Morgunblaðið - 01.05.1971, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐH), LAUGARDAGUR 1. MAl 1971
7
Úr íslenzkum
þjóðsögum
Viðbeinsbrotinn drangur.
Sögn Sigriðar Pétursdóttur,
en Sólrún móðir hennar sagði
henni. Sagan á að vera sönn.
Fyrir austan stóð svo á, að
stúlka gegndi fjósverkum seint
um kvöld. En þegar hún ætlaði
inn, fann hún hvergi útganginn
á fjósinu. Gjörði hún þrjár at-
rennur og þreifaði sig fram rneð
öllum veggjum, en árangurs-
laust. Greip hún þá stórt klaka
sax, er þar var, reiðir það fram
fyrir sig til höggs og gengur
svo í fjórða skipti þangað, er
hún átti von á dyrunum, og nú
komst hún hindrunarlaust út.
Liðu svo mörg ár, að hún varð
einskis vör. Loks giftist hún og
flutti með manni sínum í ofur-
lítinn kofa. Bjuggu þau þar al-
ein um hríð. Einu sinni sem oft
ar um haust eða að vetrarlagi
var bóndi hennar að hýsa kind-
ur sínar, en hún sat ein inni
með ungt barn þeirra hjóna.
Heyrði hún þá þrusk i dyrun-
um, og því næst kom inn mað-
ur, viðbeinsbrotinn, og flakti sár
ið opið niður á öxlina. „Svona
fórstu með mig forðum í fjós-
inu,“ sagði þessi vera við hana.
Hún varð öldungis örvita af
hræðslu og hrópaði: „Jesú blóð
faðmur sé á milli mín og þín.“
Við þessi orð hvarf veran. En
upp frá því gat konan aldrei ver
ið ein, og varð bóndi hennar,
svo fátækur sem hann var, að
fá henni til skemmtunar létta-
kind.
(Th. Hólm).
HEILLÁ
1 dag verða gefin saman i
hjónaband í Dómkirkjunni af
séra Jóni Auðuns dómprófasti
ungfrú Ingunn Árnadóttir, Ás-
vallagötu 79 og Jens Ágúst Jóns-
son, Eskihlíð 18A.
Spakmæli dagsins
Mér virðist deginum ljósara,
að vér þokumst aldrei verulega
í áttina til varanlegs friðar, á
meðan vér höldum fram lögmáli
styrjaldarinnar og sveipum það
dýrðarljóma. — W. B. Borah.
Valdi og Kalli í sumarsól í snjó
Nú er sumarið komið sunnan yfir sæinn. Myndin að ofan er tek-
in þegar snjó hafði fest í Reykjavík, sem sjaldan gerðist hér
á s.I. vetri. Myndin af Valda og Kalla er birt til að niinna
krakka á, að nú verða brátt síðustu forvöð að fara á skíði i
fjöllum í nágrenni Reykjavíkur. Hins vegar kvað vera nægur
snjór fyrir norðan.
Nemendur Húsmœðra-
skólans Varmalandi
veturinn 1960 — 1961, vinsamlegast hringið í Valgerði Önnu.
sími 85388 Reykjavík.
TIL SÖLU vef með farin kvenhjól og karfmannshjól með gírum. Túl sýnis og sölu milli 1 og 5 í dag. Húsgagnabólstrunin Garðastræti 16. Agnar Ivars. TIL SÖLU Ford Capri 1700 GTXL til sýnis að Stóragerði 24 sunnudag og eftir helgi i Bílahúsinu Sigtúni 3, símar: 85840 - 85841.
KEFLAVlK — NJARÐVÍK Bandarísk fjölskylda óskar eftir stórri íbúð eða einbýlis- húsi eitit til tvö ár frá 1. júll. Upplýsingar í síma 2579. TIL SÖLU Moskvitch, árgerð 1966, í góðu lagi, vel með farinn. Upplýsingar í síma 84909 í dag og næstu daga.
TIL LEIGU parhús með eða án hús- gagna. Upplýsingar í síma 85174. MERCEDES-BENZ 4ra dyra einkabifreið, árgerð 1952, tiil sölu. í ágætu á- standi. Upplýsingar í síma 30587.
NÝKOMIÐ Pokabuxur með vesti, stærðir 4—16. Rauðköflóttur telpna- siðbuxur. Peysur með háum rúllukraga, gott verð. Bella Barónsstig, Bella Laugav. 99. SUNDBOLIR og bikini baðföt á telpur frá 125 kr., kvensundbolir og bikini á 660 kr. Bella Barónsstíg Bella Laugavegi 99.
KEFLAVÍK — SUÐURNES Ný kjólaefni á mánudag, glæsilegir litir. Verzl. Sigríðar Skúladóttur si m i 2061. GÓÐ OG REGLUSÖM stúlka eða kona óskast á létt heimili í Garðahreppi 2—3 daga vikunnar í sumar. Uppl. í síma 42728.
STÚLKA ÓSKAST CHEVROLET '55
á fámennt sveitaheimili á Suðurlandi. Upplýsingar í síma 83838. til sölu. Bíllinn er skemmdur eftir árekstur og selst ódýrt. Upplýsingar í síma 40618.
HJÚKRUNARKONA óskar eftir 2ja til 3ja her- bergja íbúð. Algjör reglusemi. Vinsamlegast hringið í síma 19673 frá kl. 13—19 i dag. SAAB '67, V4 til sýnis og sölu í dag. Má greiðast á nokkrum árum, ef um góða tryggingu er að " ræða. Sími 16289.
KEFLAVÍK — SUÐURNES Höfum kaupendur að 2ja—6 herb. íbúðum, raðhúsum og einbýtishúsum. Háar útborg- anir. Fasteignasala Vilhjálms og Guðfinns, s. 1263 og 2376. FORELDRAR Gleðjið börnin á komandi sumri með barnastultum (5 litir). Trésmíðaverkstæðið, Heiðargerði 76, sími 35653. Opið fram eftir kvöldi.
HAFNARFJÖRÐUR 1—2 herbergi og ©Idhús ósk- ast til leigu. Upplýsingar í síma 50461 og 50645. BANDARlSKAN VERKFRÆÐING með fámenna fjölskyldu vant ar góða íbúð eða hús (þrjú svefnherb.) m. húsgögnum. sem næst Keflavíkurflugvelli. Paul Lindgreen Keflavíkur- flugvelli, svæði 2290.
VÍSUKORN
Lóan syngur ljóðin sín
lof um Guð á hæðum,
langar mig að ljóðin mín
Mkis't hennar kvæðum.
Guðriin frá Melgerði.
c^st en..
. . . að nota bindið,
sem hún gaf í afmæl-
isgjöi.
NEÐRI-BÆR
sendir öllu starfandi fólki til sjávar og
sveita árnaðaróskir í tilefni 1. maí.
Neðri-Bær
Síðumúla 34, sími 83150.
Sumarvinna
Starfsfólk óskast til matreiðslustarfa á Hótel Eddu.
Umsóknareyðublöð fást á Ferðaskrifstofu ríkisins, Laekjar-
götu 3.
Ákveðið hefur verið
að þriðjudaginn 4 maí n.k. verði merkjasöludagur um land
allt ti'. fjjú röflunar fyrir styrktarsjóð til hjálpar heyrnar-
daufum börnum.
1 Reykjavík geta sölubörn fengið merkin afhent söludaginn
kl. 10 til 18 í Heyrnleysingjaskólanum, Stákkholti 3, Heyrnar-
hjálp Ingólfsstræti 16, skrifstofu að Hverfisgötu 44, svo og
kl. 9 — 10,30 í verzl. Egill Jacobsen, Austurstræti 9.
Úti á landi verða merkin afgreidd frá skó.unum á hverjum stað.
STJÓRN STYRKTARSJÓÐS
HEYRNARDAUFRA.
Bezt ú auglýsa í Morgunblabinu
i
i
i
i
i
I
I
I
I
I
Gjörið svo vel að reyna viðskiptin.
| Bílaverkstæði Skúla og Þorsteins |
(áður í Tryggvagötu).
Bíleigendur — Bíleigendur
OPNUM
í DAG
bílaverkstæði og sjálfsþjónustu í björtu og
rúmgóðu húsnæði að
Sólvallagötu 79
horni Sólvallagötu og Hringbrautar.
Hjá okkur getið þið þrifið bílinn, gert við
sjálfir og fengið aðstoð fagnianna ef með
þarf. — Verkfæri á staðnum.
1
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I