Morgunblaðið - 01.05.1971, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 01.05.1971, Qupperneq 32
fH9r0wnMaM& nucivsíncnR ^-»22480 i LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1971 icsm DnGiEcn Hraðbrautir sem kosta 380 milljónir kr. 1 GÆR voru undirritaðir hjá Vegagerð ríkisins verksamning- ar við þau verktakafyrirtæki, sem lægst tilboð áttu I hrað- brautaframkvæmdir þær, sem boðnar voru út á sl. vetri. Var annars vegar um að ræða kafla af Vesturlandsvegi frá Olf- arsá upp í Kollafjörð, en það verk hlaut Þórisós s.f. fyrir sam- tals 162 millj. kr. og hins vegar tvo kafla af Suðurlandsvegi, frá Selási upp að Lækjarbotnum og frá Hveradalabrekku austur i neðanverða Kamba, en það verk hlutu E. Phil & Sön og Istak hf. fyrir samtals 216,6 millj. kr. Munu framkvæmdir við þessa vegarkafla hefjast næstu daga. Persilklukkan endurnýjuð í GÆRDAG var hin gamla Torg klukka tekin niður á Lækjar- torgi, en hún hefur gegnt þar hinu mikilvæga hlutverki ára- tugum saman sem aðalklukkan í Miðbænum og klukka strætis- vagnanna allar götur frá stofnun Strætisvagna Reykj avíkur. Torgklukkan, sem líka hefur verið kölluð Persilklukkan, var upphaflega sett þama upp að fengnu leyfi borgaryfirvalda, af firma því sem Heinkel heitir og framleiðir þvottaefnið Persil. Voru það Persilauglýsingar sem hana skreyttu, mynd af konu í hvítum sumarkjól á grænum grunni. Þeir Árni Siemisen í Liibeck og Magnús Kjaran stór- kaupmaður voru umboðsmenn þessa þýzka fyrirtækis hér. Síð- ar tóku synir Árna við rekstri klukkur.nar en fyrir sikömmu hafa þeir beðið Birgi Kjaran alþingismamn um að annast rekstur klukkunnar. Birgir eagði Mbl. í gær, að ekki myndu líða margar vikur unz klukkan yrði sett uþp aftur, endumýjuð að öllu leyti og klukk an gæti aftur gegnt hinum mikdl vægu verkefnum á Lækjartorgi, ekki aðeins sem klukka torgsins, heldur lífca sínu sérstaka hlut- verki fyrir unga Reykvíkinga. Þó að mörg séu stefnumótin sunn an við Fríkirkjuna, þá munu þau vera enn fleiri við Persilklukk- una. Á morgun efnir Barnamúsíkskólinn til árlegra vortónleika í Austurbæjarbíói, þar sem nemendur skóians leika. Þessi mynd Kr. Ben. sýnir mikla tilfinningu í fiðluleik tveggja nemenda. Sjá bls. 2. Leirhöfn á Melrakkasléttu: Ungur maður drukkn- aði er bátkænu hvolfdi — 3 ungir menn voru á bátnum og vann einn þeirra þrekvirki við björgun félaga síns Loftleiöir: Mikil aukning í fjölda áningargesta SAMKVÆMT upplýsingum far- skrárdeildar Loftleiða er útlit fyrir mikla aukningu á fjölda áningargesta Loftleiða á Islandi í ár. Sl. mánudag höfðu þannig verið bókaðir samtals 4.932 án- ingarfarþegar fram í lok október RÍKISSTJÓRNIN ákvað í fyrra- dag á fundi að synja trygginga- félögunum um hækkun á ábyrgð artryggingum bifreiða, en féiög- in höfðu farið fram á 43,9% hækkun iðgjalda. Efnahagsstofn- unin skiiaði ríkisstjóm greinar- gerð 14. apríl og á grundvelli hennar og með tilliti til verð- stöðvunarlaganna var áðumefnd ákvörðun tekin. Var jafnframt ákveðið að skipa þriggja manrta nefnd til þess að endurskoða skipulag og framkvæmd ábyrgð- artryggingakerfisins. Tryggingafélögin hafa haldið nú í haust (frá mánud. 26. apríl að telja), en það er 22.2% aukn- ing miðað við bókanir á sama tíma i fyrra. Skiptast þeir þann- ig niður, að 3.130 eru bókaðir í sólarhringsviðdvöl, 1.521 í tvo sólarhringa og 281 í þrjá. því fram, að þau hafi þurft á hæklkunum að halda, þegar er verðstöðvunarlögin tóku gildi. Ætlunin mun þó eigi vera sú að láta tryggingafélögin ganga á sjóði sína, heldur mun athugað síðar að iðgjöld beri uppi það tap, sem nú verður af ábyrgðar- tryggingunum. Þá mun það vera samkvæmt tillögu Félags ís- lenztora bifreiðaeigenda, sem 3ja manina nefndin er sett á fót, em félagið hefur mjög gagnrýnt reikninga tryggingafélaganna — að þeir séu misjafnlega settir upp og sýni mismunamdi kostn- Aðfararnótt fimmtndags varð það hörmulega slys undan bæn- um Nýhöfn á Sléttu að bát með þremur mönnum hvolfdi skammt undan landi og drukknaði einn maðurinn, Jóhann Kristjánsson, 21 árs gamall, en hinir tveir mennirnir voru mjög hætt komn ir. Mennirnir höfðu verið á grá- sleppuveiðum, en slysið varð milli kl. 2 og 3 um nóttina, þegar þeir voru á leið til lands á létta- bát frá 6 tonna trillu, sem þeir höfðu róið á og lagt síðan við aðarprósentu. Er mismunur í prósentu allt frá 15 og upp í 40%. Mun það m. a. verkefni nefndarinnar að finna ástæðuna fyrir svo misjafrari kostraaðar- prósentu og endurskoða skipu- lag og framkvæmd tryggiinga- kerfisins. Tryggingafélögin héldu í gær fund um gagnráðstafanir í mál- inu. Ólafur B. Thors, aðstoðar- forstjóni Almenmira trygginga hf., sagði í viðtali við Mbl. að loknum fundarhöldum, að hann byggist við þvi, að félögin mundu endurnýja ábyrgðartryggingarn- ar, en gjalddaga yrði breytt úr 1. maí í 1. janúair og kemur sú tilhögun til framkvæmda fyrst 1972. Félögin munu því endur- nýja nú frá 1. maí til 31. desem- ber 1971. Þetta þýðir, að félögin sætta sig við ákvörðun ríkis- stjórmarinnar, en á endurnýjun- arkvittun mun það tekið fram, að félögin áskilji sér rétt til þess að breyta iðgjöldunum um leið og gildistími verðstöðvunarlag- Framhald á bls. 2 Jóhann Kristjánsson. legufæri um 2 hundruð metra frá landi. Þegar bátnum hvolfdi reyndu tveir mannanna, Jóhann Kristjánsson og Hreinn Elliða- son hinn kunni knattspyrnumað- ur, að synda til lands og tókst RÁÐSTEFNUM erlendra aðila fer stöðugt fjölgandi á Is- landi og munu fjölmargar ráðstefnur verða haldnar hér í sumar. í maí verða t.d. þrjár f jöl mennar ráðstefnur á Hótel Loft- leiðum og Hótei Sögu. Á Loft- leiðum hefst ráðstefna 5. maí á vegum EFTA og 15. maí hefst ráðstefna á Hótel Sögu á vegum brezkra verkfræðinga, semfjalla um hita- og loftræstingakerfi. Erling Aspelund hótelstjóri á Hótel Loftleiðum sagði að þann 5. mal kæmi undirbúningsnefnd frá Genf hingað til lands til þess að undirbúa frekar ráðstefnuna, Hreini það, en Jóhann sökk þeg ar hann átti eftir örstutt til lands að sögn Kristins Kristjáns- sonar 19 ára bróður Jóhanns, en Kristinn hélt sér í kjöl báts- ins. Strax og Hreinn, sem er 24 ára gamall, var kominn í land, hrinti hann út bátkænu, sem þarna var skammt frá og reri út að bátnum, sem var á hvolfi, til þess að bjarga Kristni. En þá tókst svo slysalega til, að þeim bát hvolfdi einnig og synti þá Hreinn til lands í annað sinn i ísköldum sjónum. Vakti hann þá upp á býlinu Nýhöfn IX og lét vita af slysinu, en um leið og hann var búinn að því, hneig hann niður meðvitundarlaus. Var þá kallað úr hjálparlið og stóð það í járnum að þegar þeir komu á trillu út að bátnum, sem Krist- inn hékk á, var hann orðinn meðvitundarlaus og náðu hjálp- armennirnir honum í sama mund og hann sleppti takinu á kilin- um. Komst hann ekki til Framhald á bls. 2 en hérlendis hefur verið unnið lengi að undirbúningi ráðstefn- unnar bæði á vegum hótelsins og viðskiptamálaráðuneytisins. Erling sagði, að allur kjallar- inn í hinni nýju álmu hótelsins yrði fyrir fréttamenn, sem reikn- að væri með að yrðu 40. Þar verður einnig fréttastofa EFTA, póstur og sími, stúdíó fyrir sjón- varpið, tvær fréttastofur fyrir út varpið og fleira. Á 1. hæð húss- ins verða blaðamannafundir í öðrum ráðstefnusalnum tvisvar á dag, en þar verður þýtt jafn- óðum af ensku yfir á þýzku og Framhald á bls. 2 Bifreiðatryggingar aðeins endumýjaðar til 8 mánaða — Tryggingaárið framvegis frá 1. janúar til 31. desember — þriggja manna nefnd skipuð til að endurskoða skipulag áby r gðartr y gg ing akerf isins ísland sem ráðstefnuland: Hundruð manna koma í næstu viku

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.