Morgunblaðið - 30.09.1971, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1971
6000 látizt
úr kóleru
medal flóttamanna frá
Austur-Pakistan
Gonf, 29. sept., NTB.
KÓLERUFARALDURINN í Ind-
landi hefur kostað tæplega sex
þúsund austur-pakistanska flótta-
menn lífið, segir í tilkynning-u
frá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni
i dag. AIls hafa verið skráð
46.469 tilfelli, meðal flóttamann-
anna og er búizt við að margir
fleiri láti lifið á næstu dögum.
Talsrruenn stofnunaTÍnnar sögðu
frértJtamönnum að þessar tölur
væru þó liklega alltof lágar, því
að ógeramgur værd að fylgjast
nálkvæmlega með faraldrinum,
og mörg tilvik kæmu sjálfsagt
aldrei fyrÍT augu starfsmiafnfna
stofnunarinnar.
AHs hafa verið sfcráð tæplega
20 þúsund dauðsföll af völdum
kóleru í heiminum, það sem af
er þessu ári. Rúmlega 9 þúsund
í Asíu og rúmiega 10 þúsund í
Afríku. Þá hafa verið skráð 34
tilfelli af kóleru í Ewópu, en
engin dauðsföll.
Ástand flugvalla;
Þarf að skera brýnustu
þarfir mjög niður?
EINHVERRA endurbóta er
þörf á yfír 100 flugvöllum
á landinu, sagði Hannibal
Valdimarsson, samgönguráð-
herra, í viðtali við Mbl. i gær.
Talið er, að árlega þurfi 150
miUjón króna fjárveitingu næstu
þrjú árin tU þess að koma brýn-
ustu endurbótunum í kring, en
ég geri mér þó enga von um að
geta útvegað það fjármagn;
þykist góður geti ég fengið þetta
75 tU 80 miUjónir króna, en þá
verður aðeins að vega og meta
hve þörfin er brýn og skera
hana niður um helming.
Samgönguráðherra skoðaði I
fyrradag þrjá flugveUi ásamt
flugmálastjóra, Agnari Kofoed
Hansen, og flugu þeir á flugvöU
Húsvikinga i Aðaldalshrauni, tU
Grímseyjar, Akureyrar og Isa-
fjarðar. Sagði ráðherra, að fyr-
irhugað væri að skoða fleiri flug-
velli á næstunni — hér væri að-
eins upphafið. Þessir rúmlega
100 flugvellir, sem ráðherra
nefndi, sagðl hann vera malar-
boma flesta, á þá vantaði lýs-
ingu og sumir væru ekki girtir.
Þvi væri oft og tíðum hættulegt
að lenda á þessum flugvöllum,
er sauðfé færi inn á þá í myrkri.
Sums staðar þyrfti ef tii viU Utið
fé tU þess að bæta úr sárustu
þörfinmi, en tU væru staðir, þar
sem endurbætur væru mjög fjár-
frekar, s.s. í Vestmannaeyjum,
STJÓKNENDASKIPTI
VIÐ „DAGLEGT MAL“
Jóhann S. Hannesson, fyrr-
um skólameistari á Laugar-
vatni, mun í næstu framtíð
annast þáttinn „Daglegt mál“
í Ríkisútvarpinu, en Jón
Böðvarsson, menntaskóla-
kennari, lætur nú af stjórn
þáttarins.
þar sem áætiað væri að endur-
bætur kostuðu 40 mUljónir kr.
1 Aðaldalshrauni, þar sem
Hannibal lenti í fyrradag, sagði
hann brautina góða, en á henni
væri ófuUkomin lýsing. Raf-
magn væri á staðnum, en lýs-
ingin kostaði ein um 2,5 mlUjón-
ir króna. 1 Grímsey er gras-
vöUur, sem er blautur á vorin
og hefur komið fyrir að flugvél-
ar sökkvi í forina. Nauðsynlegt
er, sagði ráðherra, að malbera
brautina þar, en sá er gallinn
að í Grímsey er enga möl að fá
og mjög kostnaðarsamt yrði að
mylja grjót í völlinn. Einnig
kæmi til greina að fá sanddælu-
skip tU þess að flytja möl tii eyj-
arinnar, en slíkt yrði einnig dýr
framkvæmd. Tryggvi Helgason
heldur uppi vikulegu flugi tU
Grímseyjar og er fargjaldið
skaplegt, 700 krónur. 1 fyrradag
var brautin ágæt og hörð. Held-
ur hefur íbúum eyjarinnar fjölg-
að en hitt og þar er mikill upp-
gangur.
Á Akureyri kvað ráðherra
ástandið vera með því bezta ut-
an Reykjavíkur. Þar er Tryggvi
Helgason nú að reisa flugstöð
fyrir mikUvægt þjónustuhlut-
verk sitt og skortir hann fé.
Hann kvað Tryggva nauðsyn-
lega þurfa að endurnýja 14 ára
gamla sjúkraflugvél sína.
Þá sagði ráðherra, að fyrir-
hugað hefðS verið að koma við
á Sauðárkróki, en þar sem seint
var orðið og lítiU timi tU stefnu,
var frá þvi horfið og haldið til
Isaf jarðar. Á Isafirði er verið að
vinna að breikkun flugbrautar-
innar og verið að gera aflíðandi
halla við jaðra hennar, svo að
minni hætta sé á því að flugvél-
ar skemmist fari þær út af
brautinni. Þörf er á að malbika
brautina og þar þarf að koma
upp rafmagnsvarastöð.
t>jónar vörðu
sina
Ziirich, 29. september.
VEITINGAÞJÓNAR í Zurich,
voru orðnir ákaflega Ieiðir á
hóp mótorhjólapilta í svörtum
leðurjökkum, sem höfðu þann
leiða vana að ráðast á gesti
þeirra þegar þeir yfirgáfu
veitingahiísin, og rændn þá
og jafnvel mLsþyrmdu. Þjón-
arnir nrðu sammála um að
skyldur þeirra við gestina
næðu lengra en yfir barborð-
ið og ákváðu að binda enda
á ósómann.
Og í siðustu viku, þegar leð
urjakkarnir voru á ferðinni
rétt einu sinni, vissu þeir
ekki fyrr en vígalegur hópur
þjóna hafði umkrimgt þá. Það
varð lítið um vamir. Þjónarn-
ir drifu „töffarana“ úr hverri
einustu spjör, og neyddu þá
svo til að dansa í kringum
bál, sem var kveikt með leð-
urjökkunum dýrmætu. Þjón-
arnir héldu svo sigri hrósandi
til að sinna gestum sínum, en
það var lágt risið á andstæð-
íngum þeirra þegar þeir töltu
heimleiðis, ekki aðeins jakka-
lausir, heldur kviknaktir.
Slátursala hófst í Reykjavík í g ærmorgun. Myndin er tekin í slátursölu Sláturfélags Suðurlands
í gær, en þá var handagangur í öskjunum, svo sem myndin sýnir. — Ljósm. Mbl. Sv. -Þorm.
Brezkir sendi-
ráðsmenn
1 j ósmy ndaðir
— vanalegt fyrir brottrekstur
frá. Rússlandi
Moskvu, 29. september. NTB.
BREZKA sendiráðið í Moskvu,
býr sig nú undir hefndaraðgerðir
stjórnvalda þar, vegna þeirrar
ákvörðunar brezku stjórnarinnar
að reka úr landi 105 sovézka
embættismenn, sem sakaðir voni
um njósnir. Sovézk stjórnvöld
hafa látið að því Iiggja, að gagn-
aðgerða verði ekki langt að bíða.
Varðmönnum við brezka sendi
ráðið hefuir verið fjöligað til
njuna, og i dag var starfsfólk
sendiráðsins ljósmyndað í bak
og fyrir, þegar það hélt heim
Istanbul, 28. sept. NTB.
• Tveir ráðherrar úr stjórn
Tyrklands sögðu af sér í dag og
óttast menn nú að fyrir dynim
sé alvarlegt stjórnmálaástand í
landinu.
Ráðherrarnir tveir voru hinir
fyrstu, sem fara úr stjóm dr.
Nihats Erims, sem mynduð var
utan flokka í marz sl. Þeir eru
Haluk Arik samgöngumálaráð-
herra og Ishan Topaloiglu, orku-
málaráðherra. Þá hefur yfirmað
ur hersins í landinu, Faruk Gurl-
er krafizt breyttra stjórnarhátta
í Tyrklandi. Hann endurtók í út-
varpsviðtali í dag aðalatriði í úr-
slitakostum hersins, sem settir
voru fram í marz sl. oig leiddu
til þess að stjóirn Suleymans
HAGSTOFA íslands hefur sent
frá sér bráðahirgðatölur um
verðmæti út- og innflutnings í
ágúst 1971 og birtir samanburð-
artölur frá í fyrra. Vöruskipta-
jöfnuðurinn í ágúst nú er óhag-
stæður um 380.3 milljónir króna,
en var í fyrra hagstaeður um 146
milljónir króna. Það, sem af er
árinu 1971 er vöruskiptajöfnuður
inn óhagstæður um 2.598.3 millj-
að lokinni vinniu. Slíkar Ijós-
myndanir eru aiigengar í Sovét-
ríikjunum, áður en diplómötum
er vísað úr landi.
Pravda, málgagin kommún-
istaflokksins, réðst í dag harka-
lega á brezku sitjómina, og í sjö
dálka grein skrifaði Viktor
Mevski, einn af helztu pólitístou
fréttaskýrendum blaðsiirs, að
Bretland hefði aldrei verið vin-
veitt Sovétríkjunum. Þá var þar
og að finna ýmsar aðrar ásakan-
ir í svipuðum dúr.
Demirels fór frá.
Hótar herinn að tatoa völd í
sínar hendur, takist ekki stjórn-
málamönnum að gera þær þjóð-
félagsumbætur, sem nauðsynleg-
ar teljast og halda uppi lögum
og reglu.
Neyðarastand er nú í 11 hér-
uðum af 67 í landinu, — og her-
inn hefuir gert víðtækar ráðstaf-
anir til þess að bæla niður
hryðjuverkastarfisemi. Ýmsar
þjóðfélagsbreytingar hafa verið
gerðar frá því dr. Erim tók við
stjómartaumum en tillögur hans
um meiri háttar umbætur í land-
búnaðimum hafa mætt harðri
mótspyrnu, einkum Réttlætis-
floktosins, sem er stærsti stjóm-
málaflokkurinn i tyrkneska þjóð-
þinginu.
ónir króna, en var í fyrra hag-
stæður um 528.4.
Af útflutningi er ál og álmelmi
fyrstu 8 mánuði ársins 549.8
milljónir króna, en var í fyrra
1.158.7 milljónir króna. Af inn-
flutningi eru skip, flugvélar og
innflutningur vegna Búrfells-
virkjunar og íslenzka álfélagsins
h.f. 1.827.7 miilljónir króna, en
var í fyrra á sömu 8 mánuðum
743.1 milljón króna.
S.F.H.L mót-
mælir einangrun
þjóðfélagshópa
STJÓRN Stúdentafélags Háskóla
íslands samþykkti á fundi sánum
þann 16. september 1971 eiftirfar-
andi á'lyfctun með öllum greidd-
um atkvæðum. Ályktun þessi er
send öðrum stú'dentas aimitökum,
byggingasamvinnufélögum, opin-
berum ráðamönnum og stjóarn-
málafloktoum.
„Háþróuðum iðnaðarþjóðfélög-
um fylgja ýmis ilHeysanleg
vandamál, sem við enn erum að
mestu laus við. Miklu fé og fyr-
irhöfn er nú eytt ti'l að leysa
stórborgarvandamál, en orsaka
þeirra er að leita áratuigi aftur í
tímann, er þekking manna á sam
félaginu var rniklu minni en nú.
Er m. a. reyní að spoma við
þeirri þróun að einstakir þjóðfé-
lagHhópar einangri siig í mann-
hafinu með því að blanda þeim
saman.
Farið er að bera á þessari öf-
ugþröun hér á landi t. d. með
byggingu verkamannabústaða,
elliheimila og hjónagairða stúd-
enta.
Stjóm S.F.H.Í. beinir því þeirri
áskorun til almennings og við-
eigandi ráðamanna að leysa
vandamál augnabliksins á annan
hátt en á kostnað framtíðarinn-
ar. Stjórnin vill með ályktum
þessari aðeins vekja athygli,
ekki sízt stúdenta, á þessum
vandamálum.“
„Flóamarkaður“
í Norræna húsinu
NORDMANNSLAGET í Reykja-
vík heldur „flóamarkað“ („loppe
marked“) í kjallara Norræna
hússins laugardaginn 2. októ-
ber nk. kl. 14—22, til efUngar
fjárhag sínum.
Þetta kom fram á blaðamanna
fumdi, sem félagið hélt í Norr-
æna húsinu í gær. Else Aass,
formaður N ordmannsl agets,
sagði, að á „flóamarkaði" þess-
um væru ýmsar vörur á boð-
stólum, þ.á m. kjólföt, sem selj-
ast ættu á 250 krónur, og eru
þau jafntframt það dýrasta, sem
þarna verður selt.
Allt eru þetta gjafir frá félags
mönnum I Nordmannslaget og
vörurnar bæði notaðar og ónot-
aðar. Verðinu er mjög stiHt í
hóf, og eins og fyrr segir kost-
ar ekkert meira en 250 kr., en
salan stendur aðeins yfir þenn-
an eina dag.
Nordmairumslaget hefur verið
starfrækt í 38 ár, og eru félagsJ
menmimir um 330 talsám* *.
Félagið á skála í Heiðmörk, þar
sem félagsmenm geta dvalizt í
frístundum sinum og mun ágóð-
anum af sölu þessari verða var-
ið til reksturs hans.
Tyrkland;
Óttast alvarlegt
st j órnmálaástand
Óhagstæður vöru-
skipta j öfnuður