Morgunblaðið - 02.06.1971, Blaðsíða 7
MCXRGUNBLAÐHD, MIÐVTKUDAGUR 2. JUNl 1971
7
Smali
Smiili var alþekkt orð fyr-
ir rúmum 50 árnm. Nú efast
ég um, að unfflingar geti
skýrt þetta orð og viti af
hverju það er komið.
Þeir eru kallaðir smalar,
sem gættu áftina á sumrin etft
ir að búið var að taka lömb
in frá þeim. Lömbin voru
heft og þeirra var gætt í tvo
til þrjá daga. Svo voru þau
tekin úr haftinu og rekin i
gott sumarbeitiland, þar sem
þau flökkuðu tU um sumarið.
Líkt og Jónas Hallgrímsson
sogir frá í „Fram yfir Bola-
klif“ og „I lambarekstu r -
inn.“
Fyrstu tvo dagana voru
venj.ulega tveir með ærnar.
í>ær söknuðu lambanna. Um
níuleytið á morgnana var bú
ið að mjólka. Tók þá s.mal-
inn ærnar úr kviunum og
rak þær þangað sem gott hag
lendi var. Sérstaklega var
hyllst til að hafa þær, þar
sem kvistbeit var, birkikjarr
og f jalldrapi, valWendisgróður
og berjalyng. MjaJtakonurn-
ar gátu sagt til um það, hvar
féð hafði gengið um daginn.
Svo mikill munur var á rjóm
anum.
Þar sem ég sat hjá ánum,
mátti skipta beitilandinu í
þrennt. Bezt, millum ^stig og
kostaminnst. í>að var regla,
að land það, sem mikil for-
sæla lá á, sól skein lítið, þar
var kjarnbezta beitin.
Eftir að féð var búið að
fylla sig, lagðist það. Þegar
ærnar stóðu upp aftur, vildu
þær æða beint út i lioftið og
þá helzt að smeygja sér eftir
giiskorum og lægðum. Varð
því oft að fara kringum ærn-
ar og telja þær. Þær ær, sem
mest sóttu í að strjúka, urðu
fljótt auðkenndar og varð því
nóg að hafa auga með þeim.
Þegar búið var að reka
ærnar saman, lögðust þær.
Þá fengu smalarnir sér bita
úr mal sínum og gáfu Snata
bita og sopa úr mjólkurflösk
unnd sinni. Alltaf fannst mér
mikil ábyrgð hvíla á mér við
þetta starf. Ábyrgðin að tapa
ekki af ánum. Þar sem ég sat
hjá voru ærnar um 60—70
1 hjásetunni. (Mynd úr útgáfu Helgafells á i’Uti og stúlku
eftir Jón Thoroddsen. Halldór Pétursson listmáiari gerði
myndlna.)
að tölu. Var setið út allan
júM. Eftir það var smaiað á
hesti og stundum gangandi.
Landið, þar sem setið var,
heillaði mann, þegar blíður
sunnanvanminn fór sólvermd
ur yfir brekkunnar. Stundum
var einveran við hjásetuna
hreinasta kvalræði. Þegar
maður hugsaðii til fóliksins
heima, um fimmtán, sextán
manns, sem lifði við gleðskap
í ánægjulegum vinahópi, þá
var einveran í tilbreytingar-
leysinu lamandi. Fjörugir
æskukálfar þoldu ekki þetta
starf til lengdar.
Eftir að hin lifandi nátt-
úra varð mér opnari og ég
kunni betur að skyggnast
inn í fjölbreytni hennar, opn-
uðust mér vökudraumar, þar
sem engin leiði komst að.
Ekki var það aMtaf, að
smalar hefðu klukku til að
fara eftir. Þá tókum við eftir
því, hvar forsælan náði yfir
kvöddið áður og leituðum
þannig eftir réttum tíma.
Þá fóru ærnar að leita í
áttina heim. Júgrin fóru að
verða full aí mjólk og
harðna. Vildu þær því fara
að láta létta á sér. Þetta var
gangur lífsins. Nú undi é.g
bezt úti í hljóðri náttúru við
varma hughrifanna.
Svo þegar haustaði og far-
ið var að smala fénu, gladdi
það mig jafnan að koma við
hjá smalakofanum og endur-
vekja minningar frá sumr-
inu. Þá fannst mér ég vera
kominn heim. Síðan hafa þess
ar minningar færzt í meiri
ævintýrafljóma og orðið til-
komumeird. Leikirnir við hjá-
setuna voru fábreyttir. Við
söfnuðum saman blöðkum aí
loöviði og gráviði. Höfðum
við þetta fyrir bambaeyru og
skárum á blöðkurnar öl'l fjár
mörk, sem við kunnum og
jafnvel bjuggum sum til lika.
Við afmörkuðum smá gras-
bletti með steinvölum, sem
við lögðum hdið við hlið. Svo
var leitað að gömlu hrossa-
taði og mulið yfir túnið.
Stundum var leitað að faileg-
um blómjurtum og voru þær
fluttar heim í moldarholu við
smalakofann. Náttúran varð
að leggja til efnið í leikina
okkar. Við höfðum ekkert
annað. Við höfðum agnariít-
inn pott með okkur, sem tók
einn litra og í honum hituð-
um við kókó úr mjólikinni
okkar og nokkrum sykurmol-
um, sem við höfðum með.
Þetta var alveg draumur.
Finnst mér ég aldrei hafa
fengið jafn gott kókó sdðan.
J.A.
Sól
Og
sumar
ÍRNAÐ HlílLLA
1 dag verða gefin saman í
hjónaband i Kaupmannahöfn af
séra Hreini Hjartarsyni, ungfrú
Birna Kjartansdóttir, húsmæðra
kennari, Höfn, Hornafirðd og Jón
Hjaltaiín Stefánsson, verkfræð-
ingur, Flókagötu 5, Reykjavik.
Heiimidi þeirra verður að Bræðra
borgarsttg 43.
Laugardaginn 3. apríl voru
gefin saman í hjónaband í Lang
holtskirkju af sr. Sigurði Hauki
Guðjónssyni ungfrú Guðný
Steinunn Guðjónsdóttir og Jón
Már Jónsson. Heimili þeirra
verður í Harrison, New York.
Ljósm.st. Gunnars Ingimarss.
Suðurveri.
Nýlega opinberuðu trú'lofun
sina ungfrú Laufey Steingríms-
dóttir, hjúkrunarkona, Sogavegi
158, Reykjavdk og Hannes
Einarsson, húsasmiður, Kross-
holti 10, Keflavík.
Nýlega opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Þórunn Pálsdóttir,
Skildinganesi 28, Rvik og Hall-
dór Jónsson stud. med., Sóiheim
um 22, Reykjavik.
Spakmæli dagsins
Að þvi er gáfur snertir, virð-
ast aliir nú á timum hafa til
hnífs og skeiðar. En ósköp fáir
eru i miklum álnurn.
— Senac de Meilha.n.
PENNAVINIR
Karl-Heinz Rúbmann, D-717
Sehwáb. Hall, Gelbingen Gasse
81, Þýzkalandi óskar eftir
pennavinum á Islandi, sem safna
frímerkj'um.
Wolfigang Bast, 5123 Merk-
stein bei Aaehen, Hauptstrasse
195 Nordrheinwestfalen, V-
Þýzka'landi óskar eftir penna-
vinum á Isléindi. Skrifar einnig
á ensku. Hann vinnur sem
sjúkraliði á sjúkrahúsi. Fæddur
17. maí 1952 í Merkstein.
ÞEKKIRDU
MERKIÐ?
A10
ÖNNUR HÆTTA
Upphrópunarmerkið er hættu-
merki, sem gefur til kynna, að
einhverskonar hætta sé á ak-
brautinni framundan, venjulega
önnur en gefin er til kynna með
sérstökum aðvörunarmerkjum,
svo sem vegavinna eða þreng-
ing vegarins. Þessi hætta getur
verið af ýmsu tagi, svo sem brölt
brekka eða blindhæð. Venjulega
er hættan skilgreind á sérstöku
skýringarmerki ferhyrndu, sem
sett er neðan við þríhyrninginn,
og ökumenn ættu að gefa sér
tíma til að lesa þá skilgreiningu.
SA NÆST BEZTI
A: „Peninga á ég ekki. Skynsemin er aleiga má,n.“
B: „Aumingja maðurinn! Óisiköp eruð þér fátækur."
BIFREIÐASTJÓRAR brotamAlmur
Viljum ráða 2 gætna og kunn uga bilstjóra. Bifreiðastöð Steindórs. Sími 11568. Kaupi allan brotamálm lang- hæsta verði, staðgreiðsla. Nóatún 27. sími 2-58-91.
BÍLAÚTVÖRP Blaupunkt oy Philips viðtæki í allar tegundir bíla, 8 mis- munandi gerðir. Verð frá kr. 4.190.00. — TlÐNI HF„ Ein- holti 2, simi 23220. SLÖKKVITÆKI Höfum ávallt fyrirliggjandi ailar stærðir KIDDE slökkvi- tækja. Eftirlits- og hieðslu- þjónusta. I. Pálmason hf, Vesturgötu 3, sími 22235.
TILBOÐ ÓSKAST TIL SÖLU
í Ford Consul 315, '62 í því ástandi sem hann er eftir aftanákeyrs'iu. Uppl í sima 33271 eftir kl. 19.00. 2'A tonna trifla með dísiFvél. Grásieppunet, dýptarmælir. Uppl. í síma 92-6036 eftir kl. 7 á kvöidin.
17 ARA 2JA—3JA HERB. IBÚÐ
menntaskólastúlka óskar eft- ir atvinnu i sumar. Uppl. i síma 12199. óskast á ieigu, helzt í Vest- urborginni. Þrennt í heimili. Fyrirframgreiðsla. Sími 17857
TÚN 3JA—4RA HERB. IBÚÐ
Gott tún til teigu 15 km frá borginni. Uppl. í símum 15606 og 36160. óskast til leigu í Hafnarfirði eða Kópavogi. Alger regte- semi. Sími 38733.
UNGUR MAÐUfl við nám óskar eftir atvinnu 4—6 tíma á dag. Hef bílpróf. Uppl. í síma 23015 eftir kl. 15 00. HARGREIÐSLUSVEINN Hárgreiðslusveinn óskar eft- ir vinnu hálfan daginn. Uppl. í síma 81317.
TIL SÖLU eða teigu góð fiskbúð í Vest urbænum. Þeir er áhuga hafa sendi simanúmer og nafn tii afgr. Mbl. merkt: „7580" fyr- ir 8. júrtí. FRlMERKI Kóngamerkin óstimpluð, stök og heil sett. Auramerkin og skildingamerkin o. m. fl. ný- komin. Tækifærisverð. Frl- merkjaverzlunin, Óðinsg. 3.
pAfagaukur týndur MÆÐUR — HAFNARFIRÐI
Páfagaukur týndist á laugar- daginn í Vesturbænum. Finn- andi vinsamlega hringi í sima 15286. Fundarlaun. 11 ára stúlka óskar eftir að gæta barrvs hálfan daginn, helzt fyrir hádegi. Uppl. i sima 51253.
ÓSKA EFTIfl TIL SÖLU
2ja—4ra herb. íbúð til ieigu. Uppl í síma 82769 eftir ki. 1. Westinghouse frystiskápur, 300 Kr. Uppl. í stena 20986.
HÚSMÆÐUR Stórkostleg lækkun á stykkja þvotti 30 stk. á 300 kr. Þvott ur sem kemur í dag, tilbúinn á morgun. Þvottahúsið Eimir, Síðumúla 12, sími 31460. HÚSEIGENDUR Þéttum eftirfarandi: stein- steypt þök, asbest þök, þak- rennur, svalir, sprungur 1 veggjum. — Verktakafélagið Aðstoð. sími 40258.
húsrAðendur það er hjá okkur, sem þið getið fengið upplýsingar um væntaniega leigjendur yðar að kostnaðarlausu. Ibúða- leigumiðstöðin, Hverfisgötu 40 b, sími 10099. BlLAÚTVÖRP Eigum fyrirliggjandi Philips og Biaupunt bílaviðtæki, 11 gerðir í allar bifreiðar. önn- umst isetningar. Radióþjón- usta Bjarna, Síðumúia 17, sími 83433.
GALLABUXUR 13. oz nr. 4—6, 220,00 kr. nr. 8—10, 230,00 kr. nr. 12—14, 240,00 kr. Fullorðinsstærðir 350,00 kr. LITLI SKÓGUR Snorrabraut 22, sími 25644. STÚLKA ÓSKAST hálfan eða allan daginn. Ungl ingur kemur ekki til greina. Uppl. í Sælgætisgerðinni Völu, Dugguvogi 17, stmar 20145 og 17694 eftir hádegi í dag.
KAUPUM OG SELJUM TIL LEIGU
eldri gerð húsgagna og hús- muna. Reynið viðskiptin. Hringið í síma 10099, við komum strax, staðgreiðsla. Húsmunaskálinn, Klapparstig 29. 4ra herb. ný og vönduð rbúð á 3. h. i Breiðholtshv. 3 svefnherb., sérþvottah. Leig- ist frá 15. júní. Tilb. send- ist afgr. Mbl. f. kl. 15 föstud. m.: „Goð umgegni 7584".
Geymsluhúsnæði óskost
Óskum að taka á leigu eða kaupa geymsluhúsnæði, um 250—
400 fermetra að stærð.
Nauðsynlegt er að aðkeyrsla sé góð og húsnæðið á 1. hæð.
Nánari upptýsingar í síma 25866.
Voque hf.