Morgunblaðið - 01.05.1971, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.05.1971, Blaðsíða 1
52 SÍÐUR (TVÖ BLÖÐ) 97. tbl. 58. árg. LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1971 Prentsmiðja Morgunblaðsins Afhendingu þotna til Libyu flýtt Sex nýjar Mirage-orrustu- vélar J>egar komnar þangað París, 30. apríl. AP. FKAKKAR haía afhent Libyu sex tveggja sæta Mirage-orrustu þolur, tveim mánuffum fyrr en áætlaff liafði veriff. Er þar meff byrjaff aff uppfylla samning, sem gerffur var um sölu á 110 Mirage-þotum til Libyu. Hernaðarsérfræðingur franska blaðsins Le Monde, segir í grein um þetta að líklega hafi verið flýtt fyrir þessari fyristu af- hendingu með því að taka flug- vélarnar beint úr framleiðslu- líinunni, og þurfi franski flug- herinn því að bíða nokkuð eftir vélum, sem hann hafi pantað. SaOain á Mirage-þotum fil Lib- yu hefur vakið úlfaþyt víða, ekki sízt í Frakklandi sjálfu. Libya gerðist nýlega aðili að myndun sambandsríkis með Egyptalandi og Sýrlandi, og einn liðurinn í stefnuskránni er að herir landanna verði und- ir sameiginlegri yfirstjórn. Það er því ekkert því til fyrirstöðu að Mirage-þoturnar verði not- aðar gegn ísrael, ef til stríðs kemur og finnst mörgum það hart, sérstaklega með tilliti til þess að Frakkland neitaði að afhenda fsrael 50 Mirage-þotur, sem þegar var búið að borga. Franska stjórnin hefur lýst því yfir að í kaupsamningnum sé tekið fram að Libya megi ekki nota þoturnar nema til að verja sín eigin landamæri, en Kadafi, leiðtogi Libyu, hefur lýisit því yifir að þjóð hans geti gert það sem hentni þótoast við hergögn, sem eru keypf fyrir heniniar p'eniniga. Hundruð gef ast upp á Ceylon Stórfelldri sókn hótað gegn skæruliðum, sem ekki gefist upp COLOMBO 30. apríl — AP. Að niinnsta kosti 160 nppreisn- armenn hafa gefizt upp imdan- farna tvo sólarliringa eftir harðnandi árásir herliðs og flug- véla á liðssafnað skæruiiða í Sinharaja-frumskógi, í suðaust- urhluta Ceyions, og útvarpsstöð hefur verið náð úr höndum skæruliða á sömu slóðum, að því er stjórn Ceyions segir í tilkynningu í dag. I miðhluta landsins hafa 80 ungir upp- reisnarmenn gefizt upp. Firá og með morgundegmum haifa uppreisinarmeinn fresit í fjóira daiga til þeiss að gefast upp gegin taforði um góða með- ferð, em ef stjómin teiur fjölda þeirra sem ganga að þesisum SkiiLmálium of Mtinn, er hótað stórfetldri sókn gagn skærulið- um. Stjómin er hins vegar bjairt- sýn á, að mikilt fjöld skæru- Framhald á bls. 19 Opnun Súezskurðar þýddi minni stórhættu Allende yfirtekur bankana Santiago, 39. april — AP — STJÓRNIN í Chile tók í dag öll gjaldeyrisviðskipti í sínar hend- nr. Einu bankarnir sem fá að halda áfram gjaldeyrisviðskipt- um auk landsbankans hafa ver- ið þjóðnýttir að öllu eða mestu leyti. Þjóðnýting bankanna er lið ur í sósíalískri stefnu Salva- dor Allende forseta, og á stjórn- in nú rúmlega 53% allra hluta- bréfa í bönkum, sem enn eru í einkaeign. Stjórninni hefur reynzt auðvelt að kaupa hluta- bréf þar sem fréttir hafa verið um að sala þeirra yrði lögboðin. — segir William Rogers, utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna - þó ekki nein endanleg lausn Ankara, 30. apríl. AP. William Rogers, utanríkisráð- herra sagði á fundi í Mið-Asíu- bandalaginu í dag, að opnun Suez skurðarins myndi minnka líkurn ar á stríði i Miðausturlöndtim, en ef tækist að koma henni til leiðar mætti þó alls ekki líta á hana sem neina varanlega heild- arlausn á vandamáiunum þar. Rogers leggur á morgun af stað í ferð til fjögurra Araba- ríkja og Israels, til að ræða við leiðtoga þar um friðarsamninga. Á fundinum i dag, sagði Rogers að Bandaríkjastjórn bæri fullt traust til Gunnars Jarring, sátta semjara Sameinuðu þjóðanna, og styddi hann eindregið í við- leitni hans til að koma á friði. Rogers sagði og að nú væri þörf á nýju átaki i friðarsamn- ingunum. Það lægi nú fyrir hver j ar væru kröfur hinna deilandi að- ila, og nú yrðu báðir að sýna sveigjanleik og reyna að mætast á miðri leið. Ráðherrann gat þess að bæði Israel og Arabarikin hefðu lýst sig samþykk hugmyndinni um að opna Suez-skurðinn, og kvaðst vona að samkomulag næðist um það atriði. Ef svo færi, væri minni hætta á að strið brytist William Rogers. út á nýjan leik Opnun skurðar- ins yrði þó aðeins einn liður í friðarumleitunum, og alls ekki nein endanleg lausn, enda yrði ekki litið svo á í Bandaríkjunum. Ráðherrann lagði áherzlu á þessi atriði vegna þess að fram hefði komið sú gagnrýni að ef opnun skurðarins gæti orðið til að minnka spennuna, yrði annað lát ið sitja á hakanum. Hussein, konungur Jórdaníu, hefur hvatt Bandaríkin til að taka meiri beinan þátt i tilraun- um til að koma á friði í Miðaust- urlöndum. Hann lagði þó áherzlu á að Bandaríkin yrðu einnig að reyna að beita sér fyrir því að Israel yrði sveigjanlegra í stefnu sinni í þessum máluun. Gera má ráð fyrir að það sem mest verði til umræðu þegar Rog ers hittir leiðtoga landanna fimm, verði þau landsvæði sem Israel hertók í sex daga strið- inu 1967. Israel hefur neitað ör- yggis síns vegna að skila ölium svæðunum aftur, og telur sig ekki geta þegið alþjóðlegar trygg ingar, i stað öruggra landamæra, enda hafa slíkar tryggingar ekki verið mikils virði þegar á reyndi Kýr stöðvuðu tunglbíl TVEIR geimfaranna, sem eiga að fara með Apollo 15. til tunglsims í júlí, eru nú að reynislulkeyra tunglbílinm sem þeir hafa meðferðis. — Það eru þeir David Scott og James Irvin, og þeir hafa ek- ið um Mojave-eyðimörkina þvera og endilanga undan- farna daga. Geimfararnir tveir eru í talstöðvarsambandi við vís- iimdamenn sem hafa bækistöð í útjaðri eyðimerkurinnar, og lýsa fyrir þeim því sem fyr- ir augu ber. Tilraunirnar hafa allar gengið vel, en þó lentu þeir félagar eitt sinn í miklum erfiðleikum þegar hópur forvitinna kúa um- kringdi þá, og urðu þeir að yfirgefa farartækið til að reka þær frá. Það gekk ekki sem bezt því beljurnar sóttu að frá öllum hliðum, og voru hinar þverustu, en loks tókst þeim að ryðja braut og „trylltu þá burt á öllu út- opnuðu“, eins og þeir myndu segja á „rúntinum" í Reykja vík. f

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.