Morgunblaðið - 30.01.1971, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1971
hana mætti nota fyrir fleka, og
svo héldu þeir Joel henni fastri,
en stúlkurnar bröltu upp á hana,
hálfnaktar og skjálfandi.
Karlmennimir ýinist óðu eða
syntu og héldu í flekann.
— Vertu ekki að horfa, elsk-
an, sagði Paul með ákafa.
Það flaut lík fram hjá þeim,
bamslik, skaddað svo að það
var óþekkjaniegt.
Flekinn hélt áfram og menn-
irnir héldu í hann og höfðu
stjóm á honum. Þau kynnu að
ná til staðarins þar sem brúin
hafði verið. Og það tókst og þar
var ekki sérlega djúpt og þar
var fleira fólk fyrir, að bíða.
Vesældarlegt og niðurdregið,
haldandi á krakka, hundi eða
kannski skartgripaskríni — en
ailir að bíða eftir björgun.
Bátamir komu loksins og
fluttu þau á land, sem var að
vísu illa útieikið en þó að
minnsta kosti fast undir fótum.
Þama lágu tré yfir veginn
þveran, háspennuvírar og
hvers kyns brak, rétt eins og
brjálaður maður hefði verið
þama á ferðinni.
Þau fengu afdrep í húsi
nokkru í þorpinu . . . þurr föt
og viskí. Hanna sat hjá Joel og
hélt um hendurnar á honum. —
Þú ert sjálfsagt búinn að fá
verra kvef, sagði hún nöldrandi.
— Geturðu ekki náð í lækni,
Paul?
— Læknarnir hafa nóg að
gera við slasaða fólkið, sagði
Joel og lagði höndina á svarta
hárið hennar. —• Það er allt i
lagi með mig.
— Þú segir það, sagði Hanna
snöktandi.
Frú Keates var uppi og í rúm-
inu. Hún hafði fengið slæmt
taugaáfall, enda orðin gömul.
Konan með barnið var að bíða
eftir einhverjum fréttum af
manninum sínum. Kathleen og
Paul sátu saman við oliuofninn.
Kathleen var í peysu, sem var
henni alltof stór og vaðmálspilsi,
sem var tekið saman í mittið.
Stórt einbýlishús
til sölu á fallegum stað. 110 ferm k|atari undir, með inn-
byggðum bílskúr.
Upplýsingar í síma 40865.
Leikhúskjallarinn
'OPIÐ
I
Kvöldverður framreiddur frá kl. 18.
Vandaður matseðill.
Njótið rólegs kvölds hjá okkur.
Borðpantanir i síma 19636 eftir kl. 3.
Hár hennar var rennblautt og
og hún var með fleiður á kinn-
inni.
Hún sagði: — Við verðum að
athuga, hvemig Pat líður.
Paul stóð upp og leit á hana.
— Já, ég er að fara til þess
núna.
— Paui . . .
Hann sneri við. — Já?
— Þú bjargaðir honum.
Hann yppti öxlum. — Hann
var rotaður og gat ekki bjargað
sér sjálfur.
Það þýddi ekki neitt að brjóta
heilann um tilgang hans með
þessu, þar var ekki annað að
finna en mannlega samúð og
vorkunnsemi. Það var ekkert
leikhúsatriði, þar sem verið var
að bjarga manninum, sem stúlk-
an elskaði, því að maður vissi,
að hún elskaði hann ekki leng-
ur.
Tárin runnu hægt niður eftir
kinnum hennar. Það var farið að
draga úr storminum. Á morgun
mundi fréttast um dauða og
sorg, hörmungar og hetjudáðir.
— Paul . . . sagði hún.
— Vertu ekki lengi burtu frá
mér.
Hann gekk til hennar. Joel og
Hanna voru þarna inni, og litu
ekki hvort af öðru. Þau heyrðu
ekki til hans, enda hefði hon-
um verið alveg sama um það.
— Kate, gerðu þér þetta ljóst.
Þetta er sorgarleikur en ekki
neinn hverdagslegur viðburð-
ur. Láttu þér ekki detta í hug
að þó ég hafi bjargað Pat frá
drukknun, þá...
— Það var ekki það, enda
þótt ég skildi þá fyrst. . .
—- Ég vona, sagði hann og
augun Ijómuðu, — en ég vil
ekki herma upp á þig neitt lof-
orð! Eftir storminn kemur logn.
Þá veiztu huga þinn. Ég vil
ekki, að þú farir neitt að
heimska þig af því að þú ert
uppgefin . . . og sloppin úr
hættunni og . . .
Hún sagði: — Gott og vel, en
þú getur haldið áfram að vona.
Hann laut niður og kyssti hana
fast og innilega, en sneri sér
síðan undan. Hún sat þama með
hendur i skauti, án þess að taka
eftir Joel og Hönnu og þjón-
ustufólkinu, sem sat i hnipri úti
i horni, eða konunni með bamið
og öllu hinu fólkinu, sem þama
var samankomið . . .
Það leið heil klukkustund
áður en Paul kom aftur. Þegar
hann skellti aftur hurðinni og
kom inn, vissu allir, hvað á seyði
var. Joel bölvaði og Hanna rak
upp ofurlítið óp. Kathleen
glennti upp augun. Hún spurði:
— Er hann dáinn ?
— Já, sagði Paul. Hann stóð
hjá henni án þess að snerta
hana.
— Það var þetta höfuðhögg.
Ég gat ekki náð í hana móður
hans, af því að það er ekkert
símasamband. En við skulum ná
í bíl og aka til borgarinnar, það
getur tekið iangan tíma, en það
tekst einhvern veginn.
— Veslings Molly, sagði Kath-
leen og kom varla upp orðunum.
Hún gat grátið vegna Pats,
sem hafði ekki sloppið, og Molly,
sem gat ekki sloppið. Paul mundi
skilja, hvers vegna hún var að
gráta. Hann lagði arminn um
hana og hélt henni upp að sér.
Eftir nokkra stund hætti hún að
gráta. Hún sagði um leið og hún
leit á hann, ástaraugum.
— Gott og vel, Paul, við skul-
um k«ma okkur af stað.
(Söguiok).
KH.KRISTJANSSDNH.F.
f,Qpi 10i ANDSBPAUT ? f,i.V' 3 53nO
tml
Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl.
l>ú veizt ekkert, hvernig þú átt að verja starfsþreki þínu.
Nautið, 20. apríl — 20. maí.
Þú verður fyrir óvæntu happi, sera gerir þér ðaginn ánægju-
legan i dagsins önn.
Tvíburarnir, 21. maí — 20. júní.
Þú skalt láta fólk njóta sannmælis. Þér verður þakkað það
fljótlega.
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí.
Þú ættir að nota nútíma aðferðir við störf þín. Það er furða,
hvað verkin vinnast fljótar með því móti.
I.jónið, 23. júlí — 22. ágúst.
Það skapar þér skcmmtiieg tækifæri að kynnast nýju fólki.
Meyjan, 23. ágúst — 22. september.
Þú heyrir eitthvað í dag, sem á eftir að verða þér til skemmt-
unar lengi.
Vogin, 23. september -— 22. október.
Margir verða til að koma róti á tilfinningarnar, bæði í betrl
og verri skilningi.
Sporðdrekinn, 23. októlær — 21. nóvembev.
Þú kemur betra skipulagi á vinnuna í dag.
Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember.
Nú er um að gera að vinna sem mest sjálfur, lála aðra gera
minna.
Steingeitin, 22. desentber — 19. janúar.
Þú verður að vita, hvernig þú gctur náð tii kunningjanna, ef
áætlanir brcytast. Þú skalt ckki spara spurningarnar, og mcð því
komast á sporið og leiðrétta misskilning.
Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar.
Lífið breytist skemmtilega mikið á næstunnl. Þú skeinmtir þér
með fleira fólki við að rifja upp endtirminningar.
Kiskarnir, 19. febrúar — 20. rnarz.
Það er aUra veðra von í fjölskyldunni, og því fyllsta ástæða tll
að fara að öUu mcð gát.
Takið eftir
Breytum gömlum kæliskápum í frystiskápa.
Smíðum einnig alls konar frysti- og kælitæki við yðar hæfi.
Gerum einnig við ísskápa og frystikistur.
Fljót og góð þjónusta. — Sækjum sendum.
Reykjavíkurvegi 74. Hafnarfirði, sími 50473.
Fræðslunámskeið fyrir
byggingaverkamenn
Verkamannafélagið Dagsbrtin gengst fyrir fræðslunámskeiði
fyrir byggingarverkamenn dagana 1.—4. febrúar.
Kennslugreinar:
1. Járnabendingar (Járnabindingar).
2. Steinsteypa (leggja niður steypu o. fl. í meðferð hennar).
3. Öryggismál á vinnustöðum.
Aðalkennari verður Gunnar Sigurðsson verkfræðingur.
Námskeiðið hefst 1. febrúar n.k. kl 20,30 og lýkur á fimmtu-
dagskvöld. Kennsla verður 2 klst. á hverju kvöldi.
Námskeiðið verður haldið að Laugavegi 18 3. hæð.
Aðeins vanir byggingarmenn koma til greina og skilyrði að
þeir séu félagsmenn í Dagsbrún. Væntanlegir þátttakendur
láti skrá sig á skrifstofu Dagsbrúnar í dag eða mánudag,
símar 13724 og 18392.
STJÓRNIN.