Morgunblaðið - 06.07.1971, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 06.07.1971, Blaðsíða 28
flUGIVSinCRR €Í*-«22480 LESIÐ •“““sawaRggBIJfn DOGIEGn ÞBIÐJUDAGUK 6. JÚLÍ 1971 Rif á. Snæfellsnesi; Tveir drengir drukknuðu HELLISSANDI 5. júlí. — 1 gær varð hörmulegt slys á Rifi. Drukknuðu þar tveir drengir 6 og 7 ára gamlir. Klukkan hálfniu f gærkvöldi voru þeir að leika sér á litlum báti úti á tjöm, sem þar er. I>essi tjörn er mjög grunn í annan endann, en nokk- uð djúp í hinn. Hötfðu drengixnir oft verið þar að leik og var alltaf lögð rík áherzla á það við drengina að þeir færu aldrei á þann hluta tjamarinnar sem dýpri var. Litíu síðar var fólki litið til tjamarinnar og var þá báturinn horfinn og dreng- imir sáust hvergi. Var þá brugð- ið skjótt við og fundust þá skór drengjanna á bakkanum. Vissu þá allir hvað gerzt hafði. Var þá tekið að sflæða tjömina cg fannsit þá lík annars drengsins, en hitit likið fann kafari, sem fenginn var frá Óiafsfirði. Aliir era hér miður sín út af þessu hörmutega slysi, en nöfn drengj- anna er ekki hægt að nefna að sinni vegna fjarstaddra ættingja. — Rögnvaidur. Bandarík j amaður hrapaði til bana Akureyri, 5. júlí. BANDAKÍSKUR maður af Kefla- víkurflugvelli hrapaði til bana í djúpu gili í Öxnadal um nónbil- ið í dag. Menn úr flugbjörgunar- sveit Akureyrar voru kallaðir út og náðu líkinu úr gilinu við illar aðstæður, en maðurinn mun hafa beðið bana samstundis. Hópur fólks af Keflavíkurflug- velli var á ferð um Öxnadal í þremur bílum I dag og stað- næmdist hópurinn hjá eyðibýlinu Gloppu. Einn mannanna, sem þarna var á ferð með konu sinni, fór þá um 100—150 metra upp eftir fjallinu norðan við djúpt gil, sem þar er, og ætlaði að taka myndir. Honum hefur skrikað fótur á gilþreminum og hrapaði hann þár niður 30—40 metra, fyrst eftir snarbrattri skriðu, en síðan tók við 15 metra hengiflug niður í gilbotninn. Samferðafólkið gerði viðvart um slysið frá Engimýri og lög- reglustöðin á Akureyri fékk boð- in þaðan um kl. 15.15. Þegar í stað var sendur sjúkrabíll með lækni vestur i Öxnadal og þar að auki var ein deild Flugbjörg- unarsveitar Akureyrar kölluð út. Hún fór með útbúnað til bjarg- sigs og klifurs, því að nokkuð var óljóst hvernig hagaði til á slysstað. Jafnframt fóru Banda- ríkjamennirnir i einum bíl til Akureyrarflugvallar, sem kynnti Keflavíkurflugvelli u Framhald á bls. 18 til- Hans Tholstrup, danski ævintýramaðurinn, kemur til Vestmannaeyja í gær á hraðbáti sínum, Eiriki rauða. Sjá frétt á biaðs. 2. (Ljósm. Mbl.: Sigurgeir). Afstada Alþýðuflokksins til sameiningarmálsins: Viðræður við SFV og Alþýðubandalagið Ný stjórn á mið- vikudag? SFV vill sameiningarrád með þátttöku Fram- sóknarflokks og Alþýðuflokks í GÆR kom upp ný staða í sameiningaráformum hinna svo- nefndu vinstriflokka. Alþýðu- flokkurinn samþykkti að óska eftir vtðræðum um sameiningu jafnaðarmanna við Samtök frjálslyndra og vinstri mannaog Alþýðubandalagið. Samtök frjáls lyndra og vinstri manna sendu hins vegar í gær bréf til Alþýðu- flokksins og Framsóknarflokks- ins þar sem lagt er til, að stofnað verði sérstakt samein- ingarráð þessara þriggja flokka til þess að sameina jafnaðar- og samvinnumenn. Samitök frjálslyndra og vinstri manna teggja þanndg áher/iu á samstöðu með Framsöfcnar- fílokfcnum, en Allþýðutftekkuriínn óskar ekki eftir viðræðum við hann. Alþýðutftokkurinn ósfcar hins vegar eftir viðræðum við Allþýðubanidalagið, en SFV leggja ekki til, að það eigi hlutdeild að að sameiningarráðinu. Bréf það, sem SFV sendi tiil Allþýðuftokksins og Framsókn- arftokksins er svohljóðandi: „1 framhaldi af fyrri tilraunum floifcks okkar til sameiningar iýð ræðissinnaðra jafnaðar- og sam- vinnumanna í einum fliofcki og með tilliti til samþykktar flofcks stjórnar Aliþýðutftokksins frá 30. júní sL þar sem m.a. segir, að úrsiiit kosninganna hafli áréttað mlifcillvægi sameininigarmálsins, viM framkvæmdastjórn Samtaka frjállisiliyndra og vinstri manna leggjia til etftirfarandi: Að rmyndað verðli nú þegar Framh. á bls. 18 \ VIÐR/EÐUR Fram9Ókn.ar- I flokfcsins, Alþýðubandalagsins / og Samtafca frjálslyndra og vinstri manna um stjórnar- myndun standa enn. Hanndbal Valdimarsson, formaður Sam- táfca frjálslyndra og vinstri raanma, tjáði Morgunblaðinu í gær, að frétta af stjórnar- myndunartilraununum væri efcki að vænta í nótt eða á rmorgun, þriðjudag, en ef til vill kæmi eitthvað í ljós á miðvikudag. Fiskblokkamarkadurinn í Bandaríkjunum: Verðið hefur tvöfald- azt á 3 árum — Fyrir hvert enskt pund fást nú 43 til 44 cent — Jafnvel búizt vid enn frekari hækkunum ÞORSKRLOKKIR á Banda- rikjamarkaði hafa hækkað nú nýlega úr 40 til 41 centi hvert enskt pund í 43,5 cent, að því er segir í þættinum „Úr verinu“ eftir Einar Sig- urðsson, varaformann Sölu- miðstöðvar hraðfrystihúsanna í Mbl. sl. sunnudag. Segir þar að verðið hafi verið nokk nð stöðugt frá því síðast á árinu 1970, en hafi nú hækk að um nærri 10%. Er þetta mjög mikilvægt fyrir íslend inga, sem framleiða jafnan mikið af blokk, sem flutt er út til Bandaríkjanna, segir Einar í þætti sínum. Guðjón Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Sjávarafurða- deildar SÍS sagði í viðtali við Mbl. í gær að verðið væri nú 43 til 44 cent og kvaðst hann persónulega halda að þetta verð yrði var anlegt einhvern tíma. Sagði hann að talið væri heldur lík tegt, að verðið gæti enn hæfck- að eitthvað. Heildsöluverð á þorsk- blokk í Boston í Massachu- setts samkvæmt opinberum skýrslurn, fór allt niður í 21,2 cent í ágúst 1968, en um mitt ár 1968 tók verðið að fallla og var verðið stöðugt í þessu lága marki þar til í apríl 1969. Fór það þá að hreyfast upp á við og verður 24,3 cent hvert enskt pund. f árslok 1969 fer verðið aftur að hækka og hefur hækkað á- fram og er nú komið í 43 til Framhald á bls. 27 600 milljón kr. skaðabótakrafa — Bandarískt fisksölufyrirtæki hækkar kröfur á hendur Sambandinu og sakar það um brot á lögum til hindrunar hringamyndunum BANDARlSKA fyrirtækið Mrs. Paid’s Kitchens, Inc., sem verið hefur um árabil seljandi íslenzks fisks á Bandarikjamarkaði skýr- ir frá þvi í bréfi ttl Mbl. að það hafi ekki aðeins stefnt Sambandi islenzkra sam v4 nn uf é Iaga og dótturfyrirtækl þess í Bandaríkj unum, Iceland Products Inc, fyr- ir samningrsrof, heldur og fyrir brot gegn bandarísku lögunum, er banna hringamyndanir. Seg- ir í bréfinu, að fyrirtækið vilji skýra frá þessu, þar eð forráða- mönnum þess hafi borizt til eyrna að „einhver" hafi látið í það skína að sættir hefðu tekizt í málinu. £ bréfinu segir að sættir muni ekfci tafcast og málinu munlefcfci verða tofcið fyrr en dómstólar hafi kveðið uipp sinn dóm og jafntfiramt er láttð sifcina í bjart- sýnl í hréftok. Nefha bréfritar- ar þær greinar úr hringamynd- unarlögiunium, sem þeir telja að íslienzfcu fyrirtækin hatfli brotið. Þá skýra þeír frá þvl að Mrs. Paui’s Kitohens Inc. hatfi hækk- að sfcaðabótakröfu sína úr 165.5 milíijónium króna I rúmtega 605 mliílilijónir króna. Til nánari skýr- inga á brotunuim er þess og getið að Sambandið hatfi útitofcað Mrs, Paui’s Kitchens Inc. og ffleiri fyr irtæki utan samtaka framieiö- enda frá íslenzka freðtfiskmark- aðinum. Þvi hæklki fyrirtækið skaðabótakröfiU sina á hendiur Sambandinu og dótturfyrirtælki þess um rúmlega 440 milljónir króna. Guðjón Ólafsson, framfcvæmda stj'óri Sjávarafurðadei'ldar SlS sagði í viðtali við MbL í gær að titefnd bréflsins væri það að bréí- rituranum hefði borizt til eyma að Sambandið hefði liátið í veðri vaka að málið væri leyst. Guð- jón sagðd að sér væri ekki fcunn- ugt um að nofcfcur forráðamanna Sambandsins hefði iátið það í veðri vaka. Tvtisivar hefði verið Framhald á bls. 27

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.