Morgunblaðið - 30.09.1971, Page 15

Morgunblaðið - 30.09.1971, Page 15
15 . —’ ■■■» --— 1 ■ * 1 n" i"—-----TT— MORGUNIBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1971 — Minniiig Gestur Framhald af bls. 11. Það var mikið lán að dvelja á heimili þeirra hjóna, þar rikti gleði og gestrisni. Alltaf var hann glaður, ræðinn, glettinn og gamansamur. Fyrst er ég sá Gest Ólafsson 1959 fannst mér hann ofurlitið kaldranalegur í fasi, sem fljótt fór af við nánari viðkynningu. Þar sló heitt hjarta og göfugt í barmi sem bar hag þeirra smáu er máttu sín lítils í þjóðfélaginu. Þannig var Gestur Ólafsson sómi sinnar þjóðar, hann talaði ekki um sín vandamál, en spurði þá fátæku um þeirra líðan, alltaf jafn fús á að greiða götu þeirra ef unnt var. Hann var stórbrotinn persónu leiki, en stærstur var persónu- leiki hans er hann greiddi götu smælingjanna. Og sem aldrei mun gleymast mér eða öðrum sem nutu greiðvikni hans. Ég sé hann í glöðum góðvina- hópi, hrók alls fagnaðar taka lag- ið með sinni fallegu söngrödd sem alls staðar hefði notið sín, en því miður var hann of hlédræg- ur á að láta hana heyrast á al- mannavettvangi, hann kærði sig ekki um hrós, aðeins gleðja aðra og gleðjast með glöðum. Þannig var Gestur Ólafsson sem við kyeðjum í dag hinztu kveðju með sárum söknuði. Blessuð sé minning hans. Dýpstu samúð votta ég eigin- konu hans Ragnhildi Þórarins- dóttur, syni hans og fósturdótt- ur og fyrri eiginkonu hans, tengdafólki, vinum og vanda- mönnum. Steinunn Guðniundsdóttir. „Mínir vinar fara fjöld feigðin þessa heimtir köld Ég kem eftir, kannske í kvöld með klofinn hjálm og rofinn skjöld, brynju siitna, sundrað sverð og syndagjöld." Þannig orti Bólu-Hjálmar við brottför sinna vina. Svipað verður mér oft í huga. Vinirnir hverfa einn af öðrum út yfir landamæri hins óþekkta. Ein hvað er samt sælla en minn ingin um góðan vin, hraustan dreng, samnan heiðursmann? Þar birtist mér hin óbrotgjarna fyrirmynd, hinn sanni arfur, gull ið frá kynslóð til kynslóðar. Hver slíkur er ljós, sem kem- ur, lýsir — fer. Og Gestur Ólafsson var einn af þeim. Við áttum samleið og sam etarf um áratugi og þekktumst í hinum ýmsu ábökum lifsinis, í gleði og í skuggum. Hann var einn hinna beztu. Hann var eins og meistarinn sagði í sinni meitluðu mannlýs- ingu: íslendingur, „sem engin svik voru fundin í.“ Það eru stór orð og fögur nú á dögum, þegar fátt verður, sem fulltreysta má. „Lær sanna tign þin sjans ver sjálfur hreinn og frjáls.“ Það var sú manngildishugsjón, sem við áttum að takmarki, aida mótakynslóðin, þrátt fyrir litla skólagöngu. Og einmitt þess vegna lærði ég að meta Gest. 'Hahn varð mér á ýmsan hátt. Uppfylling þessarar hugsjónar í holdi og blóði, anda og sann- ieika. Drenglund hans og karl- mennska var á þann hátt, sem Snorri lýsir, „vaskur maður og batnandi", það er að segja vax- ámdi. Karlmennsku og drenglund get úr stundum fylgt nokkur harka óg steigurlæti. En bros Gests birti hins vegar Ijúflyndi hans og alúð, en um- fram allt samúð með öllu sem lifir. Éf þú varst með honum á skemmtiferð úti í sveit, þá kómstu að raun um að þessi vörpulegi, sterki maður gat tek ið á sig krók til að slíta ekki köngulóarvef í móum, styggja ekki móður aí eggjum, setja ekki sorp í leirflag mótað regni og stormi fhóður náttúru. Þannig var hann. og vildi vera öllum góður, grómtaus og hlýr, en þó fastur fyrir og óbifamleg- ur sem drangur í ölduróti, ef svo bar undir. „Lær sánna tign þín sjálfs." „Ó, faðir ger mig sigursálm, eitt signað trúarlag, sem afli blæs í brotinn hátm o.g breytir nótt i dag.“ Megi ykkur öllum verða þann ig í söknuði við kveðju, „drengs- iins góða“. Gamall samferðamaður. Ég segi þetta ekki til að hrósa Gesti. Hann á sitt hróa í vitund allra, sem þekktu hann. En þetta má ekki gleymast. Þetta er arf urinn, sem yngri kynslóðin, já, allir, sem enn ganga um garða heims þurfa að koma auga á, dá og meta, varðveita til vaxtar í samfélagi einstaklinga og þjóða. Og Gestur mátti ekkert aumt sjá án þess að vílja tíkna og hugga. En þar fór hann oft utan við alfaraleið og lét sín ekki get ið. Og í starfi átti hann þessa trú mennsku, sem nú þykir næstum brosleg. Hann vann fyrir aðra eins og sjálfan sig, leit á hag vinnuveitanda sem sinn hag, og lét sig einu gilda þótt hann al- heimti ei daglaun að kvöldum. Starf var honum blessun i sjálfu sér, þótt verður sé verkamaður launa sinna. Og Gestur átti sjón út yfir hringinn þrönga. Hann göfgaði guðstrú sína og eilífðar sýn með hugleiðslu, lestri og á ferð um fagrar jarðarslóðir. „Fögur er foldin heiður er Guðs himinn“, var líkt og meitlað í þrár hans og hjartslátt. Og þannig getur mannsbam á jörðinni vavðveitt ástarþrá sína unga og gjöfula langa leið Og ástin gefur sumar og sælu. Og þótt þati Gestur og Ragna ættu ekki samleið fyrr en seint á ævinni, tvær fullorðnar mann- eskjur, þá var Guð þeim góður. Þau voru hamingjusöm. Það var aftanskin, en samt morgunn lífs og vona. í raun og veru voru þau ennþá ung. Þrátt fyrir minningar frá mörgum árum, áttu þau enn þá hæfileikar.m til að ejska, vera glöð og góð. Líf þeirra saman líkt og brúðkaupsreisa. „Vesalings hjartkæra hugljúfa þrá,“ segir eitthvert skáldið um þennan loga í hjörtum okkar eldra fólksins. En er það ekki þessi dulda þrá hjartans, þessar Iifandi lindir undir hrauninu, sem gefa lífinu lit og dögun þess gildi og gerir þá verða þess að lifa og starfa, hlakka til og finna bæði sælu og söknuð, vita að himn- eskt er að lifa. Frænka mín, þetta er ekki ævi minming ástvinar þín-s. Fá ár, nokkrir dagar, já „eitt augnablik helgað af himinsins náð, oss hefja til farsældar má.“ Auknablikið, sem helgað er af Guðsloga felur i sér eilífð og helgar bæði gleði og sorg, minn ingar og vonir sem gull úr hönd um Alföður. Guð huggi þig, með þeirri vissu I og ykkur öll, sem vissuð, hver I vinur hann var. Minning hans verkar svalandi og huggandi. Hann var svo sann I ur maður og hugljúfur. Mér fannst oft, ekki sízt á ndum vonbrigða og í vanda l'kt og þessi bæn skáldsins væri skráð logaletri í vitund hans: í DAGLEGRI umgengni við menn eins og Gest Ólafsson er dauðinn eins og hver ainmar óraunveruleiki. í starfi hans, sem var mjög erilssamt og ábyrgðarmikið, er vart hægt að hugsa sér meiri vel- vilja eða drenglund en fram kom -hjá honum. Öll störf hams voru unnin af hógværð og tillitssemi við þá, sem áttu við hann erindi. Það má segja að hver einasti bíleígándi þessa lands hafi á ein- hvern hátt, beint eða óbeint, átt við hann samskipti. Starf hans var meðal annars fólgið í því að halda til haga sögu hverrar einustu bifreiðar, sem skráð hefur verið í þessu landi. Anrnað aðalstarf hams var að vaka- yfir velferð samborgara sinna, með stöðugu eftirliti á bifreiðaeign landsmanna, þan.nig að þeim stafaði sem minnst hætta af. Það féll í hlut Gests, ásamt Jóni heitnum Ólafssyni, að móta Bifreiðaeftirlit rSkisins. Slik stofnun er mismetin eins og eðli- legt er. Almenningur vill fá góða þjón- ustu, sem gengur hratt og vel fyrir sig, en bíllinn, sem er að hálfu leyti skráður sem fasteign, gengur manma á milli sem lausafé. Öðrum þræði vill fólk ekki sætta sig við skriffinnsku- bákn kerfisinis en kxefst samt fyllsta öryggis um sögu farar- tækisins frá upphafi. Þerman starfa hafði Gestur með höndum í áraraðir og við mjög erfið starfsskilyrði. Velvild hans var einistök. Venzlafóllki hans er vottuð samúð. Þf. LESIÐ DRCLECR Royal íbúBir óskast HÖFUM KAUPANDA AÐ ÖLLUM STÆRÐUM ÍBÚÐA OG EINBÝLISHÚSA. í MÖRGUM TILFELLUM ER UM MJÖG HÁAR ÚTBORGANIR EÐA STAÐGREIÐSLU AÐ RÆÐA. VINSAMLEGAST LÁTIÐ SKRÁ ÍBÚÐIR YÐAR SEM FYRST. MIÐSTÖÐIIM KIRKJUHVOLI SÍMAR 26260 26261 HEIMASÍMI SÖLUSTJÓRA 84417. mokarinn mikli frá BM VOLVO Stór hjól; drif ó tveim eða fiórum h|ólum; mismunadrifslós; 80 ha. dieselvél með beinni innspýtingu; rúmgott og hljóðeinangrað örygg- ishús með Volvosæti; vökvastýring; liðlegur og kraftmikill í ómokstri; lyftir, staflar, dregur, ýtir. Allar upplýsingar um LM 621, LM 641, og aðrar ómokstursvélar fró BM Volvo eru óvallt til reiðu. ámokstursvél LM 641-621 K9 Suóurlandsbraut 16*Reykjavik*Simnefni Volver*Simi 35200 Fræðslumnlashriislofan er flutt í fræðslumáladeild Menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, fjórðu hæð. Sími er hinn sami og í Stjómaráðinu, nr. 25000. FRÆÐ SLUMÁLAST JÓRI. Laus staða Staða bókara á aðelskrifstofu verksmiðjunnar á Akranesi er laus til umsóknar. Verzlunarskólapróf eða tilsvareodi menntun áskilin. Umsóknarfrestur til 15. okt. 1971. Laun skv. launakerfi starfsmanna ríkisins. SEMENTSVERKSMIÐJA RlKISINS. Afgreiðslustörf Stúlknr óskast til afgreiðslustarfa hálfan daginn í fataverzlun í Miðborginni. Tilboð er greini aldur og fyrri störf sendist í afgr. Mbl. fyrr 1. okt. merkt: „Strax — 3067“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.