Morgunblaðið - 12.03.1971, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1971
HÚSMÆÐUR Stórkostieg lækkun á stykkja þvotti 30 stk. á 300 kr. Þvott ur sem kemur í dag, tilbúinn á morgun. Þvottahúsið Eimir, Siðumúla 12, sími 31460.
malmar Afla brotamálma nema járn, kaupir atlra hæsta verði ARINCO, Skúlagötu 55, sím- ar 12906 og 33821.
DUGLEG OG AREIÐANLEG stúlka óskar eftir atvinnu allan daginn. Vélritunarkunn- átta. Er vön afgreiðsiustörf- um. Upplýsingar í síma 33233.
8—22 FARÞEGA BIFREIÐAR Tökum að okkur fólksflutn- inga innanbæjar og utan, svo sem: Vinnuffbkka, hljómsveit- sr, hópferðir. Ferðabílar hf., sími 81260.
HÚSEIGENDUR Þéttum eftirfarandi: stein- steypt þök, asbest þök, þak- rennur, svalir, sprungur í veggjum. Gerum tifboð ef óskað er. — Verktakafélagið Aðstoð, síma 40258.
HERBERGIÓSKAST Til leigu í Reykjavík fyrir 18 ára stúlku, sem vinnur í banka. Æskitegt að morgun- matur og kvöldverður gæti fylgt. Nánari uppl. í s. 21750.
SANDGERÐI Einbýlishús til sölu, bilskúr fylgir. Fasteignasala Vilhjálms og Guðfinns sími 1263 og 2376.
HÖIECREPE SÆNGURFATAEFNl nýkomið, þarf ekki að strauja. Margir Pitir, 3 gerðir, á 110— 125 kr. og 155 metrinn. Á- teiknuð vöggusett. Húlsauma stofan, sími 51075, Hafnarf.
HAFNARFJÖRÐUR — nágrenni Dilkakjöt 1. og 2. verðfl'., gott nautahakk 159 kr. kg, nautagúWas 185 kr. kítóið, kinda- og svínahakk. KjötkjaRarinn Vesturbraut 12.
MÓTATIMBUR ÓSKAST 4—6 þúsund fet 1x6. Upp- týsingar í sima 92-7139.
KEFLAVÍK TH söfu tvö hús, sem eiga að fjartægjast. Tvær ibúðir í hvoru húsi. Fasteignasalan Hafnarg. 27, simi 1420.
TIL SÖLU höggpressa (stanz) og leður- þynningarvéi. Uppl. í síma 85812 eftir kl. 7.
HAFNARFJÖRÐUfl Stórar rúlfupyteur 125 kr. stk. Niðursoðnir ávextir 1. flokks, mjög ódýrir. Ódýr trfönduð ávaxtasulta. Kjötkjallarinn Vesturbraut 12.
MORGIINBLADSHIÍSINU
Storkurinn
sagði
DAGBÓK
Sá er sigTar mun erfa þetta, og ég mun vera hans Guð, og
hann mun vera minn sonur. (Opinb. 21.7).
1 dag er föstudagur 12. marz og er það 71. dagur ársins 1971.
Eftir lifa 294 dagar. Gregoriusmessa. Tungl f jærst jörðu. Árdegis
háfiæði kl. 6.52. (Úr Islands almanakinu).
Báðgjafaþjónusta Næturlæknir í Keflavík
Geðverndarfélagsins °S 7.3. Kjaxtan Ólafsson.
þriðjudaga kl. 4—6 síðdegis að 8.3. Ambjörn Ólafsson.
Veltusundi 3, simi 12139. Þjón-
ustan er ókeypjs og öllum heim- AA-samtökin
U. Viðtalstimi er í Tjamargötu
Mænusóttarbólusetning fyTÍr
fullorðna fer fram í Heilsuvemd
arstöð Reykjavíkur á mánudög-
um frá kl. 5—6. (Inngangur frá
Barónsstíg yfir brúna).
3c frá kl. 6- 7 eJi. Sími 16373.
Ásgrimssafn, Bergstaðastræti 75,
er opið sunnudaga, þriðjudaga
og fimmtudaga frá kl. 1.30—4.
Aðgangur ókeypis.
Jæja, mikið var að maður
fékk frænda sinn, eins og
Lobibu í Lundúnaveldi, þennan
makalausa Geirfugl hingað
heim. Þið takið eftir því, vinir
mínir, að ég skrifa Geirfuglinn
með stórum staf, svona rétt til
að bæta fyrir brotin, gömlu
syndirnar að drepa greyið. Og
sjálfsagt hefur þeim, sem það
gerði þótt góður svartfugl á sín
um tíma, þegar engin viðreisn
var, engin von, engar niður-
greiðslur á smjöri, engar fjöl-
skyldubætur, eða þá á kjöti. Og
þá verður mér alltaf hugsað
til lipru og prúðu afgreiðslu-
mannanna i afurðasölu SlS, sem
hafa sýn-t mér lipurð og góð-
mennsku, þegar ég hef verið að
kaupa i frystikistuna, hafi þeir
þökk fyrir.
Og þá varð að róa lengra á
miðin, en samt er þessi ómeng-
aði fiskur við íslands strendur
seldur svo dýrt, að fæstir hafa
efni á að leggja hann sér til
munns, — og þó bera fiskbúð-
irnar sig ekki.
En auðvitað er það önnur
saga, að segja frá pólitíkusun-
um sem þessa dagana drita frá
sér kosningafrumvörpum, sem
sum eru a.m.k. svo hlægileg, að
maaur hefur ekki við að slaka
á hlátursvöðvunum. Ég held að
flestir grunnskólalæsir menn
séu með mér á nótunum,
þegar ég segi, að þessir frum-
varpaþambarar hafa bæði
gleymt að geta um einstæðar
mæður, og ekki þá síður það
gamla fólk með ellilífeyrinn,
sem hefur byggt upp þetta
þjóðfélag.
Til þess eru löggjafar í landi
voru, að bera fram frumvarp til
laga, sem geta staðizt dóm
reynslunnar. Stundum hefur
verið nokkur misbrestur á því.
Þjóðin ætlast til þess af þing-
mönnum sínum, að þeir hafi til
þess tíma að sinna olnbogaböm-
um sinum. Ekki er hér verið að
deila á neinn sérstakan, en bæta
mætti því hér við, að þessi al-
máttugu skattyfirvöld eru smátt
og smátt að keyra mannfólkið i
einn hnút í viðjar of mikillar
skriffinnsku, svo að keyrir um
þverbak. Þau refsa skattþegn-
um fyrir hinar minnstu sakir,
sem flestar eru fjarska hjákát-
legar, gera þeim kárinur, og ég
veit ekki af hverju. Haldið höfði,
góðu drengir. Ættum við Islend
ingar sameiginlega eina ósk yrði
hún sjálfsagt sú, að skriffinnsk
an á þessu „guðseiginlandi",
yrði send út á sextugt dýpi,
varpað þar fyrir róða, og myndi
margur hlakka yfir endalokun-
um, enda kominn tími til.
En af þvi, að ég er fugl,
m.a.s. úttlenzkur, ættaður
þarna sunnan frá vopnahléinu
við Súez, legg ég auk þess til,
að það varði við þyngsu viður-
lög, að stela jeppanum hans
Ragnars í Smára, sem svo sann-
arlega ætti að eiga alla jeppa
þjóðarinnar, samanlagða fyrir
þátt hans, sem einskonar Maec-
enasar í menningarlífi þjóðar-
innar, í lífi þessa þjóðarkril-
is á norðurslóðum. En einmitt
vegna þess valdi ég mér það að
flögra stundarkorn um í kring
um Unuhús í Garðastræti, þetta
rauða hús með allar minning-
amar, og ekki síður í kringum
Kiddabúð, hitta vin minn, Villa
verzlunarstjóra að máli, geð-
þekkan og kurteisan, og þar við
eitt götuhomið hitti ég mann,
sem var ekki í sem beztu skapi.
Storkurinn? Og hvað angrar
þig nú, manni minn?
Maðurinn við Kiddabúð: Æ,
það er svo margt, en samt lang-
ar mig að einbeita mér að einu.
Mér sýnist ekki betur en um
ferðin í henni Reykjavik sé að
fara úr böndunum. Varaðu þig
á þvi storkur minn góður, að ég
er ekki að kenna lögreglunni
hér um. Ég þekki vel hennar
góðu störf, en hún getur bara
ekki verið alls staðar. En ekki
þarf maður að aka með BSR-bil
nema i hálftíma um borgina til
þess að verða vitni að a.m.k. 5
umferðarbrotum. En hver nenn
ir að kæra? Auðvitað ættu allir
að taka upp númer, en fólk er
tregt að klekkja á náunganum,
og því fer sem fer. Að lokum
eitt atriði, storkur minn. Þegar
bill nálgast götuhorn biðskyldu
brauta að ég nú ekki tali um
hreinar aðalbrautir, aka þeir
upp að götuhomunum á ókristi
legum hraða, bremsa með ískri
og látum, þannig að niaðurinn í
réttinum hugsar sig tvisvar um
að aka framhjá þessum gatna-
mótum, bremsa og vera við öllu
búinn, þvi að máitækið segir,
„betra er hálfur skaði en allur."
Verst er, að okkar ágætu trygg
ingarfélög tryggja ekki fyrir
skrekkinn."
„Satt segir þú, maður minn,
og þótt ég komi ekki nema ann
að slagið á götuhom, og noti í
flestum tilfellum loftleiðina er
ég þér fylliiega sammála. Hef
raunar aldrei skilið, hvers
vegna ökuþórar draga ekki úr
hraða, til að sýna þeim, sem aka
eftir aðalbraut merki um, að
óhætt sé að treysta þeim.
Og með það var storkur flog-
inn upp á Handritahús, og bað
I hljóði til Guðs, að hann léti
nú að síðustu gott á vita, svo
að við fengjum okkar velfor-
þéntu handrit heim að lokum.
Hvað dvelur Orminn langa?
Beztu kveðjur á góu, Storkur,
frændi Geirfuglsins. — Fr-S.
FRÆNDI MINN GEIRFUGLINN
Spakmæli dagsins
Það er ekki það, sem vér vit
um ekki, sem veldur oss vand-
anum, heldur er það hitt, sem
vér vitum fyrir víst, sem gerir
það. — Orðtak svcrtingja.
FRÉTTIR
.Sjálfstæðiskvennafélagið
Vorboðinn
heldur fund i Sjálfstæðishúsinu
mánudaginn 15. marz kl. 8.30.
Lax og landhelgi
Skýin mynda á f jöllum fax,
fariö er til veiða strax.
Flugu kastað fyrir lax,
fengsæll verða að morgni dags.
Oti í vatni er öskrað strax
öldur hvítar reistu fax,
fékk á öngul feitan lax,
fiskinn át að kvöldi dags.
Það mun verða þjóð til hags
þenna fagra að rækta lax.
Landgrunninu að loka strax,
leyfa ei veiði helgidags.
Girnnlaugur Gunnlaugsson.
SÁ NÆST BEZTI
Metramálið hefux stundum valdið nokkrum misskilningi manna
á meðaL Að minnsta kosti var búðarmaðurinn í hálfgerðum vand
ræðum, sem fékk svofelldan vöruseðil:
„Gerið svo vel að senda mér með manninum til baka og skrif-
ið i reikning minn: 10 hektara af steinoliu, þrjú telegröm af salt-
pétri, fimm thermometra af alklæði og nokkur mónopól af eld-
spýtum. — Upp I þetta sendi ég yður fáein literatúr af smjöri og
einn desimal af hangikjöti, sem ég bið yður selja.“
UR ISLENZKUM ÞJOÐSOGUM
Draunnir um séra Hannes á Ríp
Sögn Lngunnar Ólafsdóttur.
Bjöm nokkurn, mig minnir að
nann byggi á Bjargi eða Hamri
I Hegranesi, dreymdi skrýtinn
draum, sem ég hef skrifað upp
eftir Ingunni. Hún átti hann
uppskrifaðan, og þar stóð allt
samtalið og útásetningarnar, en
hún týndi honum. Þessi Bjöm
var aldavinur séra Hannesar á
Blöð og tímarit
Frimerki, 1. tbl. 1971, er ný
komið út og hefur borizt Mbl.
Á forsíðu þess er mynd af flótta
mannafríroerkinu. Af efni þess
má nefna: Efst á baugi eftir FK.
Greinar um skildingabréf, Isa-
fjarðaryfirprentunina 1 gildi
*02—‘03. Grein um fyrstu póst-
flugin. Ýmsar smáfrímerkjafrétt-
ir. Greinin Athafnasamur falsari
handtekinn. Þá er birt skrá yfir
islenzk frímerki og sagt frá nýj
um íslenzkum frímerkjum. Fri-
merkjamarkaðurinn nefnist og
þáttur í blaðinu. Ritstjóri Frí-
merkis er Finnur Kolbeinsson,
en aðstoðarritstjóri er Sigurður
H. Þorsteinsson.
VÍSUKORN
Hcilræði
Oft er heimsins yndi valt,
ævibrautin hál,
Frelsaranum fela skalt
framtið þina og sál.
Leifur Auðunsson.
ÁHEIT OG GJAFIR
Ástralíusöfnunin
Söfnunarfé Steinunnar Sæ-
mundsdóttur úr Kópavogi, kr.
4.200, afhent Forsætisráðuneyt-
liru.
Ríp, sem þá var orðinn gamall.
Björn hataðist við alla drauma
og hafði jafnan að orðtaki: „Ég
reyni að gleyma þeim, helgríð-
unum þeim arna.“
Einhverju sinni dreymdi
Björn, að þeir séra Hannes
væru staddir í Rípurkirkju. I
kirkjunni voru margir framliðn
ir menn, en enginn lifandi nema
þeir tveir. Þeir framliðnu voru
sin á milli að tala um háttalag
séra Hannesar, skáldskap hans
og annað, og að hann hefði
meira ort í heimsins þágu en
guðs o.s.frv. Margt hjöluðu þeir
fleira um séra Hannes. Ekkert
töluðu þeir til Björns, en óhýrt
auga gáfu þeir honum. Eftir
nokkra stund gengur séra Hann
es út úr kirkjunni. Þegar hann
fer, kallar Björn á eftir honum
og segir: „Á ég að koma með
þér, Hannes?" „Það er nóg að
ég er kominn inn í húsið,“ sagði
þú faxir út úr kórnum, þegar
séra Hannes. Draumurinn var
ekki lengri. — Bjöm reið heim
að Rip og sagði séra Hannesi
drauminn, án þess að trúa á
hann. „Þessa bannaða vitleysu
dreymdi mig núna,“ sagði hann.
Prestur varð fyrst hljóður við,
féll síðan um hálsinn á vini sín
um og þakkaði honum fyrir
drauminn. Sagðist hann læra af
honum að sjá marga villu sína,
þvi verur þessar hefðu rætt um
margt, sem enginn annar hefði
vitað. „Ég á nú aðeins eftir eina
viku ólifaða," sagði hann, „og
þú líklega um misseri." Eftir
betta varð hann allur annar mað
ur og umventist gjörsamlega,
las og bað nærri því dag og
nótt. Hann dó eftir viku, en
Bjöm eftir misseri. — Dóttir
Bjöms sagði Ingunni drauminn,
en henni hafði sagt faðir henn
ar.
Or þjóðsögum Thörfhildar Hólm.