Morgunblaðið - 02.06.1971, Side 12

Morgunblaðið - 02.06.1971, Side 12
r- r. 12 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. JÖNÍ 1971 JL Hvítasunnuhátiðinni Saitvík ’71 tlauk á mánudag eftir þrjá daga „ölvunar, rigningar og roks“. Há tiðina sóttu um 10 þús. manns, flestir á aidrinum 15—20 ára. Var þetta fyrsta tilraun, sem gerð hefur verið, til að leysa hvítasunnuvandamálið svo- nefnda, en það voru drykkju- ferðir ungs fólks um hvítasunnu helgina, sem oft enduðu illa. Var það mat þeirra, sem áttu mestan þátt í undirbúningi og fram- kvæmd hátíðarinnar, að þessi tilraun hafi fvllilega átt rétt á sér, en hins vegar hafi ýmislegt farið verr en vonazt hafi verið til. Hlustað á tónlist . . . SALTVÍK '71 margt fólk og mikil ölvun sjálfstjórn unga fólksins lítil Hátiðin hófst á föstudags- kvöldið og komu þá um fimm þúsund gestir. Veðrið var þá ágætt og útlitið gott. Unga fólk- ið sló upp tjöldum sínum og hóf síðan skemmtunina. Dansleikur var um kvöldið og léku fyrir dansi hljómsveitirnar Trúbrot og Mánar. Fylgdist margt fólk með leik hljómsveitanna en ekki var mikið dansað. Töluverð ölv- un var á föstudagskvöldið, en allt fór þó friðsamlega fram. Á laugardag kólnaði í veðri og rigningarskúr bleytti svæðið nokkuð. Þennan dag fjölgaði gestum enn og var talið að þann dag hafi um átta þúsund gestir verið á hátíðinni. Tónlist- arflutningur hófst klukkan 10 um morguninn og stóð látlaust til klukkan tvö um nóttina Þrjár lítt þekktar hljómsveitir komu fram um hádegi, Arkímed es, Dýpt og Tiktúra, um miðjan daginn léku hljómsveitirnar Æv intýri og Tilvera, en um kvöld ið komu svo fram hljómsveitirn ar Jeremías, Akropolis, Júmbó, Torrek, Mánar og Trin, og einn ig Ingvi Steinn. Áfengisneyzla var mun meiri en fyrri daginn og má segja að að ölvun hafi verið mjög almenn um kvöldið. Allt fór þó friðsamlega fram lengi vel, en um kvöldið tók leikurinn þó heldur að æsast. Kom þá mikið af eldra fólki, frá tvítugu og þaðan af eldra, og var áfengisneyzla þessa fólks og ölvun mun meiri en yngra fólksins. Sköpuðust nokkur vand ræði af þessu eldra fólki, enda kom margt af því einungis til að drekka og koma af stað ólát- um. Eftir að skemmtistöðum í Reykjavík var lokað klukkan hálf tólf um kvöldið var einnig straumur fólks úr borginni i Saltvík í leigubílum. Var því hliðum öllum lokað kl. eitt um nóttina og gafst sú ráðstöfun vel, enda þótt ónæðissamt hafi verið hjá hliðvörðum um nólt- ina. Á sunnudag fjölgaði gestum enn og komst tala seldra miða upp i átta þúsund þann dag. — Telja forráðamenn að um tiu þúsund manns hafi verið í Salt- vík þann dag, þegar mest var. Starfsfólk, hijómlistarmenn og ýmsir boðsgestir voru nokkur hundruð, en talið var að um þúsund manns hafi komizt á há tíðarsvæðið án aðgöngumiða. — Töluverður fjöldi fullorðins fólks kom á hátíðina þennan dag til að skoða og kynna sér hátíðar haldið og ástand unga fóíksins. Ölvun var minni á sunnudag og sunnudagskvöld en hina dag ana og voru vínbirgðir flestra sennilega þrotnar. Þennan dag stóð tónlistarflutningur frá kl. tíu um morguninn til kl. fjögur um nóttina. Um morguninn var helgistund. Þar talaði séra Bern harður Guðmundsson til unga fólksins og ræddi um lífið og gildi trúarinnar. Hljómsveitin Trúbrot lék kafla úr verkinu — „ . . . lifun“ og ræddi séra Bern harður um efni þessara kafla á eftir. Tveir ungir menn léku á trompeta og Kristín Ólafsdóttir las úrdrátt úr textum verksins. Á eftir sungu Kristín og Helgi R. Einarsson sálm og Faðirvorið við ný lög. Um daginn voru síðan hljóm- leikar og þjóðlagahátíð og komu fram Ævintýri, Trúbrot, Náttúra Tíó tríó, Þrjú á palli, Kristín og Helgi, Árni Johnsen, Lítið eitt og Bill og Gerry. Um miðnætti hófst dansleikur og léku þar hljómsveitirnar Tilvera, Roof Tops og Náttúra, og einnig komu liðsmenn nokkurra hljómsveita saman á sviðinu og fluttu stemn ingarverk. Veðrið var breytilegt á sunnu dag. Um morguninn rigndi mik- ið og fram til kl. þrjú, en þá var tilkynnt að von væri á ennþá meiri rigningu og roki, og var hátíðargestum ráðlagt að fara að hugsa til heimferðar. — Brá þá svo við, að upp stytti, sólin brauzt fram úr skýjum og innan stundar var komið hið fegursta veður. Um kvöldið gust aði dálítið. en lygndi fljótlega . . . og hafzt við í tjöldum (Ljósm. Mbl. Kr. Ben.) aftur og hélzt veður sæmilegt það sem eftir var hátíðarinnar. Á mánudag lauk hátíðinni og tóku unglingarnir upp tjöld sín og héldu heim. Dagskráin var stutt þennan dag, hljómsveitirn- ar Haukur og Plantan léku um stund og nokkrir hljómlistar- menn stilltu saman strengi sína. Kalt var í veðri og skúrir af og til. Mikill straumur fólks var af svæðinu og höfðu hópferðabif- reiðar ekið fóiki stanzlaust í bæ inn alla aðfaranótt mánudagsins og allan mánudaginn. Fóru síð- ustu gestirnir heim um kvöld- matarleytið. Hjálparsveit skáta og tveir læknanemar sáu um slysahjálp. Um 500 manns komu í sjúkra- skýlið og fengu einhverja að- stoð, en engin stórslys urðu á mönnum. Rúmlega tuttugu manns voru sendir í bæinn til frekari aðgerða á slysavarðstofu og aðrir tuttugu fóru heim til hvíldar eftir að gert hafði ver- ið að sárum þeirra í Saltvík. Langstærstur hluti þeirra, sem komu í sjúkraskýlið vegna meiðsla, var undir áhrifum á- fengis. Löggæzlu vai' haldið i lág- marki. Engin leit var gerð á fólk inu, sem kom á hátíðina, en hins vegar gengu óeinkennis- klæddir lögreglumenn um svæð ið og tóku áfengi af unglingun um og helltu niður. Þeir ungl- ingar, sem vandræði stöfuðu af, voru teknir til geymslu una stundarsakir í hópferðabifreið lögreglunnar. Nokkuð var um það að ungl ingarnir týndu eígum sínum eða að þeim væri stolið. Brugðust þannig ýmsir unglingar því trausti, sem til þeirra var borið. Nokkur fjöldi bandarískra her manna af Keflavíkurflugvelli sótti hátíðina. Virtist framkoma þeirra með ágætum og ekki stafa af þeim vandræði, en hins vegar var áberandi ölvun franskra sjóliða, sem þarna voru allnokkrir. Margt unga fólksins fylgdist með hljómlistarflutningi, en þó kom greiniiega í ljós, að sú til- gáta, að ofneyzla unglinganna á áfengi stafaði af því, að þeir hefðu ekkert við að vera, hafði ekki við mikil rök að styðjast. Ölvunin var engu minni meðan hljómlistaflutningurinn stóð yf- ir, en þó var hún áberandi mest á kvöldin og fram eftir nóttu. Skiptar skoðanir voru um há tíðarhaldið. Töldu ýmsir ölvun- ina geigvænlega mikla og fram komu unglinganna hneyksli, en aðrir voru tiltöiulega ánægðir með þess tilraun. Þó voru menn yfirleitt sammála um, að meiri gæzla og leit á fólki hefðu getað dregið til muna úr ölvun ungl- inganna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.