Morgunblaðið - 01.05.1971, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.05.1971, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MAl 1971 Björgunarskipin koma ekki fyrr en 5. maí Lítið magn af olíuuppleysandi efnum til í landinu BEHÍÐ er eftir dráttarskipunum frá Noregi til þess að ná út tog- aranum Caesari H 226 og á með- an er ekkert aðhafzt í máiinu. Mhl. spurðist fyrir um það hjá olíufélögitnum í gær hvort þau kynnu einhver ráð til þess að ná olíunni úr skipinu og fékk haria lítil svör, enda flestir þeir, sem talað var við ókunnir stað- háttum vestra. Aðeins eitt félag- anna átti olíuuppleysandi efni í vörugeymslu — 22 tunnur. Fyrst ræddi Mbl. við Svan Friðgeirsson, stöðvar.stjóra Olíu- verzlunar íslands — BP. Svan sagði, að félagið ætti efni, sem kailað væri BP 1002, sem hefði þannig áhrif á oMu að hún botn- félli í sjó, er efninu væri spraut- að á hana. Aðspurður um það hve mikið magn þyrfti vestra —- sagði Svan að erfitt væri að áætla það, en taldi hann þó að það myndi skipta 10 til 20 smá- lestum. Lítrinn kostar kr. 43,50 og í hverri smálest eru um 1250 lítrar. Ljóst er því að það væri ýmsum erfiðleikum háð að nota efnið i Isafjarðardjúpi og á fé- lagið aðeins 22 tunnur eða tæp- lega 3,5 lestir. Aðspurður um það, hvort BP treysti sér til þess að ná olíunni úr skipinu sagði Svan, að hann efaðist stórlega um það — tíl þess væru naumast til tæki. Hann kvað þurfa á staðinn raf- magn og vélar til þess að knýja dælur og hita þarf upp olíuna. Hins vegar sagðist Svan Frið- geirsson þess fullviss, að BP gæti dælt olíunni úr skipinu, ef þeir ættu að gera það. Til þess þyrfti þó að kanna aðstæður all- ar mun betur. Jóhann Gunnar Stefánsson hjá Olíufélaginu h.f. — Esso kvað þá ekki eiga nein uppleysandi efni til þess að blanda olíu. Hann kvaðst ókunnur aðstæðum vestra, en kvað erfiðasta hjall- ann að hita upp olíuna, svo að unnt yrði að dæla henni. Þá ræddi Mbl. við Indriða Páls son, forstjóra hjá Skeljungi h.f. — Shell. Indriði sagði að uppleys andi efni væru ekki til í vörzlu félagsins, en hins vegar væri unnt að útvega þau á mjög skömmum tíma. Indriði kvaðst ókunnugur aðstæðum við Arnar nes, en örðugast yrði að hita upp olíuna, sem varla hnigi við lágt hitastig. Indriði taldi þó eftir því sem unnt væri að dæma af blaðafregnum, að eina lausn málsins væri að ná skipinu út og draga tii hafnar. Guðmundur Karlsson, umboðs maður brezkra togara á Isafirði sagði í viðtali við Mbl. i gær- kvöldi að allt væri með felldu á strandstaðnum og enn væri logn. Veðurspáin var þá suðaustan kaldi, sem á ekki að vera óhag- stæð vindátt í Djúpinu. Hins veg ar sagði Guðmundur misskilnings hafa gætt í fregnum af komu björgunarskipanna. Skipin væru með þunga flotpramma í eftir- dragi og sæktist þeim ferðin seint. Fyrra björgunarskipið er því ekki væntanlegt fyrr en að- faramótt næstkomandi miðviku- dags — en ekki um helgina eins og ráð var fyrir gert. Tónlistarskólinn: Cæsar H 226 á strandstað við Arnarnes. Ljósm.: Hjáimar R. Bárðarson. N emendatónleikar TÓNLISTARSKÓLINN í Reykja vik heldur tónleika í Háteigs- kirkju sunnudagskvöldið 2. maí kl. 9. Kór og hljómsveit Tónlist- arskólans undir stjórn burtfarar prófsnemenda úr söngkennara- deild flytja Messu í B-dúr eftir Haydn og Ave verum corpus eft- ir Mozart. Einsöngvari er Guð- rún Tómasdóttir en orgelleik ann ast Martin Hunger. Aðgangur er ókeypis og velunnarar skól- ans eru velkomnir meðan hús- rúm leyfir. — Bifreiða- tryggingar Frámhald af bls. 32 anma rennur út og þá krefjast hækkunar iðgjalda. Nefnd tryggingafélaganna sat í gær fund með dómsmálaráð- herra og í framhaldi af þeim fundi var áðumefnd ákvörðun félaganna tekin. Ólafur B. Thors sagði, að félögin hefðu vænzt mun meiri skiinings ráðamamna á þessu mikla vamdamáii, sem hán erfiða afkoma bifreiðatrygg- inganna hefur leitt til. Félögin fengjust í raun við öryggi manna og þau þyrftu að hafa fjármagn til þess að standa við skuldbind- ingar, sem þau tækju á herðar sér. — Ráðstefnur Framhald af bls. 32 frönsku. Á undan ráðherrafund- inum verður ráðgjafanefndar- fundur EFTA, en EFTA verður með 23 skrifstofur í hótelinu á meðan ráðstefnan stendur yfir til 16. maí. Þann tíma hefur EFTA einnig fest 165 herbergi á Hótel Loftieiðum. Að sögn Konráðs Guðmunds- son, hótelstjóra á Hótel Sögu, verður ráðstefna hrezku verk- fræðinganna 15.—19. maí, en ráð stefnuna munu sækja hátt á ann- að hundrað manns. Leigja þeir eirtnig mest allt hótelið fyrir fundi og fundamenn. Á undan brezku ráðstefnunni verður 100 manna hafísráðstefna á Hötel Sögu og á næstu mánuðum verða þar fjölmargar ráðstefnur. Hreinn Ómar Elliðason. — Drukknaði Framhald af bls. 32 meðvitundar aftur fyrr en á Akureyrarspítala, en þangað var hann fluttur í flugvél. Hreinn var fluttur í sjúkrabifreið til Húsavikur í spítalann þar, en Hreinn vann þarna mikið afrek við að bjarga félögum sínum. Kristinn og Hreinn voru báðir Kristinn Kristjánsson. farnir að hressast i gærkvöldi og átti Hreinn að fara úr spítalan- um á Húsavík í dag, en í við- tali við Morgunbiaðið í gær- kvöldi kvaðst hann vart gera sér grein fyrir atburðarásinni í þess- um hörmulega atburði annað en það að viljinn rak hann ðrmagna til þess að reyna að hjálpa fé- laga sinum. Lík Jóhanns fannst um morguninn. Cambridge-háskóli: Sýning á verkum Ólafar Pálsdóttur opnuð SÝNING á II höggmyndum Ólaf ar Pálsdóttur var opnuð kl. 6 síð- degis í gær í sýningarsal lista- safns Cambridge-háskéla í Eng- landi. Cambridge-háskóli bauð frú Ólöfu að sýna verk sín I lista- safninu og mun sýningin standa yfir í tvær vikur. Mun sýningin ef til vill verða flutt til London síðar. Fjöldi gesta var viðstaddur opn'un sýningarinnar, þeirra á meðál Jim Ede, sem er stofnandi listasafns Cambridge-háskóla. 1 sýníngarnefndinni er m.a. for- stöðumaður Tate Gallery í Lond- on. Verkum Ólafar Pálsdóttur var vel tekið af þeim, sem sáu sýn- inguna í gær. Reykjanes- kjördæmi KJÖRDÆMISRÁÐ Sjálfstæðis- flokksins í Reykjaneskjördæmi efnir til almenns fundar nk. mið- vikudag, 5. maí. Rætt verður um skattamál. Fiindurinn' verður nánar auglýstur síðar. UTANKJÖRSTAÐA- SKRIFSTOFA - Sjálfstæðisflokksins opnuð NÚ HEFUR verið opnuð utan- kjörstaðaskrifstofa Sjálfstæðis- flokksins. Skrifstofan er til húsa í Sjálfstæðishúsinu við Laufás- veg 46. Kosning utan kjörstaða mun þó ekki hefjast fyrr en 16. þ.m. Utankjörstaðaskrifstofa Sjálf- stæðisflokksins verður opin dag hvem til kosninga. Kjörskrá kemur til með að liggja frammi á skrifstofunni þegar i næstu viku. Símar skrifstofunnar eru: 11004, 11006 og 11008. Barnamúsíkskólinn: Vortónleikar í Austurbæ j arbíói BARNAMOSlKSKÓLINN er nú að ljúka nítjánda starfsári sínu. Á sunnudaginn kemur verður að venju efnt til vortónleika í Aust urbæjarbíói, þar sem nemendur við skólann koma fram. Hefjast tónleikarnir kl. 14.30. Skólinn hefur notið mikilla vinsælda hjá borgarbúum, en vegna husnæðisskorts, hefur ekki verið unnt að sinna nema hluta þeirra umsókna, sem til hans hafa borizt ár hvert. í vet- ur hafa nemendur við skólann verið 286 tálsins, en kennt hefur verið á sjö hljóðfæri. Auk þess hefur hljómsveit og kór starfað á vegum skólans. Kennarar við skólann í vetur hafa verið 20. Skólastjóri er Stefán Edelstein. Á tónleikunum á sunnudag koma fram rúmlega 30 nemefid- ur, sem leika á hin ýmsu hljóð- færi, auk kórs og hljómsveitar skólans. Sumardvöl barna að Jaðri ALLTAF fögnum við Islending- ar komu sumarsins eftir langan og strangan vetur. En þá vaxa líka áhyggjur margra foreldra hér í borginni vegna óvissunnar um að koma börnum sínum í sveit til þess að njóta þar sólar og sumars. Allir vita, að hér eru þúsundir barna, sem þyrftu að komast i sveit á sumrin, en nú er löngu liðin sú tíð, að hægt sé að koma þeim öllum í vist á venjuleg sveitabýli. Ýmis félög reyna að bæta úr þessari þörf með þvi að stofna sérstök sumarheimili I sveit fyr- ir borgarbörnin og leysa þau nokkurn vanda. Meðal annars höfum við góðtemplarar haft sumardvalarheimili fyrir börn í húsakynnum okkar að Jaðri mörg undanfarin ár. Þessi starf- semi okkar hefur verið mjög vin sæl og eftirsótt, og má m.a. þakka það því, hve við höfum verið heppin með starfsfólk. Því mið- ur hefur orðið að vísa mörgum frá árlega vegna rúmleysis. Reynt er að hafa vistgjöld sem allra lægst, og barnmörgu fólki oft gefinn afsláttur. En það er dýrt fyrirtæki að reka slík sumardvalarheimili, enda þótt Reykjavikurborg hafi veitt góðan styrk til starfsem- innar undanfarin ár. Það ríkir því árlega nokkur óvissa með fjárhaginn. Tekna er afláð m.a. með merkjasölu fyrsta suhnudag í maímánuði ár hvert. Næsti merkjasöltidagur er því á snnnu- daginn kemur, 2. maí. Merki verða afgreidd í flestum barna- skólum bæjarins. Sölubörn fá góð sölulaun, svo sem venja er tll. Unglingareglan i Reykjavik hefur veg og vanda af þessari merkjasölu, og hún treystir for- eldrum til þess að leyfa börnum sinum að selja merki, og almenn ingi til þess að kaupa merkin og styðja með þvi gott málefnL Fyrirspurnum um sumardvöl barna að Jaðri verður fyrst um sinn svarað i sima 1 57 32 £rá klukkan 9—10 dag hvern. (Frá Unglingareglunni).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.