Morgunblaðið - 08.01.1972, Page 5

Morgunblaðið - 08.01.1972, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 1972 5 Rannsóknir á ávana- og fíknilyf jum og efnum KRISTJÁN Pétui’sson, deildai'- stjóri tollgæzlunnar á Keflavíkur flugveUi, hefur ritað harðorða grein um vítavert ábyrgðarleysi stjómvalda í ávana- og fikni- lyfjamálum, er birtist hér í blað inu miðvikudaginn 5. janúar sl. Má á grein þessari skilja, bæði beint og óbeint, að hið vítaverða ábyrgðarleysi komi meðal anmars fram i því, að aðstöðu skorti til viðhlítandi rannsókna á ávana- og fíknilyfjum og efnum. Ekki skal þvi móti mælt, að að- staða til slíkra rannsókna þyrfti að vera betri. Á hinn bógiinn er það svo, að stofnun sú, sem undir ritaður veitir forstöðu á vegum Háskóla íslands, hefur á undan- förnum árum annazt allar rann- sóknir á ávana- og fíknilyfjum og efnum, svo og skyldar rann- sóknir, er þangað hefur verið skotið. Þykir því rétt að rekja mál þessi hér nokkru nánar, þar eð grein Kristjáns gæti ella gefið tilefni til meiri miisskilnings en svo, að við megi una. Þyrfti raun ar að leiðrétta margs konar mis- skilning annan í grein Kristjáns, ef ekki á réttu máli að halla. Þar <sr þó fremur öðrum að mæta en undirrituðum. Á árinu 1966 var svo komið, að fjöldi réttarefnafræðilegra mála, en svo nefmast þau mál, þar sem dóms- og lögregluyfir- völdum er þörf á rannsóknum á sviði lyfjafræði og eiturefnafræði var orðinn slíkur, að sérstakra úr ræða var þörf. Varð því að sam komulagi, að Rannsóknastofa í lyfjafræði skyldi annast þessar rannsóknir. Hefur síðan verið fjallað um hundruð móla þessa efnis i Rannsóknastofunni, en einkum þó mál varðandi dauðs- föll. Síðla árs 1967 þótti einsýnt, að neyzla ávana- og fíkniefna á borð við kannabis og lýsergíð (L.S.D.) er þá ruddi sér til rúms í ná- grannalöndum íyrir austan haf og vestan, myndi breiðast hingað til lands. Var því í ráðizt að víkka gildissvið laga nr. 14 1923 um tilbúning og verzlun með ópí um o.fl. þannig, að ákvæði lag- anna tækju einnig til kannabis, lýsergíðs og tveggja annarra efna (lög nr. 43 1968). Að danskri og sænskri fyrirmynd voru siðan refsiákvæði laganna aukin mjög venilega (lög nr. 25 1970). Rök- rétt afleiðing þessara lagabreyt- inga var sú, að fullgildar rann- sóknir á umræddum efnum yrði að vinna hér á landi. Með tilliti til reynslu þeirra.r, sem fengizt hafði í Rannsóknastofunni vegna rétitarefnafræðilegra rannsókna, þótti rétt, að Rannsóknastofan tæki að sér rannsóknir á málum, er vörðuðu ávana- og fíknilyf og efni sérstaklega (töflur, duft, plötuhluta o. s. frv.), enda væi'i hér í raum um réttarefnafræðileg ar rannsóknir að ræða. Fyrsta mál þessa efnis barst Rannsókna stofunni 17. 11. 1969 og var af- greitt með matsgerð 25. 11. 1969. Mál þessi voru alls orðin 58 að tölu um sl. óramót. Skal nú í nokkru gera grein fyrir þeim. Rannsóknastofunni hafa á fyrr greindu tímabili borizt samtals 29 sýni til rannsókna með tiliiti til kannabis og 7 með tilliti til lýsergíðs. Kannabis fannst í 20 sýnum og lýsergíð i 4 eða ef til vill í 5 sýnum. Af lyfjum hefur borið mest á petidini og díazep- ami (Valium), er fundizt hafa í 4 sýnum hvort. Mebúmal og me- próbamat fundust í 2 sýnum hvort, en önnur ávana- og fíkni lyf hafa komið sjaldnar fyrir. Þannig voru morfín, amfetamín og kókaín einungis í einu sýni hvert. Sterk verkjadeyfandi lyf á borð við morfín og heróín eða kókaín hafa ekki fundizt blönduð í kannabis eða lýsergíð. Aðsendum sýnum viarðandi rannsóknir á ávana- og fíknilyfj um fjölgaði mjög á sl. ári miðað við árið þar á undan. Með tilliti til þessarar þróunar, svo og aukn ingar á réttareínafræðilegum rannsóknum yfirleitt, er gert ráð fyrir stofnun sérstakrar réttar- efnafræðideildar innan Rann- sóknastofu í lyfjafræði, þá er byggt verður yfir rannsóknastof ur Háskólans í lyfjafræði lækna og lyfsala á næstu árum. f svip- inn vinna 2 háskólamenntaðir menn í hlutastarfi eða réttarefna fræðilegum i'annsóknum í Rann sóknastofunni og gegnir annar þeirra kalli, ef með þarf. Verður ekki annað séð en rannsóknir þessar rekist sæmilega frá henii, enda þótt samanlögð þóknun til þessara manna nemi minni upp hæð á ári en kostnaði við fóðrun eins hunds og gæzlu hans að dómi Kristjáns Péturssonar. Loks skal þess hér getið, að dómsmálaráðuneytið hefur á undanförnum árum tvívegis veitt Rannsóknastofumni umtalsverðan fjárstyrk til kaupa á tækjum sem notuð eru við réttarefna- fræðilegar rannsóknir. Hafa þvi mál þessi fremur mætt velvilja en skilningsleysi í ráðuneytinu. Rannsóknastofu í lytfjafræði, 6. jan. 1972. Þorkeli Jóhannesson. VIÐSKIPTAFRÆÐINGUR Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir að ráða viðskiptafræð'iig eða mann með hliðstæða menntun til starfa. Væntanlegir umsækjendur hafi samband við starfsmannadeild hið fyrsta. RAFMAGIMSVEITUR RlKISINS, LAUGAVEGI 116 — SÍMI: 17400. Hús í Vesturbænum tíl leigu frá næstu mánaðarmótum. Á efri hæð eru þrjú herbergi, á neðri hæð er eldhús, eitt herb og þrjár litlar stofur Þeir, sem gætu útvegað góða og trausta manneskju til heimilisstarfa 3—4 klst. á dag. fimm daga vikunnar, ganga fyrir. Tilboð sendist Mbl. fyrir 12. janúar, merkt: , Vesturbær — 5566’ . HUSEIGENDUR Á HITAVEITUSVÆÐUM Hitna sumir miðstöðvarofnarnir illa? Er hitaveitureikningurinn óeðlilega hár? Ef svo er þá er ha'gt að lagfæra það, Þið, sem ætlið að láta mig hreinsa og lagfæra miðstöði arkerfið liafið samband við mig sem fyrst, og ég mun segja yður hvað verkið mun kosta, — Ef verkið ber ekki árangur þurfið þér ekkeit að greiða fyrir vinnuna Baldur Kristiansen pípulagningameistari, Njálsgötu 29. Sími 19131. Verzlunarhúsnæði til leigu í GLÆSIBÆ Höfum ennþá til ráðstöfunar húsnæði í verzlunarmiðstöð okkar GLÆSIBÆ HUSNÆÐI FYRIR NOKKRAR SERGREINAR, SVO SEM: KVEN- OG BARNAFATNAÐ — BÚSÁHÖLD — HEIMILISTÆKI — ÚTVARPS- OG SJÓNVARPSTÆKI OG EF TIL VILL EITTHVAÐ FLEIRA xuiisimuu,

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.