Morgunblaðið - 06.01.1971, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1971
H
Hraökeppni H.S.Í.:
Aðeins leikur Hauka
og Vals umtalsverður
leikmenn virtust heldur
áhugalitlir á mótinu
ÞAÐ var sannarlega lítill meist-
arabragur á handknattleik þeim
sem boðið var upp á i hraðmóti
HSl, sem hófst í Laugardalshöll
inni í fyrrakvöld og lauk í gær.
Leikmenn virtust hafa mjög tak
markaðan áhuga á móti þessu,
og þau lið sem eiga erfiða leiki
framundan um næstu helgi,
spöruðu kraftana. Aðeins einn
leikur fyrra leikkvöldsins var
verulega skemmtilegur — leik-
ur Vals og Hauka. Bæði þessi
lið leika mjög hraðan og
skemmtilegan handknattleik, og
er athyglisvert hvað Haukunum
hefur farið mikið fram við að
nota „blokkeringar' í sóknarleik
sinum. Þessi leikaðferð er nú
stöðugt meira notuð af flestum
beztu handknattleiksliðum
heims. Byggist sóknarleikur
þeirra upp á að skapa einni eða
tveimur stórskyttum í liðinu
Gunnlaugur — hættur að
þjálfa Fram-liðið.
svigrúm til þess að athafna sig,
en aðrir leikmenn fórna sér fyr
ir þá i sókninni. I Haukaiiðinu
leikur Viðar Simonarson aðal-
hlutverkið og sá leikmaður sem
bezt „blokkeraði" fyrir hann
var Stefán Jónsson. Vonandi
reyna sem flest íslenzk lið að
tileikna sér þessa leikaðferð,
sem er mjög árangursrík, en
dómararnir verða einnig að
læra á hana. Þeim hættir til
þess að vera of fljótir á sér að
flauta. Sennilega eru islenzkir
dómarar yfirleitt of strangir.
En vikjum þá að leikjunum í
fyrrakvöld.
f R—VÍ KIN GUR 13:7
Það er næsta furðulegt hvað
Víkingsliðið nær litlu út úr
leikjum sínum, svo gott sem
það er í raun og veru. Það sem
liðið virðist fyrst og fremst
skorta er festa á þýðingarmikl-
um augnablikum, því þegar
mest á reynir virðiist allt fara
úr böndunum, bæði í sókn og
vörn. Einnig mætti liðið leika
meira upp á það að láta Einar
Magnússon skjóta, en hann fékk
sárafá tækifæri í þessum leik.
Leikurinn var mjög jafn til
að byrja með og í hálfleik var
staðan 5:5. ÍR-ingar skoruðu svo
þrjú fyrstu mörk síðari hálf-
leiks, þá gerði Sigfús mark fyr-
ir Víkng, sem ÍR-ingar svöruðu
með 5 mörkum í röð. Var á
þessum tíma hrein upplausn í
Víkingsliðinu, og var það fyrst
og fremst mistökum þess að
kenna að svo fór, þar sem ÍR-
ingamir sýndu engan afburða-
leik. Þvert á móti virðist sem
flestir leikmanna liðsins séu í
lítilli þjálfun og áhugi fyrir
leiknum var ekki nema í lág-
marki. Mörkin: ÍR: Ásgeir 4,
Ágúst 3, Brynjólfur 3, Þórarinn
2, Vilhjálmur 1. Víkingur: Ein
ar 2, Sigfús 2, Páll 1, Magnús 1,
Guðjón 1.
Gunnlaugur hætt-
ur með Fram
ÞAU tíðindi hafa gerzt i hand-
knattleikslífinu að Gunnlaug-
ur Hjálmarsson er hættur
þjálfarastörfum hjá Fram.
Komu fréttir þessar mörgum
á övænt, ekki sízt fyrir þær
sakir aö fram hefur yfirleitt
vegnað vel síðan Gunnlaugur
tók við þjálfun liðsins. Næg-
Ir að minna á að Fram varð
íslandsmeistari innanhúss sl.
ár og Reykjavíkurmeistari í
haust.
— Ástæðan til þess að ég
hætti, sagði Gunnlaiigur er
við höfðum samband við hann
í gær, — er einfaldlega sú
að þess var óskað að ég hætti
þjálfun liðsins og kæmi ekki
á æfingar þess í vetur. Eg
veit ástæðuna fyrir þessari
uppsögn minni ekki svo gjörla
' en einhverjir munu hafa ver-
ið óánægðir með frammistöðu
liðsins að undanförnu. Ann-
ars var ég sjálfur ekki svo
ýkja óánægður með frammi-
stöðuna, og það eina sem ég
fann að var að einstakir leik-
menn tækju lífinu of rólega.
Aðspurður um hvort hann
væri hættur að hafa afskipti
af handknattleik svaraði
Gunnlaugur:
— Ég ætla að vona að svo
verði ekki, og sé enga ástæðu
til þess þótt eitthvað bjáti á
að sinni. Maður hefur verið á
einn og annan hátt tengdur
þessari íþróttagrein í 20 ár
og það skal enginn halda að
það sé auðvelt að snúa við
henni baki á einni nóttu, enda
engin ástæða til.
Við spurðum Gunnlaug
einnig hvort hann hygðist
hefja æfingar sjálfur með
keppni fyrir aiigum. llann
svaraði:
— Ég er ekki búinn að gera
það upp við mig. Alla vega
tek ég lífinu með ró þetta
keppnistímabil. Ég er ánægð-
tir með mitt hlutskipti í þvf.
FRAM—KR 15:13
Leikur þessi var einnig held-
ur dauflegur á að horfa og mik
ið um mistök hjá leikmömnum,
einkum þó hjá KR-ingum, sem
voru oft of bráðir á sér. Strax
í upphafi leiksins náðu Fram-
arar forystunni og héldu henni
til Jeiksloka. Mestur varð mun-
urinn 5 mörk um miðjan síðari
hálfleik, en undir lokin sóttu
KR-imgar sig og var töluverð
spenna síðustu mínúturmar.
Af markatölunni má ráða
hveroig varnarleikur liðanna
var í þessum Jeik. 28 mörk voru
skoruð á 30 mínútum. Sá leik-
maður liðana sem mesta athygli
vakti var Sigurður Einarsson,
en hann sýndi ágætan leik. Einn
ig vakti ungur piltur í KR —
Atli að mafni — athygli. Þar er
á ferðinmi mikið efmi. Mörkin:
Fram: Sigurður 4, Björgvin 3,
Pálmi 3, Gylfi 3, Sigurbergur 2.
KR: Hilmar 3, Atli 3, Björm 2,
Haukur 1, Geir 1, Steinar 1,
Ámd 1.
ÁRMANN—ÞRÓTTUR 13:10
Yfir þessum leik var sannkall
aður 2. deildar bragur. Bæði
liðin léku undir getu, sérstak-
lega þó Ármenningar, em í lið
þeirra vantaði suma af þeirra
beztu mönnum. Staðan í hálf-
leik var 6-6 og Þróttur komst
marki yfir snemma í seinni hálf
leik. Þá skoruðu Ármennimgar
5 mörk í röð og þar með voru
Framarar ætluðu að hef ja skyn diupplilaiip, en Emil Karlsson,
KB markmaður var vel á verði og kom út á miðjan völi, þar
sem honum tókst að stöðva Sigurberg.
úrslitim ráðin. Aðeins einn leik-
maður var athyglisverður í þess
um leik — Hörður Krdstinsson.
HAIIKAR—VALUR 12:10.
Loks fengu áhorfendur að sjá
handknattleik eins og hann ger
ist beztur hjá íslenzkum liðum.
Bæði liðin léku á fullum hraða
og varnir og markvarzla var í
góðu lagi hjá báðum. f hálfleik
Haukar
sigruðu
— unnu Fram 16:9 í
úrslitaleiknum
HAUKAR sigruðu í hraðkeppni
móti HSÍ, er lauk í gærkvöldi.
Sigruðu Haukarmir Fram í úr-
slitaleik mótsins með 16 mörk-
um gegn 9. Staðan í hálfleik
var 7-3 fyrir Hauka. Aðrir
leikir í gærkvöld fóru þanníg:
Haukar-—Ármann 12-8 (5-4),
Fram—FH 8:7 (5:3) og í úr-
slitaleik um 3. sætið i mótinu
sigruðu FH-ingar Ármann með
15:13 eftir að staðan í hálfleik
hafði verið 8-8.
höfðu VaJsmenn eitt mark yfir
4:3 og í síðari liálfleik munaði
aldrei meira en eimu marki á
liðunum. Undir lokin höfðu
Haukar betur, 8:7, en voru of
bráðir á sér á lokamínútunni og
Valsmenn náðu boltanum og
Bergur skoraði jöfnunarmarkið
fyrir Val á 11. stundu. Var þá
framlengt í 2x5 mímútur. í fyrri
helming framlengingarinnar
skoraði Stefán tvö falleg mörk
fyrir Haukanna, þanndg að stað-
an var orðin 8-10. Jakob skor-
aðd síðan fyrir Val, Þórarinm fyr
Framhald á bls. 27.
Manch.
slegið út
1 GÆR fóru fram 3 ieiikir í
ensku Biikamlceppninni. Middeils-
boro sló Manch. Umilted út úr
keppmimni með 2—1 sdgri á
heimavehi. Þar með er útséð
um að hið fræga Mamehesterlið
vinmd no'klk'urn umtalTsveiðan
sigur á þessu tdmabilli á stór-
mótum.
í öðrum lieikjum urðu úrsllt:
Birmingh. — HuddersifiieJd 0—2
Barnet — Colohester 0—1
Ryun
keppir
aftur
Aldrei leitað
álits U.M.F.N.
—«
HINN heimskunni hlaupagarpur
Jim Ryun, frá Bandaríkjunum,
sem á heimsmetið í 880 jarda
hlaupi, míluhlaupi og 1500 metra
hlaupi, hefur í hyggju að hefja
aftur keppi, eftir átján mánaða
hvild. Ryun stefnir að því að
sigra í 1500 metra hlaupinu á
Olympíuleikunum í Milnchen
1972, en hann varð af gullverð-
Jaunum í þessari grein á Ol. leik
unum í Mexikó. Ryun sem er
aðeins 23 ára gamalil hljóp ný-
Jega 1 milu á tímanum 4:04,0
mín., og sýnir það, að sennilega
á hann auðvelt með að koma sér
í æfingu aftur.
GUÐMUNDUR Snorrason, for
maður Ungmennafélags Njarð
víkur hafði samband við Mbl.
í gær vegna fréttar er birtist
í gær, um að leitað hefði ver-
ið álits allra formanna félag-
anna í 1. deild, um hvort fé-
lög þeirra myndu vilja leika
á Laugarvatni. Sagði Guð-
mundur að hér væri réttu
máli hallað. Hið sanna væri,
að til sín hefði aldrei verið
leitað, né heldur til formanns
körfuknattleiksdeildar UMFN.
Þeir hefðu fyrst kynnzt þessu
máli er þeir lásu um það í
blöðunum.
— Það getur hver sem er
neitað að leika á ólöglegum
velli, eins og er á Laugarvatni,
sagði Guðmundur, — og við
sjáum ekki neinar frambæri-
legar ástæður til þess að
HSK leiki þar. Það mun t.d.
liggja fyrir, að um helming-
ur liðsmanna þess liðs býr á
Reykjavíkursvæðinu.
Guðmundur sagði ennfrem-
ur að UMFN hefði yfir stærri
keppnisvelli að ráða en HSK,
en eigi að síður hefði liðið
ekki formað að fara fram á 1
að leika sína leiki þar, ein-
faldlega af þvi að vöfllurinn
væri ólöglegur.
— Það eina sem hefði rétt-
lætt að HSK léki á Laugar-
vatni sagði Guðmundur, —
var að borin hefði verið upp
undanþágubeiðni á þingi KKl
og hún samþykkt. Ef svo
hefði verið, hefðum við, að
sjálfsögðu, beygt okkur fyrir
því.