Morgunblaðið - 12.05.1971, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 1971
Sltfflgtyii&IflfrttÞ
Útgafandi hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraidur Sveinsson.
Rilstjórar Matthías Johannessen.
Eyjólfur KonráS Jónsson.
Aðstoðarritstjóri Styrmir Gunnarsson.
Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson.
Fréttastjóri Bjöm Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjóm og afgreiðsla Aðalstræti 6, sími 10-100
Augtýsingar Aðalstræti 6, sími 22-4-80.
Áskriftargjald 196,00 kr. á mánuði innanlands.
I lausasölu 12.00 kr. eintakið.
FELAGSLEGT ORYGGI
¥ stjórnmálayfirlýsingu lands
fundar Sj álfstæðisflokks-
ins er lögð megináherzla á
frelsi einstaklingsins til orðs
og æðis. Það er vafalaust, að
sjaldan hefur þörfin verið
brýnni en nú að huga að
stöðu mannsins í umhverfi
sínu og þjóðfélagi. Það er
virðingin fyrir manninum
sjálfum, sem nú verður sett
ofar öðru.
Andstæðingar sjálfstæðis-
stefnunnar halda því oft og
tíðum fram, að baráttan fyrir
einstaklingsfrelsi sé háð til
þess að hinir sterku verði
ofan á; í þeim efnum ríki lög-
mál frumskógarins. Þetta er
rangt mat, því að einstakl-
ingsfrelsið byggist á jafnrétt-
isaðstöðu allra þjóðfélags-
þegna. Enda er það eitt af
grundvallaratriðum sjálf-
stæðisstefmmnar að tryggja
landsmönnum öllum félags-
legt öryggi.
Félagsleg samhjálp verður
því ávallt eitt af meginvið-
fangsefnum Sjálfstæðisflokks
ins. í stjómmálayfirlýsingu
landsfundarins segir svo um
þetta efni: „Almannatrygg-
ingar og félagslega samhjálp
ber að efla með því að bæta
aðbúnað og auka bsetur, þar
sem þeirra er þörf. Fram-
kvæmd þessara mála sé hag-
að þannig, að ekki dragi úr
athafnavilja einstaklinganna
og komið verði í veg fyrir
misnotkun. Aldraðir og aðrir,
sem við skerta starfsorku
búa, fái aðstoð, svo að þeim
sé kleift að búa sem lengst á
eigin heimilum og fullnægja
starfslöngun sinni. Ríkisvald-
ið stuðli að byggingu hentugs
húsnæðis fyrir aldrað fólk,
m.a. í tengslum við fyrirhug-
aðar læknamiðstöðvar. Fella
ber fjölskyldubætur inn í
skattakerfið við skatta- og
útsvarsálagningu og tryggja
þeim, sem eigi ná þannig lág-
markslaunum greiðslu, sem
svarar því, er á vantar. Telja
verður að nýgerð endurskoð-
un almannatryggingalaga sé
ekki fullnægjandi, þótt til
bóta hafi verið, og því beri
að taka málið upp að nýju
með framangreind sjónarmið
í huga.“
í þeíssari yfirlýsingu er sér-
staklega bent á nauðsyn þess
að auka bætur, þar sem
þeirra er sérstaklega þörf.
Engum dylst, að með þeim
hætti má á auðveldari hátt
og á skemmri tíma stuðla að
meiri félagslegum jöfnuði en
nú er og um leið leysa vanda
fj ölmargra þ j óðf élagsþegna
eins og t.a.m. ellilífeyrisþega.
í þessu efni eins og raunar
mörgum öðrum, sýnist ágrein
ingurinn vera fremur um
leiðir að m-arkmiðum en
markmiðin sjálf. Fæstir
draga í efa skyldu velferð-
ar- eða hagsældarríkisins til
þess að koma þeim til aðstoð-
ar, sem af einhverjum ástæð-
um eiga þess ekki kost að
njóta gæða þjóðfélagsins á
sama hátt og aðrir.
Félagsleg samhjálp á þó
ekki að vera með þeim hætti,
að hún dragi úr athafnavilja
einstaklinganna, heldur þvert
á móti. Félagsleg samhjálp
er undirstaða þjóðfélagsjafn-
réttis og á þann hátt hvati
framfara og velferðar.
Skattskráin
egar skattafrumvarpið var
til meðferðar á Alþingi
voru gerðar þrjár veigamikl-
ar breytingar á frumvarpinu,
sem miða allar að því að
vemda hinn almenna skatt-
greiðanda og auka rétt hans
gagnvart skattyfirvöldum. I
fyrsta lagi er gert ráð fyrir,
að einungis löggiltir fulltrúar
skattstjóra megi gefa út úr-
skurði um kærur. Þá er í öðru
lagi gerð sú krafa, að úr-
skurðir skattstjóra um kær-
ur séu ávallt rökstuddir. Loks
er í þriðja lagi gert ráð fyrir,
að breyting á skatti sé ekki
gerð öðru vísi en hún sé til-
kynnt skattþegni í ábyrgðar-
bréfi og hún komi ekki til
innheimtu fyrr en að loknum
kærufresti til skattstjóra eða
að loknum úrskurði þeirrar
kæm.
Það er augljóst, að þessar
auknu starfsskyldur, sem
lagðar eru á skattyfirvöld,
hafa í för með sér töluverðar
breytingar. Þegar þess er nú
krafizt, að úrskurðir verði
rökstuddir, er óhjákvæmilegt
að gefa skattstjórum lengri
tíma til úrskurðar en áður
var. Upphaflega álagningu
verður þvi að leggja til grund
vallar innheimtu; í kjölfar
þessa fylgir að gefa verður
skattstjórum lengri tíma til
fyrstu yfirferðar framtals.
Það er því í fyllsta samræmi
við þær breytingar, sem gerð-
ar hafa verið á skattalögum,
sem framlagningu skattskrár
er seinkað um tæpar þrjár
vikur. Auk þess, sem þessi
tímasetning er í samræmi við
framlagningu útsvarsskrár.
Þeir aðilar, sem nú gera
mki|ii W U %SWJF w 1 FAN tí RH IEIMI
Ást ;ralla og nærvera
Rússa á Indlandshafi
AUKINN flotastykur Rússa á
Indlandshafi er Ástralíustjóm
mikið áhyggjuefni um þessar
mundir. Ástralíumenn eru
uggandi um öryggi siglinga-
leiðarinnar fyrir Góðravonar-
höfða eins og Suður-Afríku-
stjórn og íhaldsflokkurinn í
Bretlandi, en þeir óttast ekki
síður, þótt minna sé látið á
því bera opinberlega, að land
þeirra verði mikilvægt skot-
mark kjarnorkuárásar í hvers
konar styrjöld, sem Rússar,
Kínverjar eða Bandaríkja-
menn mundu dragast inn i.
Síðan Harold Holt fyrrver
andi forsætisráðherra hét
Johnson fyrrverandi forseta
heilshugar stuðningi í Víet-
nam-stríðinu, hafa Ástralíu-
menn látið mikið að sér
kveða á Kyrrahafi. Samband
ið við Japani hefur sífellt orð
ið nánara, og óðum er að
myndast möndull frá Wash
ington um Toyko til Can-
berra.
Ástralía nýtur verndar
Bandaríkjanna gegn kjarn-
orkuárás, en verður að greiða
það gjald fyrir varnarmála-
stefnu sína, sem byggist á
ANZUS-sáttmálanum, að sam
þykkj a smíði rafeindastöðva,
sem eru ætlaðar til hernaðar
og mikil leynd hvílir yfir, á
afskekktum stöðum eins og
Norðvesturhöfða í Vestur-
Ástralíu og Furuopi og Woo
mera á eyðimörkinni í mið-
hluta Ástraliu. Þessar stöðv-
ar eru mannaðar prófessor-
um og tæknifræðingum, sem
eru sérmenntaðir í rafeinda-
fræðum, og ljósfræði, og þeir
ráða meðal annars yfir þekk
ingu til.að nota lasergeisla, og
útfjólubláa geisla, þeir eru
sérfræðingar í fjarskiptum
við gervihnetti og þeir eru
sérfræðingar í tölvum og
stærðfræði.
William McMahon, hinn
nýi forsætisráðherra, hefur
eins og fyrirrennari sinn,
John Gorton, neitað að skýra
leiðtoga stjórnarandstöðunnar
frá því, hvaða hlutverki þess
ar stöðvar gegni, og nokkr-
ir bandarískir öldungadeildar
menn eru einu stjórnmála-
mennirnir, sem hafa fengið
að skoða þær. Sá hagur, sem
Ástralíumenn hafa af þessum
stöðvum, er meðal annars
fólginn í því, að þeir hafa
aðgang að bandarískum her-
leyndarmálum ásamt örfáum
öðrum bandalagaþjóðum
Bandaríkjanna. Jafnframt
hafa þeir aðstöðu til þess að
koma fótunum undir háþró-
aðan tækniiðnað af eigin
rammleik. Þannig hafa orðið
svo miklar framfarir í ný-
stofnaðri vopnarannsókna-
stöð í Suður-Ástralíu, svo að
dæmi sé nefnt, að Ástraliu-
menn eru orðnir forystuþjóð
á sumum sviðum, einkum í
sumum greinum ljósfræði. Ó
kosturinn er sá, að Ástralía
er mikilvægt skotmark kjarn
orkuárásar — einkum borgir
eins og Adelaide, sem ræður
yfir þeirri tækni, sem er
grundvöllur þeirrar æðri
tækni, sem Ástralíumenn
ráða nú yfir.
Fáir Ástralíumenn gera sér
grein fyrir þessu og vita held
ur ekki, að þessar stöðvar
eru til. Þó vakti það tölu-
vert uppnám í Tasmaníu, þeg
ar McMahon forsætisráð-
herra tilkynnti skömmu eftir
að hann varð forsætisráð-
herra, að Ástralíumenn
mundu koma á fót stöð á
eynni, er yrði hlekkur í
keðju svokallaðra Omega-
stöðva. McMahon reyndi að
lægja öldurnar með því að
lýsa yfir, að Omega væri
„leiðbeiningakerfi, ætlað til
almennra nota um allan
heim fyrir skip og hvers kon
ar flugvélar . . . en ekki
nógu nákvæmt til þess að
eldflaugakafbátar gætu notað
það“. En menn drógu orð
hans í efa, þegar blað í Mel
bourne birti bækling útgef-
inn af Fiotamálastofnun
Bandaríkjanna, þar sem sagði
að Omega-kerfið yrði mikil
vægt skotmark í kjarnorku-
árás. Blaðið hafði einnig eftir
bandaríska flughernum, að
vel væri til fundið að reisa
sem flestar slíkar stöðvar
í öðrum löndum, þar sem
með því móti væri hægt að
draga úr fjölda þeirrar fyrsta
flokks eldflauga, sem miðað
væri á Bandaríkin.
Af opinberri hálfu er nær
vera sovézka flotan talin ógn
un við siglingaleiðir og vest
ræn áhrif meðal þróunarríkj
anna í Afríku og Suður-Asíu.
Óopinberlega eru ástralskir
ráðamenn ekki endilega
kvíðafullir vegna komu sov
ézku herskipanna, heldur ótt
ast þeir allan þann rafeinda
búnað, sem þau kunna að
vera búin. Herskipin geta til
dæmis verið búin tækjum til
að granda rafeindatækjum.
Ástralíumönnum var það
þess vegna fagnaðarefni, þeg
ar Bretar og Bandaríkja-
menn hófu fyrir nokkrum
vikum vinnu við smíði nýrr
ar rafeindastöðvar, sem ætl
uð er til fjarskipta við gervi
hhetti, á kóralrifunum á Di-
ego Garcia á Mið-Indlands-
hafi. Ástralíumenn tóku ekki
þátt í smíði þessarar stöðvar,
þar sem þeir hafa þegar reist
samskonar stöð)var, sem
verða hlekkir í alþjóðlegri
keðju slíkra stöðva. Banda-
ríkjamenn eru samstarfsmenn
Ástralíumanna á þessu sviðti
á Austur-Indlandshafi, en
Bretar taka að sér að verða
samstarfsmenn þeirra á Vest
ur-Indlandshafi, á Diego
Garcia.
En öll þessi starfsemi hef
ur leitt til þess, að nauðsyn-
legt hefur reynzt að reisa
venjulegar þjónustustöðvar á
vesturströnd Ástralíu. Unnið
er að því að reisa flotastöð
við Cockburn-sund fyrir fjög
ur fylgdarskip og þrjá kaf
báta. Unnið er að endurnýjun
ástralska flotans fyrir um 300
milljónir dollara.
í öllum þessum varnarmála
umræðum hefur að sjálf-
sögðu borið talsvert á góma,
að Suður-Afríka geti gegnt
mikilvægu hlutverki í sam-
vinnu við Ástralíu á Ind-
landshafi. Suður-Afríkumenn
hafa róið að því öllum árum
að löndin geri með sér varn
arsamning, og þessi hugmynd
hefur hlotið töluverðan stuðn
ing, einkum í blöðum.
Slíkt bandalag er útilok-
að af stjórnmálaástæðum, og
því hefur McMahon forsætis
ráðherra lýst yfir. Ástæðan
er einfaldlega sú, að Ástralía
hefur fengið tryggingu fyrir
öryggi sínu í sáttmálum og
með því mikilsverða hlut-
verki, er það hefur tekið að
sér í samvinnu við Bretland
og Bandaríkin. Hví skyldu
Ástralíumenn þá taka að sér
nýjar skuldbindingar?
Auk hagsmuna á Indlands-
hafi eiga Ástralíumenn og S-
Afríkumenn tvennt sameigin
legt, sem máli skiptir: áhuga
á íþróttum og margskonar
viðskiptahagsmuni. En Ástra
líumenn telja þetta ekki
nóg til þess að réttlæta
varnarsamning, og vísa
þeirri hugmynd á bug, bæði
opinberlega og óopinberlega.
Og verði engin breybing á
kynþáttaaðskilnaðarstefnu S-
Afríkustjórnar verða aldrei
náin eða sterk tengsl milli
stefnu landanna. Ástralíu-
menn eru mjög viðkvæmir
fyrir algengum getgátum um,
að þeir hafi vissa samúð
með stjórn Vorsters vegna
þess að þeir takmarka inn-
flutning fólks til landsins. —
Fyr.rverandi ráðuneytisstjóri
ástralska utanríkisráðuneytis
ins, Sir James Plimisoll, sem
nú er sendiherra í Washing
ton, sagði nýlega: „Þetta er
alröng túlkun á stefnu Ástra
líu gagnvart Suður-Afriku.
Því fer fjarri að Ástralíu-
menn hafi samúð með stefnu
Suður-Afríkustjórnar, þvert á
móti er stefna hennar Þránd-
ur í Götu góðra samskipta
landanna.“
OFNS: Öll réttindi áskilin.
þesisa seinkun tortryggilega,
hljóta því að vera andsnúnir
því aukna öryggi, sem skatt-
þegniunum er nú veitt. And-
staða þeirra verður tæpast
skilin á annan veg en þann,
að stefna þeirra sé sú, að
gera stöðu borgarans verri
gagnvart skattyfirvöldum.
Humar-
verð
ákveðið
VERÐLAGSRÁÐ sjávarútvegs-
inis hefur ákveðið lágmarksverð
á ferskum og slitnum humar á
humarvertíð 1971. Hvert kg af
fyrsta flokks óbrotnum humar-
hölum 30 gr og yfir, 160,00 kir.
og annar flokkur óbrotinn hum-
arhali 10 gr að 30 gr og brot-
iinm humarhali 10 gr og yfir, 75
krónur.
Verðflokkun byggist á gæða-
flotokun FLskmats ríkisina og er
verðið miðað við að seljamdi af-
hendi humarinm á flutningstæki
við h!ið veiðiskipa.