Morgunblaðið - 12.03.1971, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 12.03.1971, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1971 21 lf!l Frá óeirðunum í Belfast á Norður-frlandi. Brezkir liermenn flýja undan unglingi, sem býr sig undir að kasta að þeim bensínsprengju. Reginald Maudling innanrikisráðherra, sem hefur kynnt sér ástandið af eigin raun, sagði nýlega á blaðamannafundi, að „langt strið gegn hryðju verkamönnum væri framundan á Norður-írlandi“. Fréttamyndir Nokkur hundruð bændur fengu í lið með sér eiginkonur sinar börn og vinstri sinnaða stúdenta til þess að efna til mótmæla- aðgerða gegn eignanámi lands vegna fyrirhugaðrar gerðar nýs flugvallar skammt frá Tokyo fyrir skömmu. — Konurnar og börnin grétu liástöfum þegar lögreglan kom á vettvang og flutti þau burtu með vatdi Óeirðir eru næstum þvi daglegt brauð í Japan. Hér eiga verðir við bandariska flugstöð í Okin awa í höggi við fjarskiptastarfsmenn, sem gera sig líklega til að ráðast inn á flugstöðvar- svæðið Bandarískj búfræðingurinn Claude Fly, sem var i haldi í 208 daga hjá skæruliðasamtökunum Tupamaros í Uruguay, en nýlega látin iaus, þjáist af hjartasjúkdómi og dvelst nú í sjúkra- liúsi i Montevideo. Hér er kona hans í lieimsókn hjá lionum í sjúkrahúsinu. Forsætisráðherra Kanada, Pierre Elliot Trudeu, og brúður, hans eyddu fyrstu hveitibrauðsdögum sínum á skíðum við Altavatn í Brezku Columbiu, um 120 km norður af Vancouver Mannrán cru orðin algeng í Suður-Ameríku. Nýlega var bankastjóra í Caracas i Venezúela, Enrique Dao, rænt. Lofað var að láta hann lausan gegn lausn irgjaldi. Bróðir bankastjórans, Anibal Dao, sem sést hér fremst á myndinni, hafði eftirlit með greiðslu lausnargjaldsins. Bak við varðmanninn, sem heldur á tösku með lausnargjaldinu, er þingmaðurinn Jose Navarro, sem komst að samkomulagi við mannræningjana um greiðsiu lausnargjaldsins. Töluvert fannfergi liefur verið í suðurhluta álfunnar i þessum mánuði. í Róm urðu margir að skilja við bíla sína vegna snjó- komu. Stúlkan á myndinni átti í erfiðleikum með að finna bíi sinn. I baksýn er ráðhúsið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.