Morgunblaðið - 02.06.1971, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐH), MIÐVIKUDAGUR 2. JtÍNÍ 1971
219 nemendur í
Kvennaskólanum
KVENNASKÓLANUM í Reykja
vík var sagl upp 22. maí sl., en
i vetur stunduðu 219 námsmeyj
ar nám við skólann. Þrjátíu og
tvær brautskráðust nú; Iands-
próf þreyttu 48 stúlkur og ungl
ingaprófi lauk 61 stúlka. — Dr.
Guðrún Helgadóttir, skólastjóri,
flutti skólaslitaræðu.
Við skólaslitin bárust Kvenna-
skólanum margar góðar gjafir
frá eldri nemendum,
Hæstu einkunn á burtfarar-
prófi hlaut Margrét Theodórs-
dóttir — 9,23. í þriðja bekk
varð hæst Sigrún G. Arndal með
8,60, i öðrum bekk Dögg Páls-
dóttir með 9,16 og í fyrsta bekk
Ásdís Hildur Runólfsdóttir með
9,15.
Við skólaslitin fór fram verð
launaafhending. Verðlaun úr
Minningarsjóði frú Thoru Mel-
sted hlaut Margrét Theodórsdótt
ir 4. bekk. Verðlaun þessi eru
veitt fyrir ágæta ástundun og
beztan árangur í bóklegu námi
á burtfararprófi.
Verkfall í
brezkum
stáliðnaði
London, 1. júní. NTB.
NÆR 12.000 brezkir stálbræðslu-
verkamelnn mættu ekkl tll vinnu
sinnar í dag og byrjuðu með því
verkfall, sem lamað getur allan
stáliðnað Bretiands. Var gert ráð
fyrir þvi í dag, að mikill hluti
af 200.000 stálbræðsluverkamönn
um Bretlands myndi hafa lagt
niður vinnu, áður en þessi vika
yrði úti.
Verðlaun fyrir bezta frammi-
stöðu í fatasaumi voru veitt úr
Verðlaunasjóði Guðrúnar J.
Briem. Þau verðlaun hlaut Al-
dís Guðmundsdóttir 4. bekk. —
Verðlaun úr Thomsenssjóði fyr
ir beztan árangur í útsaumi
hlaut Ragnheiður Bragadóttir í
2. bekk. Verðlaun fyrir bezta
frammistöðu í íslenzku hlaut
Steinunn Reynisdóttir 4. bekk
og verðlaun fyrir bezta bók-
menntakynningu í 4. bekk hlaut
Svanhvít Bjarnadóttir.
Þá gaf danska sendiráðið verð
laun fyrir bezta frammistöðu í
dönsku á burtfararprófi. Þau
verðlaun hlaut Kristín Á. Björna
dóttir, en skólinn veitti verðlaun
fyrir ágætiseinkunn í dönsku og
þau hlaut Jóhanna Hulda Jóna
dóttir i 1. bekk.
Þýzka sendiráðið veitti einnig
verðlaun fyrir bezta frammi-
stöðu í þýzku og þau hlutu Mar
grét Theodórsdóttir og Steinunn
Reynisdóttir. — Verðlaun fyrir
hæstu einkunn í stærðfræði á
lokaprófi hlaut Hildur Árnadótt
ir. Þá voru veitt verðlaun fyrir
ágætan árangur í sögu á burt-
fararprófi. Þau verðlaun hlutu
Margrét Theodórsdóttir og Guð
rún Óðinsdóttir. Loks voru veitt
verðlaun fyrir ágæta frammi-
stöðu í fatasaumi. Þau verðlaun
hlaut Hildur Árnadóttir.
Að lokum þakkaði forstöðu-
kona skólanefnd, kennurum og
Nemendasambandi Kvennaskól-
ans ágætt samstarf á liðnum
vetri og ávarpaði stúlkurnar,
sem brautskráðuist nokkrum orð
um og óskaði þeim að lokum
gæfu og gengis á komandi árum.
Eileen Ford, ásamt Maríu Guðmundsdóttur og Pálínu Jón-
mundsdóttur. (Ljóstn. Mbl. Kr .Ben.)
Hálslangar og
háar til hnés
— þurfa fyrirsæturnar að vera
ÞEGAR Eileen Ford var á
ferð í Svíþjóð fyrir nokkru
og var svo að segja búin að
„kemfoa" landið í leit að fall-
egum ljósmyndafyrirsætum,
án árangurs, sló íslandi allt
í einu niður í huga henmar.
Þangað hafði hún enin ekki
komið og úr því þrjár af feg-
urstu Ijósmyndafyrirsætum
heimisins, María, Guðrún og
Thelma voru frá íslandi hlutu
að vera fleiri fallegar stúlkur
þar. Hún ákvað því að gera
sér ferð til íslands og hingað
er hún komin og vonast til
að verða ekki fyrir vonbrigð-
um.
Eileen Ford rekur ásamt
manni sínum umfangsmá’kla
fyrirsætuslkrifstofu í New
York og hefur m. a. umfooð
fyriir Maríu Guðtmundsdóttur.
Eileen Ford fór út í u/mfooðs-
starfið af rælni fyrir 24 árum,
þegar hún átti von á fyrsta af
fjórum bömum sínum og
þurfti á peningum að halda.
MaðUT heninar var þá við nám
og sjálf hafði hún verið við
iögfræðinám — en hætti. „Ég
ætlaði aldrei að gera þetta að
ævistarfi," sagði frú Ford í
viðtali við Mbl., „en svo fór
að mér þótti þetta skemmti-
legt og reynsla mín af íhlaupa
viirunu sem fyrirsæta, sauma-
kona o. fl. kom þama að not-
um, svo maðurinn minn og ég
ákváðum að gera úr þessu
„alvöruumboð“.“
Síðan hefur Eileen Ford
„uppgötvað“ fjölmargar af
þeim fyrirsætum, sem lengst
hafa náð, þjálfað þær og síð-
an haft urniboð fyrir þær. Nú
eru yfirleitt um eða yfir 100
Framh. á bls. 23
Landhelgismál-
ið efst á baugi
Rætt við Sverri Hermannsson á Seyðisfirði
MORGUNBLAÐIÐ hafði í
gær tal af Sverri Hermanns-
syni, sem skipar efsta sæti
á lista Sjálfstæðisflokksins í
Austurlandskjördæmi. Sverr-
ir var í gær staddur á Seyð-
isfirði að sinna framboðser-
indum.
— Við inntum Sverri eftir
því, hvernig kosningabaráttan
hefði gengið fyrir sig til
þessa.
— Kosningabaráttan hefur
gengið ágætlega, sagði Sverr-
ir. Það er mikill áhugi hjá
sjálfstæðisfólki hér á Austur-
landi að sýna í verki, að það
kunni að meta þær miklu
framfarir, sem orðið hafa sl.
áratug i hagsmunamálum
kjördæmisins eða eru fram-
undan á næsta leiti, eins og til
að mynda í samgöngumálum
og virkjunarmálum.
— Hafið þið frambjóðendur
ekki leitt saman hesta ykkar
á fundum Sverrir?
— Jú, það hafa verið haldn-
ir tiu framboðsfundir og f jór-
ir eru eftir. Á þessum fund-
um hafa frambjóðendur
stjórnarandstöðunar ekki vilj-
að tala um nokkurn hlut ann-
an en landhelgismálið. Og
þeir reyna jafnvel að telja
fólki trú um, að stærsti stjórn
málaflokkur þjóðarinnar sitji
að svikráðum í því máli. Þeir
Lúðvík og Eysteinn hafa ekk-
ert dregið úr landráðabrigzl-
um í garð okkar sjálfstæðis-
manna. Annars er það áber-
andi á þessum fundum, bætir
Sverrir við, að bæði Alþýðu-
bandalagið og Framsóknar-
flokkurinn telja okkur höfuð-
andstæðing; og það er jú ein-
mitt það, sem við viljum vera
og ætlum að vera.
— Hafa þeir Eysteinn og
Lúðvík verið að kýta innbyrð-
is?
— Það hefur farið minna
fyrir þvi en áður. Þeir búa sig
undir nýja vinstristjórn af
mesta kappi. Og jafnvel fram-
bjóðandi Samtaka frjáls-
lyndra og vinstrimanna fellur
fram á hverjum fundi og skor
ar á vinstraafturhaldið að
mynda nýja vinstristjóm.
— Á hvað leggið þið
áherzlu í ykkar málflutningi?
— Við leggjum áherzlu á
það, að verða dæmdir eftir
verkum okkar; eftir því,
hvernig þessu landi hefur ver-
ið stjórnað í rúman áratug
undir forystu sjálfstæðis-
manna. Okkur nægir að láta
verkin tala í þeim efnum. Við
biðjum kjósendur að vega
þau og meta og óttumst ekki,
að dómur þeirra verði ekki
sanngjam. Við ætlum ekki að
vinna þessar kosningar á svik
ráðum og brigzlum í garð and
stæðinganna. Við bendum
hins vegar á, að þjóðin hef-
ur þegar reynslu af stjórn
þeirra. Við biðjum fólk að
gera þar á samanburð við þá
Sverrir Hermannsson
stjórn, sem nú situr. Þeir
reyna hins vegar að koma sér
undan því að ræða nokkuð
annað en landhelgismálið. Við
bendum þar á móti á, að eng-
in ástæða sé til annars en að
ætla, að allir stjórnmálafor-
ingjar og einnig þeir muni
gera sitt ýtrasta til þess að
vinna þessu lífshagsmunamáli
þjóðarinnar brautargengi. Al-
menningsálitið mun ekki þola
annað, sagði Sverrir.
— Að endingu vil ég senda
sjálfstæðisfólki á Austur-
landi kveðjur mínar og bið
það að fylkja sér þétt saman
til fylgis við okkar góða mál-
stað.
„Eldf j allasýning“
í gróðurhúsi
í BLÓMAVALI, gróðurhúsinu við I f jöll á Islandi og er áformað
Sigitún í Reykjavdk, vair í gær að hún verði opin í sumair. Er
opnuð sýninig um jarðlhirta og eld- | sýningunni einfcum aatflað að
Kosningaréttur
takmarkaður
*
— segir í mótmælum frá SINE
MORGUNBLADINU hefur borizt
bréf frá Samtökum íslenzkra
námsnianna erlendis, )>ar sem
segir, að námsmenn í Fimnlandi
beri sig illa yfir því að geta efcld
neiytt koaningaréttar síns i dval-
arlandi sínu.
1 bréfinu kemur fram, að
Síne hefur sent bæði utanrífcis-
ráðuneytinu og dómsimálaráðu-
neytdnu áskorun þess efnis, að
endurskoðuð verði lög eða regflu-
gerðir um almennar kosningar
með það fyrir augum að auð-
velda Islendingum erlendis að
neyta kosningaréttar síns. Enn-
fremur segir í bréfinu, að bent
hafi verið á þá l'eið að senda lög
mæta sendiráðsstarftemenn til
Fleiri morð
New York, 31. maí AP.
MORÐ og manndráp í New York
voru 1.117 tadsins á s.l. ári sam
kv. skýrslum lögreglunnar þar
og voru 7.1% fleiri en árið á und
an. Kemur New York þannig í
níunda sæti í þessu tilliti af 10
stærstu borgum Bandarikjanna
miðað við hverja 100 þúsund
ífoúa með hiutfalstöluna 14,2. í
Cleveland voru morð og mann-
dráp á hverja 100 þúsund ífoúa
36,1 og í Chicago voru þau 24,1.
borga þar sem einhverjir íslend
ingar dvelja til að opna þar kjör
fund.
Þá segir i bréfi Síne: „Þar sem
kosningarétturinn er eini mögu-
leifci forréttindalauss þjóðfélags-
þegns td'l að hafa áhrif á lands-
Framh. á bls. 23
gefia erlendum íerðamöninum
huigmynd uim jarðhiitamn á ís-
landi og hvemiig hann er nýtbur,
en ætflia miá að ísflieindingair geti
eimnig ýmislegt af henní lært,
einfcum skólafólk.
Á sýningunni er gestum sagit
í myndum og skýringairtexíium
frá Heklu, Surbsey og myndiun
hennar, heiita vaitniinu og hvern-
iig það er notað til upphitunar
húaa og sundílauiga, sýndiur er
hlliuti aí hitaveibubor ag bor-
kjömum, fcorfl sýnir hverasvæði
á landiinu o. s. frv. Sýningtunni
hefiur verið fcomið fyrir í hluba
gróðu rhússing, en þar eru að
öðru lieyti ræflctuð og sefld folóm,
og gesbum gefist kosibur á að sjá
ýmsa suðræma ávexti á trjám og
eimnig em tifl söfliu ísdenzfcar
keramikvörur og ullarvarningur.
Bflómaval stf. stendur tfyrir
sýningumni, en hefiur notið að-
sboðar Hitaveitu Reykjavíltour og
tfleiri aðila. Riehard Vafllbingojer
hefiur séð um uppsetmingu sýn-
ingarinruar.
Eigendur Blómavals, Kolbeinn Finnsson, t v. og Bjami Ftnnsson.
Á mllli þeirra niá sjá myndir, sem skýra gang Surtseyjargossins,