Morgunblaðið - 12.05.1971, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. MAl 1971
— Hversu stór er skipastóll
Ólafsfirðinga?
.— Nú eru gerðir út 5 tog-
bátar frá 100 400 lestir að
stærð. Auk þeirra 4 minni
þilfarsbátar og 20—30 trillu
bátar. Meirihluti Ölafsfirð-
inga byggir afkomu sína á sjó
sókn og vinnslu aflans. Nú
er mikill hugur í mönnum að
endurnýja bátaflotann og í
athugun eru kaup á nýtízku
500 lesta skuttogara.
— Hver eru brýnustu verk
efni Ólafsfirðinga?
-— Þar ber fyrst að telja
endurbætur hafnarinnar,
bæði stækkun svo og að gera
hana öruggari og fullkomn-
ari. Höfnin er lykillinn að
efnahagslífi bæjarbúa og eft
ir því sem skipin stækka þarf
meira og betra legupláss.
Nú hefur verið ákveðið að
bora meira eftir heitu vatni,
en hitaveita Ólafsfjarðar er
ein elzta hitaveita landsins,
byggð um svipað leyti og
hitaveita Reykjavíkur. Jarð-
fræðingar hafa gefið góða
von um árangur af bor-
unum.
Varanleg gatnagerð er ofar
lega á baugi og þegar hefur
verið steyptur fyrsti kaflirm,
200 metrar á lengd. Hefur
verið ákveðið að halda áfram
að endurbyggja gatnakerfið.
— Hvernig er afkoma Ól-
afsfirðinga?
— Hún er góð. en fólk á
stöðum eins og Ólafsfirði
þarf að hafa meira fyrir lif-
inu en aðrir vegna veðráttu
og snjóþyngsla á vet-
urna. Samgöngur eru eðli-
lega stór þáttur í að við
getum lifað góðu lífi.
Samgöngur á landi hafa verið
erfiðar, en við teljum að
hægt sé að bæta úr því með
kaupum á stórvirkum snjó-
blásara, því að það hefur
sýnt sig að miklu betri árang
ur fæst með því að blása
snjónum í burtu og leggjum
við áherzlu á að slíkur blás-
ari verði keyptur sem allra
fyrst, svo að við getum feng
ið þær samgöngur, sem við
eigum rétt á.
eru hér í smíðum 6 einbýlis
hús og fjögurra íbúða rað-
hús. Raðhúsið er byggt af
byggingafyrirtæki í Ólafa-
firði, sem síðan selur íbúðirn
ar. Þá er einnig í smíðum hér
nýr gagnfræðaskóli og verður
hluti byggingarinnar tekinn í
notkun næsta haust. Það er
mjög aðkallandi fyrir bæjar
félagið að hlúa að iðnaðar-
mönnum og öðru fólki, sem
ekki getur aðlagazt vinnslu
sjávaraflans, til þess að það
flytjist ekki í burtu. í vetur
hefur bæjarstjórnin látið
vinna að áætlunargerð í sam
bandi við byggingu spóna-
verksmiðju og er nú verið
athuga hvort fyrirgreiðsla
fæst. Bygging slíkrar verk-
smiðju væri mjög æskileg,
því að við verðum að fá eitt
hvað til að halda í fólkið.
Það má skjóta því inn hér,
að í Ólafsfirði búa nú um
1100 manns og hefur farið
heldur fjölgandi á undanförn
um árum.
Afkoma fólksins góð
— þrátt fyrir slæma vertíð framan af
— FYRRIHLUTI vertíðarinn
ar hjá okkur einkenndist af
ógæftum og aflaleysi, einkum
hjá smærri bátunum, en
stærri togbátar gátu verið
meira að. Segja má að ver-
tíðin hjá þeim hafi verið all
góð og hæsti báturinn, Sigur
björg, er búinn að fá röskar
700 lestir. Þannig mælti Jak
ob Ágústsson fréttaritari Mbi.
í Ólafsfirði, er Morgunblaðið
ræddi við hann nú fyrir
skömmu.
— Seinni hlutinn var aftur
á móti hagstæðari og við feng
um okkar páskahrotu, sem
stóð í tvær vikur og þá barst
mikill afli á land. Nokkrir
erfiðleikar voru á að koma
affanum í verðmæti, því að
mikií flensa herjaði á byggð
arlagið um þær mundir, en
með því að gefa frí í skólum
blessaðist það.
— Hvað er að frétta af grá
sleppuveiðum?
— Viðbúnaður var allmik-
ill, en svo virðist, sem vertíð
in þar hafi brugðizt. Bátarn
ir urðu líka fyrir miklu veiða
færatjóni í sumarmálahvell-
inum, en þá gerði rok og stór
hrið. Alla vega er aflinn
mikiu lakari en í fyrra.
— Hvernig er ástandið í at
vinnumálunum?
— Atvinna hefur verið
ágæt seinni hluta vetrar og yí
irleitt nóg að gera við
vinnslu sjávarafurða. Sömu
sögu er raunar að segja um
iðnaðarmenn í sambandi við
byggingaframkvæmdir, en nú
•lakob Ágústsson.
Fréttir
frá
Ólafsfirði
Rætt við
Jakob Ágústsson,
fréttaritara
Morgunblaðsins
Tillögur í
s veitarst j órnarmálum
Á fulltrúaráðsfundi Sambands
íslenzkra sveitarfélaga, sem
haldinn var í félagsheimili Sel-
tjamarneshrepps 19. og 20. apríl,
var meðal annars samþykkt eftir
farandi:
1. Kostir og gallar kaupstaðar-
réttinda.
Að fela stjórn sambandsins að
kanna kosti þess og ann-
marka, að sveitarfélög á stærð
við Selfoss, Garðahrepp og Sel-
-tjarnarneshrepp öðlist kaup-
staðarréttindi
2. Samræming aðgerða við leit
að ne.vzltivatni.
Að fela stjórn sambandsins að
boða til fundar með ýmsum
aðilum í þvi skyni að sam-
ræma aðgerðir við leit að
góðu neyzluvatni og vemdun
vatnsbóla við kaupstaði og
kauptún.
3. Löggjöf tim almenninga
— yfirlitsskiptilag
nm landnotknn.
Að beita sér fyrir því, að sam-
in verði löggjöf um almenn-
inga og óbyggðir landsins og
í þvi sambandi verði höfð í
huga gerð yfirlitsskipulags um
landnotkun.
Ankin k.vnning á sveitarstjórn-
amiálum.
Fundurinn lýsti ánægju sinni
með þá fræðslustarfsemi, sem
sambandið hefur haldið uppi í
þágu sveitarstjórnarmanna, m.a.
á þremur ráðstefnum, sem haldn
ar voru síðast liðinn vetur, og
hvatti til aukinnar fræðslu- og
upplýsingastarfsemi, sem ætluð
Stykkishólmur:
Vetrarstarfi tón-
listarskólans lokið
Stykkishólmi, 7. maí.
TÓNLISTARSKÓLI Stykkis-
hólms lauk 7. starfsári sínu með
nemendatónleikum í Hljómskál-
anum, sunnudaginn 2. maí sl. 1
skólanum stunduðu nám í vetur
44 nemendur, þar af 19 í píanó-
leik. Á hljómleikum þessum
komu flestir nemendur fram og
léku einnig tvær lúðrasveitir
nokkur lög, en lúðrasveitir þess-
ar eru skipaðar ungum nemend-
um sem hafa verið æfðir upp í
vetur. Nemendafjöldi í ár hef-
ur verið með því mesta síðan
skólinn byrjaði. Skólastjóri hef-
ur verið frá upphafi Víkingur
Jóhannsson. — Fréttaritari.
væri almenningi, um starfsemí
sveitarstjórnanna í landinu. 1
ályktun fundarins er varpað
fram þeirri hugmynd, að haldinn
verði kynningardagur á starf-
semi sveitarfélaga, þar sem al-
menningi yrði gefinn kostur á
að kynna sér af eigin raun starf-
semi kaupstaða og kauptúna-
hreppa á skrifstofum sveitarfé-
laganna og stofnunum þeirra.
Áherzla var lögð á aukna út-
breiðslu tímarits sambandsins,
Sveitarstjórnarmál.
l'Y-lagsstofiuin ríkis og sveitar-
féiaga.
Fundurinn heimilaði stjórn sam
bandsins að semja við ríkisvald-
ið um stofnun fyrirtækis, fast-
eignastofnunar, sem yrði sam-
eign rikis og sveitarfélaganna og
annaðist viðhald fasteignaskrán-
ingar og nýtingu þeirra gagna,
sem aflað hefur verið um fast-
eignir í lanðinu. Kaus fundur-
inn þrjá menn, Ólaf B. Thors,
borgarfulltrúa í Reýkjavík, Björn
Friðfinnsson, bæjarstjóra á Húsa
vik og Erlend Árnason, oddvita
Austur-Landeyjahrepps, til að
vera stjórn sambandsins til ráðu
neytis um undirbúning samstarfs
samnings og löggjafar um þetta
efni.
Ennfremur var þessum mönn-
um falið að vera stjórn sam-
bandsins til ráðuneytis við end-
urskoðun laga um tekjustofna
sveitarfélaga, sem fyrirhuguð er.
f,a<rafriimvörp um skólakerfi og
"■runnskóla.
Fulltrúaráðið fagnaði laga-
frumvörpum um skólakerfi og
grunnskóla. Taldi þó mjög mið-
ur farið. að ekki var haft sam-
ráð við sambandið við samn-
ingu frumvarpanna, en trevstir
því, að náið samstarf verði haft
við sambandið og sveitarfélögin
varðandi þær breytingar, sem
þessir aðilar telja að gera þurfi
á frumvörpunum í þeirri athug-
un, sem fram á að fara milli
þinga.
Fundurinn lýsti ánægju sinni
yfir þvi, að sett hefur verið reglu
gerð um rekstrarkostnað skóla,
en beindi þeim eindregnu tilmæl
um til menntamálaráðuneytisins,
að ákvæði um endurgreiðslu tann
læknaþjónustu verði breytt á
þann veg, að sömu reglur gildi
um skiptingu kostnaðar af allri
heilbrigðisþjónustu í skólum.
Tilliigiir iiin nýskipan lieillirigð-
ismála.
Fulltrúaráðið fagnaði fram-
komnum tillögum að frumvarpi
um heilbrigðismál, sem það taldi
í verulegum atriðum byggt á
hugmyndum sambandsins um
verkefnaskiptingu rikis og sveit-
arfélaga. Fundurinn tók ekki af
stöðu til efnis tillagnanna, en
kaus þrjá menn, Birgi fsl. Gunn-
arsson, borgarfulltrúa í Reykja-
vik, Óla Þ. Guðbjartsson, oddvita
á Selfossi og Jóhann Einvarðsson,
bæjarstjóra í Keflavík, til að
vera stjóm sambandsins ráð-
gefandi við athugun málsins.
ÍSLENZKIR húsgagnaframleið-
endur hyggjast taka þátt í hús-
gagnakaupstefnu í Kaupmanna-
höfn dagana 12. til 16. maí n.k.
og sýna þar alls konar húsgögn,
setustofu- og borðstofuhúsgögn,
eldhúsinnréttingar og skrifstofu
FuIItriiar sanihanclsins í stjcírn
Innheimtustcifnunar sveitarfélaga
Fundurinn kaus tvo menn í
stjórn Innheimtustofnunar sveit
arfélaga, sem sett var á laggirn
ar með lögum frá seinasta Al-
þingi til að annast innheimtu
meðlaga. Kosnir voru Guðmund-
ur Vignir Jósefsson, gjaldheimtu
stjóri í Reykjavík og Alexander
Stefánsson, oddviti í Ólafsvik,
sem aðalmenn og Sigurgeir Sig-
urðsson, sveitarstjóri í Seltjarn-
arneshreppi og Magnús H.
Magnússon, bæjarstjóri í Vest-
mannaeyjum til vara.
Fundur um stöðu og hlutverk
landshliita.sanitakanna.
í framhaldi af fulltrúaráðs-
fundinum efndi stjóm sambands
ins til fundar með fulltrúum
landshlutasamtakanna 21. apríl.
Á fundinum var rætt um skipu-
lag landshlutasamtakanna og
samræmingu á verkefnum þeirra.
Ákveðið var, að stjórn sambands
ins skyldi setja á fót nefnd með
fulltrúum landshlutasamtakanna,
sem nú hafa verið stofnuð í
öllum kjördæmum landsins. Yrði
verkefni þeirrar nefndar að gera
tillögur um stöðu landshluta-
samtakanna í stjórnkerfinu, hlut
verk þeirra og tekjuöflun.
stóla. Nefnist kaupstefna þessl
„Scandinavian Furniture Fair".
Þau íslenzk fyrirtæki, sem
þátt taka í kaupstefnunni eru
Trésmiðjan Víðir, Kristján Sig
geirsson, Dúna, Stáliðjan í Kópa
vogi og J.P.-innréttingar.
íslenzk húsgögn á
norrænni kaupstefnu