Morgunblaðið - 21.07.1971, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 21.07.1971, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MDÐVIKUDAGUR 21. JÚLl 1971 Útgafandi hf. Árvakur, Raykjavík. Framkveamdastjóri Haraldur Svainsson. Rilstjórar Matthías Johannassen. Eyjólfur KonréS Jónsson. AðatoSarritstjóri Styrmir Gunnarsson. Ritatjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttaatjóri Björn Jóhannsson. Auglýaingastjóri Arni Garðar Kristinsson. Ritstjóm og afgreiðsla Aðalstraati 6, sími 10-100 Auglýsingar Aðalstreeti 6, simi 22-4-80. Áskriftargjald 195,00 kr. i mánuði innanlands. I lausasölu 12.00 kr. aintakiS. HÆKKUN Á BÓTUM ALMANNATRYGGINGA k síðastliðnu vori samþykkti Alþingi breytingar á lög- um um almannatryggingar, sem fólu í sér umtalsverðar hækkanir á ýmsum bóta- greiðslum trygginganna. Sam kvæmt ákvæðum laganna áttu þau að koma til fram- kvæmda 1. janúar 1972. Ríkis- stjóm Ólafs Jóhannessonar hefur nú gefið út bráða- birgðalög, þar sem gildistaka þessara laga er ákveðin 1. ágúst nk. Það er fagnaðarefni, að nú þegar skuli koma til fram- kvæmda þær verulegu hækk- anir á bótagreiðslum, sem samþykktar voru á síðasta Alþingi. Þannig koma nú til framkvæmda hækkanir á elli- og örorkulífeyri, barna- lífeyri, mæðralaunum, ekkju- bótum og ekkjulífeyri. Þá taka einnig gildi ákvæði laganna um lágmarkslífeyri elli- og örorkulífeyrisþega. Bráðabirgðalögin gera einnig ráð fyrir því nýmæli, að fæð- ingarstyrkur skuli aldrei vera lægri en svo, að hann nægi fyrir sjö daga dvöl á fæðinga- deild. Þó að hækkanir þær, sem nú koma til framkvæmda séu ekki fullnægjandi í alla staði, er ljóst, að hér er um veru- legt átak að ræða. í forystu- grein sl. vor nefndi dagblað- ið Tíminn þetta frumvarp „loddaraIeik“ og dagblaðið Þjóðviljinn lýsti frumvarp- inu þannig: „Hver eftir ann- an bentu þingmennirnir á, að hér væri ríkisstjórnin að veifa kosningaplaggi fyrst og fremst, þar sem hún ætlaðist til að önnur ríkisstjórn að kosningum loknum sæi um að afla þess fjár sem þyrfti til að framkvæma lögin. Auk þess sem lífeyrisupphæðir samkvæmt frumvarpinu væru smánarlega lágar, og hækkanirnar yrðu að enn minna gagni á næsta ári ekki sízt, ef hrollvekja Ólafs Björnssonar, enn ein stór kollsteypa í efnahagslífi þjóð- arinnar, hefði þá farið fram.“ Það var haft á orði, þegar frumvarpið var borið fram, að það væri í raun kosninga- víxill, þar sem næsta ríkis- stjórn yrði að afla fjár til út- gjaldanna. Nú hefur ríkis- stjórnin hins vegar ákveðið, að lögin skuli koma til fram- kvæmda og kostnaðaraukann eigi að greiða úr ríkissjóði, án nokkurra sérstakra ráðstaf- ana um fjáröflun. Þetta sýn- ir, að staða ríkissjóðs er mjög góð um þessar mundir. Þessi hækkun mun kosta um það bil 160 til 170 milljónir króna, samkvæmt því, sem trygg- ingamálaráðherra hefur upp- lýst. Til viðbótar þessu hefur ríkisstjórnin ákveðið að halda áfram niðurgreiðslum úr rík- issjóði til þess að unnt verði að framlengja verðstöðvun- ina. Þessar niðurgreiðslur munu kosta ríkissjóð um 160 milljónir króna miðað við óbreytt ástand að öðru leyti, en ríkisstjórnin hefur ekki boðað neinar ráðstafanir til tekjuöflunar í þessu skyni. Það verður því ekki vart við „hrollvekju“ í efnahags- og fjármálum ríkisins nú. Þvert á móti er afkoma ríkis- sjóðs svo góð, að hann get- ur tekið á sig stóraukin út- gjöld. Þær framkvæmdir, sem nú eru boðaðar, eru því góður dómur um trausta fjár- málastjóm fráfarandi ríkis- stjórnar. Stoðum kippt undan verðjöfnunarsjóði IT'ráfarandi ríkisstjórn beitti *• sér fyrir því á sínum tíma, að verðjöfnunarsjóði sjávarútvegsins var komið á fót. Þessi sjóður hefur það hlutverk að tryggja rekstrar- grundvöll útvegsins, þegar sveiflur á verðlagi og afla- brögðum valda erfiðleikum. Það hefur löngum verið ljóst, að aflabrögð eru háð veru- legum sveiflum og verðlag á sjávarafurðum á erlendum mörkuðum er mjög breyti- legt. Tíðar sveiflur af þessu tagi hafa oft og tíðum vald- ið útgerðinni verulegum áföllum. Verðjöfnunarsjóður- inn hefur það hlutverk að koma í veg fyrir, að slíkar breytingar hafi áhrif á at- vinnu- og afkomuöryggi þeirra fjölmörgu, er við sjáv- arútveg vinna. Sjávarútvegsráðherra hef- ur nú í undirbúningi ráðstaf- anir, sem látið er í veðri vaka, að séu til þess að bæta kjör sjómanna. Þessar fyrir- huguðu ráðstafanir munu vera í því fólgnar, að taka fé úr verðjöfnunarsjóði til þess að standa undir hækkun fiskverðs. Með þessu er raun- verulegum stoðum kippt und- an sjóðnum, og kjarabætur Eru bókmenntaverð- laun Norðurlandaráðs raunhæf ? Bókmenntaverðlaunum Norðurlandaráðs var í ár út- hlutað í tíunda sinn og- hlaut þau danski rithöfundurinn Xhorkild Hansen eins og kunnugt er. Til verð- launanna var stofnað 1961 og fyrsta úthliitun fór fram ár- ið eftir, en þá hlaut þau !'* Eyvind Johnson. Siðan komu Vainö Linna 1963, Tarjei Vesaas 1964, William Heines- en og Olof Lagercrantz 1965, Gunnar Ekelöf 1966, Johan Borgen 1967, Per Olof Sund- man 1968, Per Olof Enquist 1969 ogr Klaus Rifbjerg 1970. Allan þennan tíma hef- ur vinningsupphæð verið óbreytt þ.e. um 600.000 ísl. kr., en dómnefnd hefur mælt með hækkun upp í tæpar 900. 600 ísl. kr. En nú að undanförnu hef- ur deila risið á Norðurlönd- um um hvort þessum peninga verðlaumim Norðurlanda- ráðs sé vel varið og hvort núverandi fyrirkomulag sé raunhæft. Hér á eftir fer út- dráttur úr Huvudstadsbladet úr grein eftir Nils-Börje Stormbom ritstjóra og síðan svargrein eftir J.O. Tallvist ritstjóra. Báðir þessir menn hafa átt sæti í úthlutunar- nefndinni fyrir hönd Finn- lands. Stormbom segir að hann dragi mjög í efa að verðlaun- in geri sitt gagn. „Tilgangur- urinn með verðlaunaveiting- unni er auðvitað ágætur: að vekja athygli hins aimenna lesenda á bókmenntum hinna Norðurlandanna og þar með örva áhugann. En er nú í rauninni unnt að greina verulegt samband milli hinn- ar tiltölulega lágu peninga- upphæðar og áhrifa verð- launanna? Engin kerfisbund in athugun hefur farið fram á þessu, en allnáin kynni mín segja mér að áhrif verð- launanna á útbreiðslu bók- mennta séu óveruleg." Stormbom telur að ahnenn- ur áhugi á veitingunni sé hverfandi, ritgerðir og við töl í fjölmiðlum varðandi verðlaunahafana séu mun færri en fyrstu árin. „Þetta þýðir að verðlaunin hafa ekki tilætluð áhritf,“ Síðan íhugar Stormbom þá röksemd, að hvað sem áhuga almennings líði, þá hafi verð- launin hvetjandi og styrkj- andi áhrif á rithöfund- anda sjálfa. „Þetta er auðvi.t- að mikilvægt sjónarmið. En staðreyndin er sú, að þeir höfundar sem hlotið hafa verðlaunin hafa langflest- ir verið vei þekktir og vel stæðir fyrir, og hljóta ríflega styrki og skáldalaun í heima- löndum sínum þetta er ósköp eðlilegt miðað við eðli og baksýn verðlaunaveit- ingarinnar. „Stormbom álítur að flestir höfundanna haufi l'ítið við peninga að gera. „í Finnlandi eru bók- mennta- og menningarsam- tök sem kennd eru við Eino Leino og veita þau árlega bókmenntaverðlaun, en ekki er þar um peninga að ræða. Heiðursmerki, heiðurskjal eða þ.u.l. er viðurkenningin sem rithöfundurinn hlýtur. „Þetta segir greinarhöfundur hafa aukið veg og virðingu verðlaunanna, bæði meðal al- mennings og bökmennta- manna. Síðan spyr hann hvort ekki megi hafa sama hátt á um bókmennta- verðlaun Norðurlandaráðs, — að breyta viðurkenn- ingunni í heiðurskjal t.d., í stað peningaávísunar. „1 staðinn yrði peningun- um (og upphæðina mætti gjarnan auka) varið í að styrkja norrænar bókmenntir á áhrifameiri hátt. — En hvernig? Um marga mögu leika er að ræða í þessu efni og flest er enn ógert i bókmenntalegum samiskipt- um Norðurlandaþjóðanna. Hér á eftir fara nokkrir kostir, en vafalaust eru til fleiri: — Styrkir til ferðalaga og fyrirlestra; — stuðningur við samnorr- æna þýðingarmiðstöð; J.O. Tallqvist — stuðningur við tímarit sem fjalla um norræn bók- mennta- og menninganmál — skipulagður rekstur á samnorrænu tímariti — styrkur við samnorrænt útgáfufyrirtæki sem ekki yrði rekið út frá gróðasjón- armiði; — styrkur til bókmennta- rannsókna og gagnrýni, svo og almennrar kynningarstarf semi á norrænum bókmennt- um. Ekki væri úr vegi að Norðurlandaráð tæki þetta mál ti'l umræðu á næsta fundi þess,“ segir Nils-Rörje Stormbom að lokum. 1 svargrein J.O. Tallqvist segir að peningaverðlaunun- um sé vel varið. Við röksemd inni um að þau hljóti aðeins velstæðir og þekiktir rithöf- undar, gefur hann eftirfar- andi mótrök'. „En hvenær eru rithöfundar orðnir þekktir og fullmetnir utan heimalands sins, utan eigin málsvæðis? Að minnsta kosti gefa verðlaunin einum norr- ænum rithöfundi á ári tæki- færi til þeirrar frægðar sem eftirsóknarverð þykir í þessu samibandi. Nánari at- hugun gæfi ótvirætt til Nils-Börje Stormbom in í núverandi formi hefur mikla þýðingu fyrir hlut- skipti verðlaunabókarinnar og höfund hennar. Bókafor- tögin fá hvatningu um að þýða og gefa verkið út, og gagnrýnendur taka fjör- kipp.“ Taiiqvist vekur athygli á því, að á fundi Norðurlanda- ráðs í Osló í janúar 1970 „var ákveðið að segja opin- berlega frá því fyrir- fram, hver séu verkin tíu sem útnefningu hafa hlotið, i því augnamiði að auðvelda og hvetja umræður og vekja áhuga.“ Hann bendir einnig á mikilvægi þess, að rithöfund- ar og stjórnmálamenn leiði saman hestá sina við úthlut- unina og geta þar deilt hverjir við aðra; þar beri hæst skammasúpu Klaus Rifbjergis í Reykjavík 1970. Þá segir Tallqvist: Bókmenntaverðlaun Norður landaráðs hafa með árunum orðið hefð. Það er ekki raun- hæft að afnema þau sem pen- ingaverðlaun, ef maður á annað borð á að taka slíkar tiltögur alvarlega. Það er ekki unnt að líkja þeim við t.d. Eino Leino verðlaunin; heiðursmerkjaverðlaun sem peningar koma hvergi ná- lægi. Hins vegar má líkja þeim við bókmenntaverð- laun Sænsku akademíunn- ar fyrir sænskar bókmenntir, en þar ber hæst Rellmans- verðlaunin upp á 50.000 s.kr.“ (ca. 850.000 ísl.). Að lokum segir Tallqvist: Bóbmenntaverðlaun Norður landaráðs hafa hlutverki að gegna. En að sjálfsögðu þarf að endurbæta og endur- skoða þær aðferðir sem not- aðar eru við val bóbmennta- verkanna. Mér dettur í hug hvort ekki væri hægt með vissu miJlibili, að tak- marka val ársins við ákveð- in bókmenntaform, sem nú eru útundan; taka eitt árið ljóð til meðferðar (aðeins ein Ijóðabók hef- ur hlotið verðlaun, eftir Gunnar Ekelöf), annað árið leikrit (ekkert hefur enn ver- ið verðlaunað), það þriðja barnabækur o.s.frv. Þess verður að gæta við mótun aðferða við verðlaunaveit- inguna, að vekja sérstaka at- hygli á finnskum og íslenzk- um bókmenntuna, sem vegna þess að þær verður að þýða, — eiga erfitt uppdráttar í samkeppninni um verðlaun- kynna, að verðlaunaveitmg- in.“ sjómanna verða framkvæmd- ar með því, að taka fjármagn úr sjóði, sem tryggja á af- komuöryggi þeirra sjálfra. Þannig er sjómönnum sjálf- um ætlað að standa undir þeim kjarabótum, sem þeim nú eru ætlaðar. Hér er um næsta furðulegar ráðstafanir að ræða og eflaust einsdæmi, að kjarabætur séu tryggðar með þessum hætti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.