Morgunblaðið - 06.07.1971, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRfÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1971
SAMVJNNUFÉLÖG OG LÝDRÆÐl
Myndin sýnir skípulag Sambands-
ins í einföldum, glöggum dráttum.
Kjarni þessa skipulags er lýðræðis-
legur kosningaréttur og almenn fé-
lagsréttindi hinna geysimörgu ein-
staklinga um allt land sem mynda
kaupfélögin og eiga þau.
Æðsta vald í málefnum Sambands-
ins hefur árlegur fulltrúafundur,
aðalfundur. Hann sitja fulltrúar frá
öllum kaupfélögum innan Sam-
bandsins, sem eru kjörnir heima
fyrir á aðalfundum hvers félags fyr-
ir sig.
★
Á aðalfundi flytja stjórnarformaður
og forstjóri ýtarlegar skýrslur um
hag og rekstur Sambandsins, auk
þess er prentuð ársskýrsia lögð
fram. Umræður eru frjálsar, og
hverjum manni heimil gagnrýni.
Sambandið starfar fyrir opnum tjöld-
um, og skýrslur þess eru opinberar
almenningi utan kaupfélaganna sem
innan þeirra.
★
Skipulag Sambandsins er eftirmynd
af lýðræðisfyrirkomulagi hinna ein-
stöku kaupfélaga, enda er Sam-
bandið ekki annað en umboðsfyr-
irtæki kaupfélaganna og eign þeirra.
Hinn almenni félagsmaður, sem
myndar kaupfélögin, er sá, sem
endanlegt vald hefur í félögunum
og Sambandinu gegnum fulltrúa
sína á aðalfundum og kjörna starfs-
menn.
★
Færið yður í nyt lýðræðis- og jafn-
réttisskipulag samvinnufélaga og
Sambandsins. Sem félagi í þeim
eigið þér fyllsta kost á að tryggja
yðar eigin hag, því að þér eruð um
leið eigandi þeirra.
AÐALFUNDUR SAMBANDSINS
• ••••• •
immmm
mmmmim
iiiiiimiii
Rumlega 30þús. landsmanna
eiga fulltrúa á aöalfundi.
Kjörnir fulltrúar
frá kaupfélögum
SKIPULAG SAMBANDSINS
HD
Samband íslenzkra samvinnufélaga