Morgunblaðið - 07.04.1971, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 07.04.1971, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1971 . . 55 . . virtist vera sofandi þrátt fyrir þennan hræðilega hávaða, og ég sá, að glugginn hjá honum var vel lokaður. Þá fór ég fram í eldhús og sagði við konuna, að það væri kominn háttatími. En hún vildi ekki fara upp. Hún var með eitt af köstunum sínum, þegar engu tauti verður við hana komið. Hún hafði ein- hverveginn náð sér í ginflösku og var nú meira en hálfnuð með hana. Hún sagðist alls ekki fara neitt i rúmið í svona veðri. Hún sagðist heyra vofuna hans Cal- ebs ýlfra um allt húsið, og það spáði ekki neinu góðu fyrir íbúa þess. Og svo tók hún að væla, eins og þið hafið sjálfsagt heyrt hérna um daginn, þegar Caleb dó. Svo ég lét hana eiga sig og fór upp sjálfur. — Það var iika það bezta sem þú gazt gert, sagði Appleyard. — Þetta hlýtur að hafa verið hræðileg nótt, bæði í einu og öðru tilliti. — Já, það var það sannarlega. Ég svaf ekki dúr fyrir hávað- anum. Vindurinn þaut og hvein gegn um tómu hlutana af hús- inu, rétt eins og allir djö'flar vitis hefðu sloppið lausir. Og aðra hverja mínútu runnu hell- urnar niður eftir þakinu og duttu til jarðar með dynkj- um. Og ef hávaðanum linnti and artak, heyrði ég veinin í kon- unni, neðan úr eldhúsinu, rétt eins og djöflarnir væru að kvelja hana. —- Það er þá engin furða þó að þú látir ekki sem bezt út, sagði Appleyard. — Ég þráði mest birtuna til þess að geta séð eyðilegginguna með eigin augum, sagði Horning. — Og þegar morguninn loks ins kom — en þið viljið víst heldur heyra þetta í réttri röð? — Það var rétt fyrir miðnætti, að þá heyrðust meiri brestir en áður hafði verið. Það var eins og rétt uppi yfir höfðinu á mér eins og þakið væri að hrynja yfir mig. Ég þaut niður til þess að líta til húsbóndans. Hann var vakandi og spurði, hvað gengi á. Ég sagðist ekki vita það, en skyldi aðgæta það. En hann sagði að ég mundi ekkert sjá og ætti heldur að biða morg- unsins. Svo að ég fór fram í eldhús og fann þar konuna mína sofandi i stólnum, en flaskan lá tóm á hliðinni á borðinu fyrir framan hana. Ég hef komizt að því síðan, að nokkuð af hávað- anum stafaði frá því að þak- ið hrundi af austurálmunni. ■<— Já, við tókum eftir þvi, þegar við komum, sagði Appley- ard. — Þér hlýtur að hafa orðið hverft við. En heyrðirðu nokk- uð fieira þarna um nóttina? — Hávaðinn hélt áfram lengi á eftir að ég var kominn i rúm- ið aftur. Það hiýtur að hafa verið farið að birta, þegar iygndi og ég hélt þá, að ég gæti að minnsta kosti sofið eina tvo klukikutíma. En það gat ég ekki. Ég fann það einhvern veg- inn á mér, að eitthvað hefði komið fyrir og gat ekki sofnað. Ég fór því niður um kfukkan sex og hitaði mér tebolíla. Kon- an svaf enn í stólnum og ég vildi ekki ónáða hana. —Þú vissir ekki þá, að turn- inn var hruninn? — Nei, ég hafði ekkert heyrt í honum í öllum þessum hama- gangi þegar hellurnar voru að hrynja af þakinu. Og þegar ég var búinn að drekka, fór ég að laga svolítið til í eldhúsinu, og eldhúsgiiuggarnir vita ekki út að tuminum. — Og svo, rétt fyrir sjö, var barið á eldhúsdyrnar. Ég gat ekki skilið, hver þetta gæti ver- ið, svona snemma dags, en opn- aði samt, og þama var hann Wally litli Chudley, kafrjóður og másandi rétt eins og hann hefði verið á hlaupum. Ég spurði hann, hvað i ósköpunum væri að, og hann sagðist vera sendur til að segja mér að turn- inn hefði fokið um koil um nótt- ina. — Ég trúði nú bara ekki mín- um eigin eyrum. Ég sagði við Wally að það væri ekki failegt Njótið hinnar útfjólubláu geislunar af fjallasnjónum - VERÐIÐ BRÚN — BRENNIÐ EKKI NOTIÐ COPPERTONE COPPERTONE er langvinsælasti sólaráburðurinn í Bandaríkjunum. Vísindalegar rannsóknir fram- kvæmdar af hlutlausum aðiia, sýna að Coppertone sólaráburöur gerír húðina á eölilegan hátt brúnni og fallegri á skemmri tíma, en nokkur annar sólar- áburður sem völ er á. Heildverzlunin Ýmir Haraldur Árnason Sími 14191. heildverzlun, sími 15583. að koma og hræða fólk með svona reyfarasögum. En hann stóð fast á þessu og sagði, að imér væri þá eins gott að að- gæta það sjáiifur. Ég kom því hérna inn í stofuna og dró frá glugganum. Og þá sá ég þetta, sem við sjáum núna. Brytinn benti skjál'fandi fingri út um gluggann, þar sem stóM Símonar var vanur að slanda. Og í morgunsólinni sást móinn, en þessi ógnandi upprétti fingur, sem eitt hinn hafði staðið uppd á brekkunni var nú horfinn. Horning hóstaði þreytulega og hélt áfram — Ég veit ekki, hve lengi ég stóð og horfði á þetta. Ölil þau ár, sem ég mundi eftir mér, hafði ég séð turninn, hvenær sem ég leit út um glugg- ann. Og nú var hann horfinn. Ég hélt fyrst, að birtan væri að gera mér einhverjar sjón- hverfingar, og þegar sólin kæmi bet.ur upp, mundi ég sjá turninn standandi á sínum stað. Og þeg- ar svo sólin kom gegn um ský- in, sá ég móann eins og þið sjáið hann núna, og ekkert á honum. Og mér datt í hug það, sem kon- an hafði verið að segja um nótt- ina um vofuna hans Calebs og datt í hug að kannski . . . — Ég fór aftur fram í eld- hús, og þarna stóð Wally enn við dyrnar. Hann glotti til mín og spurði, hvort ég væri nú sannfærður, en einhvern veginn gat ég ekki svarað honum. Ég gaf honum nokkra sykurmola — það var það eina, sem til var í húsinu - og bað hann að hinkra dálíitið við. Ég vissi fullivel, að ég mundi bráðlega þarfnast hjálpar. — Þér sfkiljið, að það var óhugsandi að leyna þessu fyrir húsbóndanum. Það fyrsta sem hann gerði á hverjum morgni, þegar ég færði honum teboll- ann hans, var að reisa hann upp í rúminu, svo að hann gæti séð út um gliuggann. Gluggarnir á svefnherberginu vita í sömu átt og gluggarnir hérna og hann var alltaf vanur að lítá á turn- inn þegar ég dró frá þeim. Það virtist veita honum eins konar öryggi, ef þið skiljið, hvað ég á við, herrar mínir. — Já, við skiljium það fullkom lega, sagði Appleyard, lágt. — Gefðu þér góðan tíma og segðu okkur, hvað gerðist. - Þakka yður fyrir. Ég vissi nú ekki hvað bezt væri til bragðs að taka. Þarna var enginn í kallifæri nema ég og húsbóndinn. Ekki nema konan mín, steinsofandi og svo Walily, sem var að bryðja sykurjnn, sem ég hafði gefið honum og sparka i vegginn. Og kl'ukkan var hálf átta og vatnið sauð á katlinum tilbúið i teið húsbóndans. En þarna var ekkert hægt að gera, það vissi ég strax. Húsbóndinn hafði bjölilu hjá sér, sem Benjamín hafði einu sinni sett upp, og hann hefði hringt ef teið hefði ekki verið nema Ilniturinn, 31. marz — 19. apríl. Reyndu að prófa getu þína í dag. Nautið, 20. apríl — 20. niaí. Góð framkoma gengur alls staðar. Tvíburarnir, 21. maí — 20. júní. Vendu þig við iðjusemi og samstarf. Vinir og ættingjar vilja þér vel. Krabbinn, 21. júnf — 22. júlí. Almenn skynsemi gefur góða raun. LJónið, 23. júlí — 22. ágúst. FJiilskyldan hcimtar sinn toll, þótt crfilt sé. Meyjan, 23. ágúst — 22. september. I>ú færð byr undir háða vængi á næstunni. Vogin, 23. september — 22. október. Þú færð bctri hljómgrunn cn þú áttir von á. Sporðdrekinn, 23. oktöber — 21. nóvember. Reyndu að halda þig utan við allar dcilur. Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desenilier. Þú ert alltof hlutdrægur þcssa stundina. Steingeitin, 22. deseniber — 19. janúar. Þú verður að fá betri upplýsingar áður en þú skipuicggur. Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar. Þú verður fyrir ýmsum töfum í starfinu. l iskarnir, 19. febrúar — 20. niarz. Rcyndu að sýna ástvinum þínnm nmhyggju.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.