Morgunblaðið - 11.07.1971, Page 32

Morgunblaðið - 11.07.1971, Page 32
%Rðv$uttbUibi!b nuciýsincnR ^^»22480 SUNNUDAGUR 11. JULÍ 1971 IJ: r sli tafundir um helgina EINS og Morgunblaðið skýrði Irá í gær, bendir nú allt til þess, að samkomulag hafi tekizt milli þríflokkanna um myndun vinstri stjórnar, þótt að sjálf- sögðu verði ekkert um það full yrt, fyrr en það hefur verið stað fest af þeirra hállfu. í gær kl. 14,00 hófst fundur í viðræðu- nefnd flokkanna en síðari hluta dags í gær áttu að hefjast fund iir hjá flokkunum sjálfum og má gera ráð fyrir að þetta verði úr slitafundir. Þar sem Morgun- blaðið fer svo snemma í prentun á iaugardögum er ekki unnt að skýra frá gangi mála. Fari svo, að samkomulag tak izt má gera ráð fyrir, að stjórn arskipti fari fram einhverja næstu daga, en skv. upplýsing- um, sem Morgunblaðið fékk í gær, má telja víst, að stjórnar- skiptin verði ekki á morgun, mánudag, jafnvel þótt endanlegt samkomiudag takist um heligina. Bændaskóli reistur í Odda — undirbúningur hafinn ad stofnun skólans ÁKVEÐIÐ hefur verið að bænda- skóli verði stofnaður í Odda á Rangárvöllum og hefur verið skipuð byggingarnefnd til að vinna að undirbúningi og stofn- un bændaskólans í samráði við landbúnaðarráðuneytið. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið og bisk up íslands hafa samþykkt að skólinn verði reistur í Odda og þar verði látin í té nauðsynleg jarðarumráð. I fréttatilkynningu sem Mbl. barst í gær frá landbúnaðarráðu- neytinu segir að í lögum nr. 55 írá 1963 sé kveðið á um að hér á iandi skuli vera þrír bænda- sikölar oig einn þeirra skuli vera á Suðurlandi, þegar byggingu skólahúss og öðrum nauðsynleg- um undirbúningi sé lokið. Með vísan tii þessara laga hafi land- búnaðarráðuneytið ákveðið að hefjast handa um stofhun bænda skóla á Suðurfandi, þar sem bezt hentaði um staðarval, með l»orsteinn Jónsson. tidiiti tíl samgangna, kostnaðar og byggingu skólahúss, rekstr- ar og fyrirkomulags skóla og bús. Fimm manna nefnd hafi ver ið skipuð til að gera tiOlögur um staðsetningu fyrirhuigaðs bænda- skóla og haifi bent á þrjá staði sem til greina kæmu, þar á með- al Odda á Rangárvöilum. Landbúnaðaráðuneytið tedur að bændaskóia Suðurfands verði bezt valinn staður í Odda og skipaði 8. júlí sl. byggingamefnd tid að vinna að undirbúningi að stoifnun bændaskólans í sam- ráði við ráðuneytið. I byggimga- nefndinni eiga sæti: Hörður Bjarnason húsameistari ríkis- ins, sem er formaður nefndar- innar, Hermann Sigurjónsson bóndi í Raftholti, Magnús B. Jónsson, ráðunautur á Selfossi og Agnar Guðnason ráðunautur. Mosaikmynd Nínu í afgreiðslusal Landsbankans AFHJCiPUÐ var í gær við athöfn í Landsbanka íslands veggmynd úr mósaík eftir Nínu Tryggvadóttur. Var þetta siðasta listaverk Nínu Jieitinnar og sýnir þann at burð, er Egill Skallagríms- son sat í öndvegi gegnt Að- alsteini konungi og konungur dró á sverðsoddinn fingur- guli og rétti yfir eldinn til Egils. Listaverkið var afhjúp að að viðstöddum ættingjum Nínu heitinnar og ýmsum gestum. Síðar í gær var og boð inni fyrir starfsfólk bank ans, en hann er 85 ára um þessar mundir — sjá bls. 10. Listaverkið er af þeim at- burði, er Aðalsteinn vildi blíðka skap Egils, sem þá nýlega hafði misst bróður sinn Þórólf í orrustu. í þess um kafla Egilissögu er grein argóð lýsing á Agli og að þessu tilefni skal kaflinn hér rifjaðup upp: „Siðan fór Egill með sveit sína á fund Aðalsteins kon- ungs og gekk þegar fyrir kon ung, er hann sat við drykkju. Þar var glaumur mikill. Og er konungur sá, að Egiflfl. var inn kominn, þá mælti hann, að rýma skyldi pallinn þann hinn óæðra fyrir þeim, og mælti, að Egili skyldi sitja þar í öndvegi gegnt konungi. Egill settist þar niður og skaut skildinum fyrir fætur sér. Hann hafði hjálrn á höfði og lagði sverðið um kné sér og dró annað skeið til hálfs, en þá skellti hann aftur í slíðrin. Hann sat upp réttur og var gneyptur mjög. Egill var mikilleitur, enni- breiður, brúnamikill, nefið ekki langt, en ákaflega dig urt, granstæðið vítt og Jangt, hakan breið furðulega og svo allt um kjálkana, hálsdigur og herðimikill, svo að það bar frá því, sem aðrir menn voru, harðleitur og grimm- Framh. á bls. 22 Græða má upp auðnir Sprengisands og Holtamanna- afréttar í 800 metra hæð Samkvæmt landgræðslutilraunum í NÝÚTKOMNU hefti af rit- inu íslenzkar landbúnaðar- rannsóknir skýra þeir Sturla Friðriksson og Jóhann Páls- son frá landgræðslutilraun á Sprengisandi. En tilraunin sýnir, að með áburðargjöf einni saman má græða upp auðnir Sprengisands og Holtamannaafréttar upp í allt að 800 m hæð. Þannig má hefta sandfok og aurhurð og jafna vatnsrennsli á vatna- svæði Þjórsár. Þennan gróður má nýta til beitar fyrir bú- pening, en hann gerir auk þess auðnina lífvænlegri fyrir dýralíf svæðisins, m.a. heiða- Handrit Þóris Bergssonar gefin Sauðárkróki ásamt höfundarrétti Söfn og bær fengu fjölda merkra gjafa SAUÐÁRKRÓKI hafa borizt merkar gjafir vegna 100 ára af- raælis kaupstaðarins. Heíur safnahúsinu nýja og þeim söfn- um, sem þar verða verið færðar stórgjafir. Merkust þeirra er liklega dánargjöf Þorsteins Jónssonar, sem bar rithöfimdar- nafnið Þórir Bergsson, en hann hafði ánafnað héraðsskjalasafn- |»u handrit sín og höt’undarétt að þeim öllum. Voru þau afhent á al'mælishátíðinni. Er það mjög merkileg og verðmæt gjöf. Jafnframt var hinu væntanlega listasafni afhent gjöf frá erf- ingjtim Þorsteins og eru það tvö stór olíumálverk eftir Magnús Jónsson dósent annað frá Mæli- felli þar sem þeir bræður voru uppaldir og hitt frá Ási í Hegra- nesi. Auk þess vatnslitamynd frá Mælifelli eftir Magnús og olíu- málverk af Þorsteini, málað af Ásgeiri Bjarnþórssyni. Jafn- framt fylgdi skrautritað heiðurs- skjal frá því er Fél. ísl. ritliöf- unda kaus Þorstein heiðursfé- laga. Þá bárust skjalasaifninu tvær gjafir. Fjögur sitór bindi af öll- uim handritaskráim Landsbóka- safnsins, gefin af frú Siigríði Sig- trygigsdóttur, ekkju Péturs Hann essonar. Og frú Jóhamna Þor- steinsdóttir fserði safniniu að gjöf Framh. á bls. 22 gæsarinnar, segir í lok grein- arinnar. Tilraun þessi til upp- græðslu gróðurlausra mela var gerð á nokkrum stöðum á Sprengisandi og við Sprengisandsleið á Holta- mannaafrétti. Sáð var tún- vingli af dönskum 0tofte- stofni, hvítsmára og Alaska- lúpínu á svæðum, er lágu í 300 m, 615 m, 755 m og 800 m hæð. Á reitina var borinn áburður, sem svarar til 350 kg af kjarna, 350 kg af þrífosfati og 100 kg af kalí á hektara. Sáðgrösin uxu óverulega, en eftir átta ára áburðargjöf hafði innlendur gróður þétzt svo mjög, að Báran á leið til Eyja BÁRAN náðist af strandstað við Ingólfshöfða árla í gærmorg un og um hádegisbil var hún ein skipa á leið til Vestmannaeyja. Eiinhver lelki var í skipirru, en dælur höfðu vel undan. Til ör yggis fór Lóðsinn i Eyjum tll móts við Báruna. Björgun h.f. vann að björgun skipsins. hann huldi 70—80% af yfir- borði reitanna upp í 800 m hæð. Athugun bendir til þess, að unnt sé að auka verulega inn- lendan gróður á Holtamannaaf- rétti og Sprengisandi með áburð- argjöf einni saman. Árlegt áfok í reitina mældist í Illugaveri 0,44 plús eða mínus 0,22 mm og í Tóm asarhaga 1,65 plús eða mínus 0,22 mm. Þannig má binda yfirborð auðnanna og minnka aurburð frá Framh. á bls. 31 Leirverksmiðja í Dalasýslu Á ÁRINU 1957 var á Alþingi samþykkt ályktun um að skora á ríkisstjórr.ina að láta fullrann saka, hvort hagkvæmt mundi vera að reka leirverksmiðju i Dalasýslu og jafnframt gera at hugun á því, hver leirlög væru í landinu, sem bezt hentuðu til leiriðnaðar í stórum stíl. Iðnaðarráðuneytið fól Rann- sóknastofnun iðnaðarins og Orkustofnun að framkvæma greint verkefni og ákvað sam- kvæmt ósk Rannsókmaráðs rík isins að láta könnunina einnig ná til leirlaga í Þingeyjarsýslu. Gert er ráð fyrir, að rann- sókn þessari verði lokið á þessu ári.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.