Morgunblaðið - 14.04.1971, Qupperneq 4
4
MORGUNT3LAÐIÐ, MXÐVIKUDAGUR 14, APRÍL 1971
>
BILALEIGA
IIVERFISGÖTU 103
VW Sendiferðabifreið-VW 5 manna-VW svefnvagn
VW 9manna-Landrover 7manna
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastræti 13
Sími 14970
Eftir lokun 81748 eða 14970.
Bílaleigan
UMFERÐ
Simi 42104
SEIMDUM
MYNDAMÓT HF.
AÐALSTRÆTI 6 — REYKJAVÍK
PRENTMYNDAGERÐ SlMI 17152
OFFSET-FILMUR OG PLÖTUR
AUGLÝSIIVIGATEIKNISTOFA SIMI 25810
Ms. Hekla
fer austur um land í hringferð
fyrri part viku. Vörumóttaka i
dag og á morgun og föstudag
til Hornafjarðar, Djúpavogs,
Breiðdalsvíkur, Stöðvarfjarðar,
Fáskrúðsfjarðar, Reyðarfjarðar,
Eskifjarðar, Norðfjarðar, Seyðis-
fjarðar, Borgarfjarðar, Vopna-
fjarðar, Þórshafnar, Raufarhafn-
ár, Húsavíkur, Akureyrar og
Siglufjarðar.
AVERY
Q Gestir, sem ekki heilsa
Margrét Sighvatsdóttir
í Grindavlk skrifar:
„Kæri Velrvakandi.
Bara fáeinar ltnur — en
margt er hugsað og minna skrif
að.
Fyrst langar mig til þess að
þakka þér kærlega fyrir margt
fróðliegt og skemmtilegt á liðn-
um árum. Svo langar mig til
þess að kvarta svolitið út af
sjónvarpinu. Eitt skil ég ekki,
hvers vegna fréttaþulimir
heilsa aldrei áður en fréttalest
ur hefst á kvöldin. Vonandi
eigum við ekiki að líta á þá
eins og sjálfvirkar vélar, setn
settar eru í gang og ganga svo
stanzlaust þar til þeirra verki
er lokið án þess að heilsa eða
kveðja.
Mér finnst, að allir, sem
koma fram í sjónvarpinu séu
gestir á heimilinu, og vanalega
heilsa nú flestir, sem koma i
heimsókn. Mér finnst ólíkt
skemmtilegra að gefa þvi fólki
kaffi, sém kainn „mánnasiði."
Og eitt enn. Mér finnst sj'álf
Böka- og poppírsgeymsla
Gott og þurrt húsnæði, lágmarksstærð um
80 ferm. óskast nú þegar.
Upplýsingar veittar í síma 19707 kl. 13.00 —
17.00 í dag og á morgun.
Skóli ísaks Jónssonar
( sjálfseignarstofnun)
Orðsending til foreldra
Foreldrar, sem eiga börn fædd 1965 og hafa hug á að senda
þau í Skóla ísaks Jónssonar næsta vetur eru vinsamlegast
beðnir að láta innrita þau fyrir apríllok.
SKÓLASTJÓRI.
PINOTFX
bezti
lieimilisYÍnurimi!
Pinotex smýgur
djúpt inn í viðinn,
verndar hann
gegn raka og bleytu,
gefur viðnum fallegt
útlit.
Faest giært og
í 7 eðlilegum
viðarlitum.
Fæst í helztu
málningar-
og byggingavöru-
verzlunum.
Umboðsmenn: NATHAN & OLSEN HF.
sagt að innlendu fréttirnar séu
lesnar fyrst, eða þær séu að
minnsta kcxsti hafðar saroan í
röð svo ekki þurfi að bíða all-
an fréttatíimann eftir þeim.“
0 „Hver er þetta?“
„Aðeins um simann, Hivenær
ætlar fólk að læra þá sjáif-
sögðu kurteisi að kynna sig eða
fyrirtaokið, sem það hringir frá.
Til dæmis ættu þessi stóru og
velmetnu fyrixtæki í Reykja-
vik að hafa vel menntað fólk í
vinnu. Oft verðum við náðar-
samlegast að spyrja: „Hver er
þetta, sem talar, með leyfi?“.
Vonandi stendur þetta til
bóta.“
0 Þá var glaðzt yfir
mörgu
„í>á langar mig til þess að
biðja þig, Velvakandi minn, að
skila mjög góðu þakklæti til
Umf. Dagsþrúnar á Rangánvöll
um fyrir komuna hinigað 5.
marz s.l. með sjónleikinn
„Syndir annarra." Það er mjög
ánægjulegt og gaman að fá
svona „leikhúsferð" bara beint
upp í hendurnar. Það er aðdá-
unarvert oig ekki nógsamlega
þakkað, þegar fólkið í dreifbýl
inu leggur á sig að æfa svona
stór stykki, — og mættu mang-
ir af læra. Þetta minnir mig svo
skemmtilega á gömlu, góðu dag
ana heima í minni sveit, Gaul-
verjabæjatkreppi, þegiar ég
var unglingur. Þá var aðal tii-
hlöklkunarefnið mestall't' árið,
jólaskemimtun Umf. Samhygð-
ar. Var þá venjuiega búið að
æifa gott leikrit, og svo döns-
uðu allír aldursfiokkar til
morguns. Og svo íþróttamótið á
sumrin sem ungir og gamlir
voru búnir að æfa sig fyrir á
kvöldin eftir vinnutíma. Já, þá
var glaðzt yfir mörgu, sem
þætti ekki merkilegt núna.“
0 Minningar sem ylja
„Það er þessi hraði nú til
dags og of margt sem glepur,
svo fóik hefur ekki eins góðan
tíma til að njóta hlutanna al-
mennilega og áður. En við bú-
um að þessum bernskuiminning-
um. Þær ylja ofckur og lýsa
eins og allt fagurt og gott, sem
við lifum, hjálpa okkur í svart-
asta skammdeginu eins og viss-
an um það, að sérhverjiu okk-
ar er ætlað að gegna ákiveðnu
hlutverki i liífinu. Þetta hjálpar
okkur til að líta björtum aug-
um til vorsins og hækkandi
sólar.
Og með ósk um, að hún
vermi og græði hjörtu þeirra
mörgu, sem um sárt eiga að
binda, óska ég öllum lands-
mönnum gaafu og góðs gengis á
komandi sumri.
Margrét Sighvatsdóttir
Grindavik."
Sumarbústaður
Til sölu er lítill en skemmtilegur sumarbústaður við Hafra-
vatn. Góð kjör.
Upplýsingar í síma 82636 eftir kl. 6.
Skrifstofustarf
Stúlka helzt vön skrifstofustörfum óskast sem fyrst til starfa
hjá traustu fyrirtæki.
Umsókn um starfið ásamt upplýsingum um aldur, menntun
og fyrri störf sendist afgr. Mbl. fyrir 16. þ.m. merkt: „7340".
Au Pair í 1 ár
Barngóð enskumælandi stúlka 17—20 ára óskast á skozt
heimili. Þarf að gæta 3ja ungra barna, hjálpa til við heimilis-
störf, fær sérherbergi og góðan frítíma, stúlkan verður ein
af fjölskyldunni. Nýtt einbýlishús.
Svar á ensku, mynd og upplýsingar um fyrri störf óskast sent.
Mrs. D. M. Clark
12. Binghill Cres Milltimber
Aberdeen Scotland.
Söluskattur
Dráttarvextir falla á söluskatt fyrir gjaldtímabilið janúar og
febrúar 1971, svo og nýálagðar hækkanir á söluskatti eldri
tímabila, hafi gjöld þessi ekki verið greidd í síðasta iagi
15. þ.m.
Dráttarvextirnir eru í 114% fyrir hvern byrjaðan mánuð frá
gjalddaga, sem var 15. marz s.l. Eru því lægstu vextir 3%
og verða innheimtir frá og með 16. þ.m.
Sama dag hefst án frekari fyrirvara stöðvun atvinnurekstrar
þeirra, sem eigi hafa þá skilað skattinum.
Reykjavik, 13. april 1971.
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ.