Morgunblaðið - 08.01.1972, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 08.01.1972, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐÍÐ, LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 1972 17 — Þjóðarhagur Framhald af bls. 15 atvinnuvegirnir og þjóðarbúið gætu staðið undir þvi, að veita launþegum 20% kaupmáttar- aukningu, lengingu orlofs og styttingu vinnuvikunnar. For- sætisráðherra svaraði því skýrt og afdráttarlaust. Svar forsætis- ráðherra var þannig: „Að sjálfsögðu var ríkisstjórn- in búin að kynna sér þau gögn, seni lágu fyrir og þær upplýsing- ar, sem hún fékk í hendur frá ýmsiun aðilum, áður en hún gaf Bina yfirlýsingu út. Þetta var hennar mat þá á þeim gögnum, sem fyrir lágu, að þannig væri hægt að standa að málum, að því markmiði, sem þar var sett fram, yrði náð.“ Engin fráfarandi ríkisstjórn hefur fengið jafn góða kvittim og viðreisnarstjórnin fyrir út- tekt á þjóðarbúinu, eins og for- sætisráðherra gaf með yfirlýs- ingu sinni. Yfirlýsing forsætisráðherra er eðlileg og sanngjörn frá hans hendi og studdist við raunveru- legt mat á stöðu atvinnuveganna og úttekt þjóðarbúsins við stjórn arskiptin. Fjárlög fyrir árið 1971 voru afgreidd af raunsæi. Tekj- ur fjárlaganna voru áætlaðar 11.534 milljónir króna, en gjöld- in 11.023 milljónir kr. Tekjur umfram áætlun fjárlaga 1971 námu 1300—1400 milljónum kr. vegna óvenjulega mikilla toll- tekna. Á miðju ári 1971 þótti augljóst, að miki'll greiðsluaf- gangur mundi verða á árinu, en reyndin verður sú, að greiðslu- halli mun hafa orðið verulegur á sl. ári. Rikisstjórnin, í glað- værð sinni, taldi óhætt að greiða stórar fjárhæðir utan fjárlaga en hafði ekki yfirsýn yfir hvað hæfiilegt væri i þvi efni. Það skai tekið fram, að greiðsluhalli hefði enginn orðið vegna hækk- aðra bótagreiðslna til gamal- menna og öryrkja, ef margt fteira og stærra hefði ekki konv ið tiL FJÁRLAGAAFGREIÐSLAN Fjárlög fyrir árið 1972 voru af- greidd síðustu daga fyrir jól. Tekjur á fjárlögum eni að þessu sinni áætlaðar 16.898 millj. kr. en gjöldin 16.549 millj. kr. Gjaldahlið fjárlaga 1972 hækk- ar um 5.526 millj. kr. frá sl. ári. Ekki er að undra, þótt margir hafi áhyggjur af slíku heljar- stökki. Fram á síðustu daga var því haldið fram, að 2000 millj. kr. mundi vanta í tekjuáætlun- ina ttl þess að afgreiðsla fjár- laga gæti farið fram án greiðslu- halla. Það þótti þvi mikil fjar- stæða, þegar því var haldið fram, að tekjuvöntun væri a.m.k. 3.600 millj. kr. en ekki 2.000 millj. kr. Seinna kom i ljós, að tekjuþörf- in var ekki minni en 3.600 millj. kr. Fjárþörf vegasjóðs, 250 millj. kr. var ekki tekin tiil greina, og útflutningsuppbætur á búvörur voru ekki áætlaðar á raunhæfan hátt. Til þess að ná endum sam- an, var lagt fram frv. um tekju- og eignaskatt, rétt fyrir jól. Verður það væntanlega lögfest, þegar þing kemur saman að nýju. Talið er, að þau lög muni gefa ríkissjóði 1600—1700 millj. kr. í nýjum tekjum á árinu 1972. Auk þess voru tekjur af ýmsum tekjustofnum fjárlaga hækkaðir i tekjuáætluninni ein® og þörf var á, til þess að greiðslujöfnuð- ur næðist á pappírunum. SKATTAFRUMVÖRPIN Deilt hefur verið um áhrif væntanlegra laga um tekju- og eignaskatt. Stjórnarsinnar hafa haldið því fram, að skattahækk- unin verði sáralitil vegna þess- ara laga. Um það er ástæðulaust að deila, þegar skattseðillinn kemur verður sannleikurinn ekki dulinn. Sannleikurinn um stórfelldar skattahækkanir á flesta skattþegna þjóðfélagsins. Margir hafa um þessar mundir áhyggjur af ógæfulegri fram- vindu mála í efnahags- og fjár- málurn landsins. Sumir athugulli og gætnari stuðningsmenn rikis- stjórnarinnar sjá, hvað er að gerast. Reyna þeir stundum að skýla óánægju sinni með góðlát- legu gríni. Björn Pálss'on ræddi um fjárlögin við lokaafgreiðslu þeirra. Hann benti á dugnað og snlli núverandi ríkisstjórnar, «em hækkaði fjárlögin í einu átaki um 5.500 mililj. kr. án þess að hækka skattana!! Það hefði tekið fyrrverandi rikisstjórn 5 ár að hækka fjárlögin um sömu upphæð, sagði Björn Pálsson. Fjárlögin eru glæfraleg að þessu sinni, og munu reynast verð- bólguvaldur. Stefnan í fjármál- um og atvinnumálum býður heim miklum vanda i efnahagsmálum þjóðarinnar. Fyrir tæplega 6 mánuðum, þegar ríkisstjórnin tók við völdum var staða at- vinnuveganna, að hennar dómi þannig, að fært þótti að gefa launþeguim ioforð um 20% kaup- máttaraukningu á næstu tveim- ur árum, auk vinnutímastytt- ingar og aukins orlofs. STJÓRN EFNAHAGS- OG FJÁRMÁLA ER I MOLUM Síðan ríkisstjórnin komst til valda er margt breytt. Stuðn- ingsmenn rikisstjórnarinnar voru bjartsýnir fyrir 6 mánuð- um. Þá trúðu ýmsir því, að rikis- stjórn sú, sem taldi sig vera stjórn „vinnandi stétta" mundi veita almenningi bætt lifskjör og aukinn kaupmátt launa. Nú muniu þeir vera fáir, sem reikna með þeim möguleika eftir þá reynslu, sem feng- in er. Framfarastefnu fyrr- verandi ríkisstjórnar hefur verið kastað fyrir borð. Stjóm efnahags- og fjármála er í mol- um. Fjárlagaafgreiðslan ber með sér ábyrgðarleysi og kyndir und- ir verðbólguna. Þegar þannig er að málum staðið, getur enginn búizt við þvi, að kaupmáttur launa verði aukinn þótt kaupið hækki í krónutölu. Við þau skil- yrði má búast við, að þjóðar- hagur sé í hættu og lífskjör al- mennings fari versnandi með minnkandi kaupmætti launa. — Saltfiskur Framhald af bis. 28. ítaiiu 4 þús. tonn að verðmæti um 248.2 millj. kr.; til Grikk- lands 1.937 tonn að verðmæti um 106.4 millj. kr.; til V-Þýzkalands 1.046 tonn að verðmæti um 52.6 millj. kr.; til Englands 500 tonn að verðmæti um 21.1 millj. kr.; til Ástralíu 20 tonn að verðmæti 1.1 millj. kr. og til Svíþjóðar 25 tonin að verðmæti um 1.4 millj. kr. ★ ÞURRFISKUR Útflutningur þurrfisks skipt- ist þannig eftir löndum: tonn: Portúgal 1.188 Brasilía 953 Panama 247 Frakkland 96 Kongó 55 Italiía 30 Vestur-Þýzkaland 17 Bandaríkin 11 England 4 Samtals: 2.601 Eftir tegundum skiptist fram- leiðslan þannig: Af þorski fóru alls 3.800 tonn I þurrfisk, afskip- uð eru 1.651 tonn, en 2.150 tonn eru áætluð ófarin. Af ufsa hafa 1700 tonn farið i þurrfisk, 742 tonn hafa þegar verið afskipuð, en 960 tonn eru áætluð ófarin. Af löngu hafa 400 tonn farið i þurrfisk, þar af hefur 117 tonn- um verið afskipað, en 280 tonn eru áætluð ófarin. Af keilu fóru 100 tonn í þurrfisk, þar af hef- ur þegar verið afskipað 32 tor*n- um, en um 70 tonn eru áætluð ófarin. Úrgangur nemur 300 tonnum, þar af er þegar afskíp- að 59 tonnurn, en 240 tonn eru áætluð ófarin. Samtals eru 3700 tonn áætluð ófarin, en af því magni eru þegar seld 12—1400 tonn til S-Ameríku, sem afskioa átti i desember og janúar, en hefur tafizt vegna farmannaverk fallsins. Tómas kvaðst þó vona að takast mundi að afhenda þetta magn fyrir páskaföstuna. Til viðbótar þessu hafa 900—1100 tonn verið seld til Portúgal. Verð hækkanir á öllum tegundum nema 32% miðað við síðari hluta árs 1970. * NÝIR MARKAÐIR Tómas sagði, að þurrfiskur hefði ekki áður verið seldur til Frakklands og V-Þýzkalands, en gert væri ráð fyrir áframhald- andi útflutningi til þessara landa. Þá hefði verið gert ráð fyrir, að útflutningur væri hafinn til Puerto Rico ef ekki hefði komið til yfirstandandi verkfalls á kaup skipaflotanum. Tómas kvaðst þó vona, að af sölunni yrði þrátt fyrir verkfallið. Ennfremur kvað hann ráð- gert að hefja útflutning til Brasilíu af þurrfiski i pappaköss- um í byrjun þessa árs, sem væri algjör nýlunda hér á landi. Kass- arnir náðu hins vegar ekki til landsins fyrir verkfallið, svo að einhver bið verður á þvi að þess- ar tilraunir geti hafizt. •k AUKNING ÞURRFISKFRAMLEIÐSLU Síðustu árin hefur saltfiskur verið tekinn til þurrkunar sem hér segir: 1966 — 2.000 lestir — 7% af ársframleiðslunni. 1967 — 1.800 lestir — 7,5% af ársframleiðslunni. ~~2Tr. ^ et rr ir 1968 — 5.000 lestir — 13% a£ ársframleiðslunni. 1969 — 5.600 lestir — 20% af ársframleiðslunni. 1970 — 6.200 lestir — 19% af ársframleiðslunni. 1971 — 9.500 lestir — 27% af ársframleiðslunni. 1 þessu sambandi sagðl Tómas, að eitt stærsta vandamálið varð- andi svona aukningu á fratn- leiðslu væri geymslan á fiskin- um, bæði fyrir vöskun og þurrk- un, og eins eftir fullverkun á meðan fiskurinn bíður afskipún- ar, einkum yfir sumartímann. Kvað Tómas brýna nauðsyn á því, að koma upp kæligeymslum í þessu skyni, en til þess að svo mætti verða, þyrfti að koma tii fyrirgreiðsla frá opinberutn lánastofnunum. Annars kvað hann aukninguna á þurrfiski eiga að nokkru rót sína að rekja til lokunar skreiðar markaðs í Nígeriu, en siðustu ár- in, sem þangað var selt, fóru þangað um 7—8000 smálestir af skreið á ári, en það svarar til 40—50.000 lesta af fiski upp úr sjó, að sögn Tómasar, eða 14—16 þús. lesta af saltfiski. Mikið af þessum fiski verður ekki sölu- vara nema þurrkaður, en Tómas gat þess, að þar sem aðstaða væri til frystingar færi betri fiskurinn yfirleitt i þá verkun, en saltendur yrðu að skapa verð- mæti úr þeim fiski, sem lakarí er. Væri það ekki alltaf auðvelt verkefni að finna nýjan markað fyrir þessar lakari gæðategund- ir. * SÖLUAUKNING MÖGULEG Tómas sagði, að um framtíð saltfiskverkunar hér eins og mál- in stæðu í dag væri ekki unnt að segja annað en að kleift ætti að vera að selja mun meira magn en til væri í landinu. Ekki væru neinar slíkar blikur á lofti, sem gæfu tilefni tU svartsýni í þessari framleiðslugrein í ár. Tómas sagði að endingu, að verulegar verðhækkanir hefðu fengizt á sl. ári eða 39.9% að meðaltali. Slík hækkun á mat- vælum væri geysilega mikil og því ekki nema eðlilegt að markaðirnir þyrftu aðlögunar- tima fyrií slíka hækkun. Þó taldi Tómas ekki loku fyrir það skot- ið, að einhver verðhækkun kynni að fást á þessu ári. — „Fábjánar . . .“ Framhald af bls. 15 ræður, sem við áttum við einn fylgdar- mann okkar um stöðu Tvardovskys og starf. Ritstjórinn hafði þá nokkru áður sætt harðri gagnrýni innan miðstjórnar kommúnistaflokksins vegna stefnu Novi Mir. Því var haldið fram, að tímaritið hefði varasöm áhrif á æskufólk, ýtti undir gagnrýni þess og yki á, bölsýni þess um framtíð kommúnisks þjóðskipu lagis. Fylgdarmaður okkar sagði, að margir óttuðust, að hann missti sæti sitt í miðstjórninni og jafnvel.ritstjórastarf- ið, en færi svo, yrði það mikið áfall fyrir al'la, sem biðu bjartari tíma í Sov- étríkjunum. Hann sagði, að leið sú, sem Tvardov- sky hefði valið — og helzt mætti líkja við línudans, því að lítið mætti út af bera svo ekki hlytist illt af — væri hin eina hugsan.lega í sovézku þjóðfélagi, opinber andstaða við stjórnvöldin leiddi beint til glötunar hvers sem slíkt reyndi. Fylgdarmaður okkar klykkti út með því, að Tvardovsky væri stórkost- legur maður og væru fleiri slíkir liefðu breytingar í frelsisátt orðið örari í Sovétríkjunum. * „SVONA FER STUNDUM FYltlR SKÁLDUM“ Við íslenzku blaðamennirnir höfðum óskað eftir því að fá að heimsækja Novi Mir og ræða við ritstjóra þess — og urðum þvi mjög vonsviknir, þegar í Skrifstofu blaðsins kom og okkur var tjáð, að Tvardovsky gæti ekki komið og talað við okkur. Þess í stað mundi fram- kvæmdastjóri tímaritsins, Zax að nafni, og nokkrir blaðamannanna leysa úr spurningum okkar. Við ræddum við þá góða stund en þeg- ar við vorum að fara út úr herbergi Zax, kom Tvardovsky fram á ganginn og bauð okkur inn til sín. Við sáum fljótlega, að hann var maður býsna ólík- ur þeim, sem við höfðum áður rætt við. Hann var meðalmaður á hæð, nokkuð þrekvaxinn og ljós yfirlitum, hlýlegur og glaðlegur í framkomu og undarlegt sambland trega og kímni í ljósbláum augunum. Mig lan.gar að tilgreina nokkur orð úr grein um þessa heimsókn, sem birtist í Morgunblaðinu í júní 1966: „Sökum óbrigðular riddaramennsku félaga minna (konur fyrst o.sv.frv.) neyddist ég til þess að hefja viðræðurnar við Tvardovsky. Þegiar ég kvaðst verða að viðurkenna að ég þekkti ekkert til hans nema af fréttunum af nýafstöðnu flokksþingi, þar sem hann hefði orðið fyrir gagnrýni vegna starfs síns við Novi Mir, hló Tvardovsky glettnislega og sagði: „Já, þér eruð ekki ein um það — það eru örlög mín að vera kunnari af afstöðu minni til stjórnmála og þeirra til mín en af skáldskap mínum. En svona fer stundum fyrir skáldum.“ Tvardovsky sagði okkur síðan ýmis- legt frá barnæsku sinni í Ukrainu og lífinu þar á styrjaldarárunum og rætt var lítilsháttar um skáldskap hans og an.narra. Nokkrum vikum eftir þetta var kvæði eftir Tvardovsky fært upp í leikbúningi í helzta tilraunaleikhúsi Moskvuborgar og olli þá miklum úlfa- þyt. Það varð tiilefni harðra árása á leik stjórann og Tvardovsky stóð eftir þetta enn hallari fæti. En hann hélt dauðahaldi í starf sitt við tímaritið — og það var ekki fyrr en í fyrravetur að andstæðingum hans tókst að bola honum burt úr ritstjóra- stólnum. Þar með leið endanlega undir lok frelsisbarátta Novi Mir, undir for- ystu Alexanders Tvardovsky3. ★ ÞJARMAÐ AÐ VINUM SOLZENITSYNS Blómatími Novi Mir voru stjórnarár Nikita Krúsjeffs og þá kom Solzhenit- syn fyrst fram í dagsljósið sem mikill rithöfundur, er Novi Mir birti sögu han« „Dagur í lífi Ivans Denisovich.“ Þetta var hlákutímabilið eftirminnilega, sem kveikti vonir um bjartara líf í Sovét- ríkjurium eftir áratuga vonleysi við kúgun og einræði Stalíns. Kyndilberar andlegs frelsis fengu þá miklu meira svigrúm en nú, þótt Vest- urlandabúum þætti skammt gengið. En eftirmenn Nikita Knisjeffs í stjórnar- búðunum í Kreml hafa á siðustu árum slökkt hvern vonarneistann af öðrum. Hver einasta frelsiskrafa er kæfð og er Bukovsky síðasta dæmið um þá stefnu. Að Solzhenitsyn hafa margar atlögur verið gerðar að undanförnu og er þess skemmst að minnast, er cellósnilling- urinn Mstislav Rostropovich kom hon- um til varnar og tók hann á heimili sitt í fyrra og var kyrrsettur heima fyrir mánuðum saman þess vegna. Nýlega fréttist frá Moskvu, að því er brezka stórblaðið „The Times“ segir, að tveir rithöfundar, sem vitað er, að voru vinveittir Solzhenitsyn, hafi verið reknir úr rithöfundasambandinu, þeir Yevgeny Markin, sem nýlega orti tvö kvæði um Solzhenitsyn og Alexander Galich, sem er vinsæll leikritahöfundur og lagaismiður. Segulbönd með lögum hans hafa gengið manna á milli og sagt hefur verið að Galich sé sovézkri ljóða- sönglist það sem Solzhenitsyn er sov- ézkum bókmenntum. Söngvar hans, sem hann syngur eða mælir fram með gítarundirleik, fjalla um misbeitingu valds, hræsni opinbers áróðurs og fang- elsun pólitískra andstæðinga valdhaf- anna í Kreml. Vafalaust gerir Solzhenitsyn ráð fyr- ir því að enn frekar verði að sér vegið. Hann virðist staðráðinn i því að láta ekki þagga niður í sér baráttulaust. Það sýna meðal annars skrif hans um útför Tvardovskys og það sýnir einnig bar- átta hans við sænsk yfirvöld, sem ekki hafa til þessa haft kjark til að veita honum Nóbelsverðlaunin opinberlega í Moskvu. Skrif Solzhenitsyns um Tvardovsky sýna í senn reiði hans og sorg. Kannski syrgir hann ekki aðeins vin sinn látinn heldur og ósigur Tvardovskys, — ósigur mannsins, sem reyndi að berjast innan ramma kerfisins en var snúinn niður hægt og bítandi; ósigur mannsins, sem kyngdi ásökunum um, að hann væri tæki í höndum stjórnvaldanna, vegna þess, að hann taldi sig þar með geta unnið andlegu frelsi eitthvert brautar- gengi, ósigur mannsins, sem sagði, að það yrðu örlög sín að verða þekktari vegna stjórnmála en skáldskapar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.