Morgunblaðið - 30.09.1971, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1971
11
Gestur Ólafsson, forstöðumaður
Bifreiðaeftirlitsins — Minning
Fæddur 10. júní 1906.
Dáinn 23. sept. ,1971.
1 DAG fer fram útför Gests
Ólafssonar, forstöðumanns Bif-
reiðaeftirlits rikisins, en hann
andaSist í Kaupmannahöfn 23.
þ.m. eftir stutta sjúkdómslegu.
Fór hann þangaS í skemmtiferö
úsamt konu sinni siðari hluta
ágústmánaðar, glaður og reifur
að vanda, að loknu miklu anna-
tímahili í bifreiðaeftirhtinu frá
því snemma í vor. Áttu þau
hjón ánægjulegar samverustund-
ir með góðum vinum í Dan-
mörku, þar til að því kom
skyndilega að flytja varð Gest í
sjúkrahús til rannsóknar. Kom
þá fljótlega i ljós, að hann var
haldinn mjög alvarlegum sjúk-
dómi.
Gestur Ólafsson var rúmlega
65 ára, er dauðann bar að garði.
Hann var fæddur 10. júni 1906
að Ánabrekku í Borgarhreppi í
Mýrasýslu. Gestur missti for-
eldra sína kornungur, en ólst
upp hjá fósturforeldrum, Jóni
Bjamasyni bónda þar og konu
hans, Guðlaugu Gísladóttur.
Fluttist hann með þeim á ung-
um aldri að Þrándarstöðum í
Kjós og alllöngu síðar til Reykja
víkur. Miklir kærleikar voru
milli Gests og fósturforeldranna
og mánntist hann þess oft þakk-
látum huga, að þau höfðu veitt
honum skjól og miðlað honum
ástúðlegri umönnun, eins og um
eigið barn væri að ræða.
Eftir að Gestur komst á
þroskaaldur stundaði hann fyrst
í stað ýmis störf i sveit og á sjó,
en árið 1925 gerðist hann bif-
reiðastjóri. Komst hann þar með
í kynni við þau tæki, er lífs-
starf hans var bundið við upp
frá þvi. Bifreiðastjórastafinu
gegndi Gestur næstu 15 árin.
Ferðaðist hann viða um og
kynntist öllum landshlutum og
flestum vegum, sem þá höfðu
verið lagðir og færir voru bifreið
um. Á þessu timabili aflaði Gest-
ur sér staðgóðrar landfræðiþekk
ingar og persónulegra vinsælda,
sem komu honum að miklu
gagni, er hann tók við opinberu
starfi.
Árið 1941 var Gestur Ólafsson
skipaður bifreiðaeftirlitsmaður í
Reykjavik og Suðurlandsum-
dæmi en fulltrúi við Bifreiðaeft-
irlitið varð hann árið 1956. Hann
var skipaður forstöðumaður Bif-
reiðaeftirlits rikisins 1. nóvem-
ber 1962 og gegndi því starfi til
æviloka.
Vegna ytri aðstæðna átti Gest-
ur Ólafsson ekki kost á langri
skólagöngu svo sem hugur hans
stóð til. Hann var þó víðlesinn
og unni góðum bókmenntum.
Aflaði hann sér góðrar þekking-
ar og reynslu á starfssvlði sínu
og gerði sér ávallt mikið far um
að fylgjast náið með hinni öru
þróun i framleiðslu og notkun
vélknúinna ökutækja. Fór hann
m.a. oft utan til þess að kynnast
nýjungum í störfum bifreiðaeft-
irlitsmanna í nágrannalöndum
okkar.
Gestur Ólafsson átti sæti í
ýmsum nefndum sem fjallað
hafa um umferðaröryggismál.
Hann veitti forstöðu námskeið-
um fyrir atvinnupróf bifreiða-
stjóra, tók mikinn þátt í undir-
búningi vegna breytingar í hægri
umferð hér á landi, var síðan
skipaður í Umferðarráð er það
var stofnað árið 1969 og tók
virkan þátt í störfum þess frá
upphafi. Gestur gegndi einnig
margháttuðum trúnaðarstörfum
fyrir starfsfélaga sína, enda bar
hann hag þeirra ávailt mjðg fyr-
ir brjósti. Hann var formaður
Félags íslenzkra bifreiðaeftir-
litsmanna í yfir 20 ár, sat 1
stjóm Sambands norrænna bif-
reiðaeftirlitsmanna um langt
skeið og í stjóm Starfsmanna
félags ríkisstofnana á árunum
1954—1960. Þótti hann hvar-
vetna eftirsóknarverður sam-
starfsmaður, enda lá hann aldrei
á hði sinu og lagði ávallt gott
til mála.
EmbættisstÖrf sin rækti Gest-
ur af mikilli samvizkusemi.
Hann var ötull og ósérhlifinn
starfsmaður, er vildi greiða götu
allra þeirra, sem til hans leituðu.
Eins og margir aðrir þurfti hann
að ráða fram úr ýmsum vanda-
málum, stundum undir gagnrýn-
issmásjá almennings. Leysti
hann shk mál jafnan með hags-
muni þjóðfélagsins fyrir augum
en þó með þeim hætti að hlut-
aðeigendur gátu vel við unað.
Gestur var framfarasinnaður um
bótamaður í starfi sínu og hafði
ávallt það markmið að veita
samborgurunum sem bezta þjón
ustu.
Gestur Ólafsson var tvikvænt-
ur. Var fyrri kona hans Stein-
unn Sigurðardóttir, ættuð úr
Húnavatnssýslu. Þau slitu sam-
vistum. Sonur þeirra er Jón
Már, starfsmaður í Vegagerð
ríkisins, kvæntur Bjarnveigu
Valdimarsdóttur, en uppeldis-
dóttir Guðlaug Gunnarsdóttir,
fhugfreyja hjá Loftleiðum. Síð-
ari eiginkona Gests var Ragn-
hildur Þórarinsdóttir, gjaldkera
og útgerðarmanns í Vestmanna-
eyjum, Gíslasonar. Lifðu þau
Gestur hamingjusömu hfi á
fögru heimih í hópi barna, barna
barna og annara ástvina. Er nú
sorg í ranni, þegar heimllisfað-
irinn umhyggjusami hefir verið
burtu kahaður nær fyrirvara-
laust.
Með Gesti Ólafssyni hverfur
af sjónarsviði drengskaparmað-
ur, sem um langt árabU hefir
helgað starfskrafta sína barátt-
unni fyrir auknu umferðarör-
yggi í landinu og mikið hefir
lagt af mörkum á því sviði. Vin-
ir hans og starfsfélagar geyma
um hann góðar minningar.
Sigurjón Sigurðsson.
„Þú varst, góði, hvergi veill né
hálfur,
heill í orði og verki, sannleik
trúr, —
þína götu gekkstu og ruddir
sjálfur,
góður vinUm, skjól og
hlífðarmúr.
Guðmundur Guðnnindsson.“
Lúður haustsins hefir verið
þeyttur og boðar komu dauðans
í ríki náttúrunnar. Sjá ekki menn
irnir glögglega eigin sögu í
dauða og lífi náttúrunnar? Haust
ið flytur okkur flestum árstíð-
um betur, boðskapinn um þá
staðreynd, að enginn ræður sín-
um næturstað.
Inn í þennan hinn jarðneska
heim fæðumst við til mismun-
andi langrar eða stuttrar dval-
ar. Jarðlífinu lifum við, i gleöi
og sorg, meðlæti og mótlæti.
Þessa dagana horfum við á
fölnað blómskrúð og fjúkandi
haustlauf. Um sálir okkar fer
söknuður.
í dag kveðjum við góðan vin,
góðan samferðarmann, er stráði
ótal geislum á braut sína, og gaf
okkur ótal góðar stundir, um
hann eigum við bjartar minning
ar. Eins og nærri má geta, verða
þau orð, sem hér ritast, engin
ævisaga.
Gestur Ólafsson, var fæddur
að Ánabrekku i Borgarhreppi i
Mýrasýslu, 10. júní 1906. Fóst-
urforeldrar hans voru þau hjón
in, frú Guðlaug Gísladóttir og
Jón Bjarnason bóndi, síðar að
Þrándarstððum í Kjós. Frú Guð-
laug var mikil ágætiskona, at-
orka hennar og dugnaður var
frábær. Þau hjón voru samhent
um að gera bæ sinn vel þokkað-
an, enda voru þau sérstaklega
vinmörg.
Fyrsta skólaganga Gests var
hjó fósturmóður sinni, sem hann
unni mjög mikið. Gestur var frek
ar hár vexti, en vel limaður.
Svipur. hans gerðarlegur og
festulegur, allur hinn karlmann
legasti.
Þrátt fyrir erilsamt embætti,
sem forstöðumaður Bifreiðaeftir
lits ríkisins, en við því tók hann
1962, var hann vinsæll og við-
ræðugóður. Hann vildi að sér-
hver færi feginn af sínum fundi.
Gestur var maður vel gefinn,
hann las mikið, var vel máli far-
inn, hélt fast við efni málsins,
hélt fast á sinni skoðun, en gat
orðið þungur í skauti ef að hon-
um var veitzt. Gestur var manna
gestrisnastur og höfðingi heim
að sækja, glaður og reifur, allra
manna trygglyndastur. Hann
vildi allt fyrir vini sína gera. En
sviðinn var sár, ef þeir brugðust
trausti hans.
Gestur var tvíkvæntur. Börn
hans eru: Jón Már skrifstofu-
maður hjá Vegamálastjóra og
Guðlaug flugfreyja Gunnarsdótt
ir, fósturdóttir. Þau hafa nú
misst framúrskarandi föður, hinn
mesta friðsemdarmann, varkáran
og gætinn, sem lét sér mjög annt
um framtíð þeirra.
Minningin um föður þeirra,
mun verða þeim ylgjafi.
Gestur var afar blíðlyndur og
hændust afabörnin að honum,
þangað var yndislegt að flýja.
Eftirlifandi seinni kona hans
er frú Ragnhildur Þórarinsdótt
ir gjaldkera og útgerðarmanns í
Vestmannaeyjum Gíslasonar.
Frú Ragnhildur er af merkum
skaftfellskum ættum.
Þau hjón voru samhent um
mikla rausn og höfðingsskap. Á
heimili þeirra var gott að vera
gestur.
Gestur var heilsuhraustur
maður, en hin siðari ár, kenndi
hann vanheilsu, þótt lítið léti
hann á því bera. Hgnn hafði stór
brotna höfðingslund og við-
kvæmt hjarta. Allir sakna hans,
en þeir mest sem þekktu hann
bezt.
Ég sendi eiginkonu hans, börn
um, bamabörnum og tengdadótt
ur og öðrum ástvinum hans mln-
ar dýpstu samúðarkveðjur. Ég
bið honum Guðs blessunar í hin
um nýju heimkynnum á „Paradís
arsviðinu" sem hann var sjálfur
sannfærður um, að tæki við að
loknu þessu jarðlífi.
Helgi Vigfússon.
ÉG ÞÓTTIST fyrir átta árum
kunna á því full skil, hvað góður
maður er, en nú finn ég, er tengda
faðir minn er lagður í mold, að
svo var ekki. Hamn hefir dýpkað
þetta mat mitt, breytt því, gefið
því nýtt innihald. Alla tíð kom
hann upp að hlið minni með fang
ið fullt af gjöfum, fullt af ljósi
og reyndi að kenna mér að velja
það á vefstól morgundagsims. Nú
finn ég, að ég á þá ósk sonarböm
um hans, að þau líkist afa, verði
traust sem hann, hreinskiptin sem
hann, eigi tíma fyrir meðbræð-
urna eins og hann, eigi þá lotning
og traust til himnaföðurins, að
enginn dagur er svo myrkur, að
hann geti ekki sent í hann ljós,
sem svar við bæn þess, er þorir
að eiga von og keppir tii hennar.
Það var gamam að sjá hann leiða
þau, htlu bömin, á vit fegurðar
jarðar, sjá hann leiða þau í helgi
dóminn, kenna þeim að drúpa
höfði.
Já, nú veit ég hvað er að hafa
átt vin, og í dag fyllir þökkin
brjóst mitt yfir þvi að hafa
kynnzt Gesti, mér finnst lífið
betra, fegurð þess meiri. Ég gleðst
með honum á nýjum brautum, er
þess fullviss, að hann heldur þar
áfram að vera verkfæri kærieika
Guðs.
Hafðu þökk vinur fyrir allt og
allt.
Tengdadóttir.
Kveðja frá Fél. ísl. bifreiða
eftirlitsman na og starfsfólki
bifreiðaeftirlitsins.
ÞEGAR dagur var að kvöldi
kominn þann 20. ágúst sil., kvadd-
ir þú okkur, samstarfsmenn þína
við Bifreiðaeftirlátið, og kvaðst
vera að fara til Norðurlamdanna
til að kynna þér nýjungar á
starfssviði okkar bifreiðaeftirlits-
manna og þann tæknibúnað, sem
starfsfélagar okkar á Norður-
löndum hafa. Þú tókst þessa ferð
á hendur til þess að væntanieg
skoðunamstöð, sem var þitt mesta.
áhugamál, yrði sem bezt búin.
Ekki grunaði okkur þá að
þetta yrði í síðasta sinn sem við
tækjumst í hendur og sá frísk-
leiki og glaðværð, sem fylgdi þér
alls staðar væri frá okkur tekin.
Við eigum eftir dýrmætar minn-
ingar um þig sem vin, félaga og
ekki sizt sem húsbómda.
Við þökkum þér góða viðkynn-
ingu, störf þín fyrir félag okkar
og það, sem þú gerðir fyrir okk-
ur hvem og einn.
Við kveðjum þig nú með sökn-
uði og vottum eiginfconu þinni,
börnum, tengdadóttur, bama-
bömum og öðmm ættingjum
innilega samúð okkar.
Hvíl þú í friði.
Fimmtudaginn 23. síðastliðinn
barst mér harmafregn. Gestur
Ólafsson var látinn. Hann þessi
góði og mæti maður, traustur,
trúr og tryggur öllum sem
þekktu hann og í sínu starfi sem
var svo umsvifamikið og hlífði
sér hvergi.
Framhald á bls. 15.
í
Steypujárn er eitt
af mörgu sem þér fáið
hjá Byko
(og aðsjálfsögöu ífullkomnu úrvali)
BYGGINGAVÖRUVERZLUN
KÚPAV0GS sími 41010