Morgunblaðið - 01.05.1971, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 01.05.1971, Blaðsíða 14
( 14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1971 1. maí ávarp Fulltrúaráðs verkalýðs- félaganna í Ileykjavík Á hinum alþjóðlega hátíðis- og baráttudegi verkalýðsins lýsir islenzk alþýða yfir samstððu srnni með öllum þjóðum og stétt- um, sem berjast fyrir frelsi, friði og jafnrétti. Hugsjónin um jafnan rétt allra manna hefur aldrei verið brýnni en nú, þeg- ar meiri hluti mannkyns býr við skort og fáfræði og bilið milli snauðra þjóða og auðugra fer enn vaxandi. íslendingum ber að styðja baráttu hinna snauðu þjóðféiaga fyrir efnahagslegu og stjómarfarslegu frelsi og ’ jafn- rétti og leggja fram sinn skerf til þess að jafna metin. Sérstak- lega lýsir íslenzk alþýða sam stöðu sinni með þeim þjóðum, sem verða að búa við erlent her- nám eða verja frelsi sitt með vopn í hönd. Þar ber enn hæst kröfuna um frið í Viet-Nam, brottflutning alls erlends herliðs þaðan og að Vietnamar fái óskoraðan ákvörðunarrétt um eigin framtíð, án íhlutunar er- lendra þjóða. íslenTfc alþýða leggur 5 dag áherzlu á nauðsyn stóraukins jafnréttis á öllum sviðum hins íslenZka þjóðfélags. Að undan- förnu hefur misrétti aukizt á háskalegan hátt; kjör aldraðs fólks og öryrkja eru með öllu ófullnægjandi; kaup láglauna fðlks ekki í neinu samræmi við þjóðartekjur og mikið skortir á jafnrétti karla og kvenna. Hins vegar hefur kaup há- launamanna verið hækkað mjög stórlega og sköttum verið létt af gróða á sama tíma og venju- legir launamenn eru að sligast undan ofurþunga skattabyrða. íslenzk alþýða krefst þess að gert verði stórátak til þess að tryggja vaxandi launajafnrétti og hliðstæða afkomu allra þegna þjóðfélagsins, jafnan rétt til menntunar og annarra lífsgæða. I þvi sambandi ber að leggja áherzlu á þessi meginatriði: Lægstu laur> verði 20 þús. kr, á mánuði. Gerð verði áætlun um hækk- un bóta til aldraðra og ör- yricja, sem tryggi llfvænleg kjör þeirra. 40 stunda vinnuvika, með óskertu kaupi verði tafarlaust tekin upp í samræmi við ramn- inga, sem ríkið hefur gert. öllum þegnum verði þegar í stað tryggt 4 ra vikna orlof með óskertu kaupi. Þegar í stað verði leiðréttur stuldur sá á umsömdum visitölu- uppbótum, sem alþingi sam- þykkti á síðasta vetri. Þegar í stað verði létt af vísi- töluákvæðum á ibúðalánum. Framkvæmd verði gagnger leiðrétting á skatta- og útsvars- Iðgum, til þess að létta óhæfi- legum byrðum af launafólki. Sett verði löggjöf, sem tryggi að launamenn hafi fulla trygg- ingu fyrir kaupgreiðslum, þótt atvinnurekendur komist í greiðsluþrot, eða verði gjald- þrota. Forsenda þess, að hugsjónir is lenzkrar alþýðu um þjóðfélag jafnaðar og félagslegs réttlætis geti rætzt, er, að íslendingar ráði einir yfir landi sínu og auð- lindum. Því leggur verkalýðs- hreyfingin á það þunga áherzlu að erlendum auðfélögum verði ekki leyft að hirða arðinn af orku íslenzkra fallvatna og hvera og flytja hann úr landi eða arðræna íslenzkt verkafólk. Forsenda gróandi þjóðlífs er, að Islendingar stjórni sjáifir öllu kerfi efnahagsmála og at- vinnumála og setji sér enn það mark að búa einir og frjálsir í landi sínu. í þessu sambandi er það frumskilyrði að landsmenn tryggi sér full yfirráð yfir land grunninu og hafinu yfir því og geri ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir háskalega mengun á hafsvæðunum umhverfis landið. Það er skýlaus krafa verka- lýðssamtakanna, að íslendingar lýsi þegar i stað lögsögu sinni yfir landgrunnshafinu öUu, er tryggi landsmönnum einum rétt til fiskveiða á því svæði. Jafn- framt verði því lýst yfir, að mengunarlögsaga nái 100 sjó- mílur á haf út. íslenzk alþýða krefst þess að vinna verði metin að verðleik- um við aUt skipulag þjóðfélags- ins. í því sambandi er það meg- in nauðsyn, að verkafólki sé tryggt sem vistlegast og heilsu- samlegast umhverfi á öllum vinnustöðum, m.a. með ráðstöf- unum tU þess að koma í veg fyr ir háskalega mengun. Launa- menn mótmæla þvi sérstaklega, að erlendum auðhring skuli leyft að starfrækja hérlendis einu álbræðslu í heimi, sem fær að menga umhverfi sitt án hreinsitækja. Náttúruvernd og mannsæm andi aðbúð á vinnustöðum er einnig liður í kjarabaráttu launa fólks. Sameinumst til baráttu fyrir þjóðfélagi jafnaðar og réttlætis, þjóðfélagi, sem lætur mannleg sjónarmið vera yfirsterkari öli um gróðaviðhorfum. Helztu kröfur dagsins eru m.a.: Landgrunnið fyrir íslendinga. 50 milur 1972. Kjarasamningar verði friðíhelg ir. 40 stunda vinnuvika. 4ra vikna oriof. Lágmarkslaun 20 þús. á mán- uði. Stórhækkun elli- og örorku- bóta. Visitöluskerðing er brot á samningum, Afnám Vísitölu á íbúðalán. Fúllkomið öryggi á ölium vinnustöðum. 1. maínefnd Fulltrúaráðs verkalýðsfél. í Rvík. Við undirrituð skrifum undir með fyrirvara um orðalag kröf- unnar um útfærslu landhelginn- ar. Jón Sn. Þorleifsson Guðjón Jónsson Guðm. J. Guðmundsson Hilmar Guðlaugsson Jóna Guðjónsdóttir Sigfús Bjamason Kvikmyndir HeyerdaMs eftirsóttar Kvikmyndir Thors Hyerdahls og Sænska sjónvarpsins um Atl- antshafsleiðangur papýrusbát- anna RA I. og RA II. eru orðnar eftirsóttar um allan heim. Sjón- varpið í Svíþjóð hefur sett texta við myndirnar á mörgum tungu- málum, og í hinni enSku og þýzku útgáfu er Heyerdahl sjálf ur textaþulur. Merkjasaia Vorblómsins Hinn áriegi kynningar- og fjáröflunardagur Unglingaregl- unnar verður næstkomandi sunnudag 2. maí. Þá verða eins og venjulega seld merki og bók- in VORBLÓMIÐ alls staðar, þar sem bamastúkur starfa. Merk- in kosta kr, 25.00 og bókin að- eins kr. 60.00. Þessi barnabók Unglingareglunnar, VORBLÓM' IÐ, sem nú kemur út í 8. sinn, hefur náð miklum vinsældum og selst í stóru upplagi, Það eru einlæg tilmæli for- vígismanna þessa félagsskapar, að sem allra flestir landsmenn taki vel á móti sölubörnum okk- ar, þegar þau bjóða merkin og góða bók á sunnudaginn kemur. (Frétt frá Unglingareglunni). Sýnishorn af nokkrum munum unnum úr minkaskinnuni 1200 sútuð minka- skinn f rá Loðdýrum hf. LOÐDÝR H.F. á Kjalaraiesi var eima minkabúið, sem flutti inn til landsins livolpa- fuilar minkalæður og því var það eina búið sem var með skinnaframleiðslu í fyrra. Til landsins eru nú að koma úr sútun um 1200 skinn em félagið sendi aðeims utm 20% framleiðslu sinnar á hrá skinnamarkað hjá Hudson Bay í London í haust. Enn á fyrirtækið um 500 skinn, sem ekki hefur verið tekin ákvö'rð un um hvcrnig seld verða. Síðastliðið haust var fram- leiðslan ú þriðja þúsund skinn hjá Loðdýrum hf. Enn er ekki uruut að súta minkaskinn hérlendis — að sögn forráðamanns Loðdýra h.f. — og er það aðallega tæknilegum vandkvæðum bundið. Þau 1200 skinn, sem nú koma til landsins eru seld hér á innlendum mark aði og sér Rammagerðin um dreifingu og sölu skinnanna. Munu skinnin og verða til sölu í sambandi við ráðstefn ur í sumar. Hér er um fyrstu vinnslu á íslenzku minkahrá 1 efni að ræða og vísi að nýrri 4 iðngrein, sem vonandi á eftir að rísa hér og eflast. Hluthafar í Loðdýrum h.f. eru riú yfir 150 og er hluta- féð, 6.5 millj. uppselt og irttv- borgað. Félagið hefur að Lykkju á Kjalamesi aðallega 2 tegundir minka og um þess ar mundir eru hvolpar að fæðast þar. Búizt er við að um 500 þúsund hvolpar fæð ist í vor. Meðalafkvæma- fjöldi minks er 3.8 hVolpar. 1. maí ávarp Fulltrúaráös verkalýðs- félaganoa í Hafnarfirði 1. mai er sá dagur ársins sem alþýða þessa lands, sem annarra lýðfrjálsra landa, hefur helgað sér um áratugi sem hátíðar- og baráttudag. Baráttan hefur verið hörð og miskunnarlaus, atvinnuleysi, kreppur og öryggisleysi hafa mætt verkalýð og annarri al- þýðu. Daglegt brauð og önnur sjálfsögð mannréttindi hefur ai- þýðan mátt sækja í greip- ar þröngsýnna sérhagsmuna- manna. Sú sókn hefur kennt þeim hluta verkalýðsins sem í barátt unni hefur staðið að meta gildi samtaka sinna, án þeirra hefði ekki tekizt að heimta skerf þann sem þó hefur náðst. Fyrir afl verkalýðssam tak- anna hafa fjötrar kúgunarinn- ar verið brotnir, kjörin bætt og knúðar fram mikilsverðar þjóð- félagsbætur, Þrátt fyrir það að margt hafi áunnizt, er mikið ógert. Enn ríkir ójöfnuður, fámennur hóp- ur stóratvinnurekemda og verZl- unarauðvald sitja yflr hlut al- þýðunnar og enn fær alþýðan að reyna dýrtíð og öryggisleysi. 1 dag mótmælir verkalýð- urinn því gerræði stjórnarvalda að brjóta gerða samninga verka lýðsfélaga við atvinnurekendur með skerðingu visitölu, og býr sig und'tr baráttu fyrir því að ttyggja vaxandi launajafnrétti og hliðstæða afkomu allra þegna þjóðfélagsins. Að þessu sinni rennur 1. mai upp við þær aðstæður að ís- lenzka þjóðin hefur hafið bar- áttu fyrir þeim frumrétti sínum að lögsaga tryggi landsmönnuxn einum rétt til nýtingar á land- grunninu öllu og haftnu yfír því. Það er krafa dagslns að fisk- veiðilögsagan verði færð út, fyr ir árið 1972 i 50 rriílur. Fram til baráttu. LESIfl

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.