Morgunblaðið - 06.01.1971, Side 20

Morgunblaðið - 06.01.1971, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1971 Uppdráttur af Norðursjó, sem sýnir hvernig: þjóðirnar við Norð ursjóinn hafa skipt hafsbotninum inilli sín, allt að 150 sjómilum undan ströndum landa sinna. - Landhelgismál Framh. af bls. 16 þar segir m.a.: „Þingið verður að álíta, að hið eina ráð til að verja landið því tjóni, sem yfir vofir 1 þessu efni, sé það, að hinum ótlendu fiskimönnum verði haldið til að hegða sér eftir lög- um þeim, sem gilda um þetta efni, — verði stranglega bann- að að fiska nœr landi en 4 míl- ur." 1 þessu sambandi má vitna til þess, að enda þðtt Parísarhá- skóli, „Sorbonne", taki ekki af- stöðu til skoðana, sem þar eru settar fram í doktorsritgerðum, þá hefði slíkt verk, sem doktors- ritgerð mín um iandhelgi Islands aldrei hlotið „ágætiseinkunn", ef það teldist einhver fjarstæða, sem þar er sett fram. Einn fremsti lögfræðingur is- lenzkur, Einar heitinn Arnórs- son fór á sinum tíma viðurkenn ingarorðum um doktorsritgerð ina í formálsorðum fyrir íslenzkri útgáfu verksins; enginn ber brigður á dómgreind hans. Og þannig mætti nefna fleiri já- kvæða dóma um verkið, m.a. orð hins heimsþekkta þjóðréttar- fræðings, próf. Gilbert Gidel. f sjálfu sér ætti að vera óþarft að benda á þetta. Mér er að vísu skylt að geta þess, að skömmu eftir útkomu doktorsritgerðar minnar tók pró- fessor Ármann Snævarr mig tali á götu og sagðist hafa rennt aug- um yfir ritgerð mína, og væri hann ekki sammála þeim skoð- unum, sem þar væru settar fram. Bað ég hann þá aðeins að lesa verkið betur. Fyrir nokkru rifj- uðum við þetta atvik upp okkar á milli, og viðurkenndi prófessor- inn þá að ef til vill hefði holl- usta hans við þáverandi ríkis- stjóm haft einhver ðafvituð á- hrif á skoðanir hans, en hann kvaðst alltaf vilja vera „loyal" hverri ríkisstjórn. Enda er það álit mitt að ritgerð mín hefði á þeim tíma, sem hún var skrifuð ekki fengizt sairiþykkt til doktors varnar við Háskóla íslands, hún var of djörf til þess. Á árinu 1954 lagði Hannibal Valdimarsson fyrir Alþingi frum varp til laga um 50 sjómílna land helgi við Island, unnum við sam- an að samningu frumvarpsins og var þar byggt á þeim niðurstöð- um, sem settar voru fram i dokt- orsritgerðinni. 1 frumvarpinu var gert ráð fyrir þvi, að í fyrstu skyldi aðeins höfð lögsaga með 12 sjómílna belti utan þáverandi friðunarlínu eða alls með 16 sjó- milum, til þess að gefa þeim þjóð um, sem þættust eiga einhvern rétt í fornri landhelgi Islands, nokkurn aðlögunartíma, 'SLÆM MÁLSMEÐFERÐ Það er óheppileg málsmeðferð, að vera sí og æ að smáauka kröfur sínar i máli og koma þannig af stað nýjum og nýjum ágreiningi og illdeilum, í stað þess að gera í upphafi máls ýtrustu kröfur og geta þá held- ur slakað á í bili, en ein- mitt þannig var sjálfstæðis- baráttu okkar hagað og þann- ig hefðum við átt að reka land- helgismálið. Ljóst er að bæði í þjóðarétti og einkamálarétti eru skyldur lögmanna hinar sömu, það er að gæta hagsmuna umbjóðanda sins til hins ýtrasta. Við gætum i þessu sambandi hugsað okkur, að lögmaður hefði fengið miskabótamál til meðferð ar og ákveðið að gera aðeins þær kröfur, sem hann teldi líklegt að fengjust dæmdar og niður- staða Hæstaréttar yrði sú að fallizt yrði á kröfurnar, þar sem þær teldust vera innan þess, sem teljast mætti sanngjamt og eðUlegt. Myndi sá lögmaður ekki hafa brugðizt umbjóðanda sínum með of vægri kröfugerð og naga sig í handarbökin á eft ir? En þannig verður manni hugsað, þegar maður les þessi orð ambassadorsins fyrrv.: „Má óhikað fullyrða að núgildandi reglur islenzkar á þessu sviði ganga eins langt og nokkur möguleiki var fyrir, þegar þær voru settar og stendur enn við það.“ Ja, hvilíkur uppgjafartónn; skyldi þetta vera skoðun ís- lenzku ríkisstjórnarinnar? Hvað an kemur fyrirlesararxum þessi vizka? Hvernig getur nokkur lögfróður maður, hvað þá þjóð- réttarfræðingur, fullyrt slíkt, þegar á það hefur alls ekki reynt, að reglur, sem gengju lengra, fengju ekki staðizt. Má með sama rétti fullyrða, að við hefðum jafnt unnið þorskastrið- ið, þó landhelgin hefði verib færð út í 50 sjómílur, en ekki aðeins 12 sjómilur. VAR SÉRFRÆÐINGNUM S.TÁLFRÁTT? Stingur þessi fullyrðing amb- assadorsins fyrrv. í stúf við það, sem þó segir I bæklingnum „The Icelandic fishery limits," er ut- anríkisráðuneytið gaf út i apríl 1959, þegar þorskastríðið stóð sem hæst, en þar segir á bls. 9, i lauslegri þýðingu: Ætti réttur íslondinga ein- ungis að bygg.jast & sögulegum grimdvelli (sama sem hefð, höf.) gætu íslendingar með rétti gert kröfu um meiri útfærslu land- helginnar en nýja reglugerðin gerir ráð fyrir.“ Samkvæmt þessu hefur íyrirlesarinn ekki verið höfundur þessa bæklings, né átt þátt í samningu hans eða hann vill ekki kannast við þessi ummæli sin. En það er fleira í nefndum bæklingi, sem gefur manni tilefni til þeirrar álykt- unar, og skal aðeins að því vik ið. Það er nefnUega athyglisvert, að með þessum bæklingi er hætt að bendla landhelgi Islands við skandinavisku fjögrasjómílna- regluna, hins vegar er lögð nokkur áherzla á að landhelgi íslands hafi frá 1631 tíl 1662 verið 24 sjómilur, frá 1662 tíl 1859 16 sjómílur, en á seinni helmingi 19, aldar hafi eftirlit með fiskveiðum útlendinga verið slælegt, ísland þá dönsk ný- lenda. Er hér um mjög athyglis- verða stefnubreytingu að ræða. Þvi má hins vegar ekki gleyma að líklegt er að sérfræðingum rík isstjórnar á hverjum tíma og ekki aðeins i þessu máli sé fyrir- lagt að færa einungis rök að stefnu hennar, og ekki ætlazt til að þeir hafi sjálfstæðar skoðanir á málunum. Má því segja að þeim sé ekki alltaf sjálfrátt í þessum efnum og á það vafalaust við í þessu máili, þvi embættis- menn eru ambáttir nútímans eins og orðsif jar benda til. Kjami þessa máls verður þó eftir sem áður sá og hefur þeg- ar sannazt, að krafa til meiri réttar getur tryggt að minni rétt ur verði tekinn til greina og því hefði það aldrei getað spillt mál- stað okkar i landhelgismálinu að halda fram ýtrustu krðfum strax. Skilur þar á milli feigs- og ófeigs í máli þessu sem öðr- um, að sjálfstæð skoðanamynd- un sérfræðinga er haldbezt og sanngjörn gagnrýni höfuðnauð syn. í framhaldi af þvi er áður segir, gæti sumum komið til hug- ar að umrædd yfirlýsing sérfræð ingsins sé túlkun á skoðun rík- isstjómarinnar á þessu máli, en slíkt er af og frá, þvi hún sýnir svo átakanlegt skilningsleysi á þvi hvernig flytja beri mál og einnig hitt, að hann ruglar sjálf- um sér saman við dómara í al- þjóðadómstólnum. Er það væg- ast sagt til tjóns hverju máli, þegar menn virðast ekki vita, hvaða hlutverki þeir gegna. Hitt er þó varhugaverðast að með sHkum ummælum er verið að leggja andstæðingum okkar vopn in í hendur. 50 SJÓMÍLNA LANDHELGI ER LÁGMARK Ég leyfi mér að vitna hér til doktorsritgerðar minnar, sem skrifuð var fyrir nærri 20 árum, en hún ber einkenni síns tíma og ekki ætlun mín að miklast yfir því verki á neinn hátt. Þótt margt hafi breytzt frá þvi hún var skrlfuð standa þær megin- skoðanir, sem þar voru settar fram enn óhaggaðar og þykir mér rétt að vitna hér að lokum til þess, sem er kjarni þeirra, en bar segir svo m.a. um landgrunn- ið: „Það er rannsóknarefni út af fyrir sig, hvemig ákveða skuli takmörk landgrunnsins. Eðlileg- ast væri að miða við ákveðið dýpi. Hentugra mun þó að miða við tiltekna fjarlægð undan landi. Þó virðist heppilegasta lausnin geta orðið sú, að taka tillit til dýptar og f jarlægðar í senn. Um landgrunnið við Island hef ur aðaUega komið til tals að miða við ákveðið dýpi, 200 eða 400 metra. Höfundur telur eðli- legast, að miðað verði við hvort tveggja í senn, fjarlægð undan landi og jafnframt tekið tiHit til sjávardýpis. Kæmi þá helzt til greina 50 sjómilna víðátta. Sú landgrunnslína mundi að mestu leyti falla á milli 200 og 400 metra dýptarlínanna. Hins vegar verði 200 metra dýptarlínan lát- in skera úr um víðáttu landhelg- innar, þar sem hún nær út fyrir 50 sjómUna takmörkin. Á þeim slóðum, þar sem þessi land- grunnslína myndi liggja, eru dýptarlínumar víða mjög þéttar og halli sjávarbotnsins því mikill, en það er einn helzti mælikvarð- inn tíl að miða takmörk land- grunnsins við. Önnur ástæða er og tíl þess, að 50 sjómílna línan er sett fram, nefnilega sú, að sögulegar líkur eru fyrir þvi, að um það bil er fiskveiðar erlendra manna hófust við Island hafi fyrsta „landhelg- in“, þ.e. svæðið, þar sem erlend- um skipum var með tilskipunum bannað að fiska, náð aUt að 50 sjómílum undan landi. Þá er þess og að geta, að 5U helztu fiskimið við landið mundu lenda innan 50 sjómílna tak- marksins, svo sem hin alkunnu Halamið að mestu. Loks er þess að geta í sam- bandi við landgrunnskenninguna, að dr. Hermann Einarsson fiski- fræðingur telur Islendinga alveg einfæra um að veiða þann fisk, sem æskilegt er, að verði veidd- ur á landgrunninu, án þess að fiskstofninum sé ofboðið (246). Höfundur viU taka það fram, að engar rannsóknir hafa farið fram á því, við hvað miða beri takmörk landgrunnsins við ís- land, og viU þvi fyrir sitt leyti ekki kveða upp neinn fullnaðar- dóm i því efni að svo stöddu." Á öðrum stað segir i niður- stöðu verksins: „íslenzka þjóðin verður að hugsa fyrir framtíðinni. Ef til viU verður 16 sjómílna landhelgi orðin ónóg eftir 20 ár og 50 sjó- mílna landhelgi ein talin nægja“. En 16 sjómílna landhelgi var eins konar varakrafa í ritgerð- inni. Loks skal hér tilfærður kafli úr niðurlagi ritgerðarinnar: „Tilvera einstakHngsins í nú- tíma þjóðfélagi er vernduð af lögum hlutaðeigandi ríkis, svo og alþjóðalögum. Tilvera þjóðanna er á sama hátt vernduð af þjóða- rétti, þótt misbrestur verði stund um á hvoru tveggja i fram- kvæmd. Frumréttur hverrar þjóðar er tilveruréítur hennar. Islenzka þjóðin á tilveru sína undir því að fá að búa ein að auðlindum sínum, fiskimiðum sem öðrum. Fiskimiðin eru helztu auðlindir Islendinga, og verður að tryggja þjóðinni fuU- ar nytjar þeirra með því, að hún fái landgrunnið allt.“ Eins og áður segir hefur margt breytzt frá því að ritgerðin var samin. Kröfur þær, sem þar voru settar fram þá, og sumir töldu nálgast f jarstæðu, teljast nú eðli legar og sanngjamar jafnvel að dómi sömu manna, þannig hefur fundur olíulinda undir hafsbotni gjörbreytt allri vígstöðu okkar, og nú er svo komið að þjóðirn- ar gera kröfu til allt að 150—200 sjómílna af landgrunninu (hafs- botninum) undan ströndum sín- um og þjóðimar við Norðursjó hafa skipt upp botni Norðursjáv arins á milli sín, langt út fyrir 12 sjómílur allt að 130 sjómílum. Þá er blátt áfram hlægilegt að neita okkur um réttinn til fisks- ins á tilsvarandi hafsvæði, enda hljóta sjávarafurðir þessara svæða að vera hreinn hégómi að verðmætum í samanburði við olíuna. En þetta er efni í aðra grein og bíður betri tíma. Okkur er höfuðnauðsyn, að draga ekki um of að færa land- helgina lengra út en við höfum þegar gert, til þess m.a. að girða fyrir þá hættu að 12 sjómílna landhelgi verði talin hefð hjá okkur. Við þurfum að styrkja að- stöðu okkar i þessu máli og styðja kröfur okkar sem flest- um rökum, betur en við höfum gert til þessa en kjarni málsins er að 50 sjómílna landhelgi hlýt- ur að vera lágmarkskrafa ís- lenzku þjóðarinnar í þessu lífs- spursmáU hennar, það má vera hverjum og einum ljóst. Hitt er til lítils að halda því fram að al- þjóðalög séu sverð og skjöldur smáþjóðar, ef hvorki er þekking né þor til þess að bregða þeim brandi. Reykjavík, 13. des. 1970. Ath. Fyrirsögn, millifyrir- sagnir og leturbreytingar eru einnig greinarhöfundar. Ritstj. Verkamenn óskasf Fyrirtæki í Hafnarfirði óskar að ráða nokkra góða verkamenn. Upplýsingar í síma 42649. Enskuskóli barnanna Kennsla í hinum vinsæla Enskuskóla barnanna hefst fimmtu- daginn 14. janúar. 1 skólann eru tekin börn á aldrinum 9—13 ára, en unglingar 14—16 ára fá talþjálfun í sérstökum deildum. Hefur kennsla þessi gefið mjög góða raun. Kenna enskir kennarar við skólann og tala ætið ENSKU í tímunum. Venjast börnin þannig ENSKU TALMÁLI allt frá upphafi. Að þessu sinni erum við einnig að gera tilraun með kennslu barna á aldrinum 5—9 áre. Vegna þess hversu mikið verður að gera síðustu innritunardagana eftir helgi biðjum við öfl þau börn sem voru hjá okkur í haust og ætla að halda áfram að endurnýja skír- teini sín í þessari viku. Skrifstofan er í Brautarholti 4, en flestum börnum verður kennt í Hafnarstræti 15. Málaskólinn MÍMIR Sími 10004 og 11109 BRAUTARHOLTI 4.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.