Morgunblaðið - 30.09.1971, Síða 10

Morgunblaðið - 30.09.1971, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1971 Árni Tryggvason fer með aðalhlutverkið i Höfuðsmanninum frá Köpenieh og þar skiptast á skin og skúrir, en leikritið er þekkt fyrir gamansemi sína. I»jó51eikhúsiö í kvöld Hann keypti sér höfuðsmannsbún ing og þá var nú munur að lifa Höfuðsmaðurinn frá Köbenick fyrstur á svið Pjóðleikhússins í vetur ÞEGAR dimma tekur eftir sumarlangan dag lifnar aftur yfir iífinu í álfhólum og kiett um huldufólksins og það brást ekki heldur í hamrabygging- unni við Hverfisgötu, Þjóðleik húsinu, Söm ris hún dimm og mikilúðleg, en innan veggja hrærast sálir í sköpun lista- manna Thalíu. Vetrarstarfið er hafið. Við fylgdumst með æfingu á Höfuðsmanninum frá Köp enick fyrir skömmu, en það verður frumsýnt í kvöld. Leikritið er byggt á sann- sögulegum atburði, sem var aðhlátursefni um allan heim á sinum tíma. Leikurinn fjaliar um gæfuiítinn tugthúslim að nafni Wilhelm Voigt. Af- brot hans var að vísu mjög lítið, en refsingin að sama skapi hörð. t't úr varðhald- inu kemur hann vegabréfslaus og án vegabréfs fær hann hvergi atvinnu. Þá grípur hann til þess ráðs að kaupa sér gamlan og snjáðan höfuðs- mannsbúning, stöðvar prússn eska hersveit og lætur hana í nafni þess búnings hertaka ráðhúsið í Köpenick — til þess að komast yfir vegabréf. En margt fer öðru vísi en ætlað er og leikslok verða mjög ó- vænt og spennandi. Höfuðsmanninn leikur Árni Tryggvason, en leikstjóri er Gísli Alfreðsson. Óskar Ingi- marsson þýddi verkið, sem er eftir þýzka leikskáldið Carl Zuckmayer. Flestaliir leikarar Þjóðleikhússins taka þátt í þessari sýningu og leika marg ir fleiri en eitt hlutverk og sumir mörg. Æfingar á Höfuðsmannin- Ævar Kvaran, Jón Gunnarsson, Sigríður Þorvaldsdóttir, Bríet Héðinsdóttir og Baldvin Hall dórsson í hlutverkum sínum í Höfuðsmanninum. um hófust sl. vor og að uhdan förnu hafa verið tvær æfingar á dag. Leikurjnn er í þremur þáttum og skiptist í 20 atriði. Höfundur leiksins Carl Zuck mayer, er eitt af þekktustu leikskáldum Þjóðverja á þess ari öld. Fæddur er hann í Ma inz árið 1896 og er því nú 75 ára að aldri. Sautján ára gerð ist hann sjálfboðaliði í fyrri heimsstyrjöldinni og barðist á Vesturvígstöðvunum, var sæmdur járnkrossinum fyrir frækilega frammistöðu, særð ist sumarið 1918, sendur heim og skráður óhæfur til herþjón ustu. Hitlers. Frá Sviss fór harnn til Bandaríkjanna og dvaldist þar meðan á síðari heimsstyrj öldinni stóð. Helztu leikrit Zuckmayers eru: Höfuðsmaðurinn frá Köp enick, Hershöfðingi djötfuls- ins (1946), Nóttin kalda (1955) og Hinir makalausu, (1964). Hann hefur auk þess skrifað mörg kvikmyndahandrit t.d. að hinni þekktu kvikmynd „Bláa englinum", sem gerði Marlene Dietrich fræga á sín um tíma og Rembrandt mynd inni, sem Alexander Korda gerði með Charles Laughton I titilhlutverkinu. Þess má geta að leikur þesst nýtur mikilla vinsælda um þessar mundir og er nú sýnd ur þæði í Danmörku og I Sví þjóð og í Þjóðleikhúsi Breta, þar sem hinn heimsþekkti leik ari Paui Scofield leikur aðal hlutverkið — áj. Að stríðinu loknu tók hann mikinn þátt í þóhema- og listamannalífi Berlínar næsta áratuginn og þá hófst einnig langur og merkur ferill hans sem leikritaskálds, sem náði hámarki með leikritinu Höf- uðsmanninum frá Köpenick, árið 1931. Á þessum tímum var Zuckmayer meðal þeirra er mestan svip settu á hið at- kvæðamikla leikhúslíf í Þýzka landi, náinn vinur og sam- starfsmaður heimsþekktra leik húsmanna svo sem Max Rein hards, Erwins Piscators, Bert- olts Brechts og Josephs von Sternberg. Hann varð að flýja til Sviss undan ofsóknum nasista árið 1939 og leikrit hans Höfuðs- maðurinn í Köpenick var bann að í Þýzkalandi á valdatíma Þóra Friðriksdóttir og Þórhallur Sigurðsson í hlutverkum síntim. Gísli Alfreðsson, leikstjóri ræðir við Þorgrím Einarsson og vígalegan leikara, sem er til alls vís.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.