Morgunblaðið - 27.08.1971, Blaðsíða 12
12
MÓRbtTNÓLAÐÍÐ, fÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 1971U
Mikil umsvif fyrirtækis Jóns
F. Einarssonar á Bolungarvík
BOLUNGARVÍK 14. ágúst 1971.
Árið 1965 stofnaði Jón F. Ein-
arsson, byggingameistari i Bol-
ungarvik, trésmíðaverkstæði og
hótf þá þegar ýmsar bygginga-
framkvæ-mdir. — Síðan hefur
fyrirtæki hans farið sivaxandi og
aukið umsvif sín ár frá ári, og
er nú stærsta fyrirtæki í s nni
grein á Vestf.jörðum.
í júlimánuði sl. minntist Jón
F. Einarsson 15 ára afmælis fyr-
irtækisins með því að bjóða
starfsmönnum sinum og ýmsum
vinum til fagnaðar á heimili
sínu, en um leið hélt hann upp
á fertugs afmæii sitt.
Þ/ 13. þ. m. opnaði Jón F. Ein-
arsson nýja byggingavöruverzl-
un í nýbyggðum húsakynnum
við Aðalstræti 13—15 i Bolung-
arvík. Er verzlunin á götuhæð í
nýrri viðbyggingu við eldra hús-
næði fyrirtækisins. Er þessi ný-
bygging liðlega 250 fermetrar að
grunnfleti, 3 hæðir og kjal'iari.
Sem fyrr segir er verzlunin á
götuhæðinni en i kjallara eru
vörugeymslur. Auk þess eru
tvær hæðir yfir verzlunarhús-
næðinu, þar sem verða munu
skrifstofur og íbúðir.
Hin nýja byggingavöruverzl-
un er hin smekklegasta og vand-
aðasta að allri innréttimigu og
verða þar á boðstólum ýmiss
konar verkfæri og áhöld, heim-
ilisttæki og mikið úrval af alls
konar byggingavörum. Má þar
tiil nefna gólídúka, góltf- og vegg-
flísar, gólfteppi, veggfóður, málm
ingu o. m. fl. — Meðal nýjunga
hér á Vestfjörðum má telja, að
verzlunin mun hatfa á boðstólum
hina svokö'liuðu Tónaliti, en það
er málniiing, sem hægt er að velja
um i 2800 litasamsetningum og
er blönduð fyrir viðskiptavini i
sérstakri biöndunarvél. Auk þess
selur verzlunin pípur til vatns-
og skolplagna ásamt til’heyrandi
fittings, ennfremur þakjám og
þakpappa, rúðugter, þilplötur og
margt fleira, sem of langt mál
yrði upp að telja.
Hin nýja byggingavöruverzl-
un Jóns F. Einarssonar er nýr
áfangi i st'arfsemi fyrirtækis
hans, en það hefur undarafarin
ár rekið trésmiðju og haft á
hendi uimfangsmiklar byggínga-
framkvæmdir. Má segja að það
hafi verið við riðið byggingu
flestra húsa í Bolungarvik sein-
asta hálfan annan áratuginn.
í trésmiðjunni er framleitt al.lt
tréverk tiiil húsa, svo sem g’lugg-
ar, inni- og útihurðir, eldhúsinn-
réttingar og aðrar innréttingar
o. m. fl.
Þá rekur fyrirtækið plastverk-
smdðju, sem framieiðir einangi-
unarplast í ýmsum þykktum.
Hófst sú starfsemi árið 1964 og
er hin eina sinnar tegundar á
Vestfjörðum. Framieiðir verk-
smiðjan svo að segja alit ein-
angrunarplast fyrir vestfirz'kan
markað og selur talsvert magn
til annarra landshluita.
Þá eru ótalin ýmiss konar
verktakastörf, húsbyggingar og
mannvirkjagerð, sem hafa verið
stór þáttur í starfsemi fyrirtæk-
iisins, enda hefur það yfir að
ráða miiklum og góðum véla- og
tækjakosti tll alis konar stór-
framkvæmda.
Af verkefnum, sem fyrirtæiki
Jóns F. Einarsisonar hefur með
höndum um þessar mundir má
nefna byggingu Ráðhúss Bol-
ungarvíkur, sem Hóltsihreppur,
Sparisjóður Bolungarvíkur og
lögreglustjóraembættið byggja í
sameiningu. — Þá eru þegar
hafnar framkvæmdir við bygg-
imgu sundhallar og íþróttahúss
á vegum Hólshrepps, sem fyrir-
tækið mun byggja að ölilu lieyti.
Fyrir skömmu er hafin bygging
stórhýsis fyrir Einar Guðflnns-
son hf., viðbygging við núver-
andi verzlunarhús fyrirtækisins.
Þá er nýlokið við að byggja
stóra frystiklefa fyrir íshúsfélag
Bolunigarvikur hf. Auk þess er
Jón F. Einarssoai nú að ljúka
við byggingu 8 ibúða í 2 raðhús-
um. Er hénr um að ræða þriggja
og fjögurra herbergja íbúðir og
verða þær seldar einistakiinigum
fuliikiáraðar að ölilu leyti. Verð
minni ibúðanna er 1.200.000,00 kr.
en hirnna stærri 1.350.000,00 kr.
Er þegar flutt í nokkrar af þes[s-
um íbúðum.
Að lokuim má nefrna, að í smíð-
um eru 5 einbýlishús í Boiuragar-
vík, sem fyrirtækið byggir fyrir
eins'taklinga og er gert ráð fyrir
að þau verði flest tilbúin í
haust.
Hér hefur verið miranzt á
nokkrar þeirra framkvæmda,
sem fyrirtæki Jóns F. Eimarsson-
ar hefur nú á prjónunum, — en
einnig má geta þess, að nýlega
hefur fyrirtækið tekið að sér
framikvæmdir við Mjölkurá í
Amarfirði, sem aðailega eru
fólgnar í mannvirkjagerð i sam-
bandd við svokallaða Langa-
vatnsmiðlun, stíflur og önnur
maranvirki. Hefur Jón F. Einars-
son tekið þetta verk að sér í fé-
lagi við Veturliða Veturiiðason,
Olísá, en þeir hafa stofnað
sameignarfélag um verkið, er
þeir nefna Vesturverk sf. — Til-
boð þeirra i verk þetta var
19.575.000,00 kr., og er ætlumin
að uranið verði við það í sumar
og næsta sumar, en framikvæmd-
um verði lokið haustið 1972.
Verður byrjað á framkvæmdum
nú næstu daga.
Hjá fyrirtæki Jóns F. Einars-
sonar vinna að jafnaði urn 50
mannis og st.undum fieiri. Verk-
efni eru jafnan næg oig verða
mörg að bíða vegna skorts á
vinnuafli, — en erfiitt hefur
reynzt að fá bæði iðnaðarmenn
og verkamenn til starfa. Má
geta þess að hjá fyrirtækinu
vinna nú alimargir aðkomu-
meran, þár sem ógerningur hefur
reynzt að fá nægiiegt vinnuafl
hér á staðnum.
— HaBur.
BÍLASÝNING Á
KAUPSTEFNUNNI
Egill Vilhjálmsson hf
og Mótor hfsýna:
Sýningin er við anddyri Langarhalshallarinnar.
jeepWAGONEER
n Motors GREMLIN
O HUNTER
Er jur í Afríku
Barizt á landamærum
Dar es Salaam og Kampala,
25. ágúst. — AP/NTB.
HARÐIR bardag-ar hafa verið
háðir á landaniæruni Uganda og
Tanzaniu í gær og í dag, og
hafa báðir aðilar beitt stór-
skotaliði í átökunum.
Yfirvöld í Uganda segja að
meðal failinna Tanzaníuher-
manna hafi verið kínverskur
ofursti. Var lík hans sýnt inn-
lendum og erlendum fréttamönn-
um í Kanipala í dag. Yfirvöld í
Tanzaníu bera á móti þessari
frétt og segja enga Kínverja í
her landsins.
Fréttum ber ekki saman um
aðdraganda árekstranna og
kennir þar hvor öðrum. 1
Tanzaníu er sagt að fjórir her-
menn frá Uganda hafi farið yfir
landamærin inn i Tanzaníu og
viljað fá keypt te. Voru menn-
irnir handteknir og gerðu þá fé-
lagar þeirra árás á landamæra-
verði í Tanzaníu. Þegar skothríð
hermanna Uganda var svarað,
gripu þeir til þess ráðs að senda
skriðdreka á vettvang, segja yf-
irvöldin i Dar es Salaam.
Idi Amin, forseti Uganda,
sagði fréttamönnum svo frá
upphafi árekstranna, að fjórir
bifreiðastjórar úr hernum hefðu
verið sendir til þorpsins Mutu-
kula til að sækja vatn, og hefðu
hermenn Tanzaníu tekið þá
höndum. Var þá sveit Uganda-
hermanna send fram ökumönn-
unum til aðstoðar og tók hún
mikið herfang í sókn sinni, með-
al annars fallbyssur, hríðskota-
byssur, skotfæri og flutninga-
tæki.
Samkvæmt seinni fréttum frá
Kampala hafði hersveitin frá
Uganda sótt um 15 kílómetra
inn í Tanzaníu í gærkvöldi, en
ekki er vitað hvort hún hefur
hörfað aftur til landamæranna.
Á fundi með fréttamönnum
skýrði Amin forseti frá því, að
kínverskur herforingi kteddur
einkennisbúningi Tanzaníuhers,
hefði særzt í átökunum og látizt
af sárum sínum skömmu eftir
að Ugandahermenn handtóku
hann. Sagði hann, að Kínverjinn
hefði beðizt griða eftir handtök-
una og sagt skömmu áður en
hann lézt: „Ég er bara Kínverji
og Nyerere sendi mig.“ Er þar
átt við Julius Nyerere forseta
Tanzaníu. Lík þessa Kínverja
var flutt til Kampala, og þar
fengu fréttamenn að skoða það.
Sogja fréttamenn, að líkið hafi
verið af austurlenzkum manni,
um 45 ára að aldri.
Sambúð Tanzaníu og Uganda
hefur verið slæm að undanförnu,
eða frá því Amin núverandi for-
seti Uganda steypti Milton
Obote, þáverandi forseta, af stóli
i janúar í ár. Hafa landamæri
ríkjanna verið lokuð frá þvi í
júii.
Sameining
— blað vinstri
manna
NÝTT blað, Sameining, hefur
hafið göngu sína og kom 1. töiu-
blað þess út sl. mánud'ag. Það
„á fyrst og fremst að vera urn-
ræðugi-undvölíl'ur um sameiningu
vinstri manna“, en útkomiu þess
hafa ekki verið „settar fastar
skorður- Það mun fyrst um sinn
koma út eftir efnum og á.stæð-
um.“
Að útgáfunni standa: Samtök
frjálslyndra og vinstri manna,
Samband ungra framsóknar-
manna og Samband ungra jafn-
aðarmanna. Ritnefnd skipa:
Andrés Kristjánsson, Elías Sn.
Jónsson, Haraldur Henrýsson,
Kristján Bersi Ólafsson, Ólafur
Hanraiþalsson, Sigvaldi Hjálmars-
son.