Morgunblaðið - 31.12.1971, Blaðsíða 20
Jk
MOPiGUiNELADIÐ, FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1971
20
Við áramót
Pramh. af bls. 17
ar kaupgjalds- eða verðlags-
hömlur fá staðizt siíka
þenslu til lengdar. Við þetta
bætist, að verðlagshækkanir
eru meiri í kringum okkur
en áður. Þótt þetta atriði
verndi að nokkru sam-
keppnisaðstöðuna út á við,
verður hvorttveggja til að
magna verðbólguna innan-
lands, ekki sízt þar sem
launasamningar eru bundn-
ir vísitölu.
Missi fólk trúna á verð-
gildi peninga, er hætta búin
fyrir sparifjármyndunina,
einkum er hætta á, að fjár-
magnið leiti í farvegi, sem
ekki verða til beinnar fram-
leiðsluaukningar í þjóð-
félaginu. Hér fá yfirvöldin
litlu um ráðið nema með
þeim þvingunarsparnaði,
sem á sér stað gegnum
skattakerfið. Trú sumra
stjórnarsinna á því að geta
stýrt athöfnum einstakling-
anna eftir leiðum, sem sam-
ræmast óskum stjórnarinn-
ar, en liggja í öfuga átt
við óskir einstaklinganna
sjálfra, er gott dæmi um
skilningsleysi þeirra á al-
mennum hagstjórnaraðgerð-
um.
Þá þykir sumum það ekki
lengur góð latína að virkja
erlent fjármagn til að
byggja upp atvinnuvegina.
Það háskalega í þessum efn-
um er, að áhrifa mistaka í
stóriðjumálum og virkjun-
arframkvæmdum fer ekki
að gæta fyrr en eftir 5—10
ár. Þær hagvaxtarfórnir,
sem færðar eru með því að
afsala sér skynsamlegu mati
á aðstæðum, verða aldrei að
fullu bættar. Það er því mis-
skilningur, að hið eina, sem
geti gerzt með því að láta
sundurleitan hóp um stjórn-
völ þjóðarskútunnar, sé að
sigla henni í strand og tæma
varasjóði þjóðarbúsins.
Björtust framtíð er búin
landsmönnum með því að
velja rétta stefnu þegar í
upphafi.
Tiltektír ríkissstjórnar-
innar hafa einkennzt af
ígripum hér og þar, án til-
lits til áhrifa aðgerðanna á
heildarstefnuna í efnahags-
málum, sem enn virðist
ómótuð og eiga að mæta af-
gangi. Þetta gerist á þeim
tíma, sem þróun atvinnulífs
og viðskiptakjara hefir ver-
ið mjög hagstæð. Það veld-
ur og áhyggjum, að viðhorf-
in á vinnumarkaðnum eru
engan veginn lofleg, og
verkfall á kaupskipaflotan-
um hefir nú staðið um mán-
aðartíma. Slikt segir að
sjálfsögðu til sín í þjóðar-
búskapnum þótt síðar verði.
FAGNABARSTUND
Þann 21. apríl í vor var
fagnaðarstund á íslandi,
sem ekki mun líða úr minni.
Komu þá Danir íærandi
hendi með tvo dýrgripi:
Flateyjarbók og Konungs-
bók Eddu-kvæða. Þessar
tvær gömlu skinnbækur
voru táknræn afhending
Dana til Islendinga á þeim
íslenzku handritum, sem
varðveitt hafa verið í Dan-
mörku. Hugir íslendinga og
Dana hafa aldrei staðið nær
hver öðrum en við þennan
sögulega atburð.
Danir færa íslendingum
fornan menningararf. Við
verðum að skilja það, að
vissulega kunni mörgum
dönskum manni að vera eft-
irsjá að þessum fornu skinn-
bókum úr söfnum þeirra.
Én Danir hljóta líka mikið
endurgjald í veglegu íor-
dæmi um bróðurleg sam-
skipti þjóða. Þetta gat ekki
dulizt þeim fulltrúum Ríkis-
þings Dana og ríkisstjórnar,
sem sóttu okkur heim á
liðnu vori. Þeim hlýnaði um
hjartarætur, er hinn mikli
fjöldi fagnaði þeim við
komuna og þar á meðal þús-
undir barna, sem veifuðu
dönskum og íslenzkum smá-
fánum í einlægri gleði.
SUÐURLANDSBRAUT 2 SÍMI 82200
GLEÐILEG JÓL
OG FARSÆLT NÝTTÁR
Veitingasalur okkar verður opinn sem hér segir um ára-
mótin: Gamlársdagur kl. 8—14
Nýársdagur kl. 8— 23.30
r*
A v
1. JANÚAR
Melónur Surdriee
Kjötseiði Trois Fiílets
Steiktar aliendur
með appelsínusósu
2. JANÚAR
Kjörsveppasúpa
Fylltur grísahryggur Danoise
Ávaxtaís með krækiberjalíkjöi
Borðapantanir í síma 82200.
VERIÐ
VELKOMIN
Hin sögulega stund af-
máist ekki úr hugum
þeirra, sem voru svo ham-
ingjusamir að fá að njóta
hennar.
Eins og kunnugt er hafa
þúsundir íslendinga síðan
skoðað dýrgripina í Hand-
ritastofnuninni. íslendingar
munu ávaxta sitt pund á
þessu menningarsviði bók-
menntanna.
FRAMFARASÓKNIN
HALDI AFRAM
Ég hygg, að hin fámenna,
íslenzka þjóð hljóti víðast
hvar þann dóm, að hún sé
harðdugleg og fylgxn sér.
Engu að síður verðum við
eins og aðrir að kunna fót-
um okkar forráð. Það dugar
ekki einungis að „breyta til
að breyta“. Stjómvöldum
landsins á liðnum árum hef-
ir eflaust yfirsézt margt,
eins og verða vill, og líklegt
er, að svo kunni enn að
reynast.
Við skulum öll treysta
því, að eflast megi mann-
dáð og kjarkur og framfara-
sókn þjóðarinnar haldi
áfram.
Ég leyfi mér við þessi ára-
mót að senda öllu Sjálf-
stæðisfólki kveðjur og
þakkir fyrir brautargengi á
liðnu ári og ótrauða baráttu
fyrir sameiginlegum hug-
sjónum sjálfstæðisstefnunn-
ar. Við verðum öll að gera
okkur ljóst, hversu ríka
nauðsyn ber nú til þess að
efla samhug og flokksstarf,
sem grundvallast á áræði og
drengskap, til þess að hefja
þær hugsjónir til vegs, sem
reynzt hafa íslendingum
bezt, — frjálsræði og fram-
takssemi. Andvaraleysi um
öryggi landsins megum við
aldrei láta henda okkur,
þótt freistandi sé fvrir vopn-
lausa smáþjóð að trúa engu
nema góðu í samskiptum
þjóða.
Landsmönnum öllum óska
ég árs og friðar.
Mintoff til Líbyu
Yaletta, London, Beirut,
30. des. — AP-NTB
DOM Mintofí forsætisráðherra
Möltu fór í dag í skyndiheimsókn
«11 Líbýu til viðræðna við Mu-
ammar Kadafí forseta. Segir í
frétt frá Tripolis að Mintoff ætli
aff ræða við Kadafi um afleiðing
ar af væntanlegum brottflutningi
brezka heriiðsins frá Möltu.
Mintoff hefur krafizt sérstakr
ar aukagreiffslu frá Bretum fyrir
áframhaldandi aínot af herstöðv
ran á eynni, en greiðí Bretar ekki
4,25 milljónir punda aukalega nú
þegar er þess krafizt að brezka
herliðið verði fiutt heim fyrir
áramót.
Birezk yfirvöld hafa óskað eftir
samningaviðræðum, en jafnframt
lýst því yfir að þau séu reiðubú
iti til að kalla brezka herliöið
heim. Heimflutningurinn tekur
þó talsverðan tima, og honum
getur alls ekki verið lokið fyrir
áramót. Talið er að heimflutn-
ingrir á mönnum og búnaði taki
ailt að þrjá mánuði.
Mintoff fór flugleiðis til Trip-
^oli, og var búizt við að hann
héldi heim þaðan seint í kvöld
eða í fyrramálið. Haft, er eftir á
reiðanlegum heimildum að Mint-
off muni fara fram á fjárhagsað
stoð frá Líbýu til að bæta upp
tekjumissinn vegna brottfarar
brezka herliðsins. Bent er á að
Kadafi hefur hvað eftir annað
hvatt Mintoff til að loka brezku
herstöðvunum á Möltu. Hefur
Mintoff margsinnis heimsótt Kad
afi frá því að Verkamannaflokk-
— Gjaldheimta
Framh. af bls. 32
frumvarp þetta hefur ekki ver-
ið samþykkt á Alþingi og getur
tekið breytingum í meðförum
þingsins eftir áramót. Þess
vegna er ekki ráðlegt fyrir fólk
að treysta á að þetta ákvæði
frumvarpsins verði samþykkt,
enda vitað að f jölmörg sveitar-
félög eru því mjög andvíg. Enn-
fremur er rétt að benda á, að i
frumvarpinu er lagt til að þeir,
sem ekki hafa greitt opinber
gjöld sín fyrir áramót greiði
114% á mánuði í refsivexti aí
gjaidfallinni skuld.
ur hans tók við vðldum á Möitu í
júní á nýliðnu sumri, og jafnan
hlotið loforð Kadafis um aðstoð.
Með brottrekstri Breta fylgi'r
Mintoff fordæmi Kadafis, sem
lét loka ölíum brezkum og banda
rískum herstöðvum í Lihýu eftir
að hann komst til valda í landinu
í september 1969.
Ekki eru allir Möltubúar ásátt
ir við stefnu Mintoffs gagnv-art
Bretum, og bám stjórnarand-
stæðingar fram vantraust á
stjórnina á þingi x gær. Var sú til
laga felld með 28 atkvæðum
gegn 27.
Rússar
sprengja
Uppsölum, 30. des. — AP-NTB
SOVÉZKIK vísindanienn
sprengdu snemma i morgun
orkumikla kjamorkusprengjn
neðanjarðar við tilraunastöðina
á Semipalatinsk-svæðinu í
Síberíu.
Jarðhi'tpringar vegna spreng-
ingarinnar mæidust hjá jarð-
fræðistofnuninni í Uppsölum í
Sviþjóð. Forstöðumaður stofn-
unarinnar, Marcus Baath pró-
fessor, segir að sprengjan háfi
verið sprengd kL 6,21 i morgujl
Usl. tími), og hafi styrkleiki
hræringanna mælzt 6,1 stig á
Rictherskala.
Gott
aflaár
Bergen, 30. des. NTB.
ÁRIÐ 1971 hefur verið gott ár
fyrir fiskveiðar í Noregi. Fis!k-
magn úr sjó á árinu nam 2.782.
287 tonnum, sem er hið naest-
mesta í sögunni. Meira veiddiét
nú af þorsiki og loðnu en noMcru
sinni áður, eintoum á fyrri hluta
ársins. Aflinn var tiltölulega
minni siðari helming ársánis,
sem átti rót sína að rekja að
nokkru til tíðarfars en einnig til
breytinga á sumum fiskistoíp-
um.
Viljum knupu lifmyndir
Sólarfirma óskar eftir að kaupa fallegar vetr-
arlitmyndir vegna útgáfustarfsemi.
Myndirnar þurfa að vera rétt lýstar, skarpar
og ógallaðar. Þær skulu hafa borizt okkur í
síðasta lagi fyrir 15. febrúar nk.
SÓLARFILMA,
pósthólf 5205, Reykjavík.