Morgunblaðið - 12.08.1971, Blaðsíða 28
RUCLVSinCDR
£^-»22480
FIMMTUDAGUR 12. AGUST 1971
Mjög
góður afli
— norðanlands
Mun meiri en
í fyrra
AFLI Siglufjarðarbáta í júliímán-
uði varð 1461 lest eða 538
lestum meirí en í júlímánuði
á si. ári. t>ar af var handfæra-
afli rúm 300 tonn frá árajmótum.
Til júlíloka var afli Siglufjarðar-
báta 4955 lestir eða 1256 lestum
meiri en á sama tíma á fyrra
ári. Afli í Norðurlandsfjórðungi
í júlímánuði var 7068 lestir á
móti 6394 lestum á sl. ári og
£rá áramótum til júlíloka 32025
lestir á móti 30908 lestum á sama
táma á fyrra ári. Bv Hafliði land-
aði hér í gær um 170 lestum.
— Stefán.
Laxveiði
aftur
í Varmá
EINS og sagt var frá í Morg-
unblaðinu fundust um 30 dauð
ir laxar og silungar í Varmá
í síðustu viku. Fuilvist er tal-
ið að vatnið í ánni hafi verið
of heitt og einnig var mjög
lítið í ánni, sem eðlilegt er á
þessum tima.
Ekki hefur borið á neinum
íiskadauða í ánni eftir þetta
og hafa veiðzt tveir 7 punda
iaxar síðan og 20 sjóbirtingar
2—7 pund á þyngd.
Nefnd
vegna Fram-
kvæmda-
stofnunarinnar
SKIPUÐ hefur verið þriggja
manna nefnd til þess að semja
frumvarp um fyrirhugaða Fram
kvæmdastofnun ríkisins, sem
kveðið er á um í málefnasamn-
ingi stjórnarflokkanna.
í viðtali við forsætisráðherra,
Ólaf Jóhannesson kom fram, að
eftirtaldir menn hafa verið skip-
aðir í nefndina: Helgi Bergs, sem
er formaður hennar, Ragnar Arn
alds og Bergur Sigurbjörnsson.
i ÞESSI mynd var tekin af Eld-
í ey í gærdag. Ofan á þessari
/ þverhníptu eyju situr súla við
i súlu, en talið er að um 20.000
i pör séu í eyjunni og um jiess-
| ar mundir er súluunginn að
/ verða fleygur eða fuUgerður
I eins og sagt var áður fyrr.
I Á myndinni sést yfir hluta af
á kolli eyjunnar, en einnig má i
i sjá mergð af súlu á syllum ,
; í bjarginu. Eldey var sean
J kunnugt er klifin af sjö Vest-
i mannaeyingum fyrir skömmu, i
\ en þá voru liðin 30 ár frá þvi
í að menn höfðu komið í þessa
l stærstu súlubyggð í heimi,
Jenda er mjög erfitt að klífa
j eyna, I.jósmynd Mbl., árni
j johnsen.
9%
FYRSTU sex mánuði yfirstand-
andi árs fluttu Loftleiðir 125.081
arðbæran farþega, og er það
18,8% aukning miðað við sama
tima i fyrra. Sætanýting jókst úr
69,1% í 71,1%.
Kópavogur:
Brauðin skipt-
ast við veginn
Valgarð Ólafsson. Safnaðarfull-
trúi í Digranessðkn er Axel Jóns-
son og í Kársnessókn er safnað-
arfulltrúi Jósafat Líndal.
Brauðin hafa þegar verið aug-
lýsit laus til umsóknar en séra
Gunnar Ámason þjónar þeim til
1. septemiber. Kópavogssökn var
stofn-uð 1952 og var þá hluti
af Bústaðaprestakalli, en varð
sjálfstætt prestakall 1964, en
kirkjan var vigð 1962. Séra
Gunnar Árnason hefur þjónað
Kópavogsprestakalli frá upphafi
og á árunuom 1952—1963 þjónaði
hann bæði Kópavogi og Bústaða-
prestakaili.
Kirkjuvörður er Guðmundur
Guðjónsson.
Grænmeti lækkar
vegna góðærisins
Útlit fyrir mikla uppskeru
á útiræktuðu grænmeti
ÞAÐ grænmeti sem ræktað
er utan dyra hefur fengið
mjög góða tíð i sumar og allt
útlit er fyrir mjög góða upp-
skeru á gulrófum, gulrótum,
hvítkáli og blómkáli, sam-
kvæmt upplýsingum Þorvalds
Þorsteinssonar framkvæmda-
stjóra Sölufélags garðyrkju-
manna.
Þorvaldur sagði að verðið
heíði lækkað taisvert siðustu
daga og þó taldi hann iág-
marksverð ekki komið enniþá
á það grænmeti, sem ræktað
er utandyra. Sama verð er
hins vegar á tómötum og
gúrkum, sem ræktaðar eru
innan dyra.
Ástæðan fyrir verðlækkun
grænmetisins er sú að upp-
skera er óvenju mikil, enda
tíðarfar eins og bezt verður á
kosið fyrir grænmetisræktun
úti. Framboð er þvi mikið af
grænmeti og um leið lækkar
verðið.
Á árunuin 1960 til 1967 varð
vart við 30 bleiklaxa á ýmsum
stöðum á landinu. Síðustu þrjú
árin hefur hans ekki orðið vart
hér við land svo vitað sé. Er þetta
því fyrsti laxinn eftir þriggja
ára hlé.
Siðustu 25 árin hafa Rússar
reynt að koma á bleiiklaxagöng-
um á Kolaskaga við Hvítahaf.
Hafa þeir flutt milljónir bleik-
laxeilhrogna frá Kyrrabafsströnd-
inni, þar sem heimkynni bleik-
laxins eru, klakið þeim út og al-
ið seiðin a. m. k. upp í 5 sm
áður en þekn var sleppt.
Urðu menn varir við miklar
bleiklaxagöngur í Norður-Rúss-
landi árið 1960 og talsvert árið
1961. Laxinn sem hér um ræðir
er greinilega þannig til orðinn,
þvi sjá má í hreistrinu að hann
heíur verið í fersku vatni lengur
en honum er eðlilegt.
Æviíerill bleiiklaxins er tvö ár,
þ.e. það liða tvö ár frá því að
hrognunum er gotið þar til iax
arnir, sem úr þeim koma, hrygna.
1 FYRRADAG var Kópavogi
skipt í tvö sjálfstæð prestaköll
og er Kársnesprestakall svæðið
utan Hafnarfjarðarvegar með
tæpa 5000 ibúa og Digranes-
prestakaU austan Hafnarfjarðar-
vegar með rúmlega 6000 íbúa.
Ætiað er að kirkjan verði sam-
eiginleg, enda er hún á miðsvæði.
Búið er að kjósa í safnaðar-
nefndir. 1 sáfnaðamefnd Digra-
nespresítakalls eru: Rannveig
Sigurðardóttir, Elínborg Stefáns-
dóttir, Þórður Magnússon, Guð-
mundur Guðjónsson og Salómon
Einarsson. 1 Kársnesprestakalli
eru: Jósafat Lindal, Hi'ldur Þor-
bjarnardóttir, Margrét Ólafs-
dóttir, Þorvarður Ámason og
KÁ reisir eitt stærsta
verkstæðishús á landinu
fyrir smiðjur Kaupfélagsins
KAUPFÉLAG Árnesinga er að
hefja byggingu á feikn stóru
verkstæðishúsi á Selfossi fyrir
hinar ýmsu verkstæðisdeildir,
sem fyrirtækið rekur. Nýbygg-
ingin verður 3200 ferm. að flat-
armáli og verður reist aust-
an við smiðjurnar samfast við
trésmiðjuna. Hér er um að raeða
einhverja stærstu verkstæðis-
byggingu á Islandi.
Samkvæmt upplýsingum Odds
Sigurbergssonar, kaupfélags-
stjóra, í viðtali við Morgunblaðið
í gær, verða flest verkstæði KÁ
flutt í verkstæðishúsið þegar
þar að kemur, járnsmíðaverk-
stæðið, rafmagnsverkstæðið, bila
viðgerðaverkstæðið, yfirbygging
ar og fleira. Framkvæmdir hefj-
ast innan tíðar.
Um 70 manns vinna á þessum
verkstæðum KÁ í dag, en í ný-
byggingunni verður aðstaða fyr-
ir um 100 manns a.m.k.
Oddur sagði að sumt af gamla
húsnæðinu væri ónýtt og
verður það rifið þegar lokið er
við verkstæðishúsið, en ekki er
búið að ráðstafa öðru húsnæði
fyllilega. Áætlað kostnaðarverð
á nýbyggingunni er 36 millj. kr.
Fyrsti bleik-
laxinn 1 3 ár
— veiddist á Hvítárvöllum
VEIÐIMÁLASTOFNUNINNI
hefur borizt bleildax (hnúðlax)
frá Davíð Ólafssyni, Hvítárvöll-
um í Borgarfirði. Fékkst fiskur-
Inn í net í Hvitá þann 6. ágúst
s.I. Laxinn var hrygna, 47 sm að
lengd og vó 1,6 kiló.
Þegar seiðin hafa lokið við kvið
pokann ganga þau rakleitt til
Framhald á bls. 17