Morgunblaðið - 27.08.1971, Side 30
r 30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 1971
l
Fyrsti landsliðssig-
urinn í sumar
— er Islendingar unnu Ira í
landskeppni í frjálsum íþróttum
— Mun betri árangur síðari
dag keppninnar
— íslendingar „stálu“ stigum
í hlaupagreinunum
ÞAS má eiginlega segja að það
fcafj verið kaldhæðni örlaganna,
að það skyldi vera íslenzka
frjálsiþróttalandsliðið, sem alltaf
er verið að skamma fyrir getu-
leysi, sem færði íslandi fyrsta
landsliðssignrinn í snmar. í fyrra
kvöld lauk keppni þess við fra,
©g sigruðu íslendingarnir ör-
ugglega í þeirri viðureign, hlutu
32 stig, gegn 27 stigum íra, en
aðeins einn maður keppti í hveri
grein. Árangur var að vísu held-
ur slakur, en sigurinn skiptir
samt mestu máli, og er þetta í
fyrsta skiptið í 13 ár, sem fs-
lendingar vinna sigur i frjáls-
Ji'Orsfeinn Þorsteinsson — sigraði
i 400 og 800 nietra hlaupum.
Erlendur Valdimarsson sigraði í
tveimur gTeinum.
stóðu íslendingarnir sig með
mikium ágætum og tóikst að
auka muninn.
Það var Þorsteinn Þorsteins-
son sem vann einna athyglis-
verðasta afrekið í keppninni í
fyrrakvöld, en hann sigraði þá
mjög óvænt í 800 metra hiaupi á
ágætuim tima 1:52,8 mdn. Virðist
Þorsteinn kunna vel brautinni á
vellinum sem keppt var á í
Dublin, því það var einmitt á
þessum velli sem hann setti ís-
landsmet sitt í greindnni 1:50,1
mán., fyrir noíkkrum árum. Tími
Þorsteins nú, 1:52,8 mín., er sá
bezti sem íslendingur hefur náð
í nokkur ár, og bendir til þess að
Þorsteinn sé nú alveg við sitt
bezta form. Verður gaman að sjá
til hans á Laugardalsvellinum
um næstu helgi, en hann tekur
þá þátt í bilkarkeppni FRÍ. Ann-
ax í 800 metra hlaupinu var
J. O’Neill og þriðji maður var
Wall, sem keppti sem gestur.
5000 metra hlaupið var eamt
einna skemmtilegasta grein
kvöldsins, þótt íslendingurinn,
Jón H. Sigurðsson, blandaði séa-
í'kfki í þá baráttu. Tveir korn-
ungir Irar börðust um foxystuna
©g sigraði J. Hartnett á mjög
góðum tíma: 14:01,8 mín., en
annax varð N. Cusack á 14:09,4
mín. Þarna eru sannarlega á
ferðinni menn, sem eiga íram-
tíðina íyrir sér. Jón H. Sigurðs-
son hljóp mjög vel, miðað við
það að hann hafði keyrt sig út
í 10.000 metra hlaupinu daginn
áður og tími hans var 15:41,8
min.
Hörkukeppni var einnig i 200
metra hiaupinu, en þegar á beinu
brautima kom tók Bjarni Stefáns-
son örugga forystu og sigraði.
Tími hans var gefinn upp 20,5
sefc,. en þegar nánar var að gætt,
kom í ijós að mistök höfðu orðið
við mælingu brautarinnar,
þannig að ekki voru hlaupnir
nema rúmir 190 metrar. Vax leitt
til þess að vita, þvi að Bjarni
hefði sennilega náð mjög góðum
tima í þessu hlaupi. Annar i
hlaupinu varð J. Dillon, og þriðji
D. O’Connell.
Erlendur sigraði öruggiega í
sleggjufcastinu, kastaði 179 fet
og 8 tomrnur, sem munu vera
54,89 metrar. Annar varð T.
Gent, sem kastaði tæpa 40
metra.
Elías Sveinsson sigraði svo
örugglega í hástökkinu, stökk
1,93 metra og átti góðax tiiraunir
við 1,97 metra. R. Dittmer, ír-
landi, sem fceppti sem gestur í
greininni, stökfc eininig 1,93
metra, en landsliðsmaðurinn C.
Farrel varð þriðji og stökk 1,83
metra.
Friðrik Þór Óskarsson sigraði
svo í þrístöfekinu stökk 14,45
metra, en annar varð J. Magee,
íriamdi sem stökk 14,11 metra.
Þriðji í greininni varð gesturinn
S. C. Dwyer, írlandi sem stökk
tæpa 14 metra.
í 400 metra grindahlaupi sigr-
aði J. Dillon, írlandi á 55,6 sek.,
en Borgþór Magnússon varð anm-
ar á 57,6 sek. — mokkuð lamgt
frá sínu bezta, sem hann náði
í unglingaianáskeppminni á dög-
unum.
3000 metra hindrunarhlaupið
var frsk greim, svo sem vænta
mátti, en í því sigraði P. O’Rior-
íþróttalandskeppni. fslendingar
©g frar háðu frjálsíþróttaiands-
keppni í fyrra, þar sem einnig
keppti einn maður í hverri grein,
©g þá keppni nnnu írar með
töluverðum yfirburðum.
Eftir íyrri dag keppninnar
höfðu fslendingar yíirhöndina,
með 16 stigum gegn 13, en þá
voru líka búnar þrjár kastgrein-
air af fjórum, þannig að allt út-
lit var fyrir írskan sigur í keppn-
innö, en írar hafa löngum átt
mjög góðum hlaupurum á að
skipa.
En í keppninni í fyrrakvöld
Fjögur met á kraft-
lyftingamóti KR
FVRIR skömmu var haldið inn-
anfélagsmót í kraftlyftingnm hjá
lyftingadeild KR. Árangur var
ágætur í flestum greinum, en
keppt var i nokkmm þyngdar-
flokkiim.
í millivigt (67,5 kg — 75 kg)
setti Einar Þorgrímsson þrjú ís-
Kraftajöf nar úr KR: Grímur Ingólfsson, Giiðmiindur Guðjóns-
son og Einar Þorgrímsson.
laindsmet. f bekkpressu pressaði
hainn 126 kg, en fyrra metið átti
hanm sjálfur og var það 125 kg.
1 hnébeygju lyfti hann 178,5 kg,
en gamla metið átti Friðrik
Jósefsson, Þór, Vestmannaeyj um
og var það 165 kg. í dauðalyftu
lyfti Einar svo 200 kg, en ís-
landsmetið í þeirri grein er 210
kg. Samanlagt lyfti því Einar 495
kg, og er það nýtt íslandsmet.
í léttþungavigt (75 — 82,5 kg)
sigraði Guðmundur Guðjónsson
og setti nýtt íslandsmet i bekk-
pressu 135 kg, en fyrra metið
átti Friðrik Jósefsson og var það
130 kg. í hnébeygju lyfti Guð-
mundux 185 kg, og í dauðalyftu
217% kg, og samanlagður ár-
angur hans var því 537% kg.
í milliþungavigt (82% — 90
kg) sigraði Grímur Ingólfsson.
Pressaði hann í bekk 135 kg,
lyfti 175 kg í hnébeygju og 250
kg í dauðalyftu — samtals 560
kg, og bætti Grímur sinn fyrri
árangur um 40 kg.
í yfirþungavigt sigraði svo Sig-
tryggur Sigurðsson og var ár-
angur hans: 115 — 187% — 215
eða samtals 517% kg.
Mótstjóri var Bjöm R. Lárus-
son, KR, en dómarax þeir Guð-
nmundur Sigurðssom, Á, Sveinn
Sigurjónsson, Á, Björn Ingvars-
son, Á og Ari Stefánsson, KR.
Bjaxni Stefánsson sigraði í spre tthlaupiinum og Borgþór vfflinð
annar i 400 metra grindahlaupi.
dan, írlandi á ágætum tima 9:06,6
mán., en Ágúst Ásgeirsson varð
fjórði í hlaupinu á 10:05,2 mán.,
sem er alveg við hans hezta í
greininmi — eí ekki það bezta.
í stangarstökki sigraði L. Gees-
som, frlandi og stökk hann 4
metra slétta, em Valbjörn Þor-
láksson varð annar og stökk
sömu hæð, þriðji vaxð D. Booth,
írlandi, og kemur það efcki fram
í skeyti AP um keppmina, hvoir
franna var landsliðsmaður.
Síðasta keppnisgrein var 4x400
metra boðhlaup og það ummu
íxarmir örugglega á 3:16,8 noin.,
tm íslenzka sveitin hljóp á mjög
þokkalegum tíma 3:23,5 mín.
Ur Jeik ÍR og Vals á dögumim. Ágúst Svavarsson eygir smugu
í Valsvörninmi og reynir að notfæra sér hana.
Utihandknattleikurinn:
U rslitaleikurinn í kvöld
í KVÖLD fer fram í portinu við
Austurbæjarskólann úrslitaleik-
urinn I útihandknattleiksmótimi.
Eigast þar við lið Hauka og FH,
og má búast við mjög jafnri og
harðri viðureign, eins og jafnan
þegar þessi lið leiða saman hesta
sína. Bæði liðin unnu alla sína
leiki í riðliinum. FH með nokkr-
um mun, en aðeins munaði einu
marki í leik Hauka og ÍR, enda
hafa ÍR-ingar sýnt mjög góða
leiki i þessu móti.
í fyrra urðu Valsmenn lslands-
meistarar, og rufu þar með íjór-
tán ára sigurgöngu FH. Má hú-
ast við því að FH-ingar leggi
mikla áherzlu á að enduxheimta
titilinn, enda eftirsóknaTvert að
verða íslandsmeistari bæði í inni-
og útihandfcnattleik. En Haukar
verða vafalaust harðir í horn að
talka, og hefur lið þeirra sýnit
góða leiki í mótinu tdl þessa.
Aganefnd veitti f rest
— og Skúli og Árni geta
leikið með um helgina
AGANEFND KSÍ kom til
fundar kl. 16.00 í gær og þar
voru m.a. tekin fyrir mál
þeirra Skúla Ágústssonar frá
Akureyri sem vísað var af
leikvelli í leik Breiðabliks og
ÍBA sl, sunnudag og mál Árna
Steinssonar KR, en honum var
vísað af leikvelli í leik KR og
Vikings í landsmóti 2. flokks,
sem fram fór sl. mánudag.
í máli Skúla Ágústssonar
mætti Gísli Jónsson frá Akur-
eyri og sagði hann að Skúli
hefði ekki tök á að mæta, en
óskaði eftir munnlegum mál-
flutningi í málinu og að því
yrði frestað, þar til Skúli gæti
mætt. i
Sömu eögu er að segja af
máli Áma Steinssonar, þar
óskaði Gunnar Felixson eftir
munnlegum málfluttningi og
eftir fresti. i
Nefndin féllst á að veita ,
umbeðinn frest og ákvað fund
n.k. mánudag kl. 17.30 þar
sem þeir Skúli og Ámi munu
mæta ásamt fleiri málsaðilum.
Kvað Víglundux Þorsteinsson
formaður aganefndar nefnd-
ina lita það alvarlegum aug-
um, ef umræddir leikmenn
Framhald á bls. 18