Morgunblaðið - 07.04.1971, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 07.04.1971, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. APRÉL 1971 JMtáyMttMitfrft Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvaemdastjóri Haraldur Sveinsson. Rilstjórar Matthías Johannessen. Eyjóifur KonráS Jónsson. Aðstoðarritstjóri Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, sími 10-100 Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22-4-80. Áskriftargjald 196,00 kr. á mánuði innanlands. i lausasölu 12,00 kr. eintakið. FORYSTA UM SAMSTARFSNEFNDIR F'yrir nokkru skýrði Jóhann * Hafstein, forsætis- og iðn- aðarráðherra, frá því á Al- þingi, að hann hefði skipað nafnd manna ti'l þess að und- irbúa samstarfsnefndir starfs- fólks Sementsverksmiðjunn- ar og stjórnenda verksmiðj- unnar. Kvaðst forsætisráð- herra hafa falið Sveini Bjöms syni, framkvæmdastjóra Iðn- aðarmálastofmmar Íslands, formennsku í þessari undir- búningsnefnd og óskað jafn- framt eftir því, að Vinnuveit- endasamband íslands og Al- þýðusamband íslands til- nefndu hvort sinn fulltrúa í nefndina. Með þessari yfir- lýsingu lá ljóst fyrir, að for- sætisráðherra og formaður Sjálfstæðis'flokksins hafði tek ið fmmkvæði og forustu í því, að komið yrði á fót slík- um samstarfsnefndum í opin- berum fyrirtækjum, en áhugi á þeim hefur farið vaxandi á undanförnum árum. Þrátt fyrir þessa staðreynd, sem Alþýðublaðinu og þing- mönnum Alþýðuflokksins er jafnvel kunnugt um og öðr- -um, heldur Alþýðublaðið því fram í forustugrein í fyrra- dag, að tillaga eins af þing- mönnum Alþýðuflokksins um samstarfsnefndir í ríkisverk- smiðjum hafi hlotið góðar undirtektir á Alþingi hjá þingmönnum allra þing- flokka, nema Sjálfstæðis- flokksins, eins og segir í blað- inu og jafnframt bætir Al- þýðublaðið við, að þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafi ekki viljað styðja tillöguna. Eins og ljóst er af frum- kvæði Jóhanns Hafstein í þessu máli, fer því fjarri, að þingmenn S j álfstæðisf lokks- ins hafi verið andvígir hug- myndum um samstarfsnefnd- ir í ríkisfyrirtækjum. Þvert á móti hefur formaður Sjálf- stæðisflokksins tekið frum- kvæði um skipun slíkra sam- starfsnefnda og má óhikað fullyrða, að þær aðgerðir rnunu bera meiri raunhæfan árangur starfsfólki ríkisfyrir- tækja til hagsbóta en orða- vaðall Alþýðublaðsins um þetta mál. Umbótastefna í tryggingamálum F’ins og kunnugt er, hafa ^ skoðanir verið nokkuð skiptar um það, í hvaða átt beri að þróa almannatrygg- ingakerfið á næstu árum. Sjálfstæðismenn hafa lagt á það áherzlu að sníða beri al- mannatryggingakerfið að þörfum nýrra tíma með það fyrst og fremst í huga, að al- mannatryggingar komi til hagsbóta þeím sem á aðstoð þurfa að halda, en ekki verði miklu fjármagni varið til greiðslu til þeirra, sem ekki þurfa þess með. Alþýðuflokk urinn hefur ekki viljað fall- ast á þetta umbótasjónarmið Sjálfstæðismanna í trygginga málum. f umræðum á Alþingi í fyrradag um almannatrygg- ingafrumvarp ríkisstjómar- innar, lýsti Geir Hallgrímsson yfir því í þingræðu, að hann teldi eðlilegast, að fjölskyldu- bætur kæmu fram sem hækk un á persónufrádrætti, þann- ig að persónufrádráttur yrði hinn sami í krónutölu fyrir hvem gjaldanda, en þeir sem ekki fái notið hans að fullu vegna þess, að tekjur þeirra éru lægri en persónufrádrætt inum nemur, fái þá endur- greiðslu úr ríkissjóði. Jafn- framt sagði Geir Hallgríms- son, að hann teldi að taka þyrfti til meðferðar, hvort og að hve miklu leyti iðgjöld til almannatrygginga skuli vera frádráttarbær frá skatti, þannig að það fjármagn, sem til almannatrygginga fer, nýt- ist sem bezt og einkum þeim til handa, sem mestu þörf- ina hafa. Undir þessi orð Geirs Hall- grímssonar er fyllsta ástæða til að taka. Með þeim er tví- mælalaust mörkuð sú fram- tíðarstefna, sem vinna ber að. Því miður hefur Alþýðu- flokkurinn ekki viljað fallast á slíkar umbætur á trygginga kerfinu, en greinilegt er, af þeim umræðum sem fram hafa farið um tryggingamál- in á Alþingi að undanförnu, að svipuð sjónarmið og Geir Hallgrímsson setti fram í ræðu sinni á Alþingi, eiga vaxandi fylgi að fagna í öðr- um flokkum. Enda er það augljóst, þegar almanna- tryggingakerfið er orðið svo víðtækt sem raun ber vitni um, að höfuðnauðsyn er að koma fram umbótum á því á þann veg, að ekki sé greitt mikið fé til þeirra þjóðfélags- þegna, sem hafa svo miklar tekjur, að þeir þurfa þess engan veginn með að fá slík- ar greiðslur. Er þess að vænta að þessi umbótasjónarmið hljóti vaxandi fylgis á næst- unni. Hugleið- ingar við lát Stra- vinskys í TILEFNI aif láti Igors Stravinskya, sem frá er skýrt annars staðar í blaðin.u, birtir Mbl. huígLeiðingar þrigigja ís- ienzkra tómskálda: horfuim, opinberun nýrra sanminda. Slíkur maður verður ekki gamall þótt hann eldist, og deyr ekki þó að jarð’lífi ljúki. Ölll Djúlitfandi tónsbáld — og fjöldi liðinna — standa mieð eimhverjuim hætti í þakkarskuld við hkm Mtma snillling. Áhrif hams á tórulist 20. aldar- inmar, þróuin hemmair og viðgang, verða aldrei ofmietin. Páll ísólfsson segir: Igor Stravinsky er hniginin í val'inn. Hann var eimn rismesti og sfórbrotn- astá persónuileiki og baráttumaður í heimd fónllistarimnar á þessari öld. Hanin var að vísu mjög umdeilduir í upphafi tónsköpumar sinnar. Bn hanin sigraði giæsilega með nýstárlegum verk- um sínuim, sem bera vott um riisa- vaxnar gáfur og mikla huigfcvæmná. Áhrifa hams gætir víðs veigar um heirn al'lan í tónilist hinina ymgri tónisfcálda, en þau dýrka hamn sem hina miiklu fyrirmynd að stóinmeástara. Jón Þórarinsson segir: Með Igor Stravinsky er liðimn hinn síðasti þeirra tánsikáilda, sem hæst bar í heiminium á fyrra helmingi þessarar aldar. Hamn hafði lifað lengri og við- burðaríkri ævidaig en flestir startfs- bræður hans hafa gert og afkastaði meiru. Hanin var rumnámn úr jarðvegi hirnnar þjóðlegu rússmesfcu rámanití'kur, sem teygði rætur sínar lamigt atftur á 19. öld. í sex áratuigi var hann í sviðs- Ijósinu. Fyrst umlgur fu'Ilbrúi gamalilar hefðar síðan umdeilldur byltiingamaður, loks viðuirtoemnduir meistari og spámað- ur. En gífeflffit leitandi, oft að því er virtist ymgstor himna umgu allit fram á ell'iár. Með hverju nýju verfci harus mábti búast við nýjum tón, nýjum við- Þorkell Sigurbjömsson segir: I árabuigi hafa nötfnin Stravinsky og Picasso verið eims konar tálkniheiti mý- tízitou'mnar í Iistium. Stavinsky hugsaði strax öðru vísi um tóníáisit en róman- tísku fynirrennarar hanis. Hann sagði m.a.: „Tónfliistin tjáir ektoert mema sjálfa sig“. Og öðru sinni skillgreindi hann tóniliist sem „skipufl'ag tóna í tíma- röð“ og að innibllástur væri bara það „að vinna“. En hst hans einfcenndist um- fram allllt af skýrri og rö’krænmi hugsum, hlluiblægri afstöðu tíl smíðatækmimmar. Verk hans eru oftast litrík og í lifandi fjöilbreytilegu M’jóðíaMH. Hann virtist síuingur í verlkum sínum fram á seán- ustu ár, óþreytandi að ieilta inn á nýjar brauitir og var vel heima í hinum óilík- uistu stílbrögðum. Hann var tvímæla- lauist klassísk't stórsikáild mieð beitita kímnigáfu, agaðar og djúpar trúartil- finningar. Kennaraháskólafrum- varp samþykkt en tilraun gerð til að stöðva að viðhöfðu nafnakalli með 18 atkvæðum gegn 11. Frumvarpið var síðan samþykkt sem lög frá Alþingi með 18 atkvæðum gegn 6. það á síðustu stundu A SÍÐUSTU stundu gerðu nokkrir þingmenn í neðri deild Alþingis tilraun til þess að stöðva frumvarp ríkis- stjórnarinnar urn Kennara- háskóla íslands. Þeir Jón Kjartansson, Ágúst Þorvaldsson, Halldór E. Sigurðs son og Björn Pálsson fluttu til lögu til rökstuddrar dagskrár þar sem lagt var til, að af- greiðslu málsins yrði frestað, vegna mótmæla, sem fram háfa komið gegn frumvarpinu m.a. frá háskólamenntuðum kennur- um, þar sem önnur frv. um skólamál verða ekki afgreidd og þar sem samþykkt hefði verið í Efri deild að endurskoða yrði lögin að tveimur árum liðnum. Tillaga þessi var felld með 19 at kvæðum gegn 13. Þá fór fram atkvæðagreiðsla um breytingartillögu Ingvars Gíslasonar þess efnis, að Kenn araháskólinn yrði staðsettur á Akureyri og var sú tillaga felld Vikulegar ferðir læknis tii Þórshafnar AÐ gefmu tilefni í sambandi við frétt í blaðinu uim lækmadkort á Norðiaiugtuiriiandi sikall það tekið fram, að héraðslækinirinjn á Vopniafiirði hetfur þjónað Þór.*- hafinarlækn'iwhéraði umdajntfairiin. ár. Hetfur hanin komilð þar vilku- flega hið minmisiba og haifia efcki fiallið niðuir fierðir stl. tvö áir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.