Morgunblaðið - 30.09.1971, Page 28

Morgunblaðið - 30.09.1971, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1971 ófært, að þú sért ein þins liðs allt kvöldið. Ég fyrtist hálfgert, en þakk- aði henni samt og lagði símann á. Það var iangt þangað til ég þyrfti að fara að búa mig, og þessi bið ætlaði mig alveg lif- andi að drepa. Ég fór fram í eldhús og útbjó Pörulaust Ali Bacon Við skerum pöruna frá fyrir yður. Það er yðar hagur. Biðjið því kaupmann yðai aðeins um ALI BACOW SlLDSFISKUR og át niðursuðuna með ólyst. Ég gaf I-am að éta, en hún hafði setið um mig með eftirvænt- ingu. Ég þvoði diskana, kveikti mér i sígarettu og settist á legu bekkinn. En svo greip mig þessi hugs- un, sem ég hafði verið að berj- ast við, og orkaði á mig eitts og höfuðhögg. Setjum nú svo, að mér tækist ekki að ná í bréfið mitt? Það var gjörsamlega úti lokað að ég gæti gengið að skil- málum Melchiors, því að hvar gat ég svo sem náð í upphæð- ina, sem hann fór fram á? En ef ég gæti nú ekki heldur feng- ið hann með hótunum um lög- sókn eða með skammbyssunni, til að afhenda mér það? —- Jæja, jæja. Okkur getur nú öllum orðið sitthvað á, mundi Hue segja blíðlega. Ja, svei! Ég kveikti mér í annarri sígarettu og sat í sjúklegum hug leiðingum um skilnaðarstund okkar. Og svo grét ég dálítið, allt þangað til ég minntist þess, að ég mátti ekki eyðileggja á mér andlitið fyrir samkvæmið. Jæja, er allt færi á versta veg gat ég samt lifað. Ég stóð upp, drap i sígarettunni í bakk- ítalskt Pizzapie Tuttugu tegundir. Daglega baetast nýjar við. Tvær stærðir. Nýjasta teg. er Spaghetti pizza. Hentar við flest tækifæri. Pantið í síma 34780. SMÁRAKAFFI, l.augavegi 178. Verktakar - vélaleigur • r Utvegum loftpressur Chicago árg. 1963/4, 5 hamra. 4 hjóla, 260 cfm, kr. 380.000,00. Broom Wade árg. 1967, 2 hamra, 4 hjóla, 125 cfm. kr. 206.000.00. Broom Wade árg. 1965/6, 3 hamra, 4 hjóla, 160 cfm., kr. 198.000.00. Broom Wade árg. 1967, 2 hamra, 2 hjóla, 125 cfm., kr. 198.000.00. (Söluskattur ekki innifalinn). Pressurnar eru sem nýjar 3ja mdnaða dbyrgð Bílasalan Halnariirði LÆKJARGÖTU 32 — SÍMI 5-22-66. anum — sem var gjöf frá Hue - og leit á smelltu klukkuna lika gjöf frá Hue — Það voru enn tveir tímar til stefnu. Or gömiu nafnabókinni minni skrifaði ég upp nöfnin á lista- mönnunum, sem ég hafði unnið hjá áður, og skrifaði „Hringja á mánudaginn", efst á listann. 1 skápnum bak við rúmið mitt, gróf ég upp pappakassa með myndum af mér, og augiýsing- um úr tímaritum þar sem ég sást auglýsa allt frá prjónakjól um til tannsápu. Ég valdi þær beztu úr og stakk þeim í um- slag, ásamt listanum, og lagði á borðið. Ef ég þarf að vinna fyrir mér, þá það, hugsaði ég. Ég er enm ekki dauð úr öllium æðum. Svo grenjaði ég svolitið meira en þá var kominn tími til að búa sig uppá. 1 ánnað skipti þennan sama dag, opnaði ég Skápinn með heimanbúnaðinum mínum og horfði á röð af kjólum. Hvítt. Karlmenn kunna vel við það, kannski vegna þess, að það gef ur til kynna hreinleika og vek- ur hjá þeim löngun til að þreyta því. Ég var lengi að klæða mig, en það var tilvinnandi. Ég vildi sýnast vera eitthvað. Ég myndi hrífa Melchior Thews — já, og Flóru líka — og fá þau til að líta upp. Loksins — og með tals verðum söknuði — tók ég af mér trúlofunarhringinm og lagði hann til hliðar, ásamt armbands úrinu, sem Hue hafði gefið mér. Það dugði ekki að fara að halda slíka sýninigu fyrir Melchior. Kannski mundi ég líka aldrei setja þetta upp oftar. Ég fór í svörtu flauelskápuna mína og gáði í veskið mitt til að sjá, hvort þar væru pening- ar og sígarettur. Ég heyrði þyt inn í rigningunni úti fyrir, og lokaði gluggunum. Ég dró upp klukkuna og setti fram auka- skál, með mat handa kisu, og horfði á hana ráðast á matinn með græðgi, rétt eins og hún hefði ekki étið slg sadda fyrir fáum klukkutímum. Og loks, þar eð ég vissi, að sumir geta aldrei neitt lært, þá tók ég byssuna úr veskinu og setti hana í samkvæmisveskið. Það seinasta, sem ég heyrði, var glamrið I skálinni þegar kisa var að ljúka við að sleikja hana. Reuben, lyftumaðurinn, fór til að blístra á leigubíl fyrir mig. Ég beið á meðan og horfði á regmið dynja á gangstéttinni, og skalf dálitið. Þegar bíllinn kom, hjálpaði Reuben mér upp i hann og pikkaði mig um leið í höfuðið með regnhlífinni sinni. — Hvar er hr. Breamer? sagði hann og dokaði við, með- an regnið dundi á mér. — Þér eruð þó ekki að fara út án hans? — Hann gat ekki komið, svar aði ég stuttaralega. — Lokaðu dyrunum sem fljótast, Reuben. Skárri var það nú ósvífnin! En mér datt í hug, með nokkrum kvíða, að ég hefði átt að múta honum til að halda sér saman. IV. Þegar til Lintons kom, þrýsti ég á lyftuhnappinn, og meðan ég beið, strauk ég dropana af kápunni minni. Nú, þegar loks- ins var að því komið að hitta Merchior, hafði og ónotalegan skjálfta, og var næstum búin að missa veskið með byssunni í — þetta virtist vera að komast upp I vana, — að missa hana, á ég við. Ég óskaði þess heit- ast að ég hefði haft vit á að fá mér einn strammara, áður en ég fór að heiman. Lyftan stanzaði með dynk og áður en ég var almennilega kom in út úr henni, kom Whitfield fram, buktandi og brosandi, ef vera kynni, að ég væri eitthvað feimin. — Gaman að þú gazt komið. Flóra verður fegin að sjá þig, sagði hann, sumpart fyrir kurt- eisi sakir en sumpart vegna þess að hann gat sjaldnast sagt heila setningu, án þess að nefna nafn hennar. -— Það var líka fallega gert af ykkur að bjóða mér, sagði ég og hugsaði með mér með hálf gerðri gremju, að gaman mætti það vera að vera svona heitt- elskaður. Og hafa auk þess nóga peninga og listgáfu og þjóðfé'lagsstöðu. Ég fór að velta því fyrir mér, hvort Flóta hefði nokkum tíma þurft að berjast fyrir þessu öllu-, eins og ég þurfti að gera. Hugsunin um, að hún yrði fyrir fjárkúgun, eða hefði nokkurn tíma gefið tilefni ti'l þess, var svo fjarstæð, að ég var næstum farin að sveia upp- hátt. Kannski var hún metorða sjúk, eins og sumir sögðu, um leið og þeir gerðu gys að upp- gerðar brezka málhreimnum, en hvað um það? Hún var komin til metorða og svo ekki meira um það. Þegar ' upp var komið, stakk Whitfield fingri í bakið á mér oig beindi mér þannig inn í frú- arstofuna til vinstri. — Komdu svo upp þegar þú ert tilbúin, sagði hann og þaut síðan upp stigann upp á næstu hæð þar sem samkvæmið var. Hávaðinn gaus á móti mér — útvarpstónlist, óp, hlátur og há vært samtal og svo skröltið í kokteilhristinum. Það var skammarlegt að ég skyldi ekki vera frjáls að því að njóta þessa aUs. Það var svo skemmtilegt. En Melchior Thews var þarna uppi. Það var fullslæmt að þurfa yfirleitt að sjá hann, en þetta með bréfið nálgaðist mar- tröð. Mig langaði mest til að taka til fótanna og forða mér. Hetta, sem var i frúarstof- unni, tók mér með þeirri kurt- eisi, sem hún taldi hæfilega fyr- irsætu húsbænda sinna, sem væri af henni óskiljanlegum ástæðum verið tekin sem gestur. Það hvein í stóra nefinu á henni þegar hún tók við kápunni minni og hristi af henni vætuna og hengdi hana síðan í skáp, sem var fullur af alls konar fiinum yfirhöfnum. — Þakka þér fyrir, Hetta sagði ég drembilega um öxl mér, og settist niður við snyrtiborð Flóru. — Nú get ég bjargað mér sjálf. Þessi kvenmaður olli mér velgju þar sem hún var að snigl ast þama. Hún hvæsti enn einu sinni áður en hún för, og að- gætti um leið, hvað væri nú þarna inni, og hvers myndi síð- ar saknað. Þetta herbergi kunni Flóra bezt við á allri hæðinni. Það var innréttað í frönskum stíl með alls konar smáhlutum og var viðeigandi umgerð um grannt vaxtarlag Flóru. Það ilmaði líka rétt eins og hún. Ég leit um öxl til þess að verá viss um, að Hetta væri farin, og tók siðan að taka tappana úr ilmvatnsflöskunum og lokin af öskjunum og soga að mér ilm- inn af fegrunarmeðölum Flóru. Ég fylltist öfund. Sjálf mundi ég hafa allt þetta innan skamms. Já, það skyldi ég, svei mér þá. Og það þyrfti eitthvað meira en lúsablesa eins og Mel- chior Thews til þess að koma í veg fyrir það. Ég leit í spegil- Hrúturinn, 21. marz — 19. apríL CJerðu það sem heilhrigð skynsemi hýður l>ér. Nautið, 20. apríl — 20. maí. I»ú ættir ekki að láta ffanga »f mikið á þinn lilut. Tviburarnu', 21. mai — 20. júni. I»ú ffræðir mest á því að sýna rósenii ojí umburðarlyndi. Krabbinn, 21. júní — 22. júlí. I»ú ffetur verið ksítur off hress »ff tekið því sem sið höndum her. I.jónið, 23. júlí — 22. ágúst. Ef þú reynir að fara of ítarlegsi út í smáatriðiii verður allt of flókið. Meyjar, 23. ágúst — 22. september. Mikil rinffulreið hlýzt af því að kafa of djúpt í staðreyndir. Vog’in, 23. september — 22. október. I»ú skalt lyftu þér upp. Merkileffíir ákvarðanir sitja á hakanum. Sporðdrekinn, 23. oktcíber — 21. nóvember. Xú er mikilvæfft sið dreifsi ekki huffanum. Bogmaðurinn, 22. nc>vember — 21. desember. Marffar ffóðar huffmyndir verðsi að verulelka í krinffum þiff. Steingeitin, 22. desember — 19. janúar. Skyiidiákvtirðsmir baka óþíeffindi, ekki aðeins öðrum, heldur off sjálfum þér. Híddu róleffur. Vatnsberinn, 20. janúar -— 18. febrúar. I»ú skalt faffna því að vera ekki með í hverjum leik. Fiskarnir, 19. febrúar — 20. marz. l»ú verður ;«ð inuna að skipuleffgrjsi tíma þinn jafnvel off fjsírút- látin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.