Morgunblaðið - 30.09.1971, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1971
21
>
- V.R.
Framhald af bls. 32.
hefur stórleg'a eflzt og hefur
sjaldan staðið í meiri blóma en
nú.
3. Á sl. sutnri urðu mikil
straumhvörf í stjórnmálum á ís-
laindi, sem leiddu af sétr að á
rniðju sl. sumiri var mynduð rikis
stjórn, sem i stjórnarsáttmiála sín-
um gaf launþegum í hinu frjálsa
atvinnulífi ákveðin fyrirheit um
kjarabætur.“
Um 1. lið þessarar greinagerð-
ar sagði Guðmundur ennfremur:
— „í desember 1970 gerði Banda
lag starfsmanna ríkis
og bæja samning við
fjármálaráðherra sem fól í sér,
að opinberir starfsmenn fengju
auk 15% almennrar kauphaekk-
unar, sem þeir höfðu fenigið sum-
arið 1970, 16—74% kauphækkun
ofan á þá hækkun. Munu þessir
samining*- vera einhver mesta
bylting sem orðið hefur í samai-
ingagerð á íslandi, svo vitað sé.
Sem dæmi má nefna, að bilið
á milli hins hæst- og lægstlaun-
aða varð við þá rúmlega 400%,
og verða laun sumra æðstu emb-
ættismanna þjóðarinnar komin
upp í rúmlega 70.000 krónur á
mánuði 1. júlí 1972. Hliðstæðar
hækkamir urðu hjá starfsmömn-
um Reykj avíkurborgar og sveitar
stjórna í samni'ngum um miitt
þetta ár. Eninfremur gerðu bank-
arnir sérsta'ka samininiga við sam
tök bankamanma, sem fólu í sér
sambærilegar hækkanir til starfs-
manna bankanna og opin-
berir starfsmenn höfðu áður
fengið.“
M. a. á fyrrgreindum forsend-
um ítrekaði Guðmundur H. Gai'ð
arsson þá sérstöðu sem VR hefur
inman sameiginlegrar_ kjara- og
samninganefndar ASÍ. Þá sagði
hann eninfremur:
— „Myndun þessarar ríkis-
stjórnar og fyrirheit hennar hafa
skapað ný viðhorf hjá ýmsum
forystumönnum verkalýðsihreyf-
ingariinmar varðandi það, hvernig
skyldi standa að saminingum í
haust. Til marks um það hversu
viðhorf hafa breytzt má geta
þess, að í 1. maí ávarpinu 1971
voru allir sammála um að krefj-
ast þess, að lágmarkskaup skyldi
ekki vera lægra en 20.000 krónur
á mánuði, en í umiræðum um
væntanlega kröfugerð hefur
margoft komið fram hjá stuðm-
ingsmönnum ríkisstjómiarinnar í
verkalýðshreyfingunni, að ekki
er stefnt að því nú, að í þessum
samniingum takist að ná þessu
marki fyrr en þá í lok þess samm
inigstímabils, sem í hönd gengur,
en ýmislegt bendir til að sumir
þeirra muni geta hugsað sér að
samið verði til tveggja ára mið-
að við 1. október 1971.“
Loks gerði Guðmundur grein
fyrir þeim tillögum til kröfu-
gerðar sem fimm manna kjararáð
hafði undirbúið. Er þar gert ráð
fyrir, að samkvæmt nýrri flokka
uppstillingu séu í A-flokki, sem
er meginkjarni samningsins, 12
undirflokkar. I fyrsta flokki A,
sem er neðsti flokkurinn, er gert
ráð fyrir, að byrjunarlaun
(grunnlaun) verði 16.667 kr. á
mánuði og í 12. flokki A, sem er
efsti flokkurinin, er gert ráð .fyrir
að byrjunarlaun verði 38.333 kr.
Ofan á þessar tölur reiknast svo
vísitala, sem er 7,19%.
Þá ræddi Magnús L. Sveinsson,
varaformaður VR, um önnur atr-
iði samningsins, þ. á m. varð'andi
vininutímastyttingu og orlofslemg
ingu.
í sambandi við vinnutímastytt-
inguna kom fram, að gert er ráð
fyrir að dagvinmutíma ljúki kl.
18, og dagvininuviku verzlunar-
manna verði lokið kl. 18 á föstu-
dögum. Það sem unnið væri fyriir
utan þann tíma í verzlunum
fengi stairfsfólkið greitt með yfir-
vimnuálagi, eða feragi frí aðra
daga vikuninar á móti unnum yfir
vinnutíma.
Nokkrar umræður spuninust
um þetta atriði, og var samþykkt
að með tilliti til skiptivimnu yrði
ráðið fólk í stað þess sem femgi
frí, til þess að forða verzlunar-
fól'ki frá of miklu vinnuálagi.
Að öðru leyti var fundurinin
mjög einhuga um þær kröfur,
sem fram voru lagðar.
Fundarstjóri var Elías Adolphs-
soin.
— Thieu
Framhald af bls. 1
verkamönnum, sem vaðið hafa
uppi í landinu að undanförnu,
en ekki fyrr en að kosningunum
afstöðnum.
Flest hryðjuverkin hafa verið
framin til að^ mótmæla því að
Thieu skuli vera einn í framboði.
Talið er fullvíst að Thieu nái
kosningu á sunnudaginn. Ástæð-
an fyrir fyrirskipuninni nú er
talin sú að í morgun sprakk
sprengja í veitingahúsi í Saigon,
sem stórslasaði 24 óbreytta borg
ara, sem sátu þar og snæddu
morgunverð .
— Bann
Framh. af bls. 1
veiðiráðstefna Vestur-Evrópu
fordæmir einróma þá áætlun Is-'
lands og færa einhliða fisk-
veiðilögsögu sína út fyrir 12
milur. Afleiðingarnar yrðu bæði
alvarlegar og víðtækar fyrir all-
an fiskiðnað í Vestur-Evrópu.
Ráðstefnan samþykkir i sam-
ræmi við það að þau lönd, sem
eiga hér fulltrúar, biðji rikis-
stjórnir sínar að gera Islandi
það alveg ljóst, að útflutnings-
vörur þess verði ekki leyfðar í
þessum löndum, ef það heldur
fast við þá ólöglegu ákvörðun
sína að færa landhelgina út fyr-
ir 12 milur. Fulltrúar þeirra
landa hér, sem eiga aðild að
Efnahagsbandalagi Evrópu,
skulu einnig fara fram á að
bandalagslöndin geri sömu ráð-
stafanir.
Þessi tillaga var samþykkt af
þeim, sem sátu ráðstefnuna.
- Kína
Framhald af bls. 1
muni ekki halda sína árlegu
ræðu í möttökunni. Erlendir
fréttamenn hafa mikið reynt að
kornast að því hvort hann verð-
ur yfirieitt viðstaddur móttök-
una, en utanríkisráðuneytið hef-
ur ekkert viljað láta uppi um
það. Talsmaður ráðuneytisins
sagði að upplýsingar um það
myndu ekki liggja fyrir fyrr en
á fimmtudag.
Talsmaðurinn sagði einnig að
ástæðan til að veizlunni væri af-
lýst, væru „breytingar", en það
er sama ástæða og gefin hefur
verið fyrir þeirri ákvörðun að
hafa ekki skrúðgönguna á þjóð-
hátíðardaginn. Þrátt fyrir ítrek
uð loforð um nánari skýringar,
hafa engar slíkar komið frá
stjórnvöldum.
— Ahorfendur
Framhald af bls. 30
man sem skoraði með fallegu
skoti óverjandi fyrir Þorstein
markvörð. Fjórða mark Totten-
ham var svo skorað örskömmu
fyrir lok fyrri hálfleiiks og var
þar Ralph Coates á ferðinni.
Á 13. min síðari hálfleiks skor-
aði Chivers 5:0 með skalla og á
21. min bætti Knowles bakvörð-
ur sjötta markinu við. Gilzean
skoraði svo sjöunda markið á
32. min og á 33. min var hann
aítur á ferðinni og skoraði 8:0.
Níunda og síðasta markið kom
svo skömmu fyrir leikslok og
var það Philip Holder sem skor-
aði það.
Bezta tækifæri Keflvikinga
kom seint í siðari hálfleik, en
þá komst Birgir Einarsson frír
inn fyrir vörn Tottenham, en
Jennings, markvöi'ður, náði að
verja.
Lið Tottenham í leiknum var
þannig skipað:
Jennings, Evans, Knowles,
Mullery, Beal, Coates, Perry-
man, Chivers, Peters, Gilzean og
Holder.
Lið Kefiavíkur var þannig
skipað:
Þorsteinn Ólafsson, Ástráður
Gunnarsson, Ingimundur Hilm-
arsson, Einar Gunnarsson, Guðni
Kjartansson, Gísli Torfason,
Ólafur Júliusson, Karl Her-
mannsson, Steinar Jóhannsson,
Hörður Ragnarsson og Birgir
Einarsson.
Dómari í leiknum var Coppel
frá Sviss.
■\x . • - .
einkenni þeirra sem klceðast
KORÓNAfötum
^JGLÝSfNGASTOFA KfllSTlNAR 7.14