, víst var það afleitt, og því mæli ég enga bót, en langar að benda ykkur á eitt, Þegar þýzka verkafólkið var flutt inn, var það aðallega stúlkur. Hvað gerðist þá? Jú, flestir karlmenn fóru í sitt bezta púss, og i sumum tilvik- um voru þær þýzku komnar í eina sæng með bæði giftum og ógiftum út um sveitir lands- ins, áður en vika var liðin. Þá var ekki talað um ástand. Vona, að sjónvarpið sjái sér fært að athuga myndir vel, áð ur en þær eru birtar. Að endi-ngu þetta, ég vit þakka sjónvarpinu fyrir ís- lenzku þættina og auðvitað margt fleira. En enga pólitík i sjónvarpi. Ég þakka svo fyrir, ef þú getur birt þetta. Þ.S.. Fleiri bréf hafa Velvakanda borizt um þessa sænsku áróð- ursmynd, og væri fróðlegt að fá fram, hvers vegna hún var sýnd. — Gildir það raunar um fleiri myndir frá Svíþjóð. Varla er það af því, að þær þyki svo skemmtilegar! íbúð óskost til kaups 100—140 ferm. íbúðarhæð í Hlíðunum eða Háaleitishverfi óskast til kaups. Mjög há útborgun í boði. Allar upplýsingar veitir EIGNAMIÐLUNIN Vonarstrœti 12 Símar 11928 24534. 3ja-4ra herbergja íbúð óskast Höfum kaupanda að 3ja—4ra herbergja íbúð. Há útborgun. íbúðin þarf ekki að vera laus fyrr en í sumar. ÍBÚÐA- SALAN GÍSLI ÓLAFSS. INGÓLFSSTRÆTI GEGNT GAMLA BÍÓl SÍMI 12189. IIEIMASÍMAR 83974. ARNAR SIGURÐSS. 36S49.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.