Morgunblaðið - 12.08.1971, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 12.08.1971, Blaðsíða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1971 —---- ------—;---i-------—i— ......:— Kristján Jóhannesson Minningarorð Fæddur 8. apríl 1920. Dáinn 31. júlí 1971. Þegar ég heyrði um andlát Kristjans Jóhaxmessonar, fyrr- um vaktarfélaga mins og jafn- aldra í starfi, kom mér i hug að stutt væri stórra högga í miilli. Á rúmu ári hafa sjö starfs félagar fallið i valinn, flestir á góðum aldri eða báðum megin við fimmtugt, og er það stórt skarð í ekki stærri hóp. Kristján Jóhannesson var fæddur á Akranesi 8. apríl 1920, en fluttist þaðan á fyrsta ári með foreldrum sínum til Borgar ness, þar sem faðir hans setti upp verzlun, sem hann rak til dauðadags. Foreldrar Kristjáns voru Jóhannes Jósepsson og Jónína Jónsdóttir. Var Kristján elztur þriggja systkina. Aðeins fjög- urra ára missti Kristján föður sinn á sviplegan hátt. Þann 30. október 1924 var Jóhannes far- þegi á mótorbát frá Borgarnesi á heimleið frá Reykjavík. Bát- urinn stey'tti á skeri í Borgar- firði og fórst. Drukknaði Jóhannes þar ásamt nokkrum mönnum öðrum, en sumum báts- verja tókst að ná upp á skerið og varð siðan bjargað. Jónina stóð þá uppi með þrjú ung börn, og eins og á stóð, mun hún hafa te'kið því fegins hendi, er hjón- in á Hamri við Borgarnes, þau Elínborg Sigurðardóttir og Kristófer Jónsson, buðust til að taka Kristján í fóstur og ganga honum í foreidrastað. Hjá þeim sæmdarhjónum var Kristján til fullorðinsára og leit á þau og mat sem eigin föður og möður. Þótt Kristján ætti því láni að fagna, að njóta ástríikis fóstur- foreldranna, fer ekki hjá því, að það hefiur verið mikil raun ung- um sveini að missa föður sinn fjögurra ára og síðan móður sína aðeins ndu ára gamall. Ef til vill hefur þessi æskuraun hans mót- að það viðhorf, sem var svo ríkt með honum að bera ekki til- fin.ningar sinar á torg. Leiðir okkar Kristjáns lágu fyrst saman árið 1912, er við hóf um störf í lögregluliði Reykja- vikur. Varaði sú samfylgd i 26 ár, eða þar til Kristján varð að láta af störfum vegna heilsubrests. Vorum við allan þennan tíma vaktarfélagar. Við fyrsitu kynni vakti Kristján athygli mína sem óvenju hár maður, beinvaxinn, sviphreinn og drengilegur í framgöngu. Öll kynn.i mín af honum síðar voru í samræmi við þetta. Hann var orðvar, og minn ist ég þess ekki, að hafa heyrt hann leggja hnjóðsyrði til nokk urs manns, traustur starfsfélagi og vinsæli. Oft er lögreglan kvödd á sam- komustaði eða i heimahús, þar sem skapofsi eða æsing hefur svo að segja firrt fólk allri skynsemi. Undir slikum kringum stæðum var Kristjáni, með sinni prúðu og hægu framkomu, eink ar sýnt um að lægja öldiurnar og róa fólk, svo að það áttaði sig á aðstæðum, og eyða misklíð- arefninu, sem venjulega stafar af míisskilningi. Yrði ekki hjá því komizt að beita handafli, var það gert með sömu stilling- unni og án allrar óþarfrar harð- ýðgi. — Þótt þessa sé hér að- eins getið sem dæmis, var slík framkama einkenni Kristjáns i starfi og umgengni. Kristján hafði fagra tenór- rödd og starfaði árum saman i lögreglukórnum. Minnast kórfé- lagarnir hans með þakklæti fyr- ir ánægjulegar samverustundir. Æskubyggð sinni unni Krist- ján mjög, og þangað leitaði hann, er fristundir gáfust. Þá mun hann hafa unað sér bezt, er hann sat góðan hest á ferð um æskustöðvarnar, en hann hafði yndi af hestaimennsku og reyndi jafnan að eiga einn eða fleiri hesta, sem hann sýndi sérstaka nærgætni og umhyggju. Þann 2. nóvember 1946 gekk Kristján að eiga eftirlifandi konu sina, Sesselju Jónsdóttur, og eignuðust þau þrjár dætur: Elínborgu. gifta Ágústi Ög- mundssyni skrifstofumanni, Guðrúnu, gifta Hilmari Sigurðs- syni viðskiptafræðingi, og Jónínu, sem enn er í heimahús- um. FjöLskyldu sinni unni Kristján og helgaði henni krafta sina meðan heilsa entist. Byggði hann hús við Tómasarhaga með starfsfélögum sínum, og þar bjuggu þau hjónin vistlegt heim ili. Ég votta fjölskyldunni inni- legustu samúð mina og bið Guð að styrkja hana. Eins og fyrr segir, fór að bera á þverrand'i heilsu Kristjáns fyr ir nokkrum árum. Þó að hann starfaði eftir það um árabil í lögreglunni, var okkur, sem bezt þekktum, Ijóst að hann var oft þjáðari en hann lét uppi. Fyrir nokkru lagðist Kristján inn á Borgarspítalann og gekkst þar undir upþskurð til að freista þess að bæta heilsuna. Virtist svo, sem uppskurðurinn ætlaði að heppnast, og vonir.um betri líðan kviknuðu. Þær vonir brugðust óvænt, og á stuttri stundu var hérvist hans lokið. Slikir atburðir virðast jafnan koma okkur á óvart, og við reynumst óviðbúin siíkum tíðind um, en við vonum og trúum, að hér sé aðeins uim bústaðaskipti að ræða. Þótt við söknum vin- ar, sem gott er að minnast, biðj- um við, að vegferð hans á hinni nýju braut framtíðarinnar verði björt. Jónas Jónasson. Ágústa Guðjónsdóttir Fáein kveðjuorð „Dyggð og tryggð þitt dæml kenni. Dána! Þú varst islenzk kona.“ FRÚ Ágústa Guðjónsdóttir, Rétt- arholtsvegi 45, andaðist 6. þ.m. á Heilsuverndarstöðinni hér í borg eftir erfiða sjúkdómslegu. Hún var fædd 6. ágúst 1902 og and- aðist því á 69. afmælisdegi sín- um. Jarðarför hennar fer fram frá Dómkirkjunni í dag. Hún var dóttir hjónanna Guðjóns Bjarnasonar og Guðbjargar Brynjólfsdóttur, sem lengi bjuggu á Geirseyri við Patreks- fjörð, en þau voru bæði Árnes- ingar að ætt. Árið 1926 giftist Ágústa eftir- lifandi manni sínum, Guðmundi Guðmundssyni prentara. Eign- uðust þau þrjú börn, Guðbjörgu, Láru og Kristin, en þau eru nú öll uppkomin og gift. Einnig ólu þau upp dótturson sinn, Hilmar. Ágústu tókst, þrátt fyrir það að hún gekk sjaldnast heil til skógar að búa börnum sínum og manni fagurt og friðsælt heimili, þar sem gestrisni var i hávegum höfð og nutu þess frændfólk og vinir þeirra hjóna. Ágústa var afar félagslynd kona eins og systkini hennar og frændfólk allt. Starfaði hún mik- ið fyrir Barðstrendingafélagið í Reykjavik og einnig fyrir félag- ið Berklavörn þar sem hún var lengi virkur félagi, enda hafði hún af eigin raun fengið að kynnast þvi hvað berklaveiki var hér á árum áður. Aldrei heyrð- ust þó æðruorð af hennar munni hvorki þá né nú síðast er hún lá banaleguna oft sárþjáð. Um dyggð hennar og tryggð efast enginn sem til hennar þekkti. Því mun minningin um Ágústu lengi lifa í þakklátum hugum þeirra, sem þekktu hana og mátu að verðleikum. Nú á kveðjustundu sendir kona mín Gústu innilega kveðju með þakklæti fyrir áratuga órofa tryggð og vináttu og biðj- um við henni Guðs blessunar. Guðmundi prentara Guðmunds syni, börnum þeirra, tengdabörn- um og barnabörnum vottum við samúð okkar og biðjum að minn- ingin um eiginkonu og móður, sem aldrei brást, mégi ylja þeim um ókomin ár. Ge. Innilegar þakkir til barna minna allra og vina, nær og fjær, er heiðruðu mig á 80 ára afmæli mínu 3. ágúst sl. Guð blessi ykkur öll. Jón Þorvarðarson, frá Laugarvatni. Útför sonar, föður og bróður, BJÖRNS Þ. M. MARKÚSSONAR, Baugsnesi 1, Skerjafirði, sem andaðist 3. ágúst síðastliðinn, fer fram frá Fossvogs- kirkju föstudaginn 13. ágúst klukkan 1.30 eftir hádegi. Jóhanna Jónsdóttir og Markús Jónsson, Kristín Bjömsdóttir og Snorri Gestsson, Viðar Björnsson og Sigurjón Bjömsson, Guðmundur Björnsson, Sigurd Markússon, Margrét M. Jones, Ambjörg Markúsdóttir. Skrifstofur vorar verða lokaðor eftir hódegi í dag vegna jarðarfarar Kjartans Thors, forstjóra. Vinnuveitendasamband íslands. Húsasmiðir - Húsgognasmiðir Okkur vantar nokkra smiði nú þegar. HURÐAIÐJAN SF., Kópavogi, sími 41425. íbúð 1 kaupmannahöfn íslendingur, sem undanfarin ár hefur verið búsettur í Kaup- mannahöfn, vill, vegna heimflutnings til Islands, selja einbýlis- hús (kædehus),.sem hann á þar. Húsið er vel staðsett, byggt árið 1966, að stærð 105 fermetrar, með öllum nýtizku þægindum, vandað og vel meðfarið. Þeir, sem kynnu að hafa áhuga á kaupum, sendi tilboð, merkt: „Kaupmannahöfn — 5720" til afgr. blaðsins fyrir 20. ágúst. Skrifstofustúlkn óskast Stórt fyrirtæki í miðborginni óskar að ráða skrifstofustúlku nú þegar. — Vélritunar- kunnátta nauðsynleg — góð málakunnátta æskileg. Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf sendist afgr. Mbl. fyrir 15. þ. m. merkt: „Framtíð — 4186“. Fittings Vorum að fá mikið úrval af sænskum og þýzkum fittings. J. Þorláksson & Norðmann hf. Skólastjóri Skólastjóra og kennara (aöalkennslugrein danska) vantar við Gagnfræðaskóla ísafjarðar. Upplýsingar gefur formaður fræðsluráðs í síma 94-3164 og 94-3417. Fræðsluráð ísafjarðar. F. sumarbústaði W.C. sett í sumarbústaði nýkomin, verð aðeins 933,00 krónur. A J. Þorláksson & Norðmann hf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.