Morgunblaðið - 07.04.1971, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 07.04.1971, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1971 Laus staða Staða við embætti skattstjórans í Vestfjarðaumdæmi er laus tíl umsóknar. Laun samkvæmt kjarasamningi opinberra starfs- manna. Umsóknir um stöðu þessa sendist til skattstjórans í Vest- fjarðaumdæmi. Fjarðarstræti 15, Isafirði, eigi síðar en 1. maí næstkomandi. Isafirði, 2. apríl 1971 Skattstjóri Vestfjarðaumdæmis. Opið til kl. 10 í kvöld SENDUM HEIM. Verzlunin BREKKA Ásvallagötu 1, sími 11678. Frá Skiðaskálanum Hveradolnm Kalt borð verður i hádeginu um páskana, heitur matur á kvöldin. Njótið fjallaloftsins og drekkið eftirmiðdagskaffi. MIKILL CG GÓÐUR SKÍÐASNJÓR. SKÍÐASKALINN I HVERADÖLUIUI. Páskaegg Páskaegg PÁSKAEGGIN fyrir alla fjölskylduna fáið þér hjá okkur. Verzlunin ÞÖLL Veltusundi 3 (Gengt Hótel ísland bifreiðastæðinu). Sími 10775. FULLTRÚARÁÐ / SJÁLFSTÆÐISFÉLAGANNA í Kópavogi efnir til fundar i Félagsheimilinu kl. 2C.30 fimmtudaginn 15. apríl n.k. Dagskrá: 1. Kjör fulftrúa á landsfund. 2. Matthías A. Mathiesen flytur ræðu um nýorðnar breytingar á skattalögum. FulHrúaráðsmeðlimir eru hvattir til að fjölmenna. STJÓRNIN. ísafjörður Nærsveitir FÉLAGSMÁLANÁMSKEIÐ Ungir Sjálfstæðismenn efna til félagsmálanámskeiðs dagana 16.—18. apríl n.k. i Sjálfstæðishúsinu. Isafirði. DAGSKRA: Föstudag 16. apríl ki. 20.00. UM RÆÐUMENNSKU. Laugardag 17. apríl kl. 18.00. UM FUNDARSKÖP OG FUNDARFORM. Sunnudag 18. apríl kl. 20.00. UMRÆÐUFUNDUR. Leiðbeinandi verður Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson stud. jur. öllu Sjálfstæðisfólki er heimil þátttaka. Samband ungra F.U.S. Fylkir, (safirði. Sjálfstæðismanna. F.U.S. í N-isafjarðarsýslu. — Getraunlr Framh. »1 blis. 30 Liverpool — W.B.A. 1:1 Man. City — Everton 3:0 West Ham — Man. Utd. 2:1 Wolves — Nott. Forest 4:0 2. ðeild: Blackburn — Sheffield W. 3:2 Cardiff — Bristol City 1:0 Carlisle — Leicester 0:1 Chariton — Orient 2:0 Hull — Watford 1:0 Luton — Birmingham 3:2 Oxford — Middlesboro 2:2 Portsmouth — Millwall 0:2 Q.P.R. — Bolton 4:0 Sheffieíd Utd. — Norwich 0:0 Sunderland — Swindon 5:2 Leeds vann öruggan sigur gegn Burníey og skoraði Allan Clarke öll mörk Leeds, tvö í hvorum hálf- leik. Clarke lék vörn Bumley gTátt og hann nýtti ekki nokkur gullvæg tækifæri. — Arsenal lætur engan bilbug á sér finna, þrátt fyrir marga erfiða leiki að undanförnu og Chelsea beið ósigur á Highbury. Ray Kennedy ^koraði bæði mörk Arsenal í síðari hálfleik. Higtibury var troðfullur áhorfendum eða 62 þúsund talsins og hafa þá 180 þús- und áhorfendur séð Arsenal leika á einni viku. — Hugh Curran skoraði þrjú mörk Úlfanna gegn Nott. For- est, en fjórða markið skoraði Bobby Gould. — West Ham vann góðan sigur gegn Man. Utd. og er nú sennilega úr fallhættu. West Ham skoraði tvívegis á fyrstu níu mín- útum leiksins og voru þeir Geoff Hurst og Bryan Robson þar að verki. Man. Utd. sótti ákaft í síðari hálfleik og Willie Morgan misnotaði vitaspymu. Undir lok leiksins skor- aði George Best heppnismark með aðstoð dómarans. — Blackpool tap- aði á heimavelli fyrir Newcastle og er nú með annan fótinn í 2. deild. Alan Foggon skoraði eina mark leiksi-ns í síðari hálfleik. — Gordon Banks stóð ekki í marki Stoke gegn Crystal Palace og þar með vann Palace sinn fyrsta leik síðan i des- ember. — Man. City vann auðveld- an sigur gegn Everton en Everton virðist dautt úr öllum æðum eftir tapið gegn Liverpool í bikarkeppn- inní. Og þá er röðin komin að get- raunaspá vikunnar: Bmrnley — Blackpool 1 Bæði liðin ramba á barmi falls í 2. deild, en þó er staða Blurnley öllu skárri. Liðin skiidu jöfn i fyrri umferð, en að þessu sinni hlýtur Burnley að bera sigur úr býtum. Everton — Wolves 1 Það hefur ekki reynzt gæfu- legt að veðja á Everton að und- anförnu, en trúlega reynir liðið að spyrna við fótum í þessum leik. Úlfarnir eru ekki lengur nein lömb að leika sér við, en á undanförnum árum hafa þeir aiitaf tapað á Goodison Park. Ég spái Everton sigri. Huddersfield — Man. City X Huddersfield hefur gert sjö jafntefli á heimavelli og Man. City jafnmörg jafntefli á úti- vellL Man. City á leik á föstu- daginn og undanúrslitin í Evr- ópukeppni bikarhafa eru skammt undan og varla leikm1 iiðið stíft til vínnings. Ég spái jafntefli. Man. LHd. — Derby 1 Man. Utd. hefur unnið hvem leikinn af öðrum á heimavelli að undanförnu, en Derby hefur tapað þremur síðustu leikjum sinum á útivellL Liðin skildu jöín í Derby 4:4, en nú veðja ég eindregið á Man. Utd. Newcastle — Leeds X Newcastle hefur ekki tapað á heimavelli í langan táma og mig langar hálft í hvoru að spá liðinu sigri, en ég þori það varla, þar sem Leeds er annars vegar. Ég spái jafntefli og mega þá bæði líðin vel við una. Southampton — Arsenal X Southampton hefur aðeíns tapað einu sinni á heimavelli tíl þessa, en þrir af síðustu fjór um leikjum hðsins þar hafa orðið jafntefli. Arsenal er til alls líklegt, en ekki tel ég lík- Jegt að liðið nái báðum stigun- um í Southampton. Liðin skildu jöfn á Highbury og ég reikna með sömu úrslitum riú. Stoke — Liverpool 1 Stoke befur tapað tveimur síðustu leifejum sínum á heima- velii, en að þeim leikjum sieppt um hefur liðið ekki beðið ósig- ur á heimavelli í vetur. Liver- pool hefur tapað tveimur sið- ustu leikjum sínum á útivelli. Bæði liðin hafa lagt áherzlu á bikarkeppninna að undanförnu og Liverpool á einnig eftir að berjast við Leeds í undanúrslit- um Borgarkeppni Evrópu. Liðin skildu jöfn í Liverpool, en ég reikna með sigri Stoke í þese- um ieik. 3310 3 2 Carlisle 2 9 6 50-37 42 35 13 2 2 Middle«á>. 4 5 9 53-36 41 36 10 7 1 Norwich 4 6 8 46-42 41 3511 5 2 Birmwigham 5 3 9 56-42 40 36 10 5 3 Millwall 4 4 10 46-39 37 35 12 4 2 Swindon 1 4 12 51-42 34 35 10 5 3 Sunderland 2 4 11 43-48 30 35 5 7 5 Oxford 6 4 8 34-43 33 36 10 5 3 Sheff. Wed. 2 4 12 47-60 33 35 5 9 3 Orient 4 5 9 25-40 32 34 8 4 5 Q.P.R. 3 5 9 47-47 31 35 9 3 6 Portsmouth 1 7 9 42-53 30 35 5 5 7 Watford 3 6 9 32-51 27 35 7 5 5 Bristol C. 1 4 13 39-57 25 36 5 6 7 Blackburn 1 51132-59 23 34 6 4 8 Charlton 1 6 11 31-56 22 36 6 4 8 Bolton 1 4 13 31-61 22 R. L. Blackpoo! — Xottenham 2 Þesai leikur verður leikinn á annan dag páska, en þá tel ég vist, að Blackpool verði þegar fallið í 2. deild. Tottenham hef- ur átt erfitt uppdráttar að und- anförnu, en þessi leikur gefur liðinu gott tækifæri til þess að ná sér á strik á ný. Ég spái því Tottenham sigri. Cheisea — Liverpool 1 Bæði hðin leika í Evrópu- keppnum um miðja næstu viku og líklega verður þessi leikur færður til vegna óska beggja fé- laganna. Ég spái Chelsea sigri að öllu óbreyttu. Derby — Soufhampíon 1 Bæði liðin standa í ströngu á laugardaginn og úrslit þessa leiks eru því torráðin. Derby hefur gengið illa að undanförnu svo að tími er kominn til, að liðið sýni hvað í því býr. Sout hampton verður varla auðunn- ið, enda hefur liðið augastað á sæti í hinni nýju Evrópukeppni (UEFA-Cup) að ári, en ég spái samt Derby sigrL Man. Utd. — Woíves 1 Ég hefi áður spáð Man. Utd. sigri gegn Derby og Úlfunum tapi gegn Everton á laugardag- inn og ef þau úrslit koma upp spái ég Man. Utd. sigri á ný á heimavelli. Úlfarnir unnu naum an sigur á heimavelli fyrr í vet ur, en ég held, að taflið snúist við í þessum leik. Newcastle — Man. City 1 Newcastle er eins og áður sagði harðsnúið lið á heima- velli. Man. City hefur óskað eft ir frestun á þessum leik vegna undanúrslita í Evrópukeppni bikarhafa, en verði liðið neytt til þess að leika þennan leik á annan í páskum, reikna ég með öruggum sigri 'Newcastle. Að lokum birtu við hér að venju stöðu liðanna í 1. og 2. deild: l. 36 14 2 2 Leeds 33 14 3 0 Arsenal 35 12 2 4 Wolves 36 10 5 2 Chelsea 3511 5 1 South.ton 34 10 8 0 Liverpool 33 8 4 4 Tottenham 34 7 7 2 Manch. 35 8 6 3 Newcastle 34 7 6 4 Manch. Utd. 34 9 3 5 Coventry 36 9 6 3 Everton 35 7 4 7 Derby 36 8 5 6 C. Palace 34 8 6 2 Stoke 36 9 6 3 W. Bromw. 36 6 7 5 Huddersf. 36 8 3 6 Notth. For. 35 8 2 8 Ipswich 36 4 8 6 West Ham. 36 2 8 8 Bumlev 35 2 7 8 Bíackpool deild: 10 6 2 64-27 56 8 3 5 59-26 50 7 5 5 99-49 46 6 7 6 47-38 44 4 6 8 47-36 41 3 6 7 34-20 40 6 7 4 45-30 39 5 7 6 40-28 38 5 3 10 38-40 35 548 49-51 34 4 5 8 29-31 34 2 5 11 49-53 33 5 4 8 46-49 32 3 5 9 32-40 32 2 5 11 40-43 31 0 7 10 53-64 31 3 5 10 36-44 30 3 4 11 36-52 29 2 510 37-43 27 3 5 9 31-54 27 2 5 ÍO 25-56 21 1 413 27-59 17 City 2. deild : 35 11 5 2 Leicester 3410 7 1 Cardiff 35 10 6 1 Sheff. Utd. 34 11 5 1 Luton 35 8 5 4 Hull 8 5 4 49-27 48 7 4 5 56-28 46 7 5 6 59-37 45 5 6 6 50-27 43 « 6 4 46-32 43 — Skotanýting Framh. af bls. 30 ein og til dæmis Heidermann, sem nú var mun verra að taka úr umferð. Dómarar í leiknum voru sænskir, og verður það að segj ast, þvi miður, að þeir dæmdu afar illa. Tæpast verður þó hægt að saka þá um viljandi hlutdrægni, en hjá því fór samt ekki að manni fannst þeir taka strangar á leikbrotum íslend- inganna en Dananna. Annara var misræmið í dómum þeirra það versta, annar dæmdi t. d. vítakast á brot sem hinn dæmdi tæpast aukakast á. Slíkt kann ekki góðri lukku að stýra. En íslendingar þurfa sannar- lega ekki að bera kinnroða, þótt þessi leikur tapaðist. — Þegar á allt er litið verður ekki annað sagt en að íslenzka liðið hafi leikið ágætlega, og er greinilegt að „kjarninn" er að þéttast og leikmennimir famir að ná saman betur en oft áður. Þetta lið á sannarlega framtið- ina fyrir sér, þar sem elzti mað urinn í því er aðeins 25 ára. Takizt að halda því sem áunn- izt hefur og laga það sem mið- ur fer, getur þetta lið orðið enn meira stórveldi en það er, og gert stóra hluti í keppni keppnanna, sem það á framund an — Olympíuleikunum. í leiknum á mánudagskvöldið komu mörkin þannig: Z mín. 1:0 Jón 3. mín. 1:1 K. Andersen 5. mín. 2:1 Gísli (vítit) 7. mín. 3:1 Geir 8. mín. 3:2 Iwan Christ. 10. min. 4:2 Geir 11. mín. 4:3 Heidemann 12. mín. 4:4 B. Jörgensen 13. mín. 4:5 K. Andersen 17. mín. 5:5 Jón 21. mín. 5:6 Heidemann 25. mín. 5:7 Klaus From 26. mín. 6:7 Geir 29. mín. 6:8 Iwan Christ. 30. min. 7:8 Gísli (víti) 33. mín. 7:9 B. Jörgensen 35. mín. 8:9 Gísli (víti) 35. min. 8:10 K. Anderson 36. mín. 9:10 Bjarni 36. mín. 9:11 Heidemann 37. mín. 10:11 Stefán 39. mín. 11:11 Geir 45. mín. 11:12 K. Andersen 48. mín. 12:12 Jón 48. mín. 12:13 Iwan Christ. 50. mín. 12:14 Iwan Christ. 51: mín. 12:15 B. Jörgensen 54. mín. 13:15 Gísii 55. mín. 14:15 Gunnsteinn 58. mín. 15:15 Viðar 60. mín. 15:16 K. Andersen Þremur dönskum leikmönn- um: Jörgen Frandsen, Kjeld And ersen og Iwan Christiansen og þremur íslenzkum: Gunnsteini Skúlasyni, Gísla Blöndal og Sig urbergi Sigsteinssyni var vísað af leikvelli í 2 mín. Víðavangshlaup ÍR — á sumardaginn fyrsta VÍÐAVANGSHLAUP ÍR mun fara fram á sumardaginn fyrsta í 56. sinn. Keppt er um ein- staklingsverðlaun auk þess sem keppt er í 3ja, 5- og lOmanna sveitum. í fyrra unnu KR-ingar 3ja manna sveitina en UBK hinar báðar í þriðja sinn í röð og þar með bikara þá, eem um var keppt, til eignar. Þátttaka í fyrra var mjög mik íl eða um 40 manns, en nú er búizt við að sú tala hækki að mun, því sjálfsagt munu marg ir trimmarar og skokkarar vilja taka undir áskorun dr. Gunn- laugs Þórðarsonar frá í fyrra um að þeir, sem skokki um sér til heilsubótar, hafi þátttöku í víðavangshlaupinu sem hápunkt æfinga sinna, líkt og Svíar gera við sín löngu hlaup, Vasagöng una og Lidingöhlaupið. Þátttökutilkynningar þurfa að hafa borizt til þjálfara ÍR-inga, Guðmundar Þórarinssonar, Bald ursgötu 6, síma 12473, eigi siðar en 19. apríl.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.