Morgunblaðið - 07.01.1972, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 07.01.1972, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐK), FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 1972 3 75 ára afmæli L.R. hefst með Skugga-Sveini Tvær hátíðarsýningar í næstu viku LEIKFÉLAG Reykjavíkur er 75 ára á þriðjudaginn og verður þá frumsýnt hið fyrsta af fimm íslenzkum leikritum félagsins, Útilegu- mennirnir eða Skugga-Sveinn eftir Matthías Jochumsson, í leikgerð, sem leikstjórinn, Sveinn Einarsson, hefur sam- einað úr öllum þremur gerð- um leiksins. Tvær hátíðasýningar verða af tilefni afmælisins. Þar sem hús- ið er lítið og fastagestir hafa margir sótt frumsýningar i ára- tugi, fylla þeir húsið fyrra kvöld- ið, en á miðvi'kudag er boðið gestum. Báðar sýningarnar hefj- ast kl. 6, þar eð afmælishóf eru á eftir. Skugga-Sveinn, eins og það heiitir orðið nú, er hefðbundið leikrit, orðið yfir 100 ára gam- alt. Það var fyrst sýnt 1862 und- ir nafninu Útilegumennirnir. Seinna gerði höfundur tvisvar á þvi breytingar. Þetta er í þriðja sinn, sem leikritið er sýnt i Iðnó, fyrst var það sýnt 1908 og síðan 1935. Skugga-Svein leikur Jón Sigur björnsson, Sigurð i Dal Steindór HjÖrleifsson, Ástu í Dal Anna Kristín Arngrímsdóttir, þremenn ingana Grasa Guddu, Gvend og Jón sterka leika GísJi Halldórs- son, Margrét Ólafsdóttir og Valdimar Helgason og þar hald- ið þeirri hefð, að karlmaður leiki Guddu og kona Gvend. Útilegu- mennina aðra en Skugga-Svein leiika þeir Kjartan Ragnarsson sem er Haraldur, Jón Hjartarson sem er Ketill skrækur og Karl Guðmundsson sem er Ögmund- ur. Galdra-Héðin lei'kur Brynj- ólfur Jóhannesson, stúdentana Grím og Helga leika Guðmundur Magnússon og Harald G. Haralds son, Lárensius sýslumann leik- ur Þorsteinn Gunnarsson og Magneu þjónustu hans leikur Þórunn Sigurðardóttir. Kotung- ana tvo leika Borgar Garðarsson og Daniel WiMamsson og að auki eru nokkrir aukaleikarar. Leikbúninga og leiikmynd gerir Steinþór Sigurðsson. Hin islenzku leikritin fjögur, Heliu, 6. janúar. Á AÐALFUNÐI sýslimefndar Rangárvallasýslu sl. snmar var samþykkt, að kláðaböðun skyldi fara fram í héraðinu nú í vetur. Um mánaðamótin okt.—nóv. hélt sýslumaður svo fund i fé- lagshedmiiinu að HvoM, þar sem mættu allir oddvitar úr sýslunni, baðstjórar og dýralæknar. sem helguð eru aifmæli Leikfé- lagsins verða sýnd eins fljótt og auðið er, en þau eru Atómstöð- in eftir Halldór Laxness undir leikstjórn Þorsteins Gunnarsson- ar, Domimo eftir Jökul Jakobs- son við leikstjórn Helga Skúla- sonar, Dansleikur eftir Odd Bjomsson undir leikstjórn Sveins Einarssonar og Kona í hjólastól eftir Nirtu Björk Árnadóttur und ir leikstjórn Stefáns Baldursson- ar. Ekki f logið til 2 staða FLUGVÉLAR Fhigfélagsins hafa flogið til allra staða innanlands nema tvo síðustu daga þrátt fyrir veðnr. Veðrið hefur komið í veg fyrir flug til ísafjarðar og Vestmannaeyja í þrjá daga. í giær stóðu vonir til að flug til þessaxa staða hæfist fljótlega að nýju, eða jafnskjótt og veður lægði. 1972, en tvíibaða þarf með 10—12 daga miilibdli og er fyrri böðun nú hafin. Böðunin er framkvæmd í varúðarskyni þar sem fjárkláða hefur orðið vart á nokkrum bæj- um i austanverðri sýslunni. Kiáðaiböðun hefur eikki verið framikvæmd hér í áratugi. — J.Þ. Rangæingar tvíbaða allt sitt sauðfé Funduriinin samþykkti, að böð- unin skyildi fara fram i janúar Friðrik Óiafsson. „Aldrei getað hugsað um skák- ina sem það eina í lífinu“ — segir Friðrik Ólafsson, stórmeistari I BREZKA blaðinu Iliustrated London News var fyrir skömmu frá því skýrt, að i undirbúningi væri sterkt skák- mót í Énglandi í byijun apríl og stæðu vonir til þess að meðal keppenda þar yrði Frið- rik Ólafsson. Mbl. hafði sam- band við Friðrik vegna þessa, en hann kvaðst ekki reikna með, að af þátttöku hans gæti orðið. Friðrik kvaðst ekki hafa fengið formlegt boð um þátt- taku, en til sín hefði verið leit- að við undirbúning mótsinis og haran m. a. spurður álits á verð launiuim þar, sem siamtals rnunii nema um 1,8 millj. ísl. króna. Friðrik kvaðst ekki reikma með, að hann sæ; sér fært að tefla í þessu móti. „Ég er nú nýkominn írá Rúss- landi úr mjög sterku móti,“ sagði Friðrik, „og í febrúar tefli ég í alþjóðlega mótinu hér á landi. Ef ég færi nú ISka að fara til Englands, þá gæti ég alveg eins hætt öllu og far- ið bara að tefla.“ Mbl. spurði þá Friðrik, hvort hanin hugleiddi að gera skákinia að aðalstarfi. en það sagði hann ekki verða. Hanm kvaðst hafa sleppt mótum nú, eims og Hastings mótinu og skákmóti í Hollamdi. Þá spurði Mbl. Friðrik, hvort hanm teldi sig ekki geta „lifað af Skák- inni“. „Jú, ég býst við því,“ svaraði Friðrik, „en það er bara ein hliðin á málinu. Ég hef aldrei getað hugsað um skákima sem það eina í iífinu. Mér fimnst gott að tefla, þegar þanmig iiggur á rmér. Og ég vil ráða því sjálf- ur, hvenær mér er akkur í skákinmi og hvenær ég nota tímamn til anmars.“ KARNABÆR STAKSTIINAR Ilvenær má vænta svars? Hinn 28. desember sl. birfS Morgunblaðið svar frá fjármála- ráðnneytinu við fyrirspurnum til fjármálaráðherra, sem blaðið birti skömmu fyrir jól, varðandi út.reikninga hans á skattbyrði. I svari ráðuneytisins, sem undirrit að var af Jóni Signrðssyni, ráðu- neytisstjóra, fyrir hönd ráðherra, var sérstaklega tekið fram, að ráðuneytið væri „reiðubiiið að veita yður nánari upplýsingar mn útreikninga þessa“. 1 ijósi þessa tilboðs óskaði Morgnn- blaðið þennan sama dag, eftir frekari upplýsingum frá fjár- málaráðuneytinu um útreikninga þess. Nú er kominn 7. jamiar og enn hafa frekari upplýsingar ekki borizt frá ráðuneytinu. Væntanlega er ástæðan sú, að miklar annir hafi verið i ráðu- neytinu í kringum áramótin, en nú væntir Morgunblaðið þess, að ekki dragist öliu lengur hjá ráðu- neytinu að veita þær viðbótar- upplýsingar, sem óskað var eftir. Útreikningar Ólafs Að vonum hurfu fyrstu um- ræður um skattafrumvörp ríkis- stjórnarinnar nokknð í skngga fjárlagaafgreiðslunnar og jóla- anna. En einmitt þess vegna er ástæða til að minna á þau dæmi, sem Ólafur G. Einarsson, alþm., gerði Alþingi grein fyrir um skattbyrðina á einstaklingum, ef frumvörp ríkisstjórnarinnar verða óbreytt að lögum. Ólafur G. Einarsson sýndi fram á það með rökum, sem ekki hafa ver- ið hrakin, að dæmi þau, sem Halidór E. Sigurðsson, fjármála- ráðherra, tók um skattbyrðina, fá ekki staðizt. Hann endurreikn- aði dænii f jármálaráðherra sjálfs og sýndi fram á, að útkoman er í raun og veru allt önnur en f jár- málaráðherra viidi vera láfa, I umræðunum á Alþingi gat Hall- dór E. Sigurðsson ekki hrakið með rökum eitt einasta atriði í útreikningum Ólafs G. Einars- sonar og hefur ráðherrann þó allt ríkiskerfið sér til aðstoðar. Af hálfu annarra stjórnvalda en ráðherrans hafa heldur ekki komið fram neinar uppiýsingar, sem hrekja dæmi Ólafs. Upplýs- ingar hans um skattbyrðina standa því óhaggaðar. Þetta er staðreynd, sem vert er fyrir fylg- ismenn stjórnarflokkanna að veita athygli og ekki sízt þá, sem eru í fyrirsvari fyrir verkalýðs- félögum. □ Við gefum 2ja ára ábyrgð. □ Góða greiðslu- skilmála. □ Góða þjónustu. Við bendum þeim. sem eiga aðrar gerðir hljóm- tækja, á hin viðurkenndu heyrnartæki okkar. Eigum þau til núna í öllutn gerðuin. ER HLJÓMUR MORGUNDAGSINS í DAG!! ÞESSI FRÁBÆRU HLJÓMTÆKI FARA SIGURFÖR UM ALLAN HINN VESTRÆNA HEIM. STÓRKOSTIÆG TÓNGÆÐI OG FRAMÚRSKARANDI ENDJNG EINKENNA PIONEER-TÆKIN. Orö PIOMEER Á að bíða eftir skattseðlinum? Auðvitað er einfaldast að bíða eftir skattseðlinum í vor. Þá kemnr í ljós, svo ekki vexð- ur um vilizt, hvor hefur rétt fyr- ir sér, f jármálaráðherra eða Ólafur G. Einarsson, alþm. En hætt er við, að það muni reynast þjóðinni býsna dýrt, þegar liða tekur á árið, ef niðurstaðan verð- ur sú, að fullyrðingar fjármála- ráðherrans verða sannreyndar með þeim hætt.i. Innan tíðar kemur Alþingi saman á ný og verður þá fróðlegt að sjá, hvort stjórnarsinnar hafa ákveðið að beita sér fyrir breytingum á skattafrumvörpunum. Geri þeir það, er það opinber viðurkenning á því, að fjármáiaráðherra hef- ur rangt fyrir sér í deilunum við hinn unga. þingmann. Taki stjórn arflokkarnir hins vegar ekkert mið af þeirri gagnrýni, sem þeg- ar er komin fram, er hyggilegt fyrir skattgreiðendur að búa sig nú þegar undir meiri skatta- hækkanir en áður hafa þekkst hér á landi. < <• f

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.