Morgunblaðið - 12.03.1971, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 12.03.1971, Blaðsíða 20
20 MORGUNBL.AÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1971 Páll H. Jónsson, Laugum: Sagan af dátan- um óþekkta ÉG DUNDA við störf mín dimman skammdegismorgun og hlusta um leið á þul hljóðvarps ins þylja fréttir. í þeim er með- al annars sagt frá skemmdar- verkum, sem unnin hafa verið nóttina áður á vinnutækjum þeirra verktaka, sem hafa með höndum framkvæmdir vegna virkjunar við Laxá í Suður- Þingeyjarsýslu. Það er í annað sinn, sem slík skemmdarverk eiga að hafa verið unniin. Fyrir fáum mánuðum, þegar þetta gerist, hafði á öðrum vett vangi verið safnað liði að hætti lénsherra til forna og beitt of- beldi með svip áf múgæsingu, til iausnar mistökum, sem auð- velt var að leysa eftir öðrum leiðum og enn auðveldara hefði verið að koma í veg fyrir. Of- beldi það sló óhug á marga hér- aðsbúa, þótt öðrum þætti það gott. Mig beit sá óhugur illa og fast. Fleiri fréttir, óhugnanlegar, ná eyrum þess er hlustar, ein þennan dag, önnur hinn, oft margar í einu, frá ýmsum at- burðum og ólíkum stöðum, utan lands og innan. Allt hverfur þetta að einum punkti þennan dimma dag. Mér verður á vörum vísukom. Sú staka er gerð undir áhrifum þess óhugnaðar, sem óhappaverk og heimskupör af ýmsu tagi vekja, og nú síðast þessi morg- unfrétt. Staka þessi gengur und- ir nafninu „maurasýruvísan“. Vísur geri ég oft. Til þess bið ég engan leyfis. Ég geri þær fyrir sjádfan mig, en fer stöku sinnum með þær í eyru vina minna og góðkunningja. Fyrir kemur að þeir læra þær. Það er velkomið. Af einhverjum ástæðum var þessi skammdegisvísa mín flog- in um allt héraðið á fáum dög- um. Skömmu síðar var hún kom in á prent í fimm eða sex viku- og dagblöðum, ails staðar án míns leyfis, enda ekki um það beðið. Hitt er annað mál, að bloðunum var velkomið að birta hana og reiðilaust frá minni hendi. Ekki verður í fljótu braði séð hvað gerir vísukorn þetta svo eftirsóknarvert. Stakan er ekki betur gerð en þúsundir af stökum, sem ortar eru um allt land. Ekki er í henni vegið per- sónulega að nokkrum manni. Ekki er þar lagður neinn dóm- ur á deilumál í héraði. Ekki er þar einu orði hallað á þá menn, sem fyrir síðustu jól voru flokk aðir undir hið fagra heiti „þjóð- hollir íslendingar"; ekki heldur hina, sem samkvæmt þeirri skil greiningu hljóta þá að nefnast óþjóðhollir. Húsvörður óskast Staða húsvarðar við Tollstöðvarbygginguna í Reykjavík er laus til umsóknar. Æskilegt er, að húsvörðurinn hafi getu til að vinna iðnaðarvinnu til viðhalds húsakynnum og munum þeirra stofnana, sem aðsetur hafa í byggingunni. Staðan verður launuð skv. kjarasamningi starfsmanna ríkisins. Umsóknir sendist fjármálaráðuneytinu fyrir 5. apríl nk. Fjármálaráðuneytið, 10. marz 1971. Vegna útfarar Guðjóns Baldvinssonar viðskiptafræðings verða skrifstofur okkar lokaðar frá hádegi í dag. Stefán Hirst HLRAÐSDÓMSLÖGMADUR • Ausfurstrætí 18 ♦ Reykjavík • CREPE NYLON HERRASÖKKAR BARNASOKKAR UNGLINGA- OG DÖMUSOKKAR. FJÖLBREYTT LITAÚRVAL. DAVÍÐ S. JÓNSSON & CO., Þingholtsstræti 18. Sími 24333. Hins vegar er í stökunni felld ur dómur um þingeyska meim- ingu. Hún er sögð sjúk — menguð —. Sú mengun er þar kennd við maurasýru að gefnu tilefni. Samkvæmt mínum skilningi er hugtakið menning sú mynd mannlífsins sem blasir við aug- um á hverjum tíma og hverj- um stað. Menningin — mann- lífið í Suður-Þingeyjarsýslu er lítið brot af mannlífinu í land- inu öllu, hvorki verra né betra. Áfellisdómurinn í stökunni er um þingeyska menningu, en þar er ekkert orð um það, að hún sé sýktari en menning þjóðar- innar allrar. Við þennan dóm er ég fús að standa og færa rök fyrir, ef krafizt verður. Næst gerist það, að ég frétti á spotspónum að í dagblaðinu Vísi væri komin staka, sem nefnd væri „svar til Páls“ vegna „maurasýruvísunnar“. Ekki hafði sú staka verið mér send áður en hún var prentuð og ekki sendi blaðið mér hana eft- ir að hún var birt. Hins vegar tók það á sig ábyrgð á henni með því að birta hana undir dul nefninu „bóndi“, Liðu nú fram dagar. Þá fékk Óskar Sigtryggsson, bóndi á Reykjarhóli bréf, póstlagt á Húsavík. Úr umslaginu kom ósnyrtileg úrklippa úr Vísi, með „svari til Páls“. Ekkert nafn sendana fylgdi, hvað þá staðsetn ing né dagsetning. Vitanlega taldi Óskar sér vís- una með öllu óviðkomandi og sendi hana til mín. Þannig komst hún að lokum í mínar hendur. Staka þessi er rétt kveðin hringhenda. Efni hennar er í stuttu máli það, að ég sé „auðnu“-laus í tali, beiti blekk- ingum, sé menningar „rýr“ og montinn. Er sú einkunn reiði- laus frá minni hendi og það álit höfundarins honum velkomið og iætur mig með öllu ósnortinn. Nú liðu vikur. En um það bil sem „náttúruverndarmenn" í Reykjavík undirbjuggu andlega tombólu í Háskólabíói til styrkt- ar „Þingeyingum", barst Óskari Sigtryggssyni bréf að nýju, þar sem hann var að vinnu sinni heima í héraði. Það var póst- lagt í Reykjavík í janúar 1971. Dagsetning á póststimpli var svo máð að hún verður ekki lesin. Eins og í hinu fyrra bréfi fylgdi ekkert nafn engin dag- setning né staðsetning. Inni- haldið voru 13 vísur, vélritaðar af viðvaningi á hálft aunað blað, Stærð A 4. Helmingur annars blaðsins var skorinn af, sem sýnir lofsverða nýtni á pappír, Fyrstu 6 vísurnar eru stílaðar til óskars Sigtryggssonar. í þeim er honum líkt við hund, sem „byrsti" sig á móti Íögum, en skríði fyrir ranglæti, sé svik- ari við allt, sem heiðarlegt sé í ættbyggð sinni, láti kaupa sig fyrir gull, sé montinn og beri „auman“ hlýhug til átthaga sinna. Þá örlar þar einmig á hótunum. Allar eru vísurnar hnoð og tveir þriðju hlutar þeirra ýmist með rangri stuðlasetningu eða bragliðaskipun, nema hvórt tveggja sé. Hins vegar ótviræð tilraum, að yrkja nafnlaust níð og ærumeiðingar. Síðari 7 vísurnar eru stílaðar „til Páls“. Taka menn það svo hér í héraði, að þar sé átt við •mig, þótt margir séu Pálamir. Sá kveðskapur er mjög í ætt við stökuna í Vísi, nema alls fjarri dýrum kveðskap. Er þar litlu bætt við þá frómu einkunn, sem mér var gefin í þeirri visu, nema helzt því að ég hafi aldrei ort neitt nema leirburð, og dylgjur um það, að ég muni hafa hætt mér út á vetrarhálk- una og helt maurasýru á vinnu- tæki Norðurverks. Lýkur blað- inu á fróðlegum upplýsimgum um „efnaformúlu" maurasýru. Þrjár vísumar verða að telj- ast rétt kveðnar; hinar ekki. Síðan þetta gerðist er sagt frá þvi í dagblaði úr Reykjavík, að „Laxársamkoman" í Háskólabíói hafi verið hið fegursta manna- mót og er það gleðilegt. Einnig kemur í ljós, að þeir suður þar kunna ennþá óðinn um hina blessuðu sveit. Það er einnig gleðilegt. Þá bárust fundinum „fjölmargar kveðjur, — flestar úr Suður-Þingeyjarsýslu — og þar á meðal voru nokkrar í bundnu rnáli," segir blaðið. Enn er sagt í fjölmiðlum, að „fundurinn“ hafi samþykkt „ályktun", þar sem meðal ann- ars bændum á bökkum Laxár og Mývatns er þakkað „fordæm- ið, sem þeir hafa gefið öðrum landsmönnum með einarðri og drengilegri baráttu gegn lands- spjöllum í héraði sínu . . .“ Sem sagt gott. Vonandi hafa ljóðakveðjur heimamanna til þeirra fyrir sunnan verið betur kveðnar og af öðrum toga spunnar, en kveðjur þær í nafnlausu níð- hnoði, sem okkur Óskari á Reykjarhóli voru sendar að sumnan. Og hamingjan gefi að sá „drengskapur", sem að baki þeirrar kveðju býr, sé allt ann- ars eðlis en sá ,,drengskapur“, sem ályktunin lofar og þakkar. Ekki kemur til nokkurra mála að gera veður út af þess- um kveðskap . til okkar Óskars, þótt nafnlaus níðbréf hafi hing- að til verið flokkuð á lægsta þrep menningar í mannlegum viðskiptum. Það er einungis sú aðferð, sem við er höfð til þess að koma honum á framfæri og þær ástæður, sem líklegar eru til þess að hann sé yfirleitt kveðinn, sem vekja til umþenk- ingar. Óskar Sigtryggsson er einn þeirra sárfáu Þingeyinga, sem hefur haft hugrekki og þegn- skap til þess að ræða deilumál í héraði frá öðru sjónarhorni en þeir, sem hæst hafa látið og staðið fyrir svonefndum mót- mælaaðgerðum og hersamkom- um. Hann hefur skrifað fáar, stuttar greinar um málið og rætt það efnislega, án minnstu persónulegrar áreitni og út frá því sjónarmiði, að enn væri bæði skoðanafrelsi og málfrelsi í landinu. Hann hefur ekki um það skeytt, hvort hann væri einn á báti eða ætti sér skoð- anabræður, ekki allfáa. Hann hefur talið að hófleg, rök væru hyerju málí meirí styrkur en ofbeldi og mái.amiðlun betri en stórmæli, sem leiddu til strands. , Þessi afstaða Óskars Sigtryggs sonar er eina hugsanlega skýr- ingin á hinu nafnlausa níðbréfi til hans, og að honum skuli vera send nafnlaus . eftirlíking af skammarvísu um mig, sem hon- um kom þó ekkert við. Ég hefi ekki komið við sögu í núverandi deilumálum héraðs ins. Aftur á móti hafa atvikin hagað því svo, að ég hefi um alllangt árabil átt nokkurn þátt að mannlífinu norður hér. Hvort sá þáttur hefur verið til meins eða gagns er ekki mitt að dæma. En nokkur vorkunn er mér, þótt mér standi ekki á sama um menningu héraðsins, og þótt mér á dimmum vetrardegi þyki sem eitthvað sé bogið við mann líf þess, eins og það kemur fyr- ir sjónir. Þessi afstaða mín og svo hin margumtalaða maurasýruvísa, sem svo óverðskuldaða athygli hefur vakið og því miður virð- ist hafa valdið miklum sárind- um í sumum tilfellum, er eina skýringin, sem ég kem auga á sem orsök þess að mér skuli vera sendur nafnlaus níðkviðling ur, þótt eftir krókaleiðum sé. Níð þessa nafnlausa dáta, hver sem hann er, skiptir okk- ur Óskar á Reykjarhóli ekki minnsta máli. Það skiptir hér- aðið og málefni þess heldur ékki rieinu hvað um okkur kann að vera persónulega sagt eða skrifað. Það er anhað og miklu alvarlegra í efni. Hamingjan hjálpi því málefni, sem hefur slíkum hermönnum á að skipa sem þeim, er standa að hinum nafnlausu bréfum, hvað þá ef þeir skyldu telja sig kjörna til þess að berjast í fylk- ingarbrjósti. Ekki vitmar nafnlaust níð um hugrekki heldur hugleysi. Ekki um góðvild heldur hið gagn- stæða. Ekki um vitsmuni held- ur í þessu tilfelli um tregar gáfur. Ekki um hugsjónir og fórnarlund, heldur um mið, dregin af maurum og ótta þess, sem hefur vonda samvizku. Og hamingjan hjálpi þessari blessuðu þjóð á þeim degi, þeg- ar skoðanafrelsi og ritfrelsi og frelsi til að gera stökur verður af henni tekið og látið varða Stórmælum, og ofbeldi látið skera úr um ólík sjónarmið og lífsviðhorf. Það er gott að vera kominn á síðari hluta æviinnar og eiga þess góða von, að þurfa ekki að lifa slík ótíðindi. „f Kinninni fyrir norðan“ stendur enn það fjall, sem hef- ur þrjú nöfn, eftir því hvaðan það er séð. Af því fjalli hefur Nóbelsskáldið tekið dæmi þess að ekki aðeins einn sannleik- ur, heldur tveir og jafnvel þrír, varði ýms mál. Það dæmi stend- ur þannig óhaggað. Af því dæmi mættu þeir gjarna draga lær- dóm, sem staddir eru í sálar- háska í fremstu viglínum ótta- sleginnár veraldar og verða nauðugir viljugir að ráða fram úr vandamálum maninlífsins. Gildir það jafnt hvar sem er á hinni hrjáðu jörð. Margir bjartir sólskinsblettir prýða mannlífið í Suður-Þing- eyjarsýslu sem og annars staðar á landinu. Það breytir ekki þeim dómi, að yfir því hvílir einnig dimmur skuggi margs konar meinsemda. Það bætir ekki úr skák að loka augunum fyrir þeirri staðreynd. ■Við Óskar Sigtryggsson mun- um ekki birta hinn nafnlausa níðkviðling, þótt margir hafi farið þess á leit. Til þess er hann í eðli sínu állt of nauða ómerkilegur og illa gerður. Hihs vegar teldum við það ekki br®t á neinum leikreglum, þar sem höfundurinn hefur kosið að fara í felur. Aftur á móti mun kveð- skapurinn geymdur á söfnum, til vifnisburðar, ásamt öðru, þegar menning þess tímabilfl sögunnar, sem við nú lifum á verður brotin tll mergjar. Ég hefi hins vegar séð mig til neyddan að segja framari- | greinda sögu. Til þess liggja þrjár höfuðástæður. Sú fyrst, að dómur minn um þingeyska menningu, sem að gefnu tilefrii var felldur í einni lítilli stöku, hefur farið svo í taugarnar á mönnum, sém raun ber vitni, f öðru lagi, að þeirri stöku hefur verið „svarað“ með persónulegri áreitni — sem að vísu mig varðar engu — í víðlesnu blaði, undir dulnefni. f þriðja lagi sú glæfrastefna, sem deilumál hér- aðsins hafa tekið, ef inafnlaus níðbréf og persónulegar að- dróttanir skulu vera helzta málsvörn gegn rökum og hófleg um umræðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.