Morgunblaðið - 01.05.1971, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 01.05.1971, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MAl 1971 11 1. maí hátíðisdagur verkalýðsins og ekkert annað og tökum mið af því í starfi okkar. Á síðasta ári hóf félagið út- gáfu tímaritsins Tónamál og vár ætlunin að gefa það út ársfjórð ungslega, en fæðingin hefur ver ið nokkuð erfið, sem varla þarf að tíunda fyrir blaðamanni. Von andi eru þetta bara eðlilegir byrj unarerf iðleikar. Okkar hjartans mál hefur lengi verið að reka ráðninga- stofu og hófum við rekstur henn ar fyrir þrem árum, eftir langt hlé, en fyrir allmörgum árum rak Poul Bemburg ráðninga- stofu fyrir félagið með góðum árangri. Rekstur slíks fyrirtækis er mikið starf og krefst alúðar, en er okkur hljómlistarmönnum lífsnauðsyn. Þótt hið opinbera reki ráðningastofu hef ég aldrei heyrt að hún hafi haft milli- göngu um ráðningu hljómlistar manns. Því miður hafa ýmsir einstakl ingar haft með höndum ráðn- ingu hljómlistarmanna og skemmtikrafta, en ég býst við að þeirra skeið sé nú á enda runnið. f lögum „Um vinnumiðlun" nr. 52 frá 9. apríl 1965 segir: „Almenn vinnumiðlun í ágóða skyni er óheimil". Ég álít að ráðningum hljómlistarmanna sé bezt borgið í höndum þeirra sjálfra og þeir eigi að fá laun sín óskert. — Hvernig er stjórn félagsins skipuð? — Á aðalfundi félagsins þann 13. marz sl. var hún öll endur kjörin en hana skipa auk mín: Einar B. Waage, varaform. Guðm. Finnbjömsson, ritari. Hafliði Jónsson, gjaldkeri. Einar Hólm Ólafsson, meðstj. Þar kom einnig fram að gróska er mikil í félaginu og megum við vel við una. Fyrst þetta spjall okkar á að birtast í blaðinu 1. maí þá vil ég biðja þig fyrir kveðju til allra launþega með óskum um gleðilega hátíð. Guðmundur H. Garðarsson Verkalýðs- hreyfingin má ekki verða að afturhaldi segir Guðmundur H. Garðarsson. — Hvað vilt þú, Guðmundur, sem miðstjórnarmaður ASf, segja um stöðu verkalýðshreyf- ingarinnar í dag? —Ég er þeirrar skoðunar, að verkalýðshreyfingin hafi tekið miklum stakkaskiptum á undan- förnum árum. 1 stað þess að vera tæki ákveðins hóps manna, sem stefndu að þjóðfélagsbylt- ingu að hætti kommúnista, jafn- framt ákveðinni kjarabaráttu, hefur verkalýðshreyfingin á fs- landi þróazt frá öfgum og sósíal- istískri byltingarhneigð í það að verða fag- og lýðræðislegri. — Hvaða þýðingu hefur þessi breyting að þinu mati? — Breytingin tryggir betur lýðræðislega stjórnarhætti, forð- ar fólkinu frá yfirþyrmandi mið- stjórnarvaldi, stuðlar að dreif- ingu valdsins í þjóðfélaginu og verndar einstaklinginn, óháð stjórnmálaskoðunum hans. — Hvernig hafa þessar breyt- ingar áhrif á hlutverk verkalýðs- hreyf ingarinnar ? — Að sjálfsögðu verður það ætíð meginhlutverk hennar að vinna að bættum kjörum fólks- ins eftir þeim leiðum, sem nýj- ar og breyttar aðstæður skapa. Það er augljóst mál, að hlut- verk og barátta verkalýðshreyf- ingarinnar hlýtur að breytast, þegar haft er í huga hið tiltölu- lega háa lífskjarastig íslenzku þjóðarinnar. Við getum t.d. litið á, að nú er svo til öllum tryggð lágmarkslífskjör og stærsti hluti launþega hérlendis býr við mjög góð lifskjör samanborið við launþega annarra landa. Sönnun þessa í áþreifanlegum skilningi er almenn íbúðaeign, fjöldi bif- reiða i einkaeign, vel búin heim- ili, svo ekki sé talað um allar þær þúsundir, sem árlega fara í orlof til útlanda. Tryggingakerfið hefur verið í mjög örum vexti og er þar skemmst að minnast lífeyrissjóð- anna, sem ná til allra launþega á íslandi, sem aðild eiga að stéttarfélögunum. Menntun er almenn og ódýr á Islandi i sam- anburði við það sem er í öðrum löndum. Það má því segja, að það menningar- og lífskjarastig, sem íslenzkur verkalýður stend- ur á í dag skapi grundvöll til endurmats á hlutverki og þjóð- félagsstöðu verkalýðshreyfingar- innar í framtíðinni. — Viltu skýra þetta nánar? — Við lausn deilunnar um skiptingu þjóðarteknanna, og hver eigi að vera hlutdeild vinn- unnar annars vegar og fjár- magnsins hins vegar, á að vera unnt að leita annarra og þján- ingaminni leiða en verkfalla og verkbanna. Það má t.d. benda á auknar upplýsingar og þekk- ingu um hag og rekstur fyrir- tækja atvinnulífsins. Aukna þátt- töku fólksins í fyrirtækjunum, hugsanlega með beinum og óbeinum fjárframlögum til at- vinnuveganna. Þátttöku fólksins í stjórn fyrirtækja, stofnana og þess háttar, þar sem það á við. Þá er ég þeirrar skoðunar, að í framtíðinni hljóti samskipti ís- lenzku verkalýðshreyfingarinnar og vinnuveitenda að taka breyt- ingum, þegar þúsundir ungs og vel menntaðs fólks, verða virk- ari þátttakendur í stéttarfélög- unum og leysa þar með af hólmi gömlu kynslóðina, sem hefur gert margt gott, en hlýtur að fara að víkja fyrir hinni ungu. Þá er óhjákvæmilegt, að sterk- ara samband verði milli verka- lýðshreyfinga hinna ýmsu landa í kjölfar þeirrar þróunar sem orðið hefur með myndun efna- hagsbandalaga og öflugri al- þjóðafyrirtækja. 1 þessu sambandi vil ég að lokum leggja á það þunga á- herzlu, að verkalýðshreyfinguna má ekki daga uppi I gömlum og úreltum kennisetningum og verða að afturhaldi I ört vax- andi framtíðarþjóðfélagi. Pétur Sigurðsson Lífshagsmunamál íslenzku þjóðarinnar — Rætt við Pétur Sigurðs- son, form. Sjómannadags- ráðs. ÚTFÆRSLA landhelginnar er ein af þeim kröfum, sem settar eru fram í 1. maí ávarpi verka lýösfélaganna. Pétur Sigurðsson segir um þessa kröfu: Það er að sjálfsögðu rétt og skylt af verkalýðshreyfingunni að ieggja áherzlu á þetta höfuðmál ísL þjóðarinnar. Hitt er svo annað mál, að ég er ekki jafnánægð ur með. að tekin skuli vera ein hliða flokkspólitísk afstaða í samræmi við stefnu stjórnarand stöðuflokkanna á Alþingi. Það eru fleiri í verkalýðshreyfing unni en stuðningsmenn þeirra. Auk þess tel ég mikla ömun að því, að þessi stærstu samtök al mennings hér á landi taki á þennan hátt undir málstað, sem tvímælalaust mun skaða okkur á erlendum vettvangi. — Meginmunurinn sem kem- ur annars vegar fram í ályktun Alþingis, er ríkisstjórnin og stuðningsflokkar hennar stóðu að, og hins vegar í tillögu stjórn arandstöðunnar, er sá, að í til- lögum stjómarandstöðunnar er dagurinn 1. september 1972 talinn hinn eini rétti að færa út fiskveiðilögsöguna. Ég hef talið, svo og aðrir stuðn- ingsmenn ríkisstjórnarinnar, að við íslendingar, sem for- gönguþjóð fyrir hafréttarráð- stefnu Sameinuðu þjóðanna 1973 getum ekki í sömu andrá og við biðjum um þessa ráðstefnu tek ið einhliða ákvörðun í þessu vandasama máli. Þessi ráðstefna er kölluð saman tii þess að kljá margs konar vandamál, sem okkur og raunar fjölmarg ar aðrar þjóðir varða. — Að vísu skal ég undir- strika eins og raunar kemur skýrt fram í ályktun Alþingis og nú síðast einróma á lands- f undi Sj álf stæðisf lokksins, að um einhliða aðgerðir verður að ræða fyrir 1973, ef sókn er- lendra fiskiskipa eykst verulega á fslandsmið. Aðrar ástæður geta einnig komið til, t.d. í sam- bandi við þá undirbúningsfundi, sem nú eru að hefjast í sam- bandi við hafréttarráðstefnuna. En raunar tel ég meginstuðning- inn við þá ákvörðun að tíma- setja útfærsluna ekki strax á þessu stigi málsins byggjast á þeirri staðreynd, að tíminn vinn- ur með okkur í þessu mikil- væga máli. — Það hafa orðið ótrúlegar breytingar á síðustu misserum á viðhorfum þjóða til nýtingar landgrunnsins og hafsbotnsina. Ennfremur er það mín skoðun að gera verði, allt sem unnt er til þess að hrinda ekki frá okk- rnr stuðningi hinna fjölmörgu bandamanna okkar úr röðum þróunarþjóðanna. Við megum heldur ekki gleyma þeirri mikil vægu ákvörðun Alþingis, að nú þegar vérði hafnar tímabundn- ar friðunaraðgerðir til vemdar ungfiski utan 12 mílna mark- anna. Þar til • viðbótar tel ég einnig rétt eins og raunar kem- ur fram í landsfundarályktun Sjálfstæðisflokksins, að vernda strax hrygningarsvæði nytja- fiska innan 12 mílna markanna. — Það ber vissulega að harma, að Alþingi skyldi ekki ná sam- stöðu í þessu máli. En hins veg- ar ber að fagna því um leið, að nú virðist þjóðin vera einhuga um nauðsyn aðgerða í land- helgismálinu. Landhelgismálið hefur frá fyrstu tíð verið eitt helzta baráttumál Sjálfstæðis- manna. En á hátíðisdegi verka- lýðsins, 1. maí, verð ég að harma það, að forystumenn verkalýðs- hreyfingarinnar skuli eins og pólitískir andstæðingar núver- andi ríkisstjómar, draga þetta lífshagsmunamál íslenzku þjóð- arinnar inn í dægurþras og póli tíska togstreitu. Hinrik Bjarnason Opnar leiðir til framhalds- og endurmenntunar segir Hinrik Bjarnason, kennari. Á alþjóðadegi verkalýðsins minnast kennarar — eins og aðr ir hópar opinberra starfsmanna — náins skyldleika milli sinna eigin samtaka og samtaka verka lýðsins, og þeirrar hliðstæðu, sem er að finna í kjarabaráttu beggja. Opinberir starfsmenn hafa undanfarin ár háð harða baráttu fyrir rétti sínum til áhrifa um eigin kaup og kjör, og ef til vill er þeim á þessum degi efst í huga hvað áunnizt hefur og ógert er í þeim efn- um . Samningar þeir, sem gerðir voru milli ríkisstarfsmanna og rikisvalds um áramótin siðustu, eru fyrir margra hluta sakir merkilegir. Þeir eru byggðir á starfsmatskerfi, víðtækara en annars staðar hefur þekkzt. Ýmsir gallar þess kerfis eru augljósir. En takist að fullkomna aðferðina má ætla, að með starfsmati sé fundinn veigamikill þáttur í lausn þess vanda, sem það hlýtur að vera að annast samningsgerð í einu lagi fyrir hóp, sem greinist í jafn margar fylkingar og starfs- menn hins opinbera. Það er að vísu vafamál, hvort unnt er eða rétt að gera slíka samninga að einum. En verði því áfram hald- ið er óskandi, að forysta BSRB gæti þess í framtíðinni að auka íhlutun starfshópa innan sam- takanna, þegar um þeirra sér- mál er f jallað af samningamömv um. Ýmsir þættir samninganna urðu þess valdandi, að Fé- lag gagnfræðaskólakennara í Reykjavík taldi þá jákvæða fyr ir sína stétt. Því réð hvorki skipan kennara i launaflokka né sú kauphækkun, sem þeim fylgdi. En við fögnuðum því fyrst og fremst, að samningar skyldu nú nást í fyrsta skipti, og þar með leggjast niður sá leiði siður, að láta dómsúrskurð gilda sem kjarasamninga 1 öðrU lagi eygðum við kennarar í samningunum langþráða mögu- leika til þess að jafnað yrði það misrétti, sem viðgengizt hefur í stéttinni síðan 1963, en þá var tekinn upp sá háttur að skipa framhaldsskólakennurum í 3-4 launaflokka, enda þótt þeir ynnu sömu störf, hefðu verið fastráðnir sem fullgiidir til þeirra og með svipaðan undir- búning. I þvi nær áratug hefur barátta fyrir leiðréttingu þess arna tekið upp bróðurpartinn af starfstíma forystumanna okkar og orðið orsök óviðunandi sundrungar i stéttinni. Með samningunum í vetur er að nokkru opnuð leið til þess að bæta úr þessu, og Félag gagn- fræðaskólakennara í Reykjávik mun fyrir sitt leyti gæta þess eftir föngum, að i það hlið verði ekki aftur settur neinn draug- ur á næstunni. Okkur var það einnig fagnaðarefni, að nú skyldi í fyrsta sinn vera tekið tiHit til vinnutima kennara og hann þannig skilgreindur þannig, að vit væri L Geta þeir, sem utan stéttarinnar standa, ef til vill lesið út úr þeirri skil- greiningu skýringuna á því, hvers vegna ending kennara í starfi er ekki meiri en raun ber vitni, — þrátt fyrir þá almennu skoðun, að þeir eigi fleiri frí- daga en öðrum stéttum áskotn- ast. 1 heild má segja, að við kenn- arar teljum afstöðu fjár- málaráðuneytisins til þessar- ar samn in gagerðar hafa verið jákvæðari en oft áður, þar hafi gætt einlægs vilja til raunsæs rnats á þörfum opinberra starfs- manna og vilja til þess að búa svo um hnútana, að þeir gætu borið viðunandi hlut frá borðL Verður sú þróun til vaxandi skilnings hvors aðila, rikisvalds og ríkisstarfsmanna, á sjónar- miðum hins, vonandi svo ör í framtíðinni, að opinberir starfs- menn geti látið verkfalls- rétt sinn liggja með öllu ónot- aðan, þegar hann er fenginn. Á þeim liðna vetri, sem nú sér yfir úr annarri viku sumars, mótuðust hugleiðingar kennara um stöðu sína í islenzku þjóð- félagi einkum af kjarabar- áttu og athugun ýmissa nýmæla i lagasetningu vegna skólakerí- is landsmanna. Sjaldan hefur al þingi fengið skólamál til af- greiðslu í jafn tiðum og stór- um skömmtum. Samtök kennara álita, að ef til viH hefðu nán- ari samráð við þau um undir- búning þessara frumvarpa ekki orðið þingi eða þjóð tU skaða. Frumvarp um Kennaraháskóla varð að lögum, en sem betur fer gefst kennurum tóm tU að koma á framfæri athugasemdum sín- um við grunnskólafrumvarpið, eitt merkasta mál síðasta þings, áður en það hlýtur fuilnaðar- afgreiðslu. Það frumvarp mun á komandi árum hafa meiri áhrif á islenzkt skólahald og islenzk- Frambald á bls. 24

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.