Morgunblaðið - 03.07.1971, Síða 14

Morgunblaðið - 03.07.1971, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JCLl 1971 Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvaemdastjóri Haraidur Sveinsson. Rilstjórar Matthías Johannessen. Eyjóifur Konráð Jónsson. Aðstoðarritstjóri Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Bjöm Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstrœti 6, sími 10-100 Auglýsingar Aðaistræti 6, sími 22-4-80. Áskriftargjald 196,00 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 12,00 kr. eintakiö. TRAUST FJÁRMÁLASTJÓRN Deikningur Reykjavíkur- borgar fyrir árið 1970 var lagður fram á fundi borg- arstjórnar sl. fimmtudag. Geir Hallgrímsson, borgar- stjóri, fylgdi umræðum úr hlaði og sagði m.a., að þegar tekið væri tillit til þeirra verulegu launa- og verðlags- hækkana, sem urðu á síðara misseri ársins, væru rekstrar- útgjöld sæmilega í samræmi við fjárhagsáætlun. Á árinu 1970 hækkuðu laun almennt um 25 til 30%, sem jafngilti 13 til 16% viðbót við launaliði borgarsjóðs. Þar til viðbótar komu verðlagshækk- anir, sem metnar hafa verið 3 til 15%. Það kom fram í ræðu borgarstjóra, að þess- um almennu hækkunum var reynt að mæta með auknum sparnaði, án þess að draga úr eða skerða þjónustu við borg- arbúa. Rekstrargjöld fóru þannig aðeins 12% fram úr fjárhagsáætlun ársins. Þrátt fyrir hinar almennu launa- og verðlagshækkanir, hækka rekstrargjöld borgarsjóðs þó aðeins um 18,7% miðað við árið 1969. Fjárveitingar til félagsmála fóru 26,5 millj. kr. fram úr áætlun. Félagsmálin eru enn sem fyrr langstærsti útgjalda- liður borgarinnar eða 39% heildarútgjaldanna. Þessi Innbyrðis átök ær viðræður, sem nú fara fram milli hinna svoköll- uðu vinstriflokka og Fram- sóknarflokksins, hafa varpað skýru ljósi á sundurlausa stefnu þeirra og innbyrðis flokkadrætti. Það eru eink- um sameiningarhugmyndim- ar, sem leyst hafa þessar deil- ur úr læðingi nú. Stærsti st j órnar andstöðuflokkurinn er klofinn í afstöðu sinni til þessa máls. Þannig hafa ung- ir framsóknarmenn lagt mikla áherzlu á sameiningu lýðræðissinnaðra jafnaðar- og samvinnumanna. Hin aftur- haldssama forysta Framsókn- arflokksins hefur á hinn bóg- inn lagzt gegn þessum hug- myndum. Dagblaðið Tíminn hefur skýrt frá því, að við- ræður um sameiningu nú myndu tefja og jafnvel koma í veg fyrir stjórnarmyndun þá, sem nú er verið að undir- búa. Afturhaldsforysta Fram- sóknarflokksins hefur því lagzt gegn sameiningarvið- ræðum í andstöðu við hluta flokksins. Hannibal Valdimarsson, formaður Samtaka frjáls- lyndra og vinstri manna, lagði mesta áherzlu á sameiningar- hækkun á útgjöldum til félagsmála stafar fyrst og fremst af viðameiri félags- málaaðstoð og hækkun á lög- boðnum gjöldum. Tekjur borgarsjóðs hækka nú einkum vegna betri inn- heimtu útsvara og aukinna tekna úr jöfnunarsjóði. Tekj- urnar fóru þannig 66,6 millj. kr. fram úr áætlun. Rekstrar- afgangur borgarsjóðs varð engu að síður 65,9 millj. kr. lægri en áætlað hafði verið. Þessi lækkun hafði þó ekki þær afleiðingar, að dregið væri úr verklegum fram- kvæmdum á vegurn borgar- innar. Af þessum sökum varð borgin óhjákvæmilega að taka aukin lán, þannig að skuldir hafa hækkað nokkuð. Fjárfesting á vegum borgar- sjóðs sjálfs varð 15% meiri en ráðgert hafði verið. Ekki var þó unnt að koma í veg fyrir óhagstæðan greiðslu- jöfnuð og valda því hinar miklu verðlagshækkanir, sem urðu á árinu 1970. Niðurstöður reikningsins sýna, að með traustri fjár- málastjórn hefur Reykjavík- urborg tekizt að yfirstíga þá erfiðleika, sem hinar almennu launa- og verðlagshækkanir höfðu óhjákvæmilega í för með sér. og sundurlyndi hugmyndina eftir kosningar. Nú hefur tvíklofin flokks- stjórn Alþýðuflokksins sent SFV áskorun um sameining- arviðræður. Samtökin hafa hins vegar ekki svarað þess- um tilmælum enn sem komið er. Þessar dræmu undirtekt- ir benda því e.t.v. til þess, að þau öfl hafi náð undirtökun- um í flokknum, sem leggja meira upp úr ráðherradómi en sameiningu lýðræðissinn- aðra jafnaðarmanna í einum stjórnmálaflokki. Kommúnistum í Alþýðu- bandalaginu hefur á undan- förnum árum tekizt að fá til samstarfs ýmsa þröngsýna lýðræðissinna. Hugmynda- fræðileg átök eru því óum- flýjanleg í flokknum; þannig gengu þrír þingmenn úr þingflokki Alþýðubandalags- ins á síðasta kjörtímabili. Hinir nýju samferðarmenn kommúnista úr röðum lýð- ræðissinna eiga eflaust eftir að reka sig á sama vegg og hinir fyrri. Þetta sundurlyndi er eitt megineinkenni þeirra stjórn- málaflokka, sem nú reyna stjórnarmyndun undir for- ystu afturhaldsafla Fram- sóknarflokksins. Haraldur Júlíusson í verzlun sinni Sauðk] 100 ára — í>ú kemur hingað 1912. Hvar vainnstu fyrst? — Ég réðst hingað fyrst til starfa hjá Kristni Briem, sem verzlaði hér í næsta húsi fyrir sunnan, þar sem fatahreinsun- in er nú til húsa. Hjá Kristni vann ég í 7 ár. Við vorum kunn ingjar frá Akuneyri og um leið og hann setti hér upp verziun ákvað ég að flytjast hingað. Kristinn verzlaði með sams kon ar varning og ég kom síðar til með að verzla með. — Þú sagðir, að verzlunin hefði verið í vöruskiptum fyrstu árin? — Já. Hér bjuggu margir ágsetir bændur og ég keypti uil hjá þeim — í simáum stil, en peningaverzlun var þó ekki lak ari hjá mér en öðrum. Fyrstu 5 árin voru fjarska erfið, svo og kreppuárin 1932 tii ‘38. Þá var verzílunin lítil og erfitt að fá vörur. 1 raun fór ekki að rétta úr kútnum, fyrr en stríð- ið skali á. Það voru Ijótir tím- Eyþór Stefánsson UM ÞESSA helgi halda Sauðkrækingar 100 ára afmæli byggðarinnar á Sauðárkróki hátíðlegt. 100 ár eru liðinn frá því er Árni Árnason, vert, settist þar að og opnaði gistiað- stöðu. Sauðkrækingar hafa líka alltaf kunnað að taka á móti gestum. Þórir Bergsson hefur m. a. sagt svo frá fyrstu kynnum sínum af Sauðárkrók, þá er hann var ungur dreng- ur: „Ég hef séð nokkrar stórhorgir síðan, en enga, sem hefur haft slík áhrif á hug minn og Sauðárkrókur þennan fagra vordag 1893. Þarna stóðu húsin í öllum regnbogans lit- um. . . .“ Já og þarna stóðu þau í öllum regnbogans litum og þegar okkur bar að sáum við að verið var að mála. Sauð- krækingar voru að snyrta til bæinn sinn fyrir afmælið — og við tókum nokkra þeirra tali. — Ég er fæddur á Akureyri 1885 og er því 86 ára — segir þessi aldni heiðursmaður —• ég sfcend enn í búðinni, þótt ekki sé ég nema hálfur maður eða minni að því er varðar úthald. Það er munur frá því er áður var. Og hjá Haraldi fæst allt milii himins og jarðar — allt nema metravara, eins og hann sagði sjálfur, en við hana hætti hann, þegar metravaran var gefin frjáls: — Þá hafði ég um tvennt að velja — segir Haraldur, — að hafa mikið úrvat eða hætta við hana og það kaus ég vegna húsnæðisskorts. — Jú, verzlun árið 1919, þeig- ar ég var að byrja sjálfstæðan rekstur, var erfið, enda pen- ingar litlir og verzlunin í smá- um sfcíl . . . og það er hún raun- ar enn, — segir Haraldur af lit- iUæti. — Verzlunin var aðallega í mynd vöruskipta, ég tók við ull og smjöri af bændum. Jú svolitl- ir pehingar voru í umferð, en fátækt var mikil. Þá voru íbú- ar Sauðárkróks um 300 manns. — Hve mikil var veltan á þess um árum? — Ég man það ekki svo að unnt sé að fara með þær tölur á prent, en ég gæti þó fundið það í gömlum frumbókum frá þeim tíma. • ALLT MILLI HIMINS JARÐAR Verzlun Haralds Júlíussonar er við Aðalgötu 22 á Sauðár- króki. Þar verzlar Haraldur og hefur gert í samfleytt 52 ár, en Sauðkrækingur hefur hann ver- ið í 59 ár eða frá þvi er hann fluttist frá Akureyri, þar sem hann er fæddur: Jón Nikodemusson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.