Morgunblaðið - 03.07.1971, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 03.07.1971, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JÚLl 1971 15 ar, en um þá verður þó enn guJls ígildi máltækið „fát-t er svo með ölllu ililrt, að elcki boði nokkuð gott.“ ■— Nei það var aldrei friður og er ekki enn. — Hvemig finnst þér að verz'la i dag? — I>að er bara sæmilegt að verzla í dag. Ég hef líka svona ýmsar aukasporzfliur, hef t.d. haft frá 1931 afgreiðslu fyrir benzín og aMur frá BP. Árið 1931 var nú krónan öðru vísi og einhvers virði. Þessar aukasporzlur gefa kannski ekki mikla peninga en eru þó stuðningur. — Hvemig hefur sambúð- in við Kaupfélag Skagfirðin-ga verið ? —• Margir töldu mig hei-mska mig, þegar ég setti mig niður við hlið kaupfélagsins, en ég verð nú bara að segja, að sambúðin hef-ur verið góð. — Jú dýrtíðin er mikil, en það er betra að lifa nú en áður. Húsnæði fölks er gott í dag og gerðar eru aðrar og meiri kröf- ur til lífsins. Krafan í gamla daga var i raun aðeins að hafa öfEun í sig og á og bágt var oft á vefuma, þegar enga vinnu var að fá. Þetta ástand breyttist þó til batnaðar á árunum 1922 til 1924, enida jókst hér út- gerð um þær m-undir, bátar stækkuðu og urðu hæfari tii róðra á vetrum. Helzt held ég þó að útgerð hafi verið sú mynd v-iðskipta, þar sem ég fékk ekfci allt sem ég átti, enda hef ég fengið góð ski-1 hjá öl’lu-m. mín- um viðskiptavinum, þrátt fyrir bág kjör á stundum. — Þetta hús, sem ég hú verzla í byggði ég 1930. Til þess tírna var verzlunin í gömlu hús- næði, sem einnig stóð hér og var gamalll barnaskóli. Kristján Gíslason átti þessa lóð og keypti ég hana aif honuim o-g tel ég það eitt af mínu mifcla happi í líf- inu, að mér skyldi takast að ná í hana. — Já ég má vera öllum sam- ferðamönnum mín-um þakklátur —, segir Ha-raldur að lokum. Bkki Sizt á ég gen-gi mín-u konu minni að þakka. Þá má ekki gleyma öllum viðskiptavinun- um, þar hef-ur aldrei snurða' komið, á þráðinn. Hver maður á á að geta -lifað vel í dag, hafi hann hei'lsu. Kvörtun bætir alldrei úr og erfiðleikana verð- um við að sætta okíbur við og glíma við, því að án þeirra yrði lífið held-ur innantómt — sagði Haraíldur JúMusson hinn alidni kaupmaður á Sauðár- króki um leið og við kvöddum hann. • BÍLLINN STAÐUR Stefán Magnússon heitir hálf sjötugur bókbindari á Sauðár- króki, sem lögheimili hefur . átt þar í 30 ár. Hann þekkir þó Sauðárkrök mifclu lengur, þar sem foreldrar hans bjuggu þar áður og hann var þar tíður gest ur. Við hittum Stefán í herbergi Kristján C. Magnússon hans við hlið vinnustofunnar og hann horfir á sjónvarp með tveimur úngum piltum, sem komið hafa í heimsókn. Stefán segir: — Já þegar ég fcom hing að fyrst, var bærin-n ákaflega lítiil. Sauðá rann þá í gegnum bæinn, rétt vestan við samkomu húsið Bifröst og efckert hús var þá sunnan árinnar, aðeins tveir torfbæir og t-veir skúrar. Nei, ég man ekki hve íbúar voru margir hér þá. — Faðir minn var verkamað- ur hér og ég var í unglinga- skóla. Ég man að menn biðu þá eftir atvinnu langtímum á vet- urna, en höfðu fcindur og kýr sér til dundurs á meðan at- vinnan var svo stopu-1. Einstaka maður átti berru og hafði akst- ur að atvinnu. Fölk heyjaði þá fyrir skepnurnar fram á Ey- iandi eins og kallað var og þar var oft fjöldi fólfcs að áfliðnu sumri. Menn af minni kynslóð hafa í raun lifað tvo heima — allt er gjörbreytt frá því sem var. Algengt var t.d. að menn byggju með stórar fjölskyldur í liitfhi húsnæði og hér t.d. við Kirkjutorg er lítið grænt hús, þar sem nú búa tvær mann- eskjur. Ég man þá tið, þegar á manntali voru þar 26 manns. Nú er öldin önnur hér og fólk býr ákaflega rúmt hér. -— Á tímabili var töluverð kyrrstaða í allri þróun hér, á árunum 1930 tii ‘40, en éftir stríð ið fer lif að færast í Sa-uðár- krók, einkum þegar stórvirkari tæki fara að koma. ■—■ Jú, Skaig-firðingar hafa al’lt- af kunnað að skemmta sér og sæluvikan, sem fræg er orðin og hét áður sýslufundarvika er orðin allgömul hefð. Góðtempl- arahúsið stendur enn og yfir- leitt ér fólagslíf með sæmitegum blóma. Leifcstarfsemi hefur og alttaf verið mikil. Bókasafn var snemma stofnað eða rétt upp úr aldamótum og var í mjög lélegu húsnæði. 1934 eða ‘5 kom svo hingað séra Hetgi Konráðsson, sem endurvafcti sa-fnið og var þá byggt yfir safnið. Nú er aft-ur nýbúið að reisa nýja bökasafns- byggingu og þar er bókasafnið til húsa ásamt skjalasafni og þar er einnig vísir að listasafni. Einni-g er verið að vinna að því að fcoma á fót minjasafni og fékk ég t.d. í dag senda í það mjög merka gripi. — Manstu en-ga sögutega við- burði í sögu Sauðárkróks? — Ég man, þegar fyrsti billl- inn -kom -hér á land 1924 eða ‘5. Það var Árni Da-nielsson, bóndi á Sjávarborg, sem áltti hann, en hann er einmitt tengdafaðir Kristmundar Bjarnasonar, sem ritað hefur sögu Sauðá-rikróks. Þegar bíllinn var lofcs kominn á land, átti að fara að draga hann, en yiti menn hjólin vild-u alls efcki snúast. Var nú hafin leit að manni, sem lífclegur var tailinn ti'l að leyisa þetta vanda- máí og fannst han-n loks. Þá hafði bíllinn auðvitað verið í Óskar Stefánsson gír og með handhemilinn á. Þetta var vörubíM, palllaus fyrst í stað. Nofckrum dög-um síðar var hann svo fyrst gang- settur og var þá miki’H fjöldi bæjarbúa saman fcominn til þess að horfa á, enda var þetta við- bu-rður — tí-mamót. Lenigi eftir þetta var það viðburður, er bí-li ók hjá. Ég var vinnumaður á Reynistað í mörg ár hjá Jóni bónda og þegar bill fór u-m veg- inn, voru flestir úti i glugga. — Sýslutfuindimir já. Þeir voru venjulega haldnir í marz- lok eða aprílbyrjun og var há- tíðin, sem fýlgdi köiluð sýslu- fundarvika. Venju-legast var það að u-m leið og skikkanlega fólkið fór á fætur, fóru hinir í háttimn. Aðal tilgangur skemmt- unarinnar var þá að skemmta sér og öðrum, en mé-r finnst meir hugsað um fjármunina nú. Heldur finnst mér það mið- ur, en eflaust er það bara tim- anin-a tákn, segir Stefán Magnús- son að lokum. • ÞEGAR ERLINGUR SYNTI ÚR DRANGÉY ÓSkar Stefánsson er beykir staðarins, en þar sem ekkert er að gera í þeirri iðn, hafur hann lag-t fyrir si-g húsamálun. ÓSkar býr syðst I kaupstaðn- u-m, í nýtízkulegu hverfi og þar hitt-um við hann árla morguns. Hann býður okkur upp á snaps og við spjöllum yfir glasi aif góðu og gómsætu víni. Fyrst spyrjuim við hvers vegna hann h-fai hætt beykisiðninni, og Ósk- ar svarar: — Bara af því að svo lítið var við þet-ta að vera. Aðallega var eitthvað að gera á meðan menn söltuðu kjöt o-g svo var síldin — sem er nú horfin með öllu. — Hve margir íbúar voru hér fyrir hartnseir 70 árum, er þú st-eigs-t hér fyrstu sporin? — Það hafa verið 200 til 300 íbúar og engi-n byggð var þá Framhald á bls. 16 i skemmta sér og öðrum“ rækingar teknir tali í tilefni afmælis byggðar Sauðárkróks , Hjónin Unnur Magnúsdóttir og Jón Björnsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.