Morgunblaðið - 01.10.1971, Side 18

Morgunblaðið - 01.10.1971, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 1971 — Flandrað um Evrópu Framhald af Us. 17. ettir þriggja tima ílug, og var þá orðið áMtið kvölds. Flugvölluriim er í einkaeign og var augljóst, að umferð var þar lítil. Allt starfsfólk flugvallar- ins var í óða önn að snúast í kringum þessa einu vél, og reyndi að gera allt sem bezt úr garði. Sá galli var þó á gjöf Njarðar, að ekki fékkst þar matarbiti, utan fjórar brauð- sneiðar, og voru þeim gerð góð skil. Þegar upplýsingar um veður í Alsír bárust, var sýnilegt, að nokkur seinkun yrði á brottför frá Forli, þvi þoka, eða öllu heldur hitamistur, hafði lokað flugvellinum í Algeirsborg. Var þvi ákveðið að láta fyrir berast á flugvellinum i Forh í f jóra tíma. Eftir að hafa blundað dágóða stund, héldum við af stað og stefndum að því að verða komnir til Algeirsborgar í morgunsárið, fullvissaðir um, að þegar sólin kœmi upp hyrfi mistrið. 1 Alsír var loftslag mettað raka og hitinn 26°C, þótt klukkan væri aðeins sex að morgni. Á móti okkur tók hópur innfæddra, dökkir á brún og brá. 1 fyrstú reyndist erfitt að skilja þá, þar eð málakunn- áttu beggja aðila var mjög áfátt. Fljótlega kom þó ensku- mælandi embættismaður, borða lagður mjög og var hans fyrsta verk að banna blaðamanni notkun myndavélarinnar, að viðlögðu fangelsi. Eftir tæpra tveggja tíma skriffinnsku, fórum við inn í afgreiðslusal flugstöðvarinnar og þáðum sinn kaffibollann hver og eftir að hafa bragðað á þvi, þótti bezt að hugsa sér einhvern annan drykk en kaffi. Klukkan var nú farin að nálg ast átta og fólki f jölgaði í brott fararsalnum. Við veittum þvi athygli að úti fyrir bygging- unni fjölgaði einnig stöðugt bláklæddum lögreglumönnum, og lagður var rauður dregill á flugvölhnn. Að vörmu spori kom þarna að rússnesk flug- vél af gerðinni IMjusin 18 og var henni lagt við endann á rauða dreglinum. Eftir að hafa leitað fregna hjá fjölda manns tjáði okkur loks einn innfædd- ur, að forseti Nigeríu, Gowan hershöfðingi, hefði daginn áð- ur komið i opinbera heimsókn til Alsír. Væri hann nú á för- um, og mætti búast við mik- ilM kveðjuathöfn á flugvelMn- um. Ekki gafst okkur þó tæki- færi til að fylgjast með þeirrí athöfn og brátt var Alsír að baki og næsti áfangastaður var Trieste á Italíu. 1 Trieste dvöldum við í hálf- an annan sólarhring, og höfð- um því tækifæri til að skoða borgina að Htlu leyti. Trieste er fögur borð og er þar að finna nær því ósnerta byggingarHst 18. aldar, söfn frá tímum Róma veldis, þar sem m.a. eru minj- ar frá einu elzta þinghúsi Róm- verja. Nútíma breiðgötur um- lykja ýmis fögur torg, sem tím- ans tönn hefur ekki megnað svo neinu nemi að umbreyta frá miðöldum. Mirimare kastalinn, sem stendur í úthverfi borgar- innar, hefur án efa verið mik- ilfengleg bygging á þeim tíma sem hinn harðskeytti keisari Mexikó, Maxmilian, reisti hann og notaði sem sumarhöM. Stendur hann á sjávarhömrum og er enn glæsilegt tákn ný- gotneska stilsins, sem var ríkj- ancM í byggingarlist heldri manna siðustu aldar. Ibúar Trieste eru mjög bland- aðir, bæði Júgóslavar, Þjóðverj- ar, Arabar og Italir, sem er stærsta þjóðarbrotið. Þeir hafa ýmist tilheyrt slavneskum þjóð um, Þýzkalandi eða Italíu, en eftir síðustu heimsstyrjöld var þar stofnað fríríki, sem var sjálfstætt um nokkurt sikeið, en síðan innlimað i Italiu. Að kvöldi næsta dags var svo haldið af stað til Bengazhi i Lýbíu og lent á Benini-flug- velli síðla kvölds. Benini-flugvöllur var um mitt sumar mikið í fréttum, því þar var VC-10 flugvélin frá BOAC neydd til að lenda þann 22. júlí og tveir farþegar, El-Noor og Osmann, sem voru á leið frá London til Kartoom i Súdan, handteknir. Voru þeir báðir á leið til Súdan til að taka við æðstu embættum í hinni nýju byltingarstjórn kommúnista, en skömmu eftir að þeir höfðu verið handteknir, kom tilkynn- ing um að gagnbylting hefði verið gerð i Súdan og Numeiry aftur tekinn við völdum. Voru þeir þá sendir til Kartoom í fygld sendinefndar frá Líbýu, og líflátnir þar eftir að bylt- ingardómstóMinn hafði fjallað um mál þeirra. Á flugvellinum tók á móti okkur hópur starfsmanna og vakti það athygli okkar, að all- ir, að tveimur undanteknum, voru klæddir samkvæmt gam- alli hefð Múhameðstrúarmanna, í síðum kufli með rauða koU- húfu. Hinir tveir, sem klæddir voru að sið Evrópumanna, réyndust vera yfirmenn flugvallarins, og voru báðir á að gizka 25 ára gamlir. Þetta reyndust vera mjög alúðlegir menn, og eftir að gengið hafði verið frá fylgi- skjölum, buðu þeir okkur upp á veitingar. Ræddi blaðamaður þá góða stund við annan þeirra, og var hann mjög vel upplýstur um land sitt og stjórnarfar þess. Byrjaði hann á því að lýsa landinu, kostum þess og göll- um. Hann sagði að íbúar Lýbíu væru um tvær milljónir, og væru tekjur á hvem ibúa áætlaðar 1.900 doMarar árið 1971. Með þeim hefur Lýbíu- stjóm keypt til landsins 35 þús- und Egypta og 15 þúsund Túnisbúa til að stjórna skól- um og þjónustustofnunum, og hjálpa til við að koma i fram- kvæmd 840 millj. dollara fjár- hagsáætlun til þróunarmála — aðeins fyrir árið 1971. — Lýbía er nú róttækast, næstum því auðugast, og þó.lítt þekktast meðal allra Araba- landa, sagði hann. Svo er olíu fyrir að þakka, að tekjur á hvern íbúa hafa hækkað um 5000% á áratug. f júlilok lét Lýbíustjórn hætta allri erlendri menningar- starfsemi i landinu nema tungu málakennslu. Stórfyrirtæki í eigu útlendinga hafa verið þjóðnýtt og bandarískum og brezkum stöðvum lokað. Gerðir hafa verið harkalegir samning- ar við olíufélögin; t.d. hafði verið málað yfir merkin á þeim olíubílum, sem voru á flugveH- inum. Aðeins arabískt letur má koma fyrir almenningssjónir, en á flugvellinum voru á hin- um arabískletruðu skiltum einnig óverulegar teikningar af merkingu letursins. — Gaddafi ofursti, sem fer með öll völd í Lýbiu er 28 ára gamall. Hann komst til valda þegar Idris konungi var steypt af stóli fyrir tveimur árum. Þegar Lýbia varð sjálfstætt ríki 1951, undirritaði Idris vam arsáttmála við Breta, sem var veittur réttur til að hafa herstöðvar í landinu gegn þvi að þeir veittu vemd gegn erkióvininum, Egypt- um. Nú er hins vegar svo kom- ið, að Lýbia er komin í stjórn- arsamstarf við Egyptaland, Súdan og Sýrland og er til- gangurinn að sameina rikin í stríðinu gegn fsrael. — Gaddafi er að mörgu leyti mjög merkur, sagði Lýbíumað- urinn. Hann hefur bætt fjár- hagslega stöðu einstaklingsins innan ríkisins til muna og virð- ist vinna að því að þjóðin fái sjálf að njóta þeirra náttúru- auðæfa, sem landið býr yfir. Hann hefur bætt aðstöðu bændastéttarinnar til stórra muna og lætur t.d. herinn að- stoða við uppgræðslu jarðvegs- ins langt inn i eyðimörk. — Lýbía er einstakt land fjárhagslega séð. Þar er aldrei unnt að eyða öllum þeim pen- ingum, sem samþykktir eru með fjárlögum ár hvert og það eina sem íbúana skortir er þekking, sem þeir verða að leita út fyrir landsteinana, m.a. með því að flytja inn leiðbein- endur frá öðrum löndum. Eftir u.þ.b. klukkutíma rabb um Lýbíu og Arabalöndin, buð- ust þessir yfirmenn flugvaUar- ins til þess að sýna okkur helztu mannvirki þar. Þegar við koraum upp í ílugturninn hittum við fyrir tvo Egypta og aðspurður sagðist annar þeirra hafa verið á vakt, þegar brezku flugvélinni, sem áður er getið um, var rænt. Vildi hann sem minnst um það tala og sagði, að þeir hefðu aðeins verið að framfylgja skipunum frá stjómvöldum landsins. í Trieste höfðu þau skilaboð borizt að fyrir lægi flug frá París til Ojuda í Marokkó, og var því stefnan tekin á Paris. Eftir u.þ.b. fjögurra tíma flug voru fyrstu geislar morg- unsólarinnar farnir að skína og fram undan voru Alpafjöllin. Við flugum yfir Mount Blanc, hæsta fjaM Evrópu. Toppur þess var baðaður sólskini, en niður í dölunum, sem voru að nokkru huldir þoku, voru enn leifar liðinnar nætur. Þegar við flugum yfir Frakkland var himinninn heið- skír og niður undan okkur sá- um við landslagið, flatt en lit- skrúðugt. Farmurinn, sem flytja átti til Marokkó var nokkuð annars eðlis en sá sem v*ið höfðum áður flutt í þessari ferð, nefni- lega rúmlega 90 Arabar, sem unnið höfðu í Evrópu í fjóra mánuði til að kynnast atvinnu- háttum þar. Skömmu eftir að við vorum komnir til Parísar, lenti þar önnur vél frá Fragtflugi, sem ætluð er til farþegaflutninga og var hún að koma frá Marokkó út Arabaflutningum. Brottför var áætluð kl. 6 um kvöldið, þannig að tími gafst til að fara á hótel og hvílast í nokkurn tíma. Þegar komið var út á flug- völl um kvöldið voru þar fyrir þrjár flugfreyjur, allar belgísk- ar, en Fragtflug hefur, eins og fyrr er sagt, samstarf við belgíska flugfélagið Pommair að því leyti að þeir leigja þeim og fá leigðar áhafnir og voru þessar stúlkur flugfreyjur hjá því félagi. Eftir að gengið hafði verið frá öllum undirbúningi og far- þegarnir voru komnir um borð, var haldið af stað, i þetta sinn með farþegaflugvélinni TF- OAD. Brátt var farið að skyggja og þegar komið var yfir suðurhluta Frakklands var orðið aldimmt. Yfir Pyrenea- fjaUgarðindum og út eftir ströndinni var þykkt belti af þrumuskýjum. Þegar flogið var í gegnum þetta belti var eins og siglt væri í ólgusjó, enda gerðu innyfM flestra farþeg- anna uppreisn. Úti fyrir var sem himinninn stæði í björtu báU, þrumurnar bárust eyrum okkar gegnum vélarniðinn. Þrumuskýin voru brátt að baki og í fjarska eygðum við strönd Spánar. Við flugum yfir Méillorca og Palma birtist í allri sinni ljósadýrð, — Palma, sem fær svo ríflegan skerf af gjald- eyristekjum fslands. Vafalaust voru hvergi eins margir léttir fslendingar saman komnir þessa stundina og einmitt í Palma. Á Ojuda-flugvelli var lent kl. um 11 að staðartíma. Hitinr. var tæp 30 stig á Celsius, en hafði fyrr um daginn verið yfir 40 stig. Margt fólk var sarhan komið í móttökusalnum, en umhverfis flugvallarbygging- una var f jöldi varðmanna, vopn aðir vélbyssum og rifflum, og voru þeir ýmist úr her lands- ins eða lögreglu. Minnti þetta óneitanlega á það fyrirkomulag sem viðhaft var í þriðja ríkinu á sínum tíma, þegar lögreglan var sett til höfuðs hernum og öfugt. Brátt var Marokkó að baki og París framundan. Þar var dvalizt i einn dag, en siðan haldið aftur til Oostende, þar sem farmur af rafmagns- tækjum beið ferðarinnar til fs- lands. Ráðgert var að fljú'ga til ís- lands um kvöldið, og buðu Fragtflu'gsmenn þá blaðamanni í ferð til Brússel þar sem við skoðuðum okkur uim það sem eftir var dagsins. Var þar margt að sjá, enda borgin göm- ul. Markverðast þótti okkur að sjá „Le Grand Place", sem er fornt torg í hjarta borgarinnar. Við torgið eru ýmsar fagrar byggingar, með mikl'U skrauti og útflúri sem sumt er úr skíra gulli. Enn'fremur sáum við styttuna fræ'gu, „Maniqu de piss*‘ sem lengi hefur verið tákn höfuðbo'rgarinnar. — Segir sagan, að eitt sinn fvrir langa iöngu hafi prins týnzt í Beligíu. Var hans leitað iengi og víða, og gaf konungurinn, faðir hans, þá yfirlýsingu. að þegar hann fyndist, skýldi gerð stytta af honom i þeim steMing- uan sem hann þá væri. Prins- inn fannst fjarri mannab>’ggð- um, sem nú er þar í miðri Brússel. Eftir skemmtilegan dag í höfuðborginni var haldið til Oostende, og þaðan um kvöldið til íslands. Þegar hingað kom var hæglát sunnanátt, og fannst manni helzt sem liðinn væri mánuður síðan við fórum af stað í þessa löngu ferð, í stað þess að liðin var rúm v ka. Við höfðum lagt að baki vega- íengd sem svarar nærri hálfri leiðinni í kringum hnöttinr og ekki var laust við að í hugan- um minnkaði heimsmyndin nokkuð. 2 vanir óskast lyftaramenn Skipaútgerð ríkisins BUSLOÐ SPÍRA svefnbekkurinn Opið til kl. 10 í kvöld BUSLOÐ HÚSGAGNAVERZLUN VK) NÓATÚN — SlMI 18520 Verzlunarmoður óskust til afgreiðslu- og lagerstarfa, þyrfti að vera vanur að aka bil. Umsóknir er greini aldur og fyrri störf, leggist >nn á afgreiðslu blaðsins fyrir 5. október merkt: „Verzlunarmaður — 3070". Vöruflutningabifreið Til sölu er lítið ekrnn 2ja hásinga vöruflutningabifreið. tegund OM titano, árg. 1968, skráð frá verksmiðjunni fyrir 26 tn. heildarþunga. Hentug fyrir mjólkurflutninga. Einnig er til sölu 2ja öxla flutningakerra. Uppiýsingar gefur Svanlaugur Ólafsson verkstj, B.S.A verk- stæðinu Akureyri, sími (96) 11806. Gísli Baldur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.