Morgunblaðið - 11.07.1971, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.07.1971, Blaðsíða 2
MQRGUNBLA.ÐLÐ, SUNNUDAGUR 11. JÚLt 1971 Útflutningur EFTA til Bandarikjanna: Útflutningur Islands jókst um nærri 50% Washiftgton, 9. júlí — AP ÚTFLUTNINGUR EFTA-ríkj- anna jókst á fyrsta ársfjórðungi þessa árs miðað við sama tíma í fyrra, og nam tæpum 940 millj ónum dollara. Er það 3,8% aukn ing. Innflutningur EFTA-ríkj- anna frá Bandaríkjunum nam á sama tíma 1.302 milljónum doll ara, og er það um 10% meiri innflutningur en á fyrsta árs- fjórðungi árið 1970. tJtflutningur frá Íslandi til Bandarikjanna nam á fyrsta árs fjórðungi þessa árs 10,6 milljón um dollara, og er það 47,2% aukning frá í fyrra. Kemur þetta fram í skýrslu, sem birt var í Washington í dag. Meðal þeirra ríkja, sem juku verulega innflutning sinn frá Bandaríkjunum, eru Ísland, Finn land, Portúgal og Bretland, en hins vegar dró t úr innflutningi Austurríkis, Noregs, Svíþjóðar og Sviss frá Bandaríkjunum. Stærstan þátt i viðskiptunum við Bandaríkin eiga Breitar, sem seldu þangað vörur fyrir 545,2 milljónir dollara fyrsta ársfjórð ung þessa árs. Er það engin hlut .fallsbreyting frá sama tíma í fyrra. Aukningin er hins vegar langmest frá íslandi, eða 47,2% eina og fyrr segir, en næst koma Finnland og Noregur méð 19,7% aukningu. Innflutningur Dan mórkur til Bandaríkjanna minnk aði á tímabilinu um 8,8%. Sláttur viða hafinn — og heyskaparhorfur yfirleitt gódar SLÁTTUR er nú óðum að hefj- aat og lítur víðast alivel út með grasvöxt. Þurrkamir f júní drógu sem kunnugt er mikið úr sprettu, en í rigmngunum að undanförnu hefur gróðri farið mikið fram og liggur við að bændur sjái dagamun á túnum sínum. Er Mbl. hafði samband við fréttaritara sína úti á lands- byggðinni var yfirleitt gott í þeim hijóðið og sögðust þeir bjartsýnir á að heyfengur gæti orðið í meðallagi og væru þá síð ustu tvö sumur ekki tekin með í reikninginn. VESTURLAND HjaHi bóndi á Kiðafel'li í Kjós sagði fyrsta bónda þar í sveit hafa byrjað að slá 21. júní, en almennt væri sláttur að hefjast þessa dagana. Spretta hefði mik ið aukizt síðustu dagana eftir að fór að rigna og litu tún miun betur út nú en fyrir einni viku. Páll Pálsson á Borg í Mikia- holtshreppi sagði að siáttur væri hafinn á nokkrum bæjum í sveit inni og iiti frekar vel út með sprettu. Ekkert nýtt kal er sjá- anlegt í túnum og ef heyskapair- Ifið verði góð ætti enginn að þurfa að kvarta, sagði Páll. NORÐURLAND í Húnavatnssýslunni hefur sprottið vel að umdanförnu og sagði Bjöm Bergmamn á Blöndu- ósi að nokkrir bændúr væru byrjaðir slátt, en aknenn hæfflst hamn I næstu viku. Björn Jónsson í Bæ á Höfða- strönd sagði að grasspretta væri á mjög góðri leið í Skagafirði og sláttur víða að byrja, en vegna rignimganna undanfarna daga hefðu margir þó dregið að slá. „Það liggur við að dagamun ur sjáist á sprettumni," sagði Björn. „Gamli kalblettir eru þó iartgt £rá þvi að vera sláandi enn, en þeir eru famir að grænka og útlit fyrir að þeir geti orðið eitthvað tii nota.“ Víkingur Guðmundsson á Kíflsá í Eyjafirðli sagði að nokkuð vel væri sprottið i Eyjafirði o.g væru fflestir byrjaðir að slá, hefðiu hyrjað siðustu vikuna í júní. Væri allt útlit fyrir að þetta ætti Sýning í Félagsheimili stúdenta Sýning í Félagsheimili stúdenta.. í NÆSTU viku verða til sýnis í anddyri Félagsheimilis stúdenta við Þjóðminjasafnið teikningar þær, sem um var dæmt í sam- keppni arkitekta um gerð hjóna- garða við Háskóla íalands. Sýn- ingin er opin öllum almenningi frá morgni til kvölds og er að- gangur ókeypis. Þess ber að geta, að í Félags- heimili stúdenta er opin mat- og kaffisala. að geta orðið meðaliheyskapar- ár. Kristján Þórhallssion í Vogum í Mývatnssveit sagði að þar i sveit hefði sláttur byrjað á tveim uir bæjum fyrir um hálfum mán- uði og væri að mestu búið að slá heimatúnin. En almennt væru bændur ekki farnir að slá. Eftir að hlýnaði aftur eftir kuldana fiyrir nokkru hefur sprettutíð verið hagstæð og ef svona held- ur áfram ætti sprettan að geta orðið í meðaliiagi sagði Kiristján. Benedikt Sigurðsson á Grims- stöðum á FjöHium sagði að á FjöHium hefðii verið kaiit undan- farlð og ekkert væri fiarið að slá. Væri liklegt að það drægist eitthvað, enda væru menn önn- um kafnir við rúning. — „Túnin verða varla slegin fyrr en seint í mánuðinum, en kannski verður byrjað eitthvað fýrr á útengj um,“ saigði Benedikt. „1 meðalári byrj um við slátt um 20. júilL" Sagði Benedikt að nýtt kal sæist í tún- um, en það væri ekki tilfinnan- legt. AUSTURLAND Ragnar Guðjónsson í Vopna- firði sagði, að síðasta hálfa mán- uðinn hefði spretta aftur verið góð, eftir kulda og þurrka, sem stöðvað hefðu grasvöxt um nokk- urt skeið. Sláttur væri almennt ekki byrjaður, en þó hefðu tveir eða þrír bændur aðeins byrjað nú í vikunni. 1 Breiðdal er sláttur ekki haf- inn, en Páll Guðmundsson í Breiðdalsvík sagði bændur gera ráð fyrir að byrja seinni hluta mánaðarins. Yfirleitt hefði seint verið borið á og síðan komið langvarandi þurrkar svo áburð- urinn hefði nýtzt illa. Myndu bændur því bíða með slátt þar til fullsprottið væri, því ekki væri útlit fyrir að hægt yrði að slá tvisvar. Egiil Jónsson á Seijavöllium í Hornafirði sagði, að bændur í Öræfum og vestast í Suðursveit væru aðeins byrjaðir að slá og mætti gera ráð fyrir að slátt- ur byrjaði almennt strax og þornaði. Útlit er fyrir að uppskeran af sandatúnum verði með eðlilegum hætti, þrátt fyr ir mikla þurrka í júní, sem ollu því að við lá að gras skræln- aði. „Er útlit fyrir að gras- spretta verði ágæt“, sagði Eigifll, „og því rná bæta við að kartöfl'U- garðar eru óvenjufallegir í ár.“ SUDURLAND Vilhjálmur Eyjólfsson á Hnaus um í Meðallandi sagði að þar í sveit væri sláttur hafinn nokk uð víða og væri spretta aHgóð. Framh. á bis. 31 Kortið sýnir leiðina, sem nú er búið að merkja og lagfæra fyr ir jeppa frá Möðrudal um Kreppubrú og upp Krepputungu í Hvannalindir og síðan þvert á hana að Brú i Jökuldal. Sælu- hús ferðaféiaganna verður við Kverkfjallarana. Nýtt öræfasvæði opnast - ferðamönnum norðan Vatnajökuls Slóöir merktar og sæluhús reist KOMINN er sá tími, þegar ferðamenn streyma á hálend- ið. Nú hefur þeim opnazt nýtt stórkostlegt öræfasvæði norð- an Vatnajökuls. Með hrúnni, sem sett var á Kreppu í fyrra, laukst upp leið í Hvannalind- ir. Nú hefur Sigurjón Rist, vatnamælingamaður, lagað KeflavíkurflugvöUur: Vöntun þotueldsneytis Varnarlióið varð að hlaupa undir bagga með olíufélögunum VIÐ borð lá að Keflavíkurfliig- völliir lokaðist nú í vikunni vegna skorts á flugvélaeldsneyti og urðu olíufélögin að fá að iáni af birgðum varnarliðsins til þess að bjarga því að völlurinn lok- aðist ekid. Ástæðan fyrir þessu var seinkim olíuskips frá Rott- erdam og gífurleg umferð á flug- vellinum. Vilhjálmur Jónsson, forstjóri hjá Olíufélaginu hf., tjáði Mbl. í gær, að fyrir hálfum mánuði hefðu borizt boð um seinkum oliíu skipsins. Gerðu Esso og Skelj- ungur þá birgðakönnun og kom í ljós, að birgðir þeirrá voru nægar, Jafnframt var kánnað hvort birgðir Olíuverzlunar fs- lands hf. væru nógar, en BP sel- ur Loftleiðum eldsneýti. Var áætl að að birgðir BP væru nægar. f sl. viku þraut birgðir BP. Var þá sýnilegt að birgðir Esso og Skeljungs myndu ekki nægja fyrir öll félögin þrjú. Var þá gripið til þess ráðs að fá að láni eldsneyti frá varnarliðinu, en af því var nóg til. Er það Esso sem selur varnarliðinu alla jafna elds- neyti. Ekki var þó unnt að setja herþotueldsneytið á venjulega tanka undir flugvellinum, heldur var því ekið að flugvéiunum í bílum. Kvað Vilhjálmur Jónsson um klukkustundartöf hafa orð- ið á Keflavikurflugvelli hjá einni flugvél eitt sinn er 4 flugvélar Loftleiða voru samtímis á vellin- um. Samkvæmt upplýsingum frá Loftleiðum hefur umferð um KeflavíkurflugvöH verið gíf ur- lega mikil. 18 stórar flugvélar voru afgreiddar á föstudag og annar eins fjöldi á fimmtudag. með jarðýtu slóð fyrir jeppa um Krepputungur og í Hvannalindir og sett með henni stikur. Og í sumar munu ferðafélögin á Egils- stöðum, Vopnafirði og Húsa- vík setja niður við Kverk- fjallaranann sæluhús, sem er nú í smíðum í byggð. Til að stytta leiðina til Austurlands, hefur Sigurjón einnig rutt og stikað slóð þvert af leiðinni neðan við Kreppuhrúna og austur að Brú á Jökuldal, sem styttir leiðina um 50 km, miðað við að ekið sé aftur til baka nið- ur að Möðrudal og á þjóðveg- inn austur. Er slík slóða- lagning til mikils hagræðis fyrir ferðafólk á jeppum, auk þess sem ein afmörkuð og vel merkt slóð kemur í veg fyr- ir að flandra sér út um allt og riðlast í hrekkum á jepp- unum og óþarfa hjólför skor- in í jarðveginn. Mbl. fékk nánari skýringar á þessari leiö hjá Sigurjóni Rist, Vatnamælingar^ Orkustofnunar eru nú með miklar vatnamæi- — Saknað Framh. af bls. 1 þessúm slóðum og norðar í land- inu er vitað um að þúsundir hafa orðið heimilialausir vegna flóða í ánmii Magdalenu, sem er stærsta fljót landsims. Hjálparleiðangrar eru n.ú á leið til flóðasvæð a-nna. ingar í Hrafnkelsdal og við Snæ fell annars vegiar og við Kreppu og Jökulsá hins vegar og þvi var þessi slóð merkt og lögð, til að stytta leiðina mi'lli þess- ara svæða um 50 km, miðað við , að þurfa að krækja niður á þjóð veg. En Vatnamælingamenn eru á ferðinni á öflum tímum árs. , Eru þarna komnar fyrir þá ágæt ar jeppaleiðir á sumrin og snjó bilaleið á vetrum. Jafnframt lijóta ferðamenn góðs af merkingum. STYTTIR UM 50 KM Frá Möðrudal liggur slóð aust an Jökulsár á Fjöllum suður að Kreppubrúnni, gem gerð var í fyrra. í sumar var svo slóðin lögð frá henni upp Kreppu- tungu. Þurfti aðallega að laga í þrengslunum milli Kreppu og Jökulsár á móta við Upptypp- inga. En þaðan eru greiðir sand ar í Hvannalindir og Kverk- fjallaranann og ekki þörf á að stika svo langt. Á þeim slóðum munu ferða- félagsmenn frá Egilsstöðum, Húsavík og Vopnafirði reisa sæluhús sitt, sem er í smíðum á stöðunum. Munu menn vænt anlega safnast saman og reisa skálann um mánaðamót júií— ágÚ3t eða í ágúst. Þvert frá slóðinni frá Möðru dal að Kréppubrú, sem er rösk ir 40 km, var svo ýtt og merkt leið sunnan við Minnisfjallgarð og Þríhyrning að Brú á Jökul- dal, en þá tekur við þjóðvegur og falleg akstursleið um Jökul dal, sem aðalvegui'inft austur liggur ekki um lengur. Áður var hægt að komast þeitta og eru þarna ýmsar jeppaslóðir, ekki greiðfærar en stuttar og merkt ar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.