Morgunblaðið - 08.01.1972, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 08.01.1972, Blaðsíða 14
14 MORGUNiBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 1972 Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraidur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson. Aðstoðarritstjóri Styrmir Gunnarsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Augiýsingastjóri Ami Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla Aðaistræti 6, simi 10-100. Auglýsingar Aðaistræti 6, sími 22-4-80. Áskriflargjaid 225,00 kr. é mánuði innanlands. I lausasölu 15,00 kr. eintakið. VÍSITÖLUFÖLSUNIN A ð undanförnu hafa orðið talsverðar umræður um þær fyrirætlanir vinstri stjórnarinnar að fella svo- kallaða nefskatta, þ.e. al- mannatryggingasjóðsgjald og sjúkrasamlagsgjald, út úr vísitölunni, en innheimta þá síðan sem tekjuskatta utan við vísitölu. Ef þessar fyrir- ætlanir næðu fram að ganga, gæti ríkisstjómin með þess- um hætti lækkað allt kaup- gjald í landinu um 4% — og raunar nokkru meira — og notað það svigrúm síðan til að mæta nýjum verðhækk- unum. Þannig væri tekin aft- ur öll sú almenna kjarabót, sem vinstri stjórnin segir nú, að menn hafi fengið í desem- ber. Lögum skv. á kauplags- néfnd að reikna vísitöluna út, og vel má vera, að hún hrindi þeim fyrirætlunum, sem rík- isstjómin hefur á prjónun- um, annaðhvort með því að fella nefskattana út úr vísi- tölugrundvellinum og láta þá liði, sem eftir standa, vega jafri þungt og allir liðir vísi- tölunnar nú gera — eða með þeim hætti að taka tekju- skattana inn í vísitölu í stað nefskattanna og sjá þannig um, að grundvelli hennar sé ekki raskað. Dr. Guðmundur Magnús- son, prófessor, ritar grein um þetta mál í Mbl. í dag. Um það segir hann m.a.: „Það vandamál, sem um er að ræða er samsvarandi því, að skótegund, sem væri í vísitölunni, hyrfi af markað- inum. Eðlilegast væri þá að taka aðra skótegund inn í vísitöluna í staðinn — eins og reyndar er gert í slíkum til- vikum. Þar sem samkomulag varð hins vegar um það á sín- um tíma milli vinnuveitenda og launþega að tekjuskattur og tekjuútsvar skyldu ekki vera í vísitölugrunninum, en hins vegar nefskattar og sölu- skattur, kemur einnig til greina að fella nefskattana úr í grunninum og þyngja vægi annarra liða vísitölunnar, þannig að hún verði óbreytt.“ Naumast getur hjá því far- ið, að launþegasmatök eins og ASÍ og BSRB taki mál þetta upp, þegar greitt hefur verið úr því. Ella væru þau að sætta sig við meira en 4% kjaraskerðingu, vegna þessara fyrirætlana. Ályktun S.Þ. um eiturlyf Á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna, sem nýlega er lokið, var m.a. samþykkt sam- hljóða ályktun, sem ís- Ienzka sendinefndin flutti um þá hættu, sem æsku heimsins stafar af neyzlu eiturlyfja. Oddur Ólafsson, alþingsmað- ur, sem sæti átti í íslenzku sendinefndinni, mælti fyrir þessari tillögu. Samþykkt Allsherjarþings- ins í eiturlyfjamálunum er fimmþætt. Þar er í fyrsta lagi hvatt til þess, að efldur verði sjóður til eftirlits með eitur- lyfjum. í öðru lagi er lagt til, að þær stofnanir samtakanna, sem fjalla um eiturlyfjamál- in, veiti vanþróuðum ríkjum nauðsynlega aðstoð í þessum efnum. í þriðja lagi er skorað á ríki veraldar að setja lög- gjöf gegn neyzlu þessara lyfja. í fjórða lagi eru stjórn- völd hvött til þess að auka fræðslu meðal æskufólks um þær hættur, sem neyzla slíkra lyfja hefur í för með sér. Og í fimmta lagi er þess óskað, að gerð verði skýrsla á veg- um Sameinuðu þjóðanna um það, hvernig efla megi starf- semi samtakanna í baráttunni gegn eiturlyfjum. Ástæða er til að fagna því framtaki íslenzku sendinefnd- arinnar á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna að hafa frumkvæði um þennan til- löguflutning. Á undanförnum árum hafa ' fulltrúar íslands á þessum alþjóðlega vett- vangi látið æ meira til sín taka í málefnum, sem athygli hafa vakið. Eiturlyfjavanda- málið verður sífellt stærra og ljóst er, að það verður ekki hamið nema með nánu sam- starfi þjóða í milli. Vonandi verður þetta framtak íslend- inga til þess að stuðla að auk- inni samvinnu á þessu sviði. Skák og áróður rnn liggur ekki ljóst fyrir, ^ hvort Skáksambandi Is- lands tekst að hreppa stóra yinninginn, þ.e. að standa fyr- ir einvígi um heimsmeistara- titilinn í skák í Reykjavík. Hitt er Ijóst, að forystumenn Skáksambandsins hafa geng- ið ötullega til verks, þegar ís- landi gafst kostur á því að gera tilboð í þetta einvígi, sem vekja mun heimsathygli. Það framtak er þakkarvert. í sambandi við umræður um einvígisstaðinn hefur Morgunblaðið átt sérstakt samtal við áskorandann, Bobby Fischer, og birtist það Bjartmar Guðmundsson: Frá einu til annars Leika sér með ljóni lömb í Paradís EIGINLEGA á þetta að verða leiðrétt- ing á vísunni um úlfinn, lambinm og heyið í pokanum, sem kom afbökuð í Góðviljanum á gamlársdag. En fyrst er þá þess að geta, að ég vakniaði eldsnemma þann dag og fór að lesa í blaðinu mínu, fyrst af öllu vita- s'kuld. Þar sé ég þá þessar heljargreinar frá öli um okkar foringjum til hægri og vmstri. Gylfi byrjar, vaskur og vígreifur og er sízt að sjá að búið sé að kljúfa flokk hans í beltisstað. Það er að segja niður að nafla. Hannibal er einis og borinn á gullstóli af öllum öldungum bæði af karlkyni og kvenkyni. Enda hafði flokkur Sigurvins og fleiri á vori næst- liðnu sett hund í alla lífsreynislu og piparjómfrúr honum til framdráttar á kostnað vitsmunanna. Þórarinn talar ósköp vel um unga íhaldsmenm, rétt eins og hann ætti þeim að þakka tilkomu stjómarinnar nýju. Ragnar er með fýlu úti í homi, en þakkar þó fyrir að fá að koma í Höllina, sem kennd er við morgun lífsinB. Síðasfur fer svo Jóhann formaður eins og húsbóndi á hæla göf- ugum gestum. Segi menn svo að þetta sé ekki blað allra flokka og stétta Ég varð svo hamimgjusamur að sjá þessa sönnun svarta á hvítu, að ég hljóp út um víðan völl í suddann og súldina. Þar mætti ég sjálfum útgefanda Góðviljans í gras- garðinum og segi um leið si svona’ — Ertu búinn að sjá Bladdann? — Ertu búinn að sjá Viljann okkar? svaraði hann drjúglega. Góðviljann, meiningin, Þá varð ég að gjialti, því að ég hef aldrei tfimt að kaupa hann fyrir 2000 kall. Sýndi mér svo inn í gripinn, hvar saman er þá komin öll heila hers- ingin af litríkustu pennum ríkisins: Eykon, Matthías, Kristján rithöf., Tynes, Gylfi, Ragnhildur og Bjöm í Mýri. Og al.lt ber þetta upp á sama daginn á báð- um bæjunum. Höfðatalan er þó öllu ljúf- ari hjá déskotans Viljanum, Nú. Ég glugga svo í þetta ritgerða- sáfn. Eyfcon og Matthías eru að leggja upp á fjöll fyrir austan að leita að manni ársiina 1971, og snúa baki í örverpi amánarinnar, því að það er fúlegg eins og hjá hænum, sem engam hafa hanann. Kristján Alb. er búinn að finna mann- inn, eiginlega 4 ráðherra, sem eru svik- arar við Stalinismann og sviku um leið og aðrir sviku. Ragnhildur hefur fundið sjarmerandi karlmann en konu enga og er sá vörpulegur eigi lítið og er þá jafnt á komið því að hún er íkveikja. Sá heitir Jón Skaftason. Óli Tynes er fundinn fyrir handan Kínamúr og austen við Tjald og er þar maður ársins og Ræðan ræða aldanma. Gylfi fanm sinn í Karli Guðjónssyni, aem lét fyrir hann líf og blóð. Nema það hafi verið Njörður for- maður, sem bezt lýsti tryggð sinni bak við dkenminm. Og eftir því sem þarna segist í Viljanum hefur Björn í Mýri lært vísu, að sönnu rammvitlausa, sem svona er rétt með farin: Hvernig flutt voru yfir á úlfur, lamb og heypokinn? Bkkert granda öðru má, eitt og mann tók báturinn. Maður ársins í munni Björns er ólafur hans náttúrlega og um leið lambið í bátnum. Úlfurinn heitir Lúðvík og Hanmibal er hey í poka. Lambið hefur enga lyst á heyi úr Selárdal og úlfurinn þorir ekki til við lambið, því að þá er hætt við að fyrir honum fari ein« og Stalín sáluga. Sjá svo allir eins og BjÖrn at hverju samlyndið er svona elskulegt í byttunni. Hvað er þetta? segi ég við útgefanda Góðviiljaina, þegar ég er búinn að glugga nægju mína I þessi sjö ritverk. Þetta sýnist allt vera falsað. Þá hummaði nú heldur betur í okkar manni: — Falsað! sagði hann. Hér til hefur engirnn falsað fréttir nema þeir í Bladd- anum. Þessi þróun í blaðamennskunni er okkar á milli sagt, að þakka nýju press- unni, sem báðar stjórnirnar voru svo elskulega sammála um að koma upp. Og svo bætti hann við eins og dðlítið út undir sig: — þegar þið komið með 4 úr okkar hópi í Blaðinu skulið þið sjá framan í 7 af ykkar ljósum í Vilj- anum okkar. Jæja, mitt Blað varð nú samt sem áður á undan í frjálslyndimu, því að það kernur út á undan öllum öðrum á morgn- ana. Eirnu sinni var svo mikill Fróða friður í Danaveldi af völdum góðrar ríkisstjórnar, að gullbaugur lá á vegum úti, án þess nokkur hirti, í 50 ár. Svo frómir voru þegnarnir. Allir töluðu þá vel um alla og datt sízt í hug að líkja vinum sínum við Lyga-Merði eins og Góðviljanum okkar hefur hent í fúlustu alvöru hér til. Nú er því lokið. Annar gullbaugur, enn frægari, var líka til í útlandinu forðum tíð. kaUaður Draupnir og hafði sá þá náttúru að geta getið af sér einisamall annan jafn hófugan 9. hverja nótt. Harnrn er úr hvíta- gulli. Hann gæti nú verið hingað kom- inn, loksina, loksins, og farinn að auka kyn sitt, svo líf og land tefcur nú að glóa í gulli og gensemum senn hvað meira líður á nýbyrjað kjörtímabil. Ákveðin þátttaka í 8 kaupstefnum 1972 ÚTFLUTNIN GSMIÐSTÖÐ iðn aðarins er nú að undirbúa þátt- töku í kaupstefnum á árinu 1972. Þegar hefur verið ákveðin þátt- taka í 8 kaupstefnum — að því er segir í fréttatilkynningu frá Útflutningsmiðstöðinni. 9. til 12. marz verður sýndur sportfatnaður úr ull og skinnum í Munchen, 12. til 15. sama mán- aðar tízkufatnaður úr ull og skinnum á Scandinavian Fashi- on Week í Kaupmannahöfn, 12. til 21. marz ýmsar vörur, þar á meðal matvæli á vorkaupstefn- unni í Leipzig, 19. til 23. marz tízkufatnaður úr ull og skinnum á Mode Woohe í Munohen, sömu daga Skinnavara í Frankfurt, 29. apríl til 2. maí gull og silfur- munir í Kaupmannahöfn, 10. maí til 14. maí húsgögn í Kaup- mannahöfn og 2. til 5. september ýmsar vörur á haustkaupstefn- unni í Þórshöfn í Færeyijum. Þá er í athugun að taka þátt í sýningum í Kanada, Skotlandi og Englandi. Mun Útflutningsmið stöðin annast allan sameiginleg- an undirbúning fyrir þessar sýn- ingar og sér um stjórn sýninig- ardeildanna á staðnum. fslenzk fyrirtæki hafa tekið þátt í öllum ofangreindum sýnimgum áður. hér í blaðinu í fyrradag. Ýmislegt í þessu viðtali vekur athygli og þá ekki sízt um- mæli Fischers um viðhorf Sovétmanna til skáklistarinn- ar. í samtalinu við Morgun- blaðið sagði Bobby Fischer m.a. um viðhorf Rússa: „Þeir vilja ekki að skáklistin öðlist neinar vinsældir utan Sovét- ríkjanna. Þeir vilja halda heimsmeistaratitlinum til ei- lífðar, þannig að skákmeist- arar frá Vesturlöndum eigi enga möguleika og falli út úr íþróttinni. Það versta, sem gat komið fyrir Rússa, er þetta einvígi. Þeir eru alls ekki hrifnir af því. Rússar líta ekki á málið út frá sjón- arhóli íþróttaandans eða skákheimsins. Allt og sumt, sem þeir hugsa um, er gagnið af skákinni fyrir áróður sinn.“ Enginn dómur skal lagður á þessi ummæli Bobby Fisch- ers. En óneitanlega vekur það athygli, að einn fremsti skákmaður heims í dag skuli líta svo á, að í Sovétríkjun- um telji menn, að skáksnilld þarlendra manna eigi einnig að gegna áróðurshlutverki fyrir Sovétríkin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.