Morgunblaðið - 31.12.1971, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 31.12.1971, Blaðsíða 32
 ALLT TIL UÓSMYNDUNAR msw&w®w@9 FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1971 Bílar tryggðir næstu vikur Félögin ábyrgjast tryggingu STJÓRNVÖLD hafa enn ekki staðfest iðgjaldaskrá fyrir öku- tækjatrygigringar, en trygginga- félögin hafa tekið ákvörðun um að þau muni ábyrgjast trygging ar þeirra ökntækja, sem bjá þeim eru tryggð og áttu að renna út 1. janúar. Flest tryggingafélög In ábyrgjast tryggingar ökutækja sirtna til 20. janúar, en eitt, Brunabótaféiags íslands, tiltekur ekki tima, en ábyrgist tryggingu „fyrst um sinn“. 1 orðsendingum til bifreiðaeig enda frá tryggingaféiögunnm seg tr: í>ar sem staðfesting stjórn- valda á iðgjaldaskrá fyrir öku- tækjatryggingar liggur ekki enn fyrir, lýsa undirrituð vátrygginga félög því yfir, að þau geta ekki tekið afstöðu til endurnýjunar ökutækjatrygginga þann 1. jan. 1972. Félögin munu þó ábyrgjast tryggingar þeirra ökutækja, sem hjá þeim eru nú tryggð, til kL 24,00 20. jan. n.k. Undir þetta skrifa: Aimennar Tryggingar h.f. Ábyrgð h.f. Byggðatrygging h.f. Hagtrygging h.f. Samvinnutryggingar Sjóvátryggingafél. íslands h.f. Tryggingamiðstöðin h.í. Trygging h.f. Brunabótafélag íslands orðar sína orðsendingu til bifreiðaeig- er,da svo: „Meðan beðið er eftir ákvörð- ur yfirvalda um iðgjöid af bif- reiðatryggingum fyrir éirið 1972 getur Brunabótafélagið ekki gef- ið út tryggingaskírteini né endur nýjað eldri tryggingar á venju- legan hátt. Félagið mun þó á- byrgjast tryggingu þeirra öku- tækja, sem hjá því eru tryggð fyrst um sinn.“ Gjaldheimtan opin í dag Síðustu forvöð fyrir skilvísa gjaldendur GJALDHEIMTAN í Reykja- vík er opin til hádegis í dag og eru því síðustu forvöð fyr- ir skilvísa gjaldendur að greiða litsvör sín og önnur opinber gjöld fyrir áramót. Venjan hefir verið sú undan- farin ár, að svo mikil þröng hefur verið á gamlársdag í Gjaldheimtunni, að afgreiðslu kostar í áskrift frá 1. janúar 1972 kr. 225,00 á mánuði. — Gruim- verð auglýsinga kr. 135,00 pr. ein dálka sm. — Lausasöltiverð kr. 15,00 á eintak. hennar hefur ekki verið lok- að fyrr en síðla dags og má gera ráð fyrir, að svo verði enn. Ennfremur liefur Gjald- heimtan tekið upp þá ný- breytni að hægt er að greiða útsvör og önnur opinber gjöld inn á gíróreikning Gjaldheimtunnar í bönkum, sparisjóðum og pósthúsum. Eins og kunnugt ex, hefur rilkisstjórTiin lagt fram á Al- þingi frumvarp um tekjustofna sveitarfélaga, þar sem lagt er til að útsvör ýfirstandandi árs, sem greidd eru fyrir áramót, verði ekki frádráttarbær við út- svarsálagningu næsta árs. Rétt er að vekja athygli á þvi, að Framh. á bls. 20 Faxabrenna við Ægissíðu virðist vera ein af niyntlarlegrustu brennunum í Reykjavík, enda voru krakkarnir þar að liamast við að hlaða köstinn í gær, þó varla væri stætt fyrir roki. I»au hafa safnað í brennuna síðan 10. desember og bjuggust við a ð ijúka verkinu um háilegi 1 dag. Og í kvöld verður kveikt í, og Faxabrenna logar glatt. (Ljósm. ÓI. K. M.) Hrapalleg missögn 1 dönsku uppsláttarriti - Ritið uppselt í 125.000 eintökum Verður leiðrétt strax eftir áramót í Politiken, segir ritstjórinn ÞAU hrapallegu mistök hafa átt sér stað við útgáfu Hvem Hvad Hvor, sem danska útgáfnfyrir- tækið Politikens Forlag gefur út 100 milljón króna saltfisks- sala í súginn? Farmannaverkfallið kann að skaða mjög markaðinn í Suður-Ameríku LEYSIST farmannaverkfallið ekki mjög fljótlega upp úr ára- mótnm mun það hafa mjög al- varlegar afleiðingar í för með sér fyrir saltfiskframleiðendur. Er hætta á, að þeir missi af söln 1600 tonna af þurrkttðum fiskj til Suður-Ameríktilanda að verff- mæti á annað hundrað milljónir króna. Samkvæmt upplýsingum, sem Mbl. hefur fengið hjá Tómasi Þor valdssyni, stjórnarformanni Sölu sambands ísl. fiskframleiðenda, vofir þessi hætta yfir sökum þess að útskipun á saltfiski til Suður- Ameríkulanda fyrir páskaíöst- una þarf að fara fram í desem- ber eða fljótlega í janúar til að ná í tima á markaðinn. Fiskurinn er fluttur til Danmerkur eða meginlands Evrópu, er skipað upp þar og bíður svo næstu ferð- ar til viðkomandi lands. Tómas sagði, að 800 tonn hefðu átt að fara héðan í desembermán uði og ráðgert hafi verið að senda önnur 800 tonn í janúar- byrjun. Kaupendur í Suður-Am- eriku væru nú farnir að óttast um að saltfiskurinn næði ekki í tíma fyrir páskaföstuna og kynni svo að fara, að þeir féllu frá kaup- unum. Framh. á bls. 31 fyrir áriff 1971, aff lögreglustjór inn í Reykjavík, er þar sagður hafa veriff tekinn fastur hinn 24. marz sl. fyrir aff hafa ráðið konu sína af dögum. Bók þessi, sem gefin er út í 125 þúsund eintök- um, er þegar nppseld hjá forlag inu. Mbl. ræddi í gær við annan tveggja ritstjóra Hvem Hvad Hvor, Hjahnar Petersen og spurði hann um þetta mál. Hann sagði, að bókin væri unnin upp úr dönskum dagblöðum, aðallega Politiken og Berlingske Tidende. Hann sagðist enn ekki vera bú- inn að ganga úr skugga um, hvernig á misskilningnum stæði, en hinn sama dag gerðisf sá at- burður á Seyðisfirði, að lögreglu þjónn þar réð konu sinni bana i æðiskasti. 24. Polltímesteren 1 Reykjavik, Island fœngsles slgtet for hustrudrab. Italicns 250.000 restauranter og barer lukker 24 Missögnin um lögreglustjórainn í Reykjavík í Hvem Hvad Hvor. Hjalmar Petersen sagði, að úti lokað væri að innkalla bókina nú þar eð hún væri uppseld og „við getum ekki annað en harmað þessi mistök". Hann sagðist mundu láta leiðréttingu og af- sökunarbeiðni í Politiken, þegar eftir áramótin. Þá ræddi Mbl. við Pétur Thor- steinsson, ráðuneytisstjóra í ut- aniríkisráðuneytinu, sem sagði: „Við höfum verið að athuga Framh. á bls. 39 Minnisblað lesenda MORGUNBLADIÐ hefur að venju leitað upplýsinga, sem handhægt getur verið fyrir les- endur að gripa til um áramótin. Slysadeild Borgarspítalans er opin aBan sólarhringinn, sími 81212. Slöhkvistöðin i Beykjavik, sími 11100, í Hafnarfirði, sxmi 51100. Lögreglan í Reykjavik, sámi 11166, í Kópavogi simi 41200 og í Hafnarfirði, simi 50131. Sjúkrabifreið í Beykjavík, simi 11100, og í HaJfnarfirði, slmi 51336. Læknavarzla. Læknastofur sér- fræðinga og heimilislækna eru lokaðar á gamlársdag og nýárs- dag. Nætur- og helgidagavarzla er í sdma 21230. Tannlæknavarzla. Að venju gengst Tannlæknafélag lslands fyrir neyðarvakt um hátíðarnar. Vctktin er í Heilsuvemdarstöð Reykjavíkur, sími 22411, og er opin sem hér segir: Á gamiárs- dag frá kl. 14 til 15 og á nýárs- dag frá kl. 14 til 15. Að öðru leyti er vaktin opin eins og Framh. á bls. 30

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.